Morgunblaðið - 22.10.1978, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1978,
Matthías Bjarnason:
Höldum vörð um
frelsi
einstaklingsins
SÍÐUSTU daga hefur nokkuö veriö ritaö í biöö um val Þingmanna
Sjálfstæðisflokksins í nefndir á AlÞingi. í Þeim frásögnum hefur veriö reynt aö
Þyrla upp moldviöri eins og fyrri daginn og hafa andstæðingar okkar
sjálfstæöismanna smjattaö mjög á pessu sem stórfelldum ágreiningi í pingflokki
okkar. Því miöur hafa einstaka menn, er blöö hafa spurt um pessi mál, gefiö slík
svör, Þannig aö Þaö hefur veriö auövelt fyrir miöur velviljaö fólk aö gera meir úr
Þessu máli en efni standa til.
Ég tel af þessu tilefni rétt að
skýra fyrir sjálfstæðisfólki og
öðru því fólki, sem heldur vill
heyra það sem sannara er í
þessu máli sem öðrum, hvernig
þetta val fór fram og aðstæður
allar frá vali í nefndir á liðnu
kjörtímabili.
Hér er um að ræða kosningar
í alls 24 nefndir, níu í hvorri
þingdeild og sex í sameinuðu
þingi. Allar þessar nefndir eru
skipaðar sjö þingmönnum hver
nefnd, nema fjárveitinganefnd,
sem mun nú verða skipuð níu
þingmönnum, en voru 10 á sl.
árum. A síðasta kjörtímabili
átti Sjálfstæðisflokkurinn 25
þingmenn en þá voru 4 þeirra
ráðherrar, sem ekki áttu sæti í
nefndum, þannig að 21 þingmað-
ur skipti með sér 73 nefndarsæt-
um. Eftir úrslitum síðustu
alþingiskosninga eru þingmenn
Sjálfstæðisflokksins 20, sem
eðlilegt var að skiptu með sér
nefndastörfum, en nú á Sjálf-
stæðisflokkurinn aðeins kost á
49 sætum í nefndir eða 24
nefndasætum færra en fyrir
fjórum árum á næstum því
sama þingmannafjölda og þá
var um að ræða í nefndir.
Þegar þingflokkur Sjálf-
staeðisflokksins valdi menn í
nefndastörfin varð samkomulag
um menn í 21 nefnd en við val í 3
nefndir fór fram atkvæða-
greiðsla. Þessar nefndir voru:
fjárveitinganefnd, utanríkis-
nefnd og fjárhags- og viðskipta-
nefnd neðri deildar. Frá því ég
kom á þing hefur alltaf verið
nokkur togstreita á milli þing-
manna einstakra kjördæma um
val manna í fjárveitinganefnd.
A síðasta þingi voru fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í þeirri
nefnd Steinþór Gestsson, sem
var formaður nefndarinnar, en á
því miður ekki sæti á Alþingi nú
sem aðalmaður. Hinir fulltrúar
okkar voru Pálmi Jónsson,
Lárus Jónsson og Ellert B.
Schram. Sá síðastnefndi hefur
verið í nefndinni aðeins eitt
þing. Atkvæðagreiðsla fór á
þann veg, að þessir þrír þing-
menn voru endurkjörnir fulltrú-
ar flokksins í þessa nefnd.
Fjórði þingmaðurinn, sem
sóttist eftir sæti í nefndinni,
hafði fylgi helmings þingflokks-
ins. Hann sótti þetta mál fyrst
og fremst fyrir það kjördæmi
sem hann er fulltrúi fyrir en
ekki til þess að fullnægja eigin
metnaði, enda hafði það kjör-
dæmi fulltrúa í fjárveitinga-
nefnd áratugum saman. Ég
fullyrði að engar deilur eiga sér
stað út af þessu vali og vil ég á
engan hátt gera upp á milli
þessara fjögurra ágætu manna.
í utanríkismálanefnd var
endurkjörinn Friðjón Þórðar-
son, sá eini af fulltrúum flokks-
ins, sem nú á sæti á þingi og var
í nefndinni á síðasta þingi. Hinn
þingmaðurinn, Ragnhildur
Helgadóttir, sem kjörin var í
nefndina, var fyrsti varamaður
flokksins í utanríkisnefnd á
síðasta þingi. Varamenn í
nefndina voru valdir Geir Hall-
grímsson og Eyjólfur Konráð
Jónsson, sem var varamaður í
nefndinni á síðasta þingi. En
stungið var upp á Albert Guð-
mundssyni sem varamanni í
nefndina á eftir Geir Hallgríms-
syni, en hann neitaði að gefa
kost á sér.
I fjárhags- og viðskiptanefnd
neðri deildar voru- kosnir
Matthías Á. Mathiesen, fyrrv.
fjármálaráðherra, en hafði áður
en hann varð ráðherra verið í
þessari nefnd í mörg ár og
formaður hennar í nokkur ár.
Hinn sem kjörinn var, Ólafur G.
Einarsson, var formaður þessar-
ar nefndar allt síðasta kjörtíma-
bil. Þriðji maðurinn, sem var í
kjöri, var Albert Guðmundsson,
en hann var í þessari sömu
nefnd í efri deild á síðasta
kjörtímabili.
Við val þingmanna til efri
deildar óskuðu tveir þingmenn,
Geir Hallgrímsson formaður
flokksins og Albert Guðmunds-
son, sem báðir voru áður í efri
deild, að eiga nú sæti í neðri
deild. Tveir þingmenn, Ragn-
hildur Helgadóttir og Friðrik
Sóphusson, gáfu þá kost á að
vera tilnefnd til efri deildar og
sá síðarnefndi í sjöunda sæti,
sem þýddi að hlutkesti varð
milli hans og fjórtánda fulltrúa
stjórnarflokkanna, sem þeir
unnu.
Þegar litið er á skiptingu
þeirra nefndarsæta í þingdeild-
um, sem flokkurinn átti kost á
og skipta varð á milli þing-
manna í hvorri deild, þá var um
36 nefndasæti að ræða, 18 í
hvorri deild. Sex þingmenn
flokksins í efri deild skipta með
sér 18 sætum og fjórtán þing-
menn í neðri deild skipta með
sér aðeins 18 sætum. Þetta gerir
það að verkum, að erfiðara var
að skipa sæti neðri deildar-
manna. Ég dreg ekki í efa, að
Albert Guðmundsson hefði verið
valinn í fjárhags- og viðskipta-
nefnd, ef hann hefði verið áfram
í efri deild.
í Vísi föstudaginn 13. þ.m. er
haft eftir Albert Guðmundssyni
orðrétt: „Þetta er líklega í fyrsta
sinn, sem fyrsti þingmaður
Reykvíkinga telst ekki brúkleg-
Gerum ekki
mikið úr
minniháttar
ágreinings-
málum
ur í störf innan þingflokksins."
Hér er alvarlega hallað réttu
máli. I fyrsta lagi átti Albert*
Guðmundsson kost á vara-
mannssæti í utanríkisnefnd.
Hann var beðinn um að fara í
félagsmálanefnd, heilbrigðis- og
trygginganefnd, alsherjarnefnd
og menntamálanefnd. Þetta tel
ég nauðsynlegt að komi fram.
Albert Guðmundsson er enginn
píslarvottur í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins nema síður sé,
ef allt væri tíundað. Ég fyrir
mitt leyti hefði gjarnan viljað
vinna með honum í nefnd.
Frestunin sem varð á kosn-
ingu stjórnar þingflokks stafaði
af því, að uppi voru áform um að
tefla fram við formannskjör á
móti þeim þingmanni, sem verið
hefur formaður þingflokksins
undanfarin ár. Formaður Sjálf-
stæðisflokksins lagði til að
þessu kjöri yrði frestað á meðan
hann kom því til leiðar, að hætt
yrði við mótframboð við Gunnar
Thoroddsen. Þetta tókst og var
Gunnar endurkjörinn formaður
án mótatkvæða.
Það sem að framan hefur
verið sagt um ágreining í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins
getur hver og einn metið að
eigin vild. Það er skiljanlegt að
andstæðingar flokksins vilji
gera sem mest úr því að þar sé
ágreiningur. En sjálfstæðisfólk
á ekki að kynda undir í þeim
efnum til þess eins að skemmta
skrattanum. Einn slíkur lætur
til sín heyra í Morgunblaðinu sl.
fimmtudag og telur ágreining-
inn svo mikinn í Sjálfstæðis-
flokknum, að „Alþingi er gert
óstarfhæft meðan verið er að
slátra Albert". Það leynir sér
ekki innrætið og matreiðslan úr
litlu efni. Vilja forsetar Alþingis
játa það að Sjálfstæðisflokkur-
inn hafi gert Alþingi óstarf-
hæft? Fimmtudaginn 12. októ-
ber óskaði Sjálfstæðisflokkur-
inn eftir, að nefndakjöri yrði
frestað þann dag og nokkrum
klukkustundum síðar var frá því
gengið. Þess vegna hefðu
nefndakjör getað farið fram
strax næsta dag. Höfundur
þessarar greinar í Morgunblað-
inu er landskunnur flokkaflæk-
ingur og hefur alls staðar efnt
til illinda og skaðað alla flokka,
þar sem hann hefur verið til
þessa. Það er hamingja Sjálf-
stæðisflokksins að hafa losnað
undan því oki að hafa slíka
innan dyra.
Það skiptir ekki sköpum,
hvaða sjálfstæðisþingmenn
skipa þessa nefnd eða hina á
Alþingi. Hitt er mörg hundruð
sinnum meira um vert að
sjálfstæðisfólk og allir þeir
aðrir sem standa vilja trúan
vörð um frelsi einstaklingsins
snúi bökum saman, þegar nú er
vegið að einstaklingsfrelsi og
eignarétti ákafar en nokkru
sinni fyrr. Skattránsstefna nú-
verandi ríkisstjórnar vinnur
markvisst að því að draga úr
vinnu og hegna þeim sem leggja
á sig erfið og mikil störf. Það
eru markmið kommúnista, sem
ráða ferðinni í ríkisstjórninni.
Hver sá sem fer framúr meðal-
mennskunni er settur á svartan
lista og honum dæmdar sektir í
formi nýrra skatta á tekjur og
eignir á árinu 1977 sem búið var
áð skattleggja áður. Þar er ekki
tekið tillit til hversu hart hefur
verið lagt á sig að afla þeirra
tekna. Hér er vegið í sama
knérunn, það þótti ekki fyrr á
árum gæfumerki.
Sjálfstæðisfólk um land allt,
við skulum treysta bönd sam-
heldni til baráttu fyrir frelsi
einstaklingsins á grundvelli
þeirrar þjóðlegu umbótastefnu,
sem Sjálfstæðisflokkurinn
býggir starf sitt og tilveru á.
Um þessar mundir eru staddir hérlendis nokkrir kínverskir borgarfulltrúar frá Peking, og var mynd þessi
tekin í móttöku í ráðherrabústaðnum. Þeir ferðuðust m.a. austur fyrir fjall, heimsóttu ýmis fyrirtæki í
Reykjavík. Þeir halda utan á morgun. Ljósm. Rax.
Sigurey
landar í
fyrsta sinn
Siglufirði — 20. október — Bv.
Sigurey landaði hér í dag fyrsta
aflanum af íslandsmiðum en Tog-
skip hf. hefur nýlega keypt togar-
ann frá Frakklandi og látið gera á
honum miklar endurbætur. Togskip
gerir einnig út Dagnýju. Þetta er
um 500 tonna togari en úr þessari
fyrstu veiðiferð kom hann með
70—80 tonn. Reyndist skipið með
ágætum. — Fréttaritari.