Morgunblaðið - 22.10.1978, Side 3

Morgunblaðið - 22.10.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1978 3 Austurstræti 172. hæö símar 26611 — 20100 Fótbrotnaði og handleggsbrotnaði TVÍTUGUR Akurnesingur varð fyrir bíl á Vesturgöt- unni í fyrrinótt með þeim afleiðingum að hann tvíbrotnaði á vinstri fæti og handleggsbrotnaði. Maðurinn hugðist fara inn í bifreið, sem stóð hinum megin götunnar og tók ekki eftir bílnum, sem að kom. Landsþing FÍB: Með núverandi skatt- heimtu á bifreiðaeigend- ur má setja olíumöl á 2300 km á 10—15 árum AF TEKJUM ríkissjóðs af um- ferðinni í ár sem nema 28—33 milljörðum kr.. renna 9,3 milljarðar til vegaframkvæmda að því er Þór Hagalín sveitar- stjóri á Eyrarbakka sagði í framsöguerindi um skattamál bifreiðaeigcnda á landsþingi FÍB um helgina. Landsþingið samþykkti ályktun, þar sem tekið er fram, „að núverandi skattheimtu á bifreiða- eigendur er unnt að leggja olíumöl á 2300 km vegakerfisins á 10—15 árum. Til að tryggt verði að yfirboðsþslitlag verði sett á þjóð- vegi, er nauðsynlegt að Alþingi aðskilji sérstaklega í vegalögum fjárframlög vegna yfirborðsslit- lags á vegi frá öðrum þáttum vegaframkvæmda, og verði það gert með mörkuðum tekjum, tekj- um af núverandi sérsköttun um ferðarinnar sem ekki renna til vegasjóðs í dag. Tekið er fram, að allur hringvegurinn er í ofan- greindri lengd, svo og vegir til Húsavíkur, Dalvíkur, Sauðár- krókrs, Isafjarðar og Snæfells- ness“. Bendir landsþing FÍB á arðsemi vegagerðarframkvæmda, sem samkvæmt útreikningum vega- gerðar ríkisins sé langt yfir 100% á ári varðandi sumar vegafram- kvæmdir og að endurlagning vegakerfisins sé „raunhæfasta byggðastefnan í dag“. Ennfremur samþykkti lands- þing FÍB eftirfarandi ályktun: „Landsþing FÍB 1978 fagnar fram- kominni þingsályktunartillögu al- þingismannanna Ólafs G. Einars- sonar og Jóns Helgasonar um lagningu bundins slitlags á þjóð- vegi landsins. Landsþingið bendir á, að í þjóðvegakerfinu eru nú Leiðrétting í BLAÐAUKA Morgunblaðsins í gær misrituðust myndatextar á tveimur stöðum: 'í grein um FIDE á bls. 22 er nafn Gligoric undir mynd af Rabell-Mendes og öfugt. Undir mynd á bls. 25, Sólbað til sjós, á textinn að vera þannig: Baldur Möller, Guðmundur Arnlaugsson og Jón Guðmundsson. Þá féll niður lína á bls. 23 í yfirliti um skáksvæði innan Fide. Rétt er þetta þannig: Svæði 7: Mið-Ameríka, 21 land 10.116 félagsbundnir skákmenn, svæðaforseti J. Vega Fernandes, Kúbu. Svæði 8: Suður-Ameríka, 8 lönd 8.915 félagsbundnir skákmenn, svæðaforseti R. Camara Brazilíu. au(;i.ýsin(;asiminn er: 22480 2H««£Mnt»laÍ>ib þegar víðs vegar um landið um 820 km tilbúnir fyrir bundið slitlag. Landsþingið bendir sérstaklega á, að á árinu 1978 verða tekjur ríkisins af bifreiðum og bifreiða- umferð milli 28 og 33 milljarðar króna en til vegagerðar verður aðeins varið um 9.3 milljörðum króna. Sé tekið tillit til sann- gjarnrar þátttöku bifreiðaeigenda í ríkisrekstrinum og núgildandi vegaáætlun; verða þannig milli 10 og 13 milljarðar eftir sem er algjör sérsköttun sem á skilyrðislaust að renna til vegasjóðs. Með tilvísun í framangreint er ljóst að ekki þarf að koma til frekari skattlagning á bifreiðaeigendur, þótt ráðist verði í stórauknar vegaframkvæmdir." GALLERÍ SÚM — Sigurður Eyþórsson listmálari sýnir um þessar mundir verk sín í Gallerí SÚM við Vatnsstíg 3. Sýningu Sigurðar lýkur n.k. miðvikudag 25. okt. Sýningin er opin daglega frá kl. 4—10 og 2—10 um helgina. Kynna nýtt efni sem spara á eldsneyti KOMIÐ er á markað efni sem auka mun nýtni eldsneytis bíla, að sögn framleiðenda, en því er bætt bæði í vélarolíu og benzfn eftir ákveðnum reglum. í frétt frá Bílanausti hf. sem hefur efni þetta, „Add-A-Tune Chemical tune up“, þá eiginleika að það hreinsar og smyr vélarhlutana og kemur í veg fyrir eða minnkar gjallmyndun við brennslu, sem eykur kraft og nýtni eldsneytis. Sparnaður er mismunandi eftir tegund bíls og bílstjóra, en að sögn Bílanausts endast kertin lengur, sjaldnar þarf að hreinsa blöndung, slit vélar minnkar og hljóðkútar og púströr endast lengur. Vatn, brennisteinn og súrefni, sem verður að gjalli við brennslu í sprengihólfi vélarinnar eða eins konar sýru sem myndar ýmis skaðleg efni svo sem gúmmí, gljá- kvoðu, sem stíflar blöndung, brennir kertin og ventlana dregur úr krafti vélar og eykur eyðslu eldsneytis og segir í frétt frá Bílanausti að efnið muni draga úr þessum áhrifum og spara eldsneyti um 11—25%, en yfirleitt sé það um 15% að minnsta kosti. MUNIÐ ÚTSYNARKVÖLDIÐ Á HÓTEL SÖGU I KVÖLD il Aust Kitzbuhl, Zell an See, St. Anton 1 eöa 2 vikur. Brottför á sunnu- dögum frá 7. janúar. Verö frá kr. 132.300- Okkar vinsælu Lundúna- feróir Brottför fimmtudaga og laugardaga. Nýr áfangi í yetrarferðum íslendinga Miami Beach Florida Góðir gististaðir Brottför: 2/11,23/11,14/12,4/1, 25/1,15/2,8/3, 29/3. Allt 3ja vikna ferðir. Verö frá kr. 370.200.- Kanaríeyjar Verðin á vetrarferðunum liggja nú fyrir. Hafið samband við skrif- stofuna sem fyrst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.