Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 11
11 jafnt fræðum og list. Af vísindum lagði hann mesta stund á þjóðleg fræði af margvíslegu tagi, þjóðtrú og þjóðsögur. Hér á undan var getið doktorsritgerðar hans, sem fjallaði um Seið. Víða birtust ritgerðir eftir hann, skemmri eða lengri,1 svo sem í tímaritunum „Arv“ og „Saga och sed“, sem hann hafði ritstjórn á (frá 1969 og 1952) o.s.frv. Ein hinna síðari ritsmíða frá hans hendi fjallar um kristni- tökuna á íslandi (1975). Allmörg- um ritgerða hans er safnað saman og prentaðar í bók, sem nefnist „Folklore och filologi“, heppilegt nafn, því að hann kunni á hvorutveggja skil. Mörgum vísindamönnum verður það, að þeir láta hugann fljúga, án þess að hafa taumhald á honum, og aðgæta ekki, að meira virði en hugarflugið er gaumgæfileg leit að traustum röksemdum. Svo að tekið sé dæmi til samanburðar, má líkja þessu við það, þegar kaþólskir menn reyna að ákveða hvort dýrlingaefni þeirra verðskuldi að vera tekin í heilagra manna tölu, og eru þá hafðir tveir málafærslu- menn til að rekja röksemdir með og móti. Þetta skildi Dag Ström- báck mætavel, og því eru vísinda- legar ritgerðir hans til fyrirmynd- ar. Eins og fyrr var getið, var Dagur hár maður og svaraði sér vel, skemmtinn og hvers manns hugljúfi, og þótti öllum gaman að verá þar sem hann var og hafa orðræður við hann. Þegar menn fara að komast á sjöunda áratuginn, fara flestir að þreytast nokkuð svo. Sá er þetta ritar hitti hann í haust og sáust þá lítil eða engin ellimerki á honum. En mér er tjáð, að hann hafi sunnudaginn 26. nóvember fengið hjartaslag, sem þó leið hjá, en kom aftur, svo að hann andaðist 1. desember. Hann hafði fulla rænu fram á síðustu stund. Hvíl þú í friði, tryggi vinur! Einar 01. Sveinsson. mmúmm /mmm CSTWKISHÖLMUR^ JC Stykkishólm- ur dreifir end- urskinsmerkj- um til barna BYGGÐAMÁLANEFND Junior Chamber Stykkis- hólms mun dagana 13.—14. desember dreifa endur- skinsmerkjum til allra barna í Stykkishólmi 0—16 ára. Farið verður í skólana, í leikskólann og áð síðustu gengið í hús til að fullvisst sé að ekkert barn verði útundan. Þetta er liður í verkefni JC íslands fyrir starfsárið 1978—79, „Eflum öryggi æskunnar". í til- kynningu frá JC Stykkis- hólmi segir að þó að endur- skinsmerki séu ódýrasta líftryggingin hafi þau ekki verið auðfengin í byggðar- laginu en nú muni verða ráðin bót á. Vilja félgsmenn stuðla að því að notkun endurskinsmerkja verði jafn sjálfsögð og að draga andann. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978 PER HANSSON ÓGNARDAGAR í OKTÓBER 1941 Ógnardagar í oktober er hlaðin spennu, — óhugnanlegri viti firrtri spennu! Bókin segir frá óhugnanlegustu f jöldamorðum heimsstyrjaldarinnar síðari, þegar allir karlmenn, sem bjuggu í bænum Kragujevec í Júgóslavíu voru teknir af lífi. Morðin áttu að brjóta baráttuþrek Serbanna, en sameinaði þá í stað þess að sundra. Og þeir, sem eftir lifðu í þessum draugabæ. biðu þess að skæruliðarnir kæmu. — og svo sannariega komu skæruliðarnir. Þessi bók er mikilfengleg lýsing mannlegrar reynslu, stórfenglegur vitnisburður um sérstaka hetjudáð. Höfundur- inn er mörgum kunnur af fyrri bókum hans. Teflt á tvær hættur, Tíundi hver maður hlaut að deyja, Höggvið í sama knérunn og Trúnaðarmaður nazista nr. 1, en Ognardagar í október er snjallasta bók hans, — hún er snilldarverk. KNUT HAUKELID BARÁTTAN UM ÞUNGAVATNIÐ Baráttan um þungavatnið er æsispennandi! Hver síða bókarinnar speglar harðfengi og hetjulund, sálarþrek og járnvilja, ógnir og æsilega spennu. Bókin segir frá baráttu norskra skæruliða, er þeir sprengdu þungavatnsverksmiðjuna í Vemork í loft upp, — en Þjóðverjar þurftu þungt vatn til að geta framleitt vetnissprengju og þetta var eina þungavatns- verksmiðjan í Evrópu. Norsku skæruliðarnir voru Þjóðverjum fremri að einbeitni, hugkvæmni og kænsku og þeir máttu þola hverskyns harðræði í illviðrum á öræfum uppi á meðan þeir biðu færis. Þrekraun þeirra er talin með meiri hetjudáðum heimsstyrjaldarinnar síðari og enn æsilegri vegna þess að hún er sönn. Þessi hetjusaga á vart sinn líka í stríðsbókmenntum, svo æsileg er hún. Stefán Aðalsteinsson Svarfdælingar Þetta er seinna bindi mikils ritverks um Svarf- dælinga, þar sem gerð er grein fyrir bændum og búaliði sem setið hefur Svarfaðardal, svo og niðjum þeirra, eins langt aftur í aldirnar og heimildir hrökkva til með sæmilegu móti. Svarfdælingar I—II er mikið r(t að vöxtum, um eitt þúsund bis., og mannamyndir rúmlega sex hundruö talsins. Eftir lát höfundarins hlaut að koma í annarra hlut að ganga að fullu frá verki hans. Ýmsir góðir menn hafa lagt því máli liö í samstarfi við dr. Kristján Eldjárn, sem ( öllum greinum hafði forystu um að búa ritið til prent- unar. Jón Espólín og Einar Bjarnason Saga frá Skagfirðingum Þetta er þriðja og næst síðasta bindi viðamikils heimildarrits í árbókarformi um tíðindi, menn og aldarhátt í Skagafirði 1685—1847, en jafn- framt nær frásögnin í og með til annarra héraöa. í þessu bindi ritsins hefur sögunni miðaó fram til ársins 1842. Einar Bjarnason heldur á penna mjög ( þeim anda sem EspóKn hafði gert og segir margt frá nafnkunnum mönnum og minn- isverðum tíðindum ( Skagafirði,— Útgáfuna annast Hannes Pétursson, Kristmundur Bjarnason og Ögmundur Helgason. Klemenz á Sámsstöðum Siglaugur Brynleifsson skráði Endurminningar eins helsta brautryðjanda og frumherja í (slenskum ræktunarmálum á þess- ari öld sem hefur margs aö minnast frá ævi- starfi s(nu og kynnum af miklum fjölda sam- tíöarmanna. Auk þess segir hér frá bernsku- árunum í Grunnavíkurhreppi, Reykjavikurár- unum á öndverðri öldinni, vinnumennsku hjá Guðmundi bónda á Stóra-Hofi og Einari Bene- diktssyni skáldi. Og síðast en ekki síst minn- ist hann á eftirminnilegan hátt bróður sfns, Sverris sagnfræðirtgs, en með þeim bræðrum var ávallt mjög kært, þótt óilkir væru um margt. Jóhann Hjálmarsson Lífið er skáldlegt Llfið er skáldlegt — lífið ( kringum okkur, fólkið sem okkur þykir vænt um, árstíðirnar, stundir dags og nætur, hversdagslegar athafnir. Skáld- ió sér hversdagsKfið sínum augum — fyrir okkur hin sem erum að týna okkur í amstri dægranna og gefum okkur ekki tíma til að sjá að lífið er skáldlegt! Þetta er ellefta Ijóðabók Jóhanns og er hún mjög i anda síðustu Ijóöa- bókar hans. Bræóraborgarstig 16 Síml 12923-19156 Esbjern Hiort og Helge Finsen Steinhúsin gömlu á íslandi Tveir arkitektar segja hér i stuttu og læsilegu máli hina merkilegu sögu sem liggur að baki elstu húsa á íslandi, steinhúsanna gömlu sem reist voru á seinni hluta 18. aldar og eru löngu oröin hluti af íslenskri menningararfleifð. Enn á vorum dögum eru þetta veglegar byggingar og tvær þeirra hýsa æóstu stjórn landsins: Stjórn- arráðshúsið í Reykjayík og forsetasetrið að Bessastöðum. Bókin er prýdd myndum og upp- dráttum, sem auka mjög gildl hennar og hún er grundvölluð á nákvæmri heimildakönnun og rannsókn á húsunum. — Dr. Kristján Eldjárn- íslenskaði. Haraldur Jóhannsson PéturG. Guðmundsson og upphaf samtaka atþýðu Á fyrsta skeiði verkalýðshreyfingarinnar vann PéturG. Guðmundsson bókbindari mannaötul- legast að stofnun landssambands verkalýðs- félaga og stjórnmálasamtaka þeirra. Hann var einn stofnenda Verkamannafélagslns Dags- brúnar 1906 og formaður þess nokkur ár. Fyrsti bæjarfulltrúi verkamanna ( Reykjavík var hann kjörinn 1910, ritstjóri Alþýðublaðsins gamla var hann 1906—1907 og Verkamannablaðs 1913— 1914. í bókinni er fylgt frásögn sonar Péturs, Þorsteins, sem í hálfan sjötta áratug hefur unnið í þágu verkalýöshreyfingarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.