Morgunblaðið - 22.10.1978, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1978
Ekkert lát á
lodnuveidinni
EKKERT lát er á góðum afla
loðnuskipanna. Á föstudag til-
kynntu 11 skip um samtals 740
tonn til Loðnunefndar og í gær
þegar Mbl. fór í prentun höfðu 12
skip tilkynnt um samtals 7360
tonn. Undir morgun í gær var
komið vonzkuveður á loðnumiðun-
um, en frá því á föstudagskvöld
þar til í gærmorgun höfðu eftirtal-
in skip tilkynnt afla:
Laugardagur: Gunnar Jónsson
320, Sandafell 350, Stapavík 550,
Víkingur 1350, Ársæll 460.
Laugardagur: Gísli Árni 630,
Eldborg 570, Helga Guðmunds-
dóttir 750, Örn 570, Loftur Bald-
vinsson 770, Fífill 580, Árni
Sigurður 850, Grindvíkingur 850,
Arnarnes 400, Dagfari 500, Skírnir
440, Keflvíkingur 450.
Vídast ordin
ágæt f ærð á ný
VEGIR spilltust mjög á fimmtu-
dag en vont veður var þá víða um
land og t.d. stórhríð í austanverð-
um Skagafirði. Að sögn Arnkels
Einarssonar hjá Vegaeftirlitinu
Gérard Souzay
heldur
söngnámskeið
Franski ljóðasöngvarinn Gérard
Souzay heldur söngnámskeið í
Reykjavík 22.-24. október. Nám-
skeiðið fer fram í hátíðarsal
Menntaskólans við Hamrahlíð og
er haldið á vegum Tónlistarskól-
ans í Reykjavík. 21 söngvari
kemur fram og syngur á nám-
skeiðinu, en auk þess verða um 80
manns áheyrendur.
Námskeiðið fer fram milli kl. 14
og 17, sunnudag, mánudag og
þriðjudag.
var unnið að því á föstudag að
opna vegi að nýju og ef veður
versnar ekki aftur vcrður
væntanlega góð færð víðast hvar
á iandinu um helgina.
Unnið var að því að moka vestur
Hálsa og til Patreksfjarðar og
Bíldudals. Dynjandisheiði og
Hrafnseyrarheiði voru ófærar, en
verið var að moka Þorskafjarðar-
og Breiðadalsheiði. Holtavörðu-
heiði var hreinsuð og var orðin
greiðfær. Búið var að opna tl
Siglufjarðar, en Lágheiði var orðin
ófær. Á föstudag átti að moka
fyrir Ólafsfjarðarmúla. Öxnadals-
heiði var hreinsuð, en fólksbifreið-
um var ekki fært um Vaðlaheiði.
Ófært var um Axafjarðarheiði,
Hólssand og Vopnafjarðarheiði.
Minni bifreiðum var þungfært um
Melrakkasléttu. Á Austfjörðum
var færð yfirleitt ágæt, en þó víða
hálka á fjallvegum sem og annars
staðar á landinu.
Hörpudiskur beint
frá Stykkishólmi á
Bandaríkjamarkað
FLUTNINGASKIPIÐ Bifröst
lestaði á föstudag 160—170 lestir
af hörpudiski í Stykkishólmi, sem
Islenzka útflutningsmiðstöðin og
íslenzka umboðssalan hafa selt á
Bandarikjamarkað. Útflutnings-
verðmæti vörunnar er 250—300
milljónir króna.
Það er nýmæli í sambandi við
þessa flutninga Bifrastar að skipið
nær í hörpudiskinn vestur í
Stykkishólm þar sem varan er sett
um borð í sérstökum frystigámum.
Áður hefur hörpudisknum verið
ekið á flutningabílum til Reykja-
víkur þar sem hann hefur farið um
borð í skip.
Það eru fyrirtækin Sigurður
Ágústsson og Rækjunes, sem
framleitt hafa þennan hörpudisk
og verður hann fluttur til
Gloucester í Bandaríkjunum.
BELTABOR sá sem sést á meðfylgjandi mynd er sá eini sinnar tegundar hér á landi og hefur hann
undanfarin fjögur ár að mestu leyti verið notaður í verkefnum fyrir Vita- og hafnamálastjórn vegna
sprenginga til hafnargerða. Nú í vikunni var borinn, sem er eign Reinar sf, fenginn til að bora göng fyrir
vatnslögn undir veg í Mosfellssveit. í stað þess að grafa veginn upp var mögulegt með bornum að fara
undir veginn án þess að raska veginum sjálfum. Er þetta í fyrsta skipti, sem borinn er notaður til þessa,
en að sögn Agnars Hallvarðssonar ætti slík borun ekki að þurfa að taka nema einn dag ef undirbúningur
er nægilegur.
(Ljósm. Emilía).
Bændur á Jökuldal
hlynntir niðurskurði
E^ilsstöðum 21. október, írá Jóhannesi
Tómassyni. blaðamanni MorKunblaðsins.
UM ÞRJÁTÍU bændur af Jökul-
dal sátu síðastliðið föstudags-
kvöld fund með fulltrúum Sauð-
fjársjúkdómanefndar á Skjöld-
ólfsstöðum á Jökuldal. Var þar
fjallað um riðuveiki. sem upp
hefur komið á Jökuldal og
tillögur nefndarinnar um niður-
skurð fjár á þessu svæði. Fundur-
inn lýsti sig hlynntan niður-
skurði á öllu fé á hænum Brú
strax í haust ef ekki komi í ljós
riðuveiki á öðrum bæjum á
svæðinu. segir í ályktun
fundarins.
Á fundinum greindi Sigurður
Sigurðsson, dýralæknir og sér-
fræðingur Sauðfjársjúkdóma-
nefndar, og Jón Pétursson, héraðs-
dýralæknir, frá helztu einkennum
riðuveiki og Kjartan Blöndal,
framkvæmdastjóri nefndarinnar,
kynnti tillögur hennar um niður-
skurð og varnaraðgerðir, sem nú
eru til athugunar hjá ríkisstjórn-
inni. Fjármálaráðherra og land-
búnaðarráðherra kynna strax eftir
helgi tillögur sínar um fjármögn-
un vegna bóta og varnaraðgerð-
anna.
Fundurinn á Skjöldólfsstöðum
ályktaði eftirfarandi:
„1. Fundurinn er því hlynntur að
strax á þessu hausti verði fram-
kvæmdur niðurskurður á öllu fé á
bænum Brú á Jökuldal enda komi
ekki í Ijós riðuveiki á öðrum
bæjum á svæðinu.
2. Settar verði varnarlínur við
Jökulsá á Dal og Lagarfljót og
varnarlínan við Jökulsá á Fjöllum
gerð örugg.
3. Þar sem niðurskurður á fé á
einum bænum er mjög viðkvæm
aðgerð og mjög óvíst um árangur
er það ótvíræð krafa fundarins að
þessari aðgerð verði fylgt vel eftir
með nákvæmu eftirliti og stöðugri
skoðun á fé í öllum hreppum í
varnarhólfinu milli Jökulsár á
Fjöllum og Jökulsár á Dal. Einnig
verði fylgst náið með fé í Hrafn-
kelsdal.
4. Fundurinn væntir þess að
þessar aðgerðir verði framkvæmd-
ar nú þegar því með því eru mestar
líkur á að árangur náist.“
Daníel Guðmundsson, oddviti:
„ Tekið úr vasan-
um áður en nokkuð
er komið í hann ”
Agreiningur um sam-
ráð í ríkisstjórninni
ENN EITT missætti er komið upp
í ríkisstjórninni, og er það í
sambandi við þá samráðsfundi,
sem ráðgerðir eru. Fyrsti fundur-
inn var í fyrradag og þar lýsti
Tómas Árnason, fjármálaráð-
herra, því að ekki væri við hæfi
að ræða fjárlagafrumvarpið áður
en Alþingi hefði fengið að sjá
frumvarpið. Kristján Thorlacius,
formaður BSRB. lýsti á fundinum
furðu sinni á þessum ummælum
fjármálaráðherra, því að þeir
aðilar. sem boðaðir hefðu verið á
fundinn hefðu þangað komið til
þess að fjalla um fjárlagafrum-
varpið.
I Þjóðviljanum síðastliðinn mið-
vikudag er í rammagrein á forsíðu
fjallað um þennan samráðsfund,
sem haldinn var á föstudag. Þar
segir í þriggja dálka fyrirsögn
„Samráð á föstudag um fjárlögin“
og síðan segir í fréttinni sjálfri:
„Fjármálaráðherra sagþi að vegna
mikilla anna við gerð fjárlaga-
frumvarpsins og samninga milli
flokka hefði ekki gefizt tími enn til
þess að hafa samráð við aðila
vinnumarkaðarins. En það væri
vissulega ætlunin af hálfu ríkis-
stjórnarinnar að ræða við sam-
ráðsmenn frá aðilum vinnumark-
aðarins um meginstefnu fjárlaga-
frumvarpsins ...“
Morgunblaðið hefur upplýsingar
um, að missætti sé milli ráðherra
Alþýðubandalagsins og ráðherra
Framsóknarflokksins í þessu máli.
Ljóst er, að þegar til fundarins
kom, hafði ráðherra Framsóknar-
flokksins haft betur í þessu
deilumáli, því að fjárlagaf'rum-
varpið var ekki rætt á fundinum.
Það var „ekki við hæfi“, og því
mun Kristján Thorlacius hafa lýst
furðu sinni á ummælum fjármála-
ráðherra.
Samrád á föstu-
dag um fjárlögin
Af hálfu BSRB og ASI hafa
veriA skiptaftir fulltrúar til þess
aft hafa samráft vift rikisstjórn-
arinnar I samband vift ráOstaf-
anir hennar I efnahagsmálum. 1
samtali viO Tómas Arnason,
fjármálaráóherra. I gær kom
fram aó xtlunin er aft bofta sam-
ráftsfulltrua þessara samtaka.
svo og fulltrúa atvinnurekenda
Ltil funda vift samráftsnefnd
rlkisstjórnarinnar nxstkomandi
fóstudag. en hún er skipuft ráft-
herrunum Tómasi Arnasyni,
Kjartani Jóhannssyni og Svav-
ari Gestssyni.
Fjármálarðftherra sagfti aft
vegna náikilla anna vift gerft
fjárlagafrumvarpsins og samn-
inga milli flokka heffti ekki gef-
isttlmienn til þess aft hafa sam-
ráftviftaftila vinnumarkaftarins
En þaft væri vissulega ætlunin
af hálfu rlkisstjórnarinnar aft
ræfta vift samráftsmenn frá aftil-
um vinnumarkaftarins um
meginstefnu fjárlagafrum-
varpsins. Auftvitaft værí ekki
hægt aft ræfta um írumvarpift I
eínstökum atriftum en sjálfsagt
væri aft fjalla um megmatrifti
eins og þau er luta aft þvi hvern
ig beita skuli fjárlögum I bar-
áttunni gegn verftbólgunni ekh
— VIÐ ATTUM von á verðjöfnunargjaldinu 15. þessa mánaðar, en það
er enn ekki komið, hins vegar fáum við nú aðra sendingu frá
ríkisstjórninni. viðbótarskatta, sem menn hér í Hrunamannahreppi
eru lítið hrifnir aí. sagði Daníel Guðmundsson, oddviti og bóndi í
Efra-Seli, í samtali við Morgunblaðið í gær. Að sögn Daníels búa nú
490 íbúar í Ilrunamannahreppi og er þeim gert að greiða samtals 7V4
milljón króna í viðbótarskatta, sem gerir 15.300 krónur að meðaltali á
hvern íbúa í hreppnum.
— Rúmlega helmingur af þessu
verðjöfnunargjaldi, sem talað er
um að ríkið greiði okkur, fer í að
greiða þessa skatta, þannig að
farið er að taka úr vasanum áður
en nokkuð er komið í hann, sagði
Daníel. — Þetta kemur ákaflega
illa við menn, bændur eru yfirleitt
skilamenn og þeir reiknuðu alls
ekki með þessu. Það er þessi
sérstaki skattur á atvinnurek-
endur, sem þeir hafa mest við að
athuga, en 62 bændur í Hruna-
mannahreppi fá þennan skatt, að
meðaltali 60 þúsund krónur hver.
— Þetta kemur óneitanlega til
að hafa áhrif á sveitarfélögin líka
og reikna má með að innheimtur
hjá þeim verði erfiðari. Þetta
kemur á sama tíma og verið er að
ræða um að veita bændum einhver
„vandræðalán" og mörgum finnst
að aðrir hafi breiðari bök en við
bændurnir. Meðan bændur fá ekki
verðjöfnunargjaldið og eru ekki
búnir að fá greitt fyrir sauðfé
síðan í haust og afurðir frá í fyrra
hafa margir ekki aðra möguleika
til að greiða skattinn 1. nóvember
en taka vaxtaaukalán til að standa
í skilum, sagði Daníel Guðmund-
son að lokum.
13 stunda
maraþondans
í Klúbbnum
Maraþondanskeppni verður
haldin í Veitingahúsinu
Klúbbnum í dag og samkvæmt
áætlun á hún að standa í 13
klukkustundir. 34 ungmenni
taka þátt í keppninni og þau
taka fyrstu sporin í keppninni
klukkan 13, en klukkan 01 í nótt
tilkynnir Heiðar Ástvaldsson,
danskennari og formaður dóm-
nefndar, hver hafa orðið hlut-
skörpust og hljóta titilinn
maraþondansdrottning og
-kóngur 1978. Verða þau
verðlaunuð með blómum og
bikurum.