Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978 21 útsvörum var reiknað með 60 millj. kr., áætlaðar voru 80 millj. kr. til greiðslu lausaskulda. Ekki var gert ráð fyrir lántökum sem heitið gæti nema þeim sem myndu fylgja með landakaupum bæjarins, þannig var ekki áætlað að fjár- magna framkvæmdir með lánum og því ýmsir lánsfjármöguleikar ónýttir, eins og síðan hefur komið í ljós. Breyting fjárhagsáætlunar Meirihluti bæjarstjórn'ar lét gera úttekt á greiðslustöðu bæjar: sjóðs og áætlun til n.k. áramóta. I ljós kom, að útgreiðslur umfram niðurgreiðslur, miðað við þær forsendur, sem gengið var út frá, myndu til áramóta nema um 420 Eftir Richard Björgvinsson millj. kr., ef engu yrði breytt og ekkert að gert og dökku litirnir voru nú ekki sparaðir. Meirihluti bæjarstjórnar breytti síðan fjárhagsáætlun ársins, en að því loknu var fjárvöntun ekki nema 159 millj. kr., en þá hafði meirihlutinn hækkað framlög til framkvæmda og hækkað kaup- greiðslur til starfsfólks bæjarins, sem nam hvorutveggja um 41 millj. kr. Þetta var tiltölulega mun minni vandi en þurfti að mæta 1974. Þetta hefur nú verið brúað með nýrri lántöku. Hvað vildi Alþýðubandalagið við gerð f járhags- áætlunar ársins? Eðlilegt er að menn spyrji, hvaða tillögur gerði Alþýðubanda- lagið við afgreiðslu fjárhags- áætlunar í byrjun ársins. í stórum dráttum vildu þeir ákveða ýmsar auknar fram- kvæmdir, svo sem 35 millj. kr. til Kópavogsræsis, hækkun til fram- kvæmda í miðbænum upp á 18 millj. kr. og aukningu ýmissa framkvæmda á félagslega sviðinu, eins og framlag til nýrra verka- mannabústaða o.fl. fyrir um 24 millj. kr., samtals var þetta rúmar 77 millj. kr. Á móti vildu þeir draga úr framlagi til gatnagerðar um 20 millj. kr. Þeir vildu minnka rekstrarútgjöld með því að draga 2% frá fjölmörgum rekstraliðum og ná með því á pappírnum 22,8 millj. kr. lækkun útgjalda. Þeim láðist hinsvegar að geta þess hvað raunverulega ætti að spara í rekstri, hvaöa ráðstafanir ætti að gera til að ná þessum sparnaði, en tóku hinsvegar fram, að ekki mætti minnka neina þjónustu í þeim málaflokkum, þar sem sparnaðurinn átti að koma niður. Þetta var að sjálfsögðu ekki raunhæf tillaga. Þeir hafa nú sjálfir orðið að stórhækka einmitt þessa liði við breytingu á fjárhags- áætlun. Loks vildi Alþýðubandalagið hækka áætluð útsvör um 40 millj. kr. Vegna þessa þrýstings frá þáverandi minnihluta kom fyrr- verandi meirihluti til móts við hann og samþykkti helminginn eða 20 millj. kr. hækkun á áætluðum útsvörum. Hver varð svo raunin? Þegar álagning lá fyrir á s.l. sumri, reyndist hún vera 18 millj. kr. lægri en endanleg áætlun. Upphafleg áætlun meirihlutans þá var aðeins 2 millj. kr. of lág. Ekki einu sinni helmingurinn af tillögu Alþýðu- bandalagsins stóðst, aðeins 2 millj. kr. af 40 millj. kr. tillögu stóðst í raun. Þegar á heildina er litið hefðu tillögur Alþýðubandalagsins, ef farið hefði verið eftir þeim, aukið fjárhagsvanda bæjarsjóðs á þessu ári um 60 millj. kr. Viðtökuskattar vinstri manna Meirihlutamenn, þá einkum fulltrúar kommúnista og krata, hafa galað hátt um viðskilnaðar- skatta íhaldsins, sem þeir svo nefna (þeir minnast helzt ekki á aumingja Framsókn). En mennirnir þurfa endilega að reyna að afsaka nýja skattá sína, nýjar álögur. Við hverju var að búast, þetta eru þeirra ær og kýr, meiri álögur, vinstri menn hafa aldrei komið auga á önnur úrræði. Nú síðast hafa þeir hækkað stórkostlega fasteignagjöld á Kópavogsbúum. Það eru því sannkallaðir við- tökuskattar vinstri manna, sem bæjarbúar fá yfir sig. Það kostar mikið að fela vinstri mönnum forsjá bæjarmálanna, eins og sjálfstæðismenn vöruðu við fyrir síðustu kosningar. Richard Björgvinsson. Jólasveinar á Akranesi JÓLASVEINAR verða á Akratorgi á Akranesi á morgun, laugardag kl. 16 en þá verður kveikt á jólatrénu sem vinabær Akraness, Tönder á Jótlandi, hefur gefið bænum. Þorvaldur Þorvaldsson formað- ur Norræna félagsins á Akranesi afhendir tréð fyrir hönd gefenda, barnakór Akraness syngur undir stjórn Jóns Karls Einarssonar og á eftir verður dagskrá á vegum Æskulýðsnefndar og Skagaleik- flokksins. Þorlákur R. Haldórsen við nokkur verka sinna á sýningunni. Málverkasýning í „Listmálar anum’’ 11 íslenzkar konur sóttu alþjóðamót snyrti- sérfræðinga ALÞJÓÐAMÓT snyrtisérfræð- inga á vegum Comité Internation- al d'Esthétique de Cosmétologie, var haldið í Brighton í Englandi f október síðastliðnum og stóð í fimm daga. Saman komnar voru konur úr öllum heimsálfum, en mótið sóttu 11 konur frá Félagi íslenzkra snyrtisérfræðinga, FÍSS. Fjölmargir fyrirlestrar voru fluttir, en sérstaklega var fjallað um meðhöndlun á óhreinni ungl- ingahúð og mikilvægi þess, að unglingar, sem eiga við húðvanda- mál að stríða, leiti meðhöndlunar. Þá var rætt um áhrif útlits á sálarlíf unglinga, og möguleika snyrtisérfræðinga til að ráða þar einhverja bót á. Einnig var kynnt ný aðferð til þess að fjarlægja dökka flekki á húð og til þess notað efnið Pharbacos. Er það borið á flekkina og verða þeir eins og hrúður og falla af eftir nokkra daga, þegar húðin undir hefur náð að endur- nýjast. Efni þetta verður sett á markað fljótlega, en ekki er vitað hvenær það kemur hingað, en aðeins þeir, sem hafa viðurkennd próf, mega nota efnið. Sýning á verkum Þorláks R. Ilaldórsen í Listmálaranum Laugavegi 21, var opnuð 8. desember síðastliðinn. Er þetta um tuttugasta sýning Þorláks, en hann hefur haði haldið einka- og samsýningar. Verkin á sýningunni, sem eru fjörutíu talsins, eru landslags- myndir frá Suð- og Suðvesturlandi og Reykjavík, unnar í olíu- og pastellitum. Flestar myndanna eru gerðar á síðustu tveimur árum. Sýning Þorláks stendur yfir til jóla og er opin alla virka daga frá kl. 14.00 og fylgir lokunartíma verzlunarinnar. Töskuúrvalið er í hámarki hjá okkur í Pennanum þessa dagana • Skjalatöskur, • skólatöskur og • feröatöskur í mörgum stæröum og geröum. Ótrúlega hagstætt verð. Hafnarstræti 18 Laugavegi 84 Hallarmúla 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.