Morgunblaðið - 22.10.1978, Qupperneq 1
64 SÍÐUR
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Mikið tap á
skákeinvíginu?
Manila. Filipseyjum,
21. október. AP — Reuter
FYRRVERANDI forseti skák-
sambands Filipseyja sagði í dag,
að miklu fé hefði verið varið til
einskis með því að halda heims-
meistaraeinvígið í skák á Filips-
eyjum. 'og er ráðið af þessu að
mikill halli hafi orðið á einvígis-
haldinu.
Kostnaður við einvígið
er talinn hafa verið um tvær
milljónir dala, eða rúmar sex
hundruð milljónir íslenzkra
króna. Stjórn Filipseyja greiðir
20 af hundraði kostnaðarins.
Jafnframt sagði forsetinn fyrr-
verandi, að einvígið hefði vcrið
álitshnekkir fyrir skáklistina
vegna þeirra deilna sem urðu því
samfara.
Viktor Korchnoi, áskorandinn í
nýafstöðnu heimsmeistaraeinvígi í
skák, er nú innlyksa á Filipseyjum
og er talið að hann muni þar af
leiðandi missa af fyrstu umferðum
Ólympíuskákmótsins í Argentínu,
en þar hyggst hann tefla fyrir
Sviss.
Michael Keene, aðstoðarmaður
Korchnois skýrði frá því í dag að
ókleift væri að fá flugfar fyrir
Korchnoi til Sviss fyrir næst-
komandi föstudag út á þann
flugmiða sem framkvæmdaraðilar
einvígisins létu Korchnoi í té.
Einnig er óvíst hvort Korchnoi
komist til Hong Kong í tæka tíð til
að tefla þar fjöltefli eins og til
hefur staðið.
Korchnoi barst í gær skeyti frá
eiginkonu sinni þar sem hún
hughreystir hann eftir tapið gegn
Anatoly Karpov, en eiginkonu
Korchnois og syni þeirra hefur
verið meinað að yfirgefa Sovétrík-
in þrátt fyrir ítrekaðar óskir.
Líkur eru nú taldar á því, að
Karpov heimsmeistari tefli ekki á
Ólympíuskákmótinu þar sem
heimsmeistaraeinvígið reyndi
mjög á hann og á heimleiðinni frá
Filipseyjum mun hann hafa
nokkurra daga viðdvöl í Singapore
sér til hressingar.
Ljósm. Mbl. RAX.
Hraðinn er sjúk-
dómur aldarinnar
segir Jóhannes Páll páfi II sem
tekur við embætti í dag
Fimmbura-
fæðing
Jerúsalem, 21. okt. Reuter.
KONA ól í dag fimmbura,
þrjá syni og tvær dætur, á
Iladassah-sjúkrahúsinu
og líður öllum vel.
Fimmburafæðingin er
hin þriðja á þessu sjúkra-
húsi á sjö árum.
Vatíkaninu 21. október — AP
JÓHANNES Páll II. páfi
hélt í dag fund með yfir
þúsund blaðamönnum í
Vatíkaninu, og að loknum
hinum eiginlega fundi vék
páfi frá hefðbundnum venj-
um og ræddi óformlega við
gesti sína í f jörutíu mínút-
ur. Páfi kvaðst meðal ann-
ars telja að fjölmiðlum
hefði láðst að túlka sjónar-
mið kirkjunnar og greina
frá málefnum hennar
þannig að til skila kæmist,
og væri ein orsökin sú að
blaðamenn hefðu orðið að
lúta í lægra haldi fyrir
hraðanum, sem væri sjúk-
dómur þessarar aldar.
Hann taldi tjáningarfrelsi
ómetanlegt en áminnti
blaðamenn um að „nota
það rétt“ og vitnaði í því
sambandi til ummæla Páls
postula um að sannleikann
ætti að nota til að stuðla að
réttlæti og bræðralagi.
Margt stórmenni er komið til
Rómar til að vera við athöfnina
þegar páfi tekur við embætti á
morgun. Mikill öryggisviðbúnaður
er í borginni, en búizt er við því að
yfir 100 þúsund manns verði á
torginu fyrir framan Péturskirkj-
una þegar athöfnin hefst. Meðal
gesta verður forseti Póllands,
Henryk Jablonski, sem kom til
Rómar í morgun. Fjórum mennta-
mönnum, sem mikið hafa starfað
innan kaþólsku kirkjunnar í Pól-
landi, hefur verið synjað um leyfi
til að fara úr landi til að vera
viðstaddir þegar hinn pólski páfi
tekur við embætti. Engar skýring-
ar hafa verið gefnar af hálfu
pólskra yfirvalda.
Jóhannes Páll II. páfi.
Friðamefnd
í Líbanon
Beirút. Líbanon. 21. okt. — AP. Reuter.
SELIM al-Hoss forsætisráðherra Líbanons skýrði frá því
í dag, að ríkisstjórn hans hefði skipað fimm manna
nefnd til að ganga frá ítarlegri áætlun um lausn
deilumála í landinu. Sagði dr. Hoss að nefndin kæmi
saman á mánudag, og fyrirhugað væri að hún legði
tillögur sínar fyrir ríkisstjórnina síðar í vikunni.
Þessi fimm manna friðarnefnd
verður skipuð ráðherrum, og
verður al-Hoss formaður hennar.
Tillögur nefndarinnar verða svo
væntanlega byggðar á samþykkt-
um fundar utanríkisráðherra
Arabaríkjanna, sem haldinn var í
Líbanon síðastliðinn þriðjudag.
Þar var meðal annars lagt til að
völd ríkisstjórnarinnar yrðu auk-
ín, herinn efldur, og sveitir
deiluaðila afvopnaðar.
Nokkuð kyrrt var í Beirút í nótt,
en þó heyrðust stöku sinnum
skothvellir og spengingar. Meðal
annars sprakk handsprengja stutt
frá ítalska sendiráðinu í borginni í
nótt. Ekkert tjón varð á sendiráð-
inu, en þrír öryggisverðir særðust
lítillega.
Vance í
Moskvu
Moskvu, 21. okt. — AP. Reuter.
CYRUS Vance utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna
kom í dag til Moskvu þar
sem hann hefur viðræður
við Andrei Gromyko utan-
ríkisráðherra á morgun,
sunnudag. Verður þetta
framhald svonefndra
SALT-viðræðna um tak-
mörkun vopnabúnaðar
Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna. en talið er að
bandarísku fulltrúarnir
haldi heim frá Moskvu á
þriðjudag.
Þeir Gromyko og Anatoly
Dobrynin, sendiherra Sovétríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum,
tóku á móti Vance og fylgdarliði
hans við komuna til Vnukovo-flug-
vallar við Moskvu. I flugstöðinni
flutti Vance stutt ávarp, þar sem
hann sagðist meðal annars vera
mjög ánægður yfir því að
SALT-viðræður yrðu nú teknar
upp að nýju, því báðum löndunum
væri það nauðsyn að lausn fengist
á afvopnunarmálunum.
Nýjar árás-
ir á ZAPU-
búðir í
Zambíu
Lusaka 21. október — AP
ÆFUR AF reiði skýrði Joshua
Nkomo frá því í Lusaka í dag að
Rhodesíuher hefði enn ráðizt á
búðir skæruliða í Zambíu. „Ráð-
stefna allra aðila að deilunni er
hafin og hún íer fram á vígvell-
inum,“ sagði Nkomo. Fullyrðing-
um Nkomos um nýjar árásir ber
saman við fregnir frá Salisbury.
sem enn hafa ekki fengizt stað-
festar, en þær herma að rhódes-
ísku sveitirnar, sem réðust á
Schikumba-búðirnar fyrir norðan
Lusaka og felldu þar og særðu
fjölda manns, hafi gert loftárásir
á bækistöðvar ZAPU-hreyfingar-
innar norðaustur af Lusaka, í um
150 kílómetra fjarlægð frá landa-
mærum Rhódesíu.
Nkomo hefur harðlega neitað að
taka þátt í ráðstefnu allra þeirra,
sem aðild eiga að Rhódesíudeil-
unni, en fulitrúar stjórna Banda-
ríkjanna og Bretlands hafa heitið
Ian Smith því að reyna að fá
Joshua Nkomo sem stjórnar
skæruhernaði á hendur bráða-
birgðastjórnarinnar í Rhódesíu
frá Zambíu og Robert Mugabe,
sem hefur bækistöðvar í Mósam-
bique, til að taka þátt í henni.
Krímtatarar
fangelsaðir
Moskvu. 21. október. Rcuter.
FJÖLMARGIR Tatarar sem fóru
í óleyfi til fyrri heimkynna á
Krím hafa verið handteknir og
hús þeirra eyðilögð. að því er
andófsmenn skýrðu írá í dag.