Morgunblaðið - 11.10.1978, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1978
25
félk í
fréttum
+ Ilermennirnir bera hann á
milli sín. — ósærðan með öllu?
Ilér er um að ræða einn hinna
ísraelsku landncma sem höfðu
búið um sig á vesturbakka
Jórdanárinnar. Samkvæmt
samkomulaginu milli ísraels
og Esyptalands í Camp David á
döKunum. eiga allir ísraelsku
landnemarnir á vesturbakkan-
um að flytjast þaðan. Voru
hermenn sendir á vettvang til
þess að sjá um framkvæmd
þessa atriðis samkomulagsins.
Um 100 harðsnúnir landnemar
sem neituðu að yfirgefa lendur
sínar bjuggust til varnar — án
þess þó að beita skotvopnum.
— Og hermennirnir höfðu og
fengið um þaö fyrirmæli að
beita ekki skotvopnum —
þannig forðuðust báðir aðilar
að til vopnaviðskipta kæmi. —
En hermennirnir fjarlægðu
landnemana eigi að síður. með
handafli eins og þessi mynd
sýnir.
*.w , V •
jifc. w
25"
+ EMMY-verðlaun. — í
Bandaríkjunum eru árlega
veitt verðlaun hinum ýmsu
leikþáttum, sem fluttir eru
í sjónvarpi. Fyrir nokkru
fór afhendingin fram.
Emmy-verðlaunin eru sam-
bærileg Óskars-verðlaun-
unum í kvikmyndaiðnaðin-
um. Skemmtiþátturinn
„All in the family“ hlaut
Emmy-verðlaunin að þessu
sinni er kosið var um
skemmtiþætti. — Aðalper-
sónurnar í þessum þætti
eru hjón á heimili, en það
er húsfreyjan, sem leikin er
af Jena Stapleton, sem hér
sést kyssa mótleikara sinn,
Carroll O'Connor, á kinn-
ina, er tilkynnt var um
úrslitin. — Þetta var jafn-
framt 30 ára afmælishátíð
Emmy-verðlaunanna.
+ RIDDARALEGUR.
Hér kveður Menachem
Begin forsætisráð-
herra Israels húsfrú
Rosalynn Carter á
tröppum Hvíta hússins
í Washington. — Ridd-
aralegur í framkomu
kyssir hann á hönd
frúarinnar að skilnaði,
að loknum hinum stór-
pólitíska fundi með
Carter forseta og
Sadat forseta á dögun-
um.
Fimmtugur:
Erik Sönderholm
í Norræna húsinu
Fyrir fáeinum árum mátti heyra
fólk, sem annars var með öllum
mjaila, halda því fram, að tónlist
og iðkun hennar hér á landi væri
beinlínis ógnun við bókmenntir.
Ekki er heldur lengra síðan að
sumir bókaútgefendur og bóksalar
lýstu þeim ugg sínum, að hljóm-
platan útrýmdi bókinni. Frá því að
sögur hofust hafa þær systur,
bókmennt og tónmennt, notið
velgengni hlið við hlið, og engin
ástæða að efa, að svo muni áfram
verða.
Sem betur fer, hafa verið og eru
hér á landi ýmsir þeir, sem vita
þetta mætavel og unna þeim
systrum báðum, án þess að af-
brýðisemi hljótist af. Einn þeirra
er bókmenntasagnfræðingurinn og
málfræðingurinn dr. Erik Sönder-
holm, forstjóri Norræna hússins,
sem í dag er fimmtugur. Fimmtíu
ár éru stutt. augnablik í sögu
langlífra lista. Hann hefur á þeim
tíma þjónað bæði bók- og tón-
menntum, og ólíklega afkastað
meiru, þótt hann hefði einbeitt sér
eingöngu að annarri „systurinni“
og örugglega afkastað minna, ef
orkan hefði farið í að fjandskapast
við hina á meöan.
Ef hugað er að afrekaskrá
afmælisbarnsins, er engu líkara en
að það hafi haft 150 ár til að sinna
hugðarefnunum. Ég veit að bók-
menntamenn kunna að meta og
þakka honum störfin á þeirra
sviði. Tónlistarmenn gera það á
sínu.
I þessum októbermánuði einum
hefur hann virkjað tónskáld um öll
Norðurlönd í tilefni afmælis
Norræna hússins, sömuleiðis hóp
tónlistarflytjenda. Þar að auki
mun hann afreka það, sem öll
safnasaga íslands samanlögð
getur illa jafnað: Hann opnar nýtt
almennt nótna- og hljóðritanasafn
í Norræna húsinu!
Það nægir því ekki að óska Erik
til hsmingju með daginn, heldur
með dagana, árin, öll — og getur
verið að þau séu ekki nema 50?
Þorkell Sigurbjörnsson.
Eigið þér ljósmynd eft-
ir Hallgrím Einarsson?
ERFINGJAR Hallgríms heitins
Einarssonar ljósmyndara gáfu og
afhentu Akureyrarbæ ljósmynda-
tæki hans og ljósmyndaplötusafn
fyrr á þessu ári með tilmælum
um. að efnt yrði til sýningar á
ljósmyndum eftir hann í tilefni
100 ára afmælis hans hinn 20.
febrúar 1978. Bæjarstjórn hefir
þakkað gjöfina og kosið nefnd til
að annast undirbúning sýningar-
innar, sem er fyrirhuguð í nóvem-
bermánuði n.k.
Því vill nefndin nú beina þeim
tilmælum til þeirra, sem eiga
ljósmyndir eftir Hallgrím, að þeir
láti af því vita sem allra fyrst, ef
þeir vilja lána þær til sýningarinn-
ar, og hafi samband við Harald
Sigurgeirsson á skrifstofu Akur-
eyrarbæjar, sími 21000, eða heima,
sími 23915. Einkum hefir nefndin
áhuga á að fá að láni stækkaðar
myndir, hvort sem um er að ræða
myndir af einstökum mönnum,
fjölskyldu- eða hópmyndir, myndir
af mannvirkjum, menningarþátt-
um, atburðum, landslagi eða öðru.
Þess er vænst, að þeir, sem vilja
lána myndir, bregðist við fljótt og
vel, svo að sýningin geti orðiö sem
fjölbreytilegust og tékist sem best.
Með þakklæti.
Sýningarnefnd.
o
GROHE
BB. BYGGINGAVÖRUR HE
SUOURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. (H. BEN. HÚSIÐ)
GROHE ER ALLTAF
MEÐ EITTHVAÐ NÝTT
GROHE = VATN + VELLÍÐAN
Aukin þægindi fyrir notandann, ásamt góöri endingu hefur verið markmiO framleiOanda
Grohe blöndunartækjanna.
Nú eru þeir komnir meO enn eina nýjungina. Einnarhandartæki meö svonefndu
„ÞÆGINDABILi". En þaO virkar þannig aO mesti hluti hreifanleika handfangsins
(kranans) er á hitastiginu frá 30° til 45° (sjá teikningu).
ÞaO er einmitt hitastigiO, sem aO jafnaöi er notaö.
Fylgist meö og notiö réttu blöndunartækin. Grohe er brautryöjandi og leiöandi fyrlrtæki,
á sviOi blöndunartækja.
Fullkomin varahlutaþjónusta og 1 árs ábyrgö, á öllum tækjum.