Morgunblaðið - 19.10.1978, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1978
7
LMHvilfdagT 18. «
------ —
I
á viðavangi
Alþýðubandalagið
og efnahagsmálin
Óframkvænan-
leg stefna
augljósar
blekkingar
Halldór Asgrímsson,
sem var talsmaður
Framsóknarfl. í efna-
hags- og skattamálum í
efri deild AlÞingis
1974—1978, ritar ný verið
grein, sem ðréttuð er í
Víðavangi Tímans í g»r.
Hann segir m.a..
„AlÞýðubandalagið er
sá flokkur sem lengst af
hefur verið stefnulaus í
efnahgsmálum og hefur
ekki fengist til að viður-
kenna grundvallarstað-
reyndir í íslensku efna-
hagslífi. Fyrir
kosningarnar í vor setti
AlÞýðubandalagið fram
„Stefnu í efnahagsmál-
um“ og hafði Þar lausn á
sérhverju vandamáli.
Stefna Þess var að mestu
leyti óframkvæmanleg og
Þar voru augljósar blekk-
ingar, hvort sem Þær
hafa verið settar fram
vísvitandi eða ekki.
AlÞýðubandalagið
lagði Þennan graut til
grundvallar í stjórnar-
myndunarviðræöum en
fljótlega kom í Ijós að fátt
var Þar ætilegt. Forystu-
menn AIÞýöubandalags-
ins létu Þá hafa eftir sér,
að Þeir vildu ekki fella
gengið eða skerða laun
almennings, en engin
leið væri aö fá hina
flokkana ofan af Þessari
fásinnu. Svona hefur
AlÞýðubandalagið Því
miður oft unnið. Þeir eru
tilbúnir til að vera með í
vinsælum aögerðum, en
reyna aö kenna öðrum
um Þær óvinsælu.
Það hefur verið áber-
andi í umræöum stjórn-
málamanna um efna-
hagsmál að deilt er um
eínföldustu staðreyndir í
efnahgsmálum og er
hlutur AlÞýðubandalags-
ins Þar drýgstur. Ef ein-
hver von á aö vera til
Þess aö efnahagsmálum
Þjóðarinnar veröi komið í
sæmilegt horf, verða
stjórnmálamenn að hafa
manndóm til að vinna út
frá staðreyndum í stað
Þess að deila um Þær og
líta á efnahagsmálin í
víðu samhengi sem um-
gerð alls sem gera skal.“
Fást ekki til
aö viöurkenna
einfaldar
staðreyndir
Enn segir Halldór:
„Eitt af Því sem er
staöreynd, sem ekki
verður gengið framhjá, er
að vísitölukerfið hefur
gengið sér til húðar og
Það veröur aö lagfæra, ef
verðbólga á að minnka.
Verðbólga á við Þaö sem
hér hefur verið, leiðir til
óstöðugs gengis og til-
heyrandi gengisfellinga.
Mikill kaupmáttur og
greiðsluhalli ríkisskulda-
söfnunar erlendis.
AIÞýöubandalagsmenn
fást yfirleytt ekki til að
viðurkenna Þessar ein-
földu staöreyndir og
ýmsar fleiri. Þeirra ráö
við verðbólgu er oftast aö
greiöa hana niður meö
einhverjum óljósum tekj-
um og millifærsluleiðum.
Meginviðfangsefni
ríkisstjórnarinnar er bar-
áttan við verðbólguna.
Ríkisstjórn sem ekki lítur
á Þetta viðfangsefni sem
forgangsverkefni eins og
nú er ástatt, ber að segja
af sér. Það stendur Því
allt og fellur með Því aö
stjómarflokkarnir vinni
út frá Þeim óÞægilegu
staðreyndum sem liggja
fyrir í íslenzku efnahgs-
lífi, en fari ekki i feluleik
Þegar erfiöa ákvörðun
Þarf að taka.“
Alþýöubanda-
lagið á
völina og
kvölina
í greinarlok segir H.Á
m.a.: „AlÞýðubandalagiö
verður að gera Það upp
viö sig hvort Það vill vera
Þátttakandi í aö leysa
verðbólguvandann. Ef
svo er verður flokkurinn
að taka raunhæfari af-
stöðu til grundvallar-
atriöa í efnahagslífinu —
undanbragöalaust. Það
verður fróðlegt að fylgj-
ast með afstööu flokks-
ins til fjárlagagerðar,
lánsfjáráætlunar, endur-
skoöunar á vísitölukerf-
inu og vanda útflutnings-
atvinnuveganna á næst-
unni. Það verður að koma
til ábyrg afstaða, ef menn
eiga að hafa minnstu von
um að verðbólgan lækki
og gengið verði sæmi-
lega stöðugt... Þjóðin
ætlast til mikils af Þess-
ari ríkisstjórn, varðandi
lausn verðbólguvandans,
en eftir er að sjá, hvort
hún stendur undir Því
trausti."
Efasemdir um farsæld
stjórnarsamstarfsins
skína í gegn um hvert orð
höfundar. Og Það er
AlÞýöubandalagið sem
hann telur óábyrga og
veika hlekkinn í sam-
starfinu.
Áhaldahús
Kauptilboö óskast í áhaldahús Vegageröar
ríkisins, aö Vegamótum Miklaholtshreppi,
Snæfellsnesi, ásamt 5000 fm leigulóð. Húsiö er
um 180 fm aö stærö meö stálgrind og járnklætt
aö utan.
Kauptilboöseyöublöö eru afhent á skrifstofu
vorri, og veröa tilboð sem berast opnuð þar, kl.
11.00 f.h. 31. okt. 1978.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
BOSCH rafgeymar
Pjetur & TJlfarnir
„PLATAÐIR”
f ' '■",l .. ............*
FYRR MÁ NÚ PLATA
EN HLJÓMPLATA
Stjáni saxófóninn þenur sig
um landiö. Þessi þrumugóöa
plata var aö koma út, og er
rifin út. Láttu plata þig meö
ánægju.
Fæst vonandi enn í næstu
plötubúö.
Pöntunarsímar 92-8389 og
92-8255.
Verið tilbúin í vetrar-
kuldum og frostum.
Öruggari gangsetning
með BOSCH rafgeymi.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
Dadge
Eigum til afgreiöslu fáeina DODGE ASPEN
COUPE 2dr. 1979 á ótrúlega hagstæöu veröi. í
bílnum er m.a. sjálfskipting, vökvastýri, 6 cyl. vél,
diskahemlar aö framan, vinyl-klæöning á þaki, og
deluxe frágangur aö innan og utan.
Verð nú kr. 5.270.000.
Sölumenn Chrysler-sal: 83454 — 83330.
\\fökull hf.
ARMULA 36 REYKJAVÍK Sími 84366
Sniöill h.f., Akureyri, sími 22255
Bílasala Hinriks, Akranesi sími: 1143
Óskar Jónsson, Neskaupstað sími 7320.
EF ÞAÐ ER FRÉTT- f) NÆMTÞÁERÞAÐÍ ' MORGUNBLAÐINU