Morgunblaðið - 19.10.1978, Síða 17
MORGUN BLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1978
17
LáKlendið ætti að verulegu leyti að vera klætt skógi og kjarri
Árni Helgason:
Byggðasafnið
á Akranesi
landsins, tel ég nauðsynlegt að
gera enn einu sinni stutta grein
fyrir því í hverju þessar rannsókn-
ir eru fólgnar, enda þótt þar verði
aðeins drepið á helstu meginatriði.
Megintilgangur gróðurrann-
sóknanna hefur frá upphafi verið
eftirfarandi:
A) Að kortleggja og mæla víðáttu
gróðurlendis landsins.
B) Að flokka gróðurlendið eftir
gróðurfari eða ríkjandi plöntu-
tegundum.
C) Að kanna ástand gróðurlendis-
ins, hvar gróður- og jarðvegs-
eyðing ætti sér stað eða sé
yfirvofandi.
D) Ákvarða beitarþol landsins.
Helstu þættir í ákvörðun á
beitarþoli eru þessir:
af, enda hefur þetta starf verið
unnið af fjölda manna af dugnaði
og samviskusemi. Það er mjög
óvanalegt, ef ekki einsdæmi, að
land sé kortlagt í heild til að
ákveða beitarþol gróðurlendis
þess. Yfirleitt er látið nægja að
kortleggja smá svæði og draga
síðan ályktanir um gróður og
beitarþol stærri svæða út frá
þeim. En hér höfum við notið
smæðar landsins og ekki síst, að
Rannsóknastofnunin og fjárveit-
ingavaldið hafa sýnt þessum
rannsóknum mikinn áhuga og
verið tiltölulega ríflegt í fjárveit-
ingum til þeirra. Auk þess hefur
verulegs fjár verið aflað til þeirra
með styrkjum, hérlendum og
erlendum styrkjum.
Það hefur verið reynt að skýra
sem best og sannast frá þessum
niðurstöðum og vonandi lætur
enginn sér detta þá firru í hug að
ég eða nokkrir aðrir hafi áhuga á
því að mála ástandið dekkri litum
en efni standa til.
Eg vil að lokum taka fram í
þessu sambandi, sem raunar er
auðsætt, að engum er ljósara en
þeim, sem að rannsóknunum
standa, að þær eru alls ekki
fullkomnar frekar en önnur mann-
anna verk. En ég þori að fullyrða,
að þær standa að engu að baki
samsvarandi gróður- og beitar-
þolsrannsóknum í öðrum löndum,
og þess vegna ber að leggja þær til
grundvallar að nýtingu landsins.
UM DAGINN átti ég þess kost að
skoða byggðasafnið á Akranesi
sem er til húsa í gamla
prestsetrinu og nýju húsi að
Görðum. Því miður vannst mér
ekki tími til að skoða það að
verulegu ráði, því bæli er það
umfangsmikið og á stóru flæmi.
En hitt fer ekki fram hjá neinum
að þarna hefir verið unnið stór-
virki á þeim árum sem safnað
hefir verið munum og skilningur
hefir einnig verið geypilegur.
Eg var svo heppinn að séra Jón
M. Guðjónsson og tengdasonur
hans séra Björn voru mínir
leiðsögumenn. Eg gleymdi mér
hreint við að skoða þessar minjar
og það sem á bak við þær eru.
Þarna upplukust tímar liðinnna
ára sem nú eru að hvera fyrir
tæknivæddri öld. Myndirnar og
munirnir, flokkun þeirra og niður-
röðun er slík að undravert er þegar
litið er til þess húsnæðis sem
þarna er í boði. Yfir 7000 munum
mun þarna hafa verið saman
safnað á fáum áratugum og nú
hefir safnið sprengt húsakynnin
og margir munir eru úti í bæ og
vantar því stærri húsakynni. Við
hvern mun eru áritaðar skýringar,
aldur, þar sem því verður við
komið, gefandi skráður og hver
notaði og hvernig.
Heilbrigðisþjónustan í borgar-
firði og hin andlega er þarna í
máli og myndum, sjósóknin, erfið-
leikarnir meðan engin höfn var,
þróunin til fulkominnar tækni allt
er þetta stig fyrir stig sett á svið í
þessu b.vggðasafni og það fer ekki
framhjá neinum hvaða hendur
hafa hér unnið svo ómetanlegt
starf að það verður aldrei til
peninga reiknað. Mikið eiga þeir
Akurnesingar fyrrverandi sóknar-
presti sínum mikið að þakka,
hugsaði ég, og svo munu fleiri sem
líta á þessi handarverk og ég er
öldungis hissa á þessu stórvirki og
veit að þær eru ekki fáar stundirn-
ar sem séra Jón hefir lagt safninu,
enda fór það ekki framhjá mér
hversu annt hann lét sér um hvern
hlut og það var gaman að ganga
með honum um safnið.
Ósjálfrátt varð mér hugsað
heim í Hólminn þar sem búið er að
kaupa undir byggðasafn elsta
húsið í kauptúninu, Norska húsið,
veglegasta húsið á sinni tíð, ímynd
stórhugar Árna Thorlaciusar
kaupmanns. Hugsanirnar brutust
fram. Hvenær verður safnið okkar
komið í sama farveg og þeirra á
Akranesi og hvenær orðið jafn
veglegt og stórt? Og eins: Er ekki
hver stund sem tapast í söfnun
dýrmæt? Og svo að seinustu:
Hvenær eignumst við Snæfell-
ingar séra Jón til að drífa
söfnunina og safnið áfram? En ég
lærði margt af ferðinni á Akranes
og þakklátur sneri ég aftur og
mikið öfundaði ég Akurnesinga af
safninu og séra Jóni.
Árni Ilelgason, Stykkishólmi.
Ákvörðun á beitarþoli
Flokkun gróðurlenda Plöntuval búfjár
Gróðurkort - Næringargildi beitargróðurs
Flatarmál gróðurlenda
Uppskerumagn gróðurlenda
Nýtingarstuðull gróðurs
Næringarþörf búfjárins
Fjöldi beitardaga
Frá því að gróðurkortagerðin
hófst og fram til þessa dags hefur
gróður á um % hlutum landsins
verið kortlagður, þar á meðal allt
miðhálendi landsins og nær öll
önnur viðkvæmustu svæði lands-
ins. Gefin hafa verið út 60 kortblöð
af hálendinu í mælikvarða 1:40000
og 12 kortblöð af byggðum lands-
ins í mælikvarða 1:20000. Auk þess
liggur fyrir í handriti fjöldi korta
sem ekki hefur gefist tími eða
fjármagn til að gefa út, en sem
komið hafa að fullum notum við
útreikninga á beitarþoli þeirra
svæða, sem þau ná yfir. Það skal
tekið fram, að á þeim svæðum,
sem ekki hafa verið kortlögð enn,
hefur verið fylgst með ástaridi og
nýtingu gróðurs eins oft og eins
ítarlega og unnt hefur verið, og er
því fyrir hendi vitneskja um
ástand gróðurlendisins í landinu
öllu.
Enda þótt gróður landsins hafi
enn ekki verið kortlagður að fullu
og öllu, eigum við Islendingar nú
yfir að ráða nákvæmari og víðtæk-
ari gróðurkortum af landi okkar
en margar aðrar þjóðir geta státað
Gróðurkortin, sem sýna víðáttu
gróðurlendisins og eðli þess, eru
undirstaðan að ákvörðun á beitar-
þoli landsins. En eins og upptaln-
ingin hér að framan sýnir byggist
hún á rannsóknum á fjölda
annarra þátta, sem unnið hefur
verið að samhliða kortagerðinni.
Gildi rannsóknanna
Ég taldi skylt að gera lesendum
í stuttu máli grein fyrir eðli
gróðurrannsóknanna, því að þær
hafa verið dregnar inn í umræður
um ástand og nýtingu gróðursins.
Að rannsóknunum hefur nú verið
unnið í nærfellt 20 ár án þess að
veruleg gagnrýni hafa komið fram
á þær leiðir, sem þar hafa verið
farnar. Það er fyrst, þegar rann-
sóknirnar fara að gefa heildarsýn
yfir ástand gróðurs í landinu, og
sú mynd er ekki hagstæð, að
gagnrýnin upphefst og haldið er
fram fullyrðingum og staðhæfing-
um, sem oft ganga alveg í berhögg
við niðurstöður rannsóknanna.
Aðeins lítill hluti skóglendisins er friðaður, og liðlega fjórðungur er í
hraðri afturför.
Sameiginleg yfirlýsing
Undirritaðir hafa átt í nokkrum ritdeilum að undanförnu varðandi túlkun á ýmsum atriðum á
samkomum Billy Grahams, sem sýndar voru á á myndsegulböndum í Neskirkju fyrr í mánuðinum.
Sérstaklega var sterkur ágreiningur okkar á milli í sambandi við þýðingu á orðum og söng söngkonunnar
Evie Tornquist. Eftir að grein Sigurðar Pálssonar, sem bar yfirskriftina „Velkominn að skerminum
Ingólfur Margeirsson" birtist laugardaginn 7. október í Morgunblaðinu, hafði umgetinn Ingólfur
símasamband við Sigurð og lýsti sig reiðubúinn að horfa á myndsegulbandsupptökuna ásamt Sigurði og
ennfremur að löggiltur skjalaþýðandi í sænsku þýddi textann, og að hann yrði birtur við hlið frásagnar
Ingólfs af sama atburði eins og Sigurður hafði óskað eftir í grein sinni. í byrjun næstu viku horfum við
svo í sameiningu á myndsegulbandið og var þáttur Evie Tornquist tekinn upp á kasettu og sendur
löggiltum skjalaþýðanda í sænsku, Árna Gunnarssyni. Til glöggvunar lesendum skal það tekið fram, að
frásögn Ingólfs er ekki orðrétt þýðing á texta Evie Tornquists, heldur endursögn á innihaldi ræðu hennar
og söng. Við lýsum því jafnframt yfir hér með, að ritdeilum okkar og umræðum er lokið og lesendur geta
sjálfir dæmt um fyrirgreindan ágreining.
Ingólfur Margeirsson, Sigurður Pálsson.
blaðamaður. formaður KFUM.
Frásögn
Ingólfs
Margeirssonar
„Nú tilkynnti meðhjálparinn
brosleiti, að hin sænskættaða banda-
ríkjakona, Evie Tornquist, mundi
syngja eitt lag. Svo gekk Evie fram á
pall sem lá til hliðar við ræðustólinn
rosalega. Hún var klædd í mikinn
hvítan kjól, var í leðurstígvélum og hélt
á míkrafóni. Ljósa platínuhárið geislaði
í sjónvarpsljósunum og hún brosti út að
eyrum, svo spékopparnir dqnsuðu í
kinnunum. Svo sagði þessi Doris Day
kristinboðsins á ensku: „Oh, you known
I have loved to be with you all the time.“
og beindi orðum sínum til bláklædda
meðhjálparans. Svo sneri hún sér að
salnum og sagði á bjagaðri sænsku: „Jag
ár so lycklig att vara hár.“ og áfram:
„Jag kánner mig so lycklig och helig, att
jag vill ta av mig skorna." Ég er svo
hamingjusöm og heilög að mig langar
til að fara úr skónum). Islenski þulurinn
steinþagði undir ræðu Evies. Ungfrúin
fór þó ekki úr stígvélunum sínum,
heldur hélt áfram að tala úr hjarta sínu.
Hún sagðist hafa hitt Jesús á Golgata,
og að blóð Guðs og hennar hefði runnið
saman. Hún vék einnig að þeirri
staðreynd, að blóð Jesús (hún talaði
stundum um blóð Jesús og stundum um
blóð Guðs) hefði sameinast blóði
kristinna manna, og það væri yndislegt.
Eftir þessa andlegu og efnislegu
blóðgreiningu, tók frökenin lagið og
söng • enn einn gospell-sönginn á
sænsku."
Orðrétt ræða
Evie Tornpuists
(Eftir orð kynnis, sem þakkar ET fyrir þátttöku hennar.)
Það var mér ánægja. — It was my Pleasure, Cliff, you know that. Ég vil
líka bara þakka ykkur öllum fyrir þessa dásamlegu samveru okkar þessa
viku, með kórmeðlimunum og framkvæmdanefndinni hér og einnig þeim
í Noregi sem við hittum um síðustu helgi og — það var næstum — já —
heilög stund hér í Mássan. Stundum hefur það verið svo sterkt og svo
fagurt og svo heilagt að mig hefur næstum langað til að fara úr skónum,
því við vitum að við göngum fram fyrir hásæti Guðs. (Næstu setningar að
hluta á nosku:) Sérstök kveðja til allra sem hafa verið með okkur í Noregi
og á íslandi. Vona að þið hafið ekki misst neins af sambandinu og þeim,
þeim anda sem við höfum skynjað hér i Mássan og að þið hafið líka fengi
að lifa þessa unaðslegu stund sem Jesús hefur verið hér (síðasta orðið
ógreinilegt).
Það er blóð Jesú sem sameinar okkur í dag, alla vikuna, og nú þegar
herferðin er á enda — mér finnst við ættum að halda áfram í þessum
anda. Við göngum fram sameinuð, allt fólk Guðs hér í Stokkhólmi í öllum
sjónvarpsborgunum, og við reynum að ná saman, meira og meira. Því það
er blóð Jesú sem gefur okkur þrótt frá degi til dags, við allar
kringumstæður, og það mun aldrei glata krafti sínum.
(Söngur:) Það blóð, sem Jesús gaf fyrir mig
dag einn á Golgata.
blóð hans sem gefui mér þrótt frá degi til dags.
það mun aldrei glata krafti sfnum.
Það sefar sorgina og gefur mér frið.
og það ber mig alla tið.
Það blóð sem gefur mér þrótt frá degi til dags.
það mun aldrei glata krafti sfnum.
Þvf það teygir sig upp í hið ha-sta fjall.
og það nær niður. niður í hinn djúpa dal.
Og það blóð sem gefur okkur þrótt frá degi til dags.
það mun aldrei glata krafti sínum.
Því það teygir sig upp f fjallið háa
og það nær niður. niður f hinn dýpsta dal.
Ó. blóð hans sem gefur okkur þrótt frá degi til dags.
það mun aldrei glata.
ó. það mun aldrei glata.
nei. það mun aldrei aldrei glata krafti sínum.
(Þýtt. Árni Gunnarsson.
löggiltur skjalaþýðandi úr sænsku.)