Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978 5 Gamalt í» fólk gengurJ ! hœgar Barnaguðs- þjónusta í Dómkirkjunni N.K. SUNNUDAG verður barna- Kuðsþjónusta í Dómkirkjunni kl. 11 f.h. Það er orðin venja í Dómkirkj- unni, að síðasta sunnudaginn fyrir jól sé þar bara ein messa, barnaguðsþjónusta. Að þessu sinni talar sr. Þórir Stephensen við börnin, Kristinn Hallsson óperu- söngvari stjórnar almennum söng, en dómorganistinn Marteinn H. Friðriksson verður við oreglið. Einnig leikur lúðrasveit barna úr Laugarnesskólanum jólalög undir stjóru Stefáns Þ. Stephen- sen og sr. Hjalti Guðmundsson les jólasögu. Ég vil minna börnin á, að vegna þessa verður engin barnasamkoma í Vesturbæjarskólanum á laugar- dag, en ég vænti þess, að þau komi í kirkju á sunnudag. Ég vil einnig og eindregið hvetja foreldra til að koma með börnunum til kirkjunn- ar á sunnudag, en jafnframt um jólin og endranær, því kirkjulegt barnastarf getur, þótt gott sé, aldrei skapað þá hluti sem skapast við sameiginlega kirkjugöngu for- eldra og barna, ekki síst þar sem slíkt verður að reglu eða venju. Það þekki ég vel bæði úr mínu eigin starfi og ekki síður af eigin reynd. Þórir Stephensen. Sjónvarp í kvöld kl. 21.40: „Kaupránsmálin” — Bílabrask — Félagi Jesús Kastljós hefst að venju í sjónvarpi kl. 21.40 í kvöld. Að þessu sinni er þátturinn í umsjá Guðjóns Einarssonar. Þrjú mál eru á dagskrá og verður fyrst fjallað um mis- munandi afstöðu verkalýðs- hreyfingarinnar til aðgerða núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnar varðandi skerð- ingu verðbóta á laun. Munu Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasam- bands íslands, og Guðmundur H. Garðarsson skiptast á skoðunum um það efni. Þá verður fjallað um svik þau, sem komið hafa upp í viðskiptum með notaða bíla. Rætt verður um hvernig hægt er að auka eftirlit með þessum viðskiptum og skapa aðhald til að koma 1 veg fyrir, að fólk sé féflett. Loks verður vikið að bókinni Félagi Jesús, en mikið hefur verið skrifað í blöðum um bókina að undanförnu. Af því tilefni munu þeir ræðast við Sigurður Pálsson námsstjóri í kristnum fræðum og Árni Bergmann ritstjóri. Báðir hafa skrifað um bókina og eru ekki á einu máli. Hjartans þakkir færi ég öllum, sem geröu mér sjötíu ára afmælisdaginn 21. nóvember s:l., ógleymanlegan. Guö blessi ykkur öll. Matthías Karlsson, Berghólum, Bergi, Keflavík. Innilegar þakkir færi ég öllum þeim, sem á einn eða annan hátt glöddu mig og sýndu mér vinarhug á sjötugs afmæli mínu þann 5. desember sl. Lifið heil. Guðmann Magnússon, Dysjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.