Morgunblaðið - 15.12.1978, Qupperneq 1
fi4 SIÐUR
C <* &
288. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Gandhi í
fangelsi
Nýju Delhi, 14. desember.
Reuter.
MORARJI Desai forsætisráð-
herra skýrði í dag frá þins-
ályktunartillögu um fangels-
un Indiru Gandhi fyrrverandi
forsætisráðherra og brott-
visun hennar úr neðri deild
indverska þingsins og fullvíst
er talið að tiliagan verði
sámþykkt.
Desai er ákveðinn í að koma í
veg fyrir að frú Gandhi komist
aftur til áhrifa í indverskum
stjórnmálum eftir óvæntan
sigur hennar í aukakosningum
á Suður-Indlandi.
Dómar yfir
ræningium
llks Chaplins
Vevey, Sviss, 14. desember.
Reuter.
PÓLSKI flóttamaðuri nn
Roman Wardas var í dag
dæmdur í fjögurra og hálfs árs
fangelsi fyrir að skipuleggja
ránið á líki Charlie Chaplins og
tilraunir til að kúga fé út úr
fjölskyldu hans.
Landflótta Búlgari, Gantscho
Ganev, sem hjálpaði við að
grafa upp líkið í svissneskum
kirkjugarði 1. mars sl., fékk 18
mánaða skilorðsbundinn dóm.
Snowdon í
hjónaband
London. 14. desember. AP.
SNOWDON lávarður, fyrrver-
andi eiginmaður Margrétar
prinsessu og ljósmyndari að
atvinnu, tilkynnti í dag að hann
ætlaði að ganga að eiga Lucy
Lindsay-Hogg, 37 ára gamla
fráskilda konu sem starfar við
sjónvarp, á morgun, föstudag.
Margrét prinsessa og börn
þeirra tvö ákváðu að höfðu
samráði við Snowdon lávarð að
vera ekki viðstödd vígsluna til
þess að komast hjá blaðaskrif-
um.
Stjóm Callaghans
hélt naumlega velli
London, 24. desember. Reuter. AP.
BREZKA þingið samþykkti í
kvöld með tíu atkvæða mun 300
gegn 290, traustsyfirlýsingu á
stjórn James Callaghans for-
sætisráðherra og er þar með
sýnt að kosningar verða ekki í
Bretlandi innan fárra vikna.
eins og annars hefði orðið.
Atkvæðagreiðslan fór fram að
lokinni langri og harðri umræðu
um launamálastefnu ríkisstjórn-
arinnar, en stjórnin beið í
gærkvöldi ósigur í tveimur
atkvæðagreiðslum vegna þeirrar
Miðausturlönd:
/
Utilokað að ná sam-
komulagi á næstunni
Kaíró, 14. desember. AP. Reuter
BANDARÍSKIR embættismenn
gáfu í kvöld upp alla von um að
friðarsamningar Egypta og
ísraelsmanna næðu í höfn fyrir
17. desember, en þann dag verða
þrír mánuðir liðnir frá því
leiðtogar landanna gerðu sam-
komulag sitt í Camp David.
Vance utanrikisráðherra Banda-
ríkjanna kom í kvöld til Kaíró og
átti fund með Sadat forseta. en
hann heldur á föstudag til baka
til Washington og er sýnt að þessi
heimsókn ráðherrans til Mið-
austurlanda hefur lítinn árangur
borið.
Ríkisstjórn Israels kemur
saman til fundar í fyrramálið og
verður þá m.a. fjallað um hvort
fallast eigi á tillögu Bandaríkja-
manna um að stefna að kosningum
meðal Palestínumanna á Vestur-
bakka Jórdanár og á Gaza-
-svæðinu fyrir árslok 1979. Blaða-
fulltrúi Bandaríkjaforseta, Jody
Powell, sagði í dag að nú væri það
algerlega undir Israelsmönnum
komið, hvort nokkurt samkomulag
næðist. Það mun viðhorf Banda-
ríkjamanna að Egyptar hafi verið
mun sveigjanlegri í afstöðu sinni
en Israelsmenn og gætir nú
verulegrar óþreyju meðal banda-
rískra ráðamanna í garð ísraels-
manna.
stefnu og ákvað Callaghan því að
óska eftir trausti þingsins í
kvöld og efna til kosninga væri
það ekki veitt.
í umræðunum í dag tilkynnti
stjórnin að hún hefði ákveðið að
falla frá því að beita einstök
fyrirtæki refsiaðgerðum, ef þau
fallast á að veita launahækkanir
umfram þau 5%, sem ríkis-
stjórnin hefur heimilað. Er talið
að þetta atriði hafi tryggt
stjórninni nægilega mörg at-
kvæði til að hún héldi velli, en
Verkamannaflokkur Callaghans
hefur sem kunnugt er ekki
meirihluta í neðri málstofunni
og verður að treysta á stuðning
ýmissa smáflokka.
Callaghan viðurkenndi að at-
kvæðagreiðslunni lokinni að
stjórnin yrði að reyna að ná
víðtækari samstöðu um launa-
málastefnu sína en sagði jafn-
framt að hann myndi ekki láta
af þeirri fyrirætlun að takmarka
launahækkanir við 5% á ári.
Kaunda: 78%
Lusaka, 14. desember. AP
KENNETH Kaunda, forseti
Zambíu, vann óvenjulega
mikinn sigur í forseta-
kosningunum í Zambíu og hafði
hlotið 78,7% atkvæða þegar
talningu 85% atkvæða var
lokið. Kjörsókn var 65—70% og
helmingi fleiri greiddu atkvæði
gegn honum en í síðustu
kosningum 1973. Kaunda hafði
óttazt að kjósendur kenndu
honum um yfirstandandi efna-
hagskreppu og vöruskort.
Iransstjórn
herðir tökin
Mótmælaaðgerðir bannaðar
Tehcran, 14. des. Reuter. AP
ÍRANSSTJÓRN tilkynnti í dag
að gripið yrði til nýrra aðgerða
Tvö skip talin
af á Atlantshafi
London, 14. desember. Reuter. AP
ÓTTAZT er að tvö skip hafi farizt í óveðrinu mikla sem geisað hefur á
Bretlandseyjum og hafinu suður undan þeim undanfarna daga.
Leitarvél frá v-þýzka flughernum fann í dag tvo gáma á floti skammt
frá Azoreyjum og er víst talið að þeir séu úr v-þýzka flutningaskipinu
Milnchen, en það sendi frá sér neyðarskeyti á þriðjudag.
Um borð voru 28 manns, og er
ekkert vitað um afdrif þeirra.
Leitarflugvélar fundu einnig í dag
brak úr franska togaranum
Alcyon og er talið að hann hafi
sokkið á Ermarsundi með átta
manns um borð.
Alls hafa sjö manns látið lífið á
Bretlandseyjum af völdum
oveðursins. Lézt allt fólk þetta
með þeim hætti að hvassviðrið
feykti til bílum þess þannig að
árekstrar urðu. Allmargir hafa
verið fluttir frá heimilum sínum á
eyjunni Portland og þar hafa
brezk yfirvöld lýst yfir neyðar-
ástandi.
til að binda enda á mótmæla-
aðgerðir á götum úti og koma í
veg fyrir verkföll, sem lamað
hafa efnahagslífið í landinu
vikum saman. Stjórnvöld virðast
nú ákveðin í því að stöðva allt
ofheldi sem fylgt hefur mótmæl-
um gegn og til stuðnings írans-
keisara undanfarna mánuði. All-
ir ríkisstjórar og lögreglustjórar
hafa fengið fyrirmæli um að
grípa í taumana verði efnt til
mótmæla. sem raskað gætu reglu
og friði almennings. Jafnframt
fengu ráðuneyti og opinber fyrir
tæki fyrirmæli um að segja þegar
upp störfum öllum þeim, sem
ekki stunda störf sín með eðlileg-
um hætti.
Forsætisráðherra landsins,
Azhari hershöfðingi, sagði í dag,
að verkfallið í olíuiðnaðinum í
landinu hefði valdið landsmönnum
mestu tjóni og hefði þegar þurft að
flytja inn nokkurt magn af olíu-
vörum.
Iranskeisari átti í dag fundi með
nokkrum framámönnum í stjórn-
málum og er ekki talið ósennilegt,
að hann hyggist reyna að koma á
borgaralegri stjórn í landinu að
nýju innan skamms.
Nú er talið að 80 manns hafi
farizt í óeirðunum í borginni
Isfahan í íran, en þar hafa verið
átök stuðningsmanna og andstæð-
inga keisarans.
fyrir liðsiniii
við Baader-Meinhof
Stuttgart, 14. desember. Reuter.
TVEIR ungir Vestur-Þjóðverjar
voru í dag dæmdir til fangelsis-
vistar í Stuttgart fyrir að hafa
veitt. hryðjuverkasamtökum Baad-
er-Meinhof liðsinni. Báðir menn-
irnir, Volker Speitel og Hans-Joa-
chim Dellwo, játuðu að hafa
aðstoðað lögfræðinga Baad-
er-Meinhof-hópsins við að smygla
vopnum til skjólstæðinga sinna.
Við réttarhöldin í málinu kom m.a.
fram, að Speitel útvegaði Arndt
Muller lögfræðingi skotvopn þau,
sem Andreas Baader og Jan-Carl
Raspe notuðu á sl. ári til að fremja
sjálfsmorð, en Muller kom þeim
inn í fangelsið földum í skjala-
bunka.
Réðust Víetnam-
ar inn í Kína?
Tokyo, 14. desember. AP.
VÍETNAMSKIR hermenn tóku
í dag á sitt vald þrjár hæðir
skammt innan landamæra
Kína. að því er kínverska
fréttastofan Hsinhua skýrir frá
í dag.
Segir fréttastofan að Víet-
namar hafi gert árás á landa-
mærastöð Kínverja og síðan
.hafi rúmlega 40 víetnamskir
hermenn ruðzt yfir landamærin
og lagt undir sig hæðirnar þrjár.
Atburðir þessir áttu sér stað í
Liachang í héraðinu Kwangsi.
Halda Kínverjar því fram, að
Víetnamarnir hafi hafið skot-
hríð á nærliggjandi þorp, þegar
þeir voru búnir að koma sér
fyrir á hæðunum og í skothríð-
inni hafi kínverskur landa-
mæravörður, Liang Chien, særzt
alvarlega.
Kínverska utanríkisráðuneyt-
ið mótmælti því á miðvikudag
harðlega við sendiráð Víetnams
í Peking, að Víetnamar hefðu
hvað eftir annað ráðizt yfir
kínversku landamærin að
undanförnu og stofnað til ill-
deilna.