Morgunblaðið - 19.10.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.10.1978, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 238. tbl. 65. árg. FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Friðarráðstefnan í Washington; Lítið gert úr ágreíningnum Washington, 18. október. AP. Reuter. MJÖG er nú reynt í Washington að gera lítið úr þeim ágreiningi sem upp hefur komið í samninga- viðra'ðum ísraelsmanna og Egypta. Talsmaður viðræðuaðil- anna sagði í dag. að engir óleysanlegir erfiðleikar væru í samningunum og ekkert vand- ra'ðaástand. Talsmaðurinn, Bandaríkjamaðurinn George Sherman. sagði ennfremur að viðra'ðurnar hefðu fram til þessa borið góðan árangur og allir sem ra'ddust við væru vissir um að öll vandamál sem koma kynnu upp mætti auðveldlega leyka. Að því er heimildir herma hefur helzti ágreiningurinn verið um meö hvaða hætti full stjórnmála- leg viðurkenning Egypta á Israels- ríki skuii koma til, þegar Israels- menn draga herlið sitt og land- nema frá Sínaískaga. Sherman blaðafulltrúi sagði í dag að aðeins væri deilt um orðalag en ekki innihald samkomulagsins. Einnig mun deilt um gildistíma samkomulagsins. Israelsmenn vilja að samkomulagið verði ótímabundið, én Egyptar vilja, að sögn heimildarmanna, koma inn ákvæðum um að það tnegi endur- skoða að ákveðnum tíma liðnum. Frá Miðausturlöndum var að öðru leyti það helzt að frétta í dag að Sýrlendingar hafa hafið brottflutning hluta liðs síns frá Líbanon og er fyrirhugað að hermenn Saudi-Arabíu, Jórdaníu og Súdan taki við stöðu þeirra í gæzlusveitum Arababandalagsins. Páfí vel- kominn til Póllands Páfagarði, Varsjá, 18. okt. Reuter. JÓHANNES Páll páfi 2. verður velkominn í heimsókn til Pól- lands hafi hann hug á slikri heimsókn, að því er háttsettur embættismaður í pólska stjórn- arráðinu sagði í dag. Jóhannes Páll er Pólverji eins og kunnugt er, en stirt samband hefur verið milli ríkis og kirkju í landinu. Páli páfa 6. var neitað um heimild til að koma til landsins þegar hann fór þess á leit árið 1966 og hefur starfandi páfi aldrei komið til Póllands, þrátt fyrir að kaþólska kirkjan hafi verið mjög öflug í landinu í meira en þúsund ár. Páfagarður bar í dag til baka sögusagnir um að Jóhannes Páll páfi 2. hefði verið trúlofaður eða kvæntur áður en hann gerðist prestur. Orðrómur hefur verið á kreiki um að páfi hafi verið kvæntur en misst konu sína í þrælkunarbúðum í síðari heims- styrjöldinni. Anatoly Karpov eftir að honum hafði verið sagt að hann hefði sigrað í heimsmeistaraeinvíginu í skák. Karpov brosir gleitt eins og vænta má. Viktor Korchnoi áritar sjálfsævisögu sína í gær fyrir einn vina sinna í Baguioborg á Filipseyjum eftir að Ijóst varð. að hann hafði tapað einvíginu. Aukin bjartsýni í Namibíumálinu Ullsten lagði fram ráðherralistann Stokkhólmi. 18. okt. K.-á önnu Bjarnadóttur. fréttaritara Mbl. OLA Ullsten forsætisráðhera Svía lagði fram í þinginu í dag ráðherra- lista sinn og stefnuskrá stjórnar innar. Ráðherrum fækkar um cinn frá samsteypustjórn borgaraflokk- anna eða úr 20 í 19. Helzti málaflokkur Ullstens f fyrri stjórn var hjálp til þróunarlandanna og verður hann nú í höndum utanrikis- ráðherrans, Hans Blix. Ullsten átti erfitt með að finna réttan mann í embætti iðnaðarráð- herra, sem var áður Nils Gasling, en leysti vandann með að fela embættið Erik Huss, sem þegar hafði fengið embætti orkumálaráðherra. Hinir 6 fulltrúar Þjóðarflokksins sem sátu í síðustu ríkisstjórn, halda allir em- bættum sínum. I nýju stjórninni sitja 6 konur og eru þær færri en von var á. Ræða Ullstens í þinginu var stutt. Hann sagði að til þess að tillögur stjórnarinnar yrðu að veruleika þyrftu þær að vera samþykktar af meirihluta þings. Stjórnin vildi því byggja stefnu sína á sem breiðustum grundvelli. Hann nefndi marga málaflokka sem stjórnin mun vinna að, t.d. menningar-, heilbrigðis- og jafnréttismál, en lagði sérstaka áherzlu á efnahags- og orkumál. Ekki gaf hann nein ákveðin loforð í ræðu sinni. Sjá grein Önnu Bjarnad. bls. 21. Pretoríu. 18. október. AP. Reuter. Utanríkisráðherrar stóryeld- anna fimm héldu í dag frá Pretoríu að loknum viðræðum við stjórn S-Afríku um framtíð Suð- vestur-Afríku eða Namibíu. Liigðu ráðherrarnir ákveðnar tillögur fyrir Suður Afríkumenn um málið. en stjórn S-Afríku tók sér frest til fimmtudags að gefa ákveðið svar við tillögunum. Talið er að í viðræðunum hafi eitthvað miðað í átt til samkomu- lags og er haft til marks um það m.a. að Botha forsætisráðherra S-Afríku boðaði helztu stjórn- málaleiðtoga í Namihíu til Pretoríu í kvöld til viðræðna við stjórn sína. Ekki hefur verið látið uppi í smáatriðum hverjar tillögur hinna vestrænu stórvelda eru, en talið er að þær miðist við að S-Afríku- menn haldi kosningar í Namibíu í desember, eins og þeir höfðu ráðgert, en völd þess þings sem þá verður kosið yrðu mjög takmörk- uð. Síðan yrðu aðrar kosningar á næsta ári samkvæmt áætlun Sameinuðu þjóðanna og undir þeirra eftirliti og í framhaldi af þeim tækju Namibíumenn völdin í landi sínu í eigin hendur. Carter Bandaríkjaforseti hefur boðið Pieter Botha forsætisráð- herra S-Afríku til viðræðna í Washington að því tilskyldu að tveimur skilyrðum varðandi kosn- ingarnar í Namibíu verði fullnægt, en þessi skilyrði eru talin koma fram í tillögunum, sem S-Afríku- stjórn veltir nú fyrir sér. Nifteindasprengjan að hluta til í framleiðslu Washington, 18. október. AP, Reuter. CARTER Bandaríkjaforscti hefur ákvcðið að framleiðsla skuli hafin á helztu einingum nifteindasprengj- unnar svonefndu, þótt enn hafi ekki verið ákveðið hvort sprengjan skuli framleidd í endanlegri mynd. Nift- eindasprengja er kjarnorkuvopn, sem cr þess eðlis að það veldur litlu tjóni á mannvirkjum en er á hinn bóginn mannskætt. Carter ákvað í aprfl s.1. að fresta frekari þróun þessa vopns, en sú ákvörðun hefur nú verið endurskoðuð. „Korchnoi er frábær skák- maður þrátt fyrir allt” sagdi Karpov heimsmeistari í lok einvígisins Baguio, Filipseyjum, 18. október AP, Reuter. Viktor Korchnoi gaf í morgun 32. einvígisskákina í einvígi sínu við Anatoly Karpov án þess að tefla biðstöðuna frekar. Karpov var þar með orðinn sigurvegari cinvígisins og heldur heims- meistaratitli sínum. Lokastaðan í einvíginu er 6 vinningar gegn 5, Karpov í vil. en sá sigraði, er fyrstur vann 6 skákir. Korchnoi var í dag mjög harðorður í garð skipuleggjenda einvígisins og Sovétmanna og sakaði þá um ófyrirgefanlega framkomu í sinn garð. Sagðist hann áskilja sér allan rétt til þess að kæra síðustu skákina í einvíg- inu til Alþjóðaskáksambandsins, en hún hefði farið fram við óþolandi aðstæður. Neitaði Korchnoi síðan að undirrita skjöl til staðfestingar því að skákinni væri lokið, þótt hann segðist viðurkenna að hann gæfi taflið. Skáksambandið í Sviss hefur lýst því yfir að það telji rétt að síðasta skákin í einvíginu verði tefld á ný, en Korchnoi er nú búsettur í Sviss sem kunnugt er. Karpov var að vonum mjög ánægður með sigurinn í dag. Hann sagði að þrátt fyrir allt sem á hefði gengi í samskiptum sínum og Korchnois væri hann þeirrar skoðunar að Korchnoi væri frábær skákmaður. Karpov sendi Brezhnev forseta Sovétríkjanna skeyti í dag og þakkaði honum fyrir veittan stuðning í keppninni og hét því að vinna ótrauður áfram að eflingu sovézkrar skák- listar. I viðtali við sovézk blöð segir Karpov einnig, að hann telji sig hafa gert skyldu sína við föðurlandið með því aö bera sigur af hólmi í einvíginu. Það var enski stórmeistarinn Raymond Keene sem í morgun hr.ingdi í yfirdómara einvígisins, Miroslav Filip frá Tékkóslóvakíu, og tilkynnti honum að Korchnoi hygðist ekki tefla 32. skákina frekar. Var einvíginu þar með lokið og fær Karpov í sinn hlut 350 þúsund Bandaríkjadali en Korchnoi 200 þúsund. Þá hafa Bandaríkjamenn nú einn- ig ákveðið að breyta kjarnaoddum á nokkrum kjarnorkuvopnum sínum í Evrópu þannig að hægt verði að koma nifteindasprengjum fyrir í þeim. Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins sagði í dag, að bandalagsþjóðum Bandaríkjanna hefði verið tilkynnt um þessa ákvörðun. Fundur var í kjarnorkuáætlana- nefnd NATO í Brússel í dag og gaf Harold Brown varnarmálaráðherra Bandaríkjanna þar yfirlit yfir stöð- una í viðræðum stórveldanna um gagnkvæma takmörkun kjarnorku- vopna og skýrði ákvörðun Banda- ríkjamanna varðandi nifteinda- sprengjuna. EBE í mál við Breta Brussol. 18. október. Reutcr. FRAMKVÆMDASTJÓRN Efnahags- bandalagsins ákvað í dag að hefja undirbúning að málsókn gegn Bret- landi fyrir Evrópudómstólnum vegna einhliða aðgerða Breta í fiskvéiðimál- um. Verða Bretar í fyrstu krafðir um skýringar á einhliða atferli sínu en fáist ekki viðunandi skýringar mun málið tekið fyrir dómstólinn, að því er heimildir í Brússel hermdu í dag. Danir, en á þeim hafa einhliða aðgerðir Breta einkum bitnað, hafa ntjög hvatt til þess að Bretar verði dregnir fyrir Evrópudómstólinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.