Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978 Guðmundur Runólfsson, útgerðarmaður: Um smágvenda og aðra gvenda Vegna skrifa Þjóðviljans dagana 5. og 6. desember um atvinnuleys- isvofuna í Grundarfirði og þá sérstaklega um landanir togarans Runólfs erlendis, ætla ég að gera nokkrar athugasemdir. „Orkar allt tvímælis þá gert er“, einnig það að svara Þjóðvilja- þvaðri frá fjarstýrðum smá gvend- um. Verkalýðsfélagið Stjarnan í Grundarfirði efndi til fundar 28. nóv. s.l. þar sem fjalla átti um atvinnumál staðarins. All margar konur höfðu misst vinnu sína um skeið í Hraðfrystihúsinu. Orsök þessa mátti rekja til siglinga togarans Runólfs, en varla fannst þeim verkalýðsforkólfunum taka því að fara orðum um aðrar útgerðir staðarins, sem eiga þó betra skilið. A þessum fundi kom ekki margt fram til úrbóta frá þeim verka- lýðsmönnum, nema það helst að það væri óæskilegt að vel rekinn togari væri í höndum einstaklinga, en það er bjargræði, sem býsna erfitt er að skilja. I fundarboði verkalýðsfélagsins kom fram, að þeir hyggðust leggja fram tillögur til úrbóta. En þær tillögur birtust aldrei, ef til vill af því að þeir vita vel að fiskkaupend- um í Grundarfirði hefur staðið til boða all lengi að gera samning um afla togarans b/v Runólfs og það tilboð stendur enn. Aðrar skýringar sem fram komu á fundinum hafa þeir eflaust ekki skilið, eða af trúarbragðaástæðum ekkert gert með. Rekstur togarans Runólfs hefur gengið vel frá upphafi, en þrátt fyrir það hefur ekki tekist að standa í skilum með allar skuld- bindingar togarans og hefur Byggðasjóður helst verið látinn gjalda þess. Greiðsluerfiðleikar fiskkaup- enda, sem alþjóð eru vel kunnar af Jólagjöfin þeirra: Hlý og miúk ullarteppi Verð frá kr. 5.900.- Lítið við í verslun okkar. Gjafaúrvalið hefur aldrei verið fallegra. RAMMAGERÐIN Hafnarstræti 19 fréttum valda hér miklu um, þótt ekki hafi verið gert mikið úr þeim við Breiðafjörð. Greiðsluerfiðleikar þessir voru það miklir, að ekki var annað sjáanlegt en að útgerð b/v Runólfs færi í strand. Byggðasjóður hafði ítrekað beiðni sína til sýslumanns í Snæfellsnessýslu um uppboð á skipinu vegna vanskila á vöxtum og afborgunum á vestur þýsku láni DM 1.000.000, sem í dag er allmikil upphæð. Það kom líka fram á umræddum fundi, að hráefnisskuldir 5 af 7 fyrirtækjum á Snæfellsnesi, sem keypt höfðu afla af b/v Runólfi voru um 40 milljónir króna, er siglingar togarans hófust, og eru enn yfir 17 milljónir króna (óvaxtareiknað). Það skal tekið fram að sum þessara fyrirtækja tóku aflann hreinlega til að bjarga verðmætum, þegar aflahrotan í júlí og ágúst 8.1. stóð sem hæst. Það kom einnig fram, að þegar Byggðasjóður herti á sfnum inn- heimtuaðgerðum. var stærsti fisk- kaupandi staðarins beðinn aðstoð- ar við að greiða Byggðasjóði kr. 10 milljónir, en það virtist sem það væri honum um megn, í það minnsta varð hann ekki við þessari beiðni. Það var skýrt rækilega fyrir viðstöddum, að hér þyrftum við ekki að vera að jagast um hráefni, ef eigendur togarans hefðu ekki manndóm til að bjarga sínum málum af eigin rammleik. Kommar gera lítið með þannig skýringar, þeir taka heldur undir úrlausnir, sem hljóða á þann hátt, að gera skuli ríkisstjórn grein fyrir hinum alvarlegu rekstrarerf- - Einkaframtakiö orsök þess, að oft berst svo mikill afli að landi í Grundarfirði, að vinna verður um helgar iðleikum bæjarútgerðar, því þá er ekki þörf að leita úrræða, sem höfða til manndóms eða ábyrgðar einstaklingsins. Nú segir komminn í Verkalýðs- formanninum: „Togaraeigandinn Guðmundur Runólfsson telur sig greinilega engra hagsmuna eiga að gæta gagnvart atvinnu í heima- byggð sinni". Nokkuð gott hjá honum, ef hann gæti bent á að félagshyggjubræður hans hefðu gert betur. Jón Karl Helgason heldur ræðu á lokafundi. Til hægri er form. Æskulýðsráðs Reykjavíkur, Sjöfn Sigurbjörnsdótir, en til vinstri leiðbeinendurnir Tryggvi Gunnarsson og ólafur Oddsson. Félagsmálanámskeið Æsku- lýðsráðs Reykjavíkur Félagsmálanámskeið á vegum Æskulýðsráðs Reykjavíkur fyrir fulltrúa úr skólafélögum grunn- skólans í Reykjavík var haldið að Fríkirkjuvegi 11 nú fyrir skömmu og stóð i nokra daga. Námskeiðið sóttu um 30 ung- menni úr 13 skólum, en leiðbein- endur voru Tryggvi Gunnarsson og ólafur Oddsson. Námskeið sem þessi hafa verið haldin undanfarin ár og eru þar kennd almenn félagsstörf, svo sem skipulag og framkvæmd funda, hlutverk forystumanna, áætlana- gerð og ræðumennska ásamt öðru. Með þessu starfi er að því stefnt að efla hæfni skólanemenda til forystustarfa í félagsmálum og auka með því líkur á þróttmiklu félagsstarfi í skólahverfum borg- arinnar, eins og segir í fréttatil- kynningu. Á lokafundi námskeiðsins fluttu nokkrir þátttakendanna ræður, og formaður Æskulýðsráðs Reykja- víkur, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, ávarpaði námskeiðsfólkið og af- henti því skírteini sín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.