Morgunblaðið - 22.10.1978, Side 7

Morgunblaðið - 22.10.1978, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1978 7 HUG- VEKJA eftir séra Jón Auðuns Til brúökaiipsgleði í konungshöll er fjölmenni kallaö saman. í höllinni ríkir eftirvænting, því aö brúðkaup sonar síns vill kóngur gera meö veg- semd og mikilli rausn. Konungleg skal veizlan vera. Veizluglaöur kon- ungur vill gera mörgum daginn rhinnisstæöan. Undirbúningi hirfnar miklu hátíöar er aö mestu lokið. Þá kveöur konungur til þjóna sína og sendir þá hvern til sinnar áttar og eiga þeir aö bjóöa gestun- um til veizlunnar. Fram aö þessu haföi allt gengiö aö óskum, en nú syrtir í álinn: Þjónarnir koma hver af öörum til hallarinnar og bera konungi óvæntan boöskap: Brúökaupsgest- irnir, sem áttu aö vera, hafa afsakað sig hver af öörum. Sumir hyggja aö fjárhagi sínum, hafa lagt í kaup á landi og búfé og geta ekki fariö aö heiman eins og sakir standa. Aörir eru nýgiftir og þótt þeir ætli ekki í brúökaupsferð til Mallorka eöa Miami geta þeir ómögulega farið aö heiman svo aö segja beint úr eigin brúökaupi! Og þó* er önnur ennþá skuggalegri hlið á þeim boðum, sem þjónarnir bera: Sumir þeirra gesta, sem kóngurinn hafði kosiö til aö samgleöjast sér og brúöhjónunum, höföu smánaö þjónana og jafn- vel drepiö einhverja þeirra. Á þessu haföi hann ekki átt von og nú bregður hann á annaö ráö: Aftur sendir hann þjónana út og nú er öörum boðið til veizlunnar. Hverjum, sem á vegi þjónanna veröa eiga þeir aö bjóöa til brúökaupsins. Volaöir og vesælir, sjúkir og hrumir, aldnir og ungir, örsnauöir menn og afhrök taka aö streyma til hallarinnar, unz brúökaupssalurinn er full- ur. Konungur hefur tekiö gleöi sína aftur, því aö nú eru þeir komnir, sem verðugir eru hins mikla veizlufagnaöar. Og gleöin er mikil þeirra, sem á slíkum fagnaöi höföu sízt átt nokkra von. Þessi endursögn guö- spjallsins um brúökaup konungssonarins er svip- lítil hjá hinum dýrðlega sálmi sra Matthíasar út frá nálega sama efni, en augljóst er hvaö Jesús vill meö þessari dæmisögu segja: Til brúð- kaups gleði Brúðkaupssalurinn er fagnaöarvist í ríki Guös, hvort sem þaö ríki er á himni eða jöröu. Konungurinn er Guö, og engum getur dulizt, hver sonurinn er. Þjónarnir, sem sendir eru til aö bjóða til brúökaupsgleöinnar, eru þeir sem Guö hefir um aldir sent meö boðskap sinn. Sjálfsagt hefur Jesús einkum haft í huga spá- menn þjóöar sinnar og örlög sumra þeirra, og þá ekki sízt þann spámann- inn, sem honum hefir þótt mestur þeirra allra, Jeremía, sem þjóö hans smánaöi og aö lokum myrti. Þetta er ekki efni til grátsöngs yfir þúsunda ára gömlum harmleikum. Örlög þeirra, sem Guð hefur sent á síöari öldum eru mörg, og þar hafa „erindrekar Krists á jöröu“ gengiö hvað fastast fram. Kaþólska kirkjan brenndi á báli á torginu í Konstanz hinn göfuga siðbótar- mann, Jóhann Húss, Þýzk- ur fursti bjargaði því aö sama kirkja bruggaöi Marteini Lúter sömu banaskál. Kirkjulegur kaþólskur dómstóll dæmdi á bálið Meyna frá Orleans, 16 ára barn. Og „siðbótarmaöurinn“ Kalvín fékk dæmdan og brennd- an á báli í Genf göfug- mennið, lærdómsmannin og lækninn Micael Servetus. Óþarft er að nema staö- ar viö þessa glæpi, sem allir voru drýgöir á mörk- um miöalda og nýju aldar- innar svonefndu gegn þeim þjónum, sem konungurinn haföi sent til aö kalla menn til brúö- kaupsgleði sonar síns. Guö er ennþá aö senda þjóna sína, eöa eins og segir í hinum klassíska sálmi sra Matthíasar: „Hann býöur ennþá: Fariö, laöiö, leiðiö,/ og leitiö, kallið, biöjiö, þrýst- iö, neyöiö./ Mitt kærleiks- djúp á himins víðar hallir,/ í húsi mínu rúmast allir — allir. En hann sendir fleiri en þá, sem venjulega kallast þjónar hans og leggja út af örkinni með Ritninguna í hendi og háskólaguö- fræöina og alla hennar „trúfræöi" í huga. Hann sendir einnig aöra sem þrátt fyrir yfirvofandi refsi- vistir við þrælkunarvinnu, geðveikrahæli, útlegðar- dóma og ofsóknir heima fyrir hika ekki viö að hefja merki mannréttindabar- áttunnar í austri, vestri og suöri. Eru ekki þeir, sem af heilagri hugdirfö og hreinu hjarta berjast þeirri baráttu, smánaöir og jafn- vel drepnir víöa um lönd enn í dag, þótt trúvillinga- bálin gömlu séu slokkn- uö? Viö einangrun, þögn og gleymsku væru margir þessir „þjónar" nú aö þola sína þjáningu, ef Amnesti fnternational fylgdist ekki með þjáningum þessa fólks, þekkti nöfn þess og sendi hvatningar frjáls- hyggjumönnum um heim allan. Þær staöreyndir, sem þar eru leiddar í Ijós, hljóta aö koma í hug þeim, sem heyra eöa lesa frá- sögn guöspjallsins af þeirri meðferð, sem þjónarnir sumir, er báru konungsboðskap, hlutu. Sú saga er gömul og samt er hún ný enn í dag. En nú er enn eftir annar meginkjarninn í sögunni um brúðkaup konungs- sonarins, og þaö mál á svo mikið og alvarlegt erindi viö mig og þig, aö því verö ég aö fá að gera nokkur skil í hugvekjunni á sunnudaginn kemur, ef ég endist til aö skrifa og einhver til aö lesa. En aö lokum langar mig aftur til aö þenda á einn fegursta sálm sra Matthíasar í Sálmabókinni: „Fyrst boö- ar Guö sitt blessaö náöar- oröiö“. Hann fékk aö vera áfram í nýju bókinni, þótt mörgum sálmum hins mikla trúarskálds væri vísað þaöan burt. nálar BUÐIN SKIPHOLTI 19 R. SÍMI 29800 (5 LÍNUR) 27 ÁR í FARARBRODDI Stjómunarfélag íslands Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námskeiöi í STJÓRNUN I, dagana 30., 31. okt. og 1. nóv. aö Hótel Esju. Námskeiðið stendur dag hvern frá kl. 15—18.45. Fjallaö veröur um: — Stjórnskipulag fyrirtækja — Stjórnunaraöferöir — Setningu starfsmarkmiöa. Námskeiðið er ætlaö þeim sem vilja kynnast nútíma stjórnunarháttum og stjórnskipulagningu fyrirtækja. Leiðbeinendur veröa rekstrarhag- fræöingarnir Hans Kr. Árnason og Stefán Friöfinnsson. Allar nánari upplýsingar og skráning þátttakenda fer fram á skrifstofu Stjórnunarfélags íslands aö Skip- holti 37, sími 82930. Hringiö og biðjið um aö fá sendan ókeypis kynningarbækling um Stjórnunarfræöslu SFÍ. -fremstir í gædum og útliti! Van Gils gefur tón tískunnar um gjörvalla Evrópu. Við bjóðum Van Gils föt og jakkasett úr grófu tweedefni með spennandi mögleikum í litum og samsetningu. Van Gils, nafn sem tryggir gæðin. KÓRÓNA BÚÐIRNAR herr BANKASTRÆTI 7. SiMI 29122. AÐALSTRÆTI 4. SlMI 15005.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.