Morgunblaðið - 05.11.1978, Page 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. NOVEMBER 1978
Sýning á bóka-
gjöf Færeyinga
SKÝRT var frá því í sumar að
hókanjöf sú, er landsstjórnin
færeyska tilkynnti árið 1974 að
hintíað yrði nefin í tilefni 11 alda
afmælis íslandsby«t?ðar, hefði
borist Landsbókasafni og Há-
skólabókasafni en tíjöfinni, alls
450 bindum, skyldi skipt milli
[icssara safna.
Ákveðið var þet<ar tíjöfin barst,
að hún yrði sýnd í vetrarbyrjun otí
[>á í báðum sófnunum samtímis,
þannig að hvort safnið sýndi þau
rit er það fékk. Nú vill svo til, að
Landsbókasafn Færeyintía í Þórs-
höfn minnist um þessar mundir
150 ára afmælis síns en það hlaut
konungsstaðfestintíu 5. nóvember
1828.
Sýning færeysku bókagjafarinn-
ar hefst mánudaginn 6. nóvember í
báðum söfnunum og verður opin á
venjulegum opnunartíma þeirra.
Norskur stjórmála-
maður og ritstjóri flytur
erindi í Norræna húsinu
Norski stjórnmálamaðurinn og
ritstjórinn Helge Seip flytur tvo
fyrirlestra í Norræna húsinu.
Ilclge Seip.
Hinn fyrri verður mánudaginn 6.
nóvember og hinn síðari fimmtu-
daginn 9. nóvember.
Helge Seip hefur setið á þingi
fyrir vinstri flokkinn í Noregi frá
1954, var ráðherra í stjórn Per
Bortens 1965—70. Hann var um
árabil ritstjóri „Dagbladet" í Ósló
cn er nú ritstjóri og ábyrgðarmað-
ur „Norges Handels- og Sjöfarts
tidende".
Mánudaginn 6. nóvember mun
Helge Seip ræða um notkun og
misnotkun tölvu í upplýsinga-
skyni. Hann hefur frá 1972 verið
formaður nefndar norska stór-
þingsins sem fjallað hefur um
þessi mál og fylgst með umræðum
annars staðar á Norðurlöndunum.
Fimmtudaginn 9. nóvember tal-
ar Helge Seip um stjórnmála-
ástandið í Noregi. Fyrirlestrarnir
hefjast bæði kvöldin kl. 8.30 og er
öllum heimill aðgangur.
Botnssúlur og Krókatjarnir. Vatnslitamynd gerð árið 1930.
Þingvallasýning
í Ásgrímssaf ni
Einnig sýning á teikningum
í dag verður Haustsýning Ás-
grímssafns opnuð. Hún er 45.
sýning safnsins, en það var opnað
almenningi árið 1960, um haustið.
Þessi sýning er mjög sérstæð. I
heimili Ásgríms Jónssonar er
sýning á teikningum eingöngu.
Viðfangsefnið er þjóðsögur okkar.
í vinnustofu listamannsins er
Þingvallasýningin, og verk þau
sem þar hefur verið komið fyrir
eru seinni tíma vatnslitamyndir.
Séreinkenni Ásgríms Jónssonar
í list hans eru veðrabrigðin í
náttúrunni, og einna greinilegust
eru þau í vatnslitamyndunum.
Þingvöllur var honum mjög hug-
leikið og óþrjótandi viðfangsefni,
ekki sízt á efri árum hans. Og
þaðan eru allar myndirnar sem nú
eru sýndar, en gjörólíkar. Haustið
var listamanninum kærasti tíminn
á þessum stað og flestar eru
myndirnar á sýningunni málaðar
á þeim árstíma.
Um val verka og upphengingu
sáu listamennirnir Hjörleifur Sig-
urðsson og Guðmundur Benedikts-
son ásamt forstöðukonu safnsins.
Eins og undanfarin ár kemur út
á vegum Ásgrímssafns nýtt jóla-
kort. Er það gert eftir olíumál-
verkinu Hafnarfjörður í skamm-
degissól, eitt af öndvegisverkum
safnsins, málað í kringum 1929.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4
Aðgangur ókeypis.
íslenskt rúgkex
Berðu það saman við hrökkbrauð til sömu nota. Vittu hvort hefur vinninginn.
Rúgkex með osti, Rúgkex með smjöri. Rúgkex með síld og eggi. Rúgkex með kæfu.
(t.d. kúmenosti).
KEXVERKSMIÐJAN FRÓN