Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978
Samvinnutryggingar:
40% íðgjaldalækkun á
skyldutryggingum húsa
Vilja breytingar á lögum um brunatryggingar
Samvinnutryggingar haía
ákveðið að lækka iðgjöld á
skyldutryggingum húsa um 40%
miðað við næstu endurnýjun sem
er 1. janúar n.k.
Á blaðamannafundi sem for
svarsmcnn trygginganna héldu í
gær sögðu þeir að ástæðurnar
fyrir því að iðgjaldalækkun væri
möguleg væri þróun í orkumál-
um, betri brunavarnir, betri
húsagerð og betri skrifstofu-
tækni. Það kom fram á fundin-
um að á hverju ári væri veruleg-
ur tekjuafgangur en þó að þessi
lækkun kæmi til framkvæmda
yrði um 10% tekjuafgangur
samkvæmt gerðri áætlun fyrir
næsta ár.
Samvinnutryggingar hafa einn-
ig hugsað sér að reyna að fá
einhvern þingmann til þess að
flytja breytingartillögu við lög-
boðnar brunatryggingar húsa.
Reykjavíkurborg hefur heimild
skv. ákvæðum 1. greinar laga um
brunatryggingar í Reykjavík til
að sjá sjálf um tryggingar húsa í
Reykjavík. Sveitarfélög skulu
einnig semja við Brunabótafélag
íslands en hafa þó heimild til að
fara annað. Er það tillaga Sam-
vinnutrygginga að gera þetta val
frjálst eins og það er þegar orðið í
Framkvæmdarstjóri
Raunvísindastofn-
unar Háskólans
Menntamálaráðuneytið hefur sett
Hallgrím Ólafsson viðskipta-
fræðing framkvæmdastjóra Raun-
vísindastofnunar Háskólans um
eins árs skeið frá 1. janúar 1979 að
telja.
flestum ríkjum Evrópu sem þó
hafa öll haft svipað kerfi og hér
er við lýði.
Tillögur Samvinnutrygginga
eru: 1. Að jafnrétti verði komið á
milli brunatrygginga í landinu
varðandi brunatryggingar húsa
með því að nema úr gildi einka-
réttarákvæði laga um BÍ. 2. Að
nema úr gildi lög um brunatrygg-
ingar húsa í þeim tilgangi að fella
þessi vátryggingaviðskipti undir
almenn lagaákvæði um vátrygg-
ingar. 3. Að endurskipuleggja
eignamat í landinu á þann veg að
einu samræmdu húseignamati
verði komið á. 4. Að breyta lögum
um brunavarnir og brunamál
þannig að nýtt ákvæði komi í lög
um að eigendur húsa í landinu séu
skyldir að brunatryggja húseignir
sínar samkvæmt opinberu hús-
eignamati.
Hella upp á 2—12 bolla
í einu og halda heitu.
Philips vörur
— Philips þjónusta
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTUN 8 — 15655
kaffikönnur
þessar meö eilífðarpokanum
. , ■ . ■
iJ íiiiil
Héðinn Emilsson deiidarstjóri brunadeildar Samvinnutrygginga,
Benedikt Sigurðsson lögfrseðingur, Hallgrímur Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygginga og Bruno Hjaltested aðstoðarfram-
kvæmdastjóri skýra fréttamönnum frá fyrirhuguðum iðgjaldalækkun-
um á blaðamannafundinum f gær. Ljósm. Kristján
Steingrímur sýnir
á Kjarvalsstöðum
STEINGRÍMUR Sigurðsson list-
málari opnar í kvöld kl. 20.30
málverkasýningu á Kjarvals-
stöðum. Á sýningunni eru 60—70
myndir allar málaðar á þessu ári
og flestar þeirra eru til sölu. Þetta
er 41. sýning Steingríms og
jafnframt 2. sýning hans á Kjar-
valsstöðum. Steingrímur hélt sína
fyrstu sýningu í Bogasalnum í
desember árið 1966 og hefur síðan
sýnt víða um land og einnig
erlendis.
Sýningin á Kjarvalsstöðum
verður opin til 22. desember.
Steingrímur við eitt olíumálverka sinna er sýnir Hest við
ísaf jarðardjúp (séð úr Vigur). Ljósm. Emilía.
Jólagetraun um
umferðarmál fyr-
ir börn í Reykjavík
UM ÞESSAR mundir er verið
að dreifa til allra skólabarna
í Reykjavík á aldinum 6—12
ára jólagetraunum um um-
ferðarmál.
Börnin fá get-
raunablaðið í skóla sínum og
er ætlast til að þau fari með
það heim og svari síðan
spurningum með aðstoð
annarra á heimilinu. Þeim
tíma sem hver fjölskylda
notar til að ræða um vanda-
mál umferðarinnar er vel
varið.
Dagana 15—20 desember
verða sérstakir póstkassar í
lyfjabúðum borgarinnar fyrir
getraunablöðin. Skömmu
fyrir jól verða dregin út 175
verðlaun en þau eru stórar
litprentaðar bækur með
sígildum sögum. Á aðfanga-
dag heimsækja lögregluþjón-
ar 175 börn í Reykjavík og
færa þeim verðlaunin. Þetta
er í tólfta sinn sem lögreglan
og umferðarnefnd Reykja-
víkur senda út jólagetraun til
skólabarna.