Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978 7 Veöur öll válynd Engum dylst aö veöur hafa veriö válynd á stjórnarheimilinu. Mis- gengi skoðana er mikiö, kvikuhlaup tilfinninga í allar áttir, jaröhræringar í pingflokkum og leirgos í einstökum stjórnarping- mönnum. Engin leiö er Þó aö spá í framvindu mála. Loftbólur verða oft að litlu — Þó aö fyrir- ferðarmiklar séu á út- blástursaugnablikuml í upphafi pessarar viku mun stjórnarliöið að mestu hafa komið sér saman um útgjaldahlið fjárlagafrumvarpsins. Ekki mun hafa verið teljandi ágreiningur um eyðslustefnuna. Tekju- hliðin, skattheimtuleiðir, framkallaði hins vegar mikið fum og fuður, a.m.k. á yfirborði. „Það er stutt leið til Bessastaða," sagði forsætisráðherra, Þegar vinnukonuupp- reisnin reis hæst í liði hans, — og hótaði Þar með að biðjast lausnar fyrir sig og samráðherra, ef storminn herti í vatnsglasinu. Þá sættust menn á skattvísitöluna, sem mælir okkur tekju- skattinn, „launamanna- skattinn", sem AlÞýðu- flokkurinn kallar svo. Sá skattur mun aö líkindum hækka um 90% milli ára, á heildina litið, sem er í takt við aðrar efndir Þingmanna AlÞýðu- flokksins. Þeir berja sér Þó enn á brjóst í einhvers konar Tarsanhlutverki — en „pissa síðan í skóinn sinn“, eins og sagt var á gömlu alÞýðumáli. Tíminn um sam- starfsflokkana Leiðarí Tímans sl. miö- vikudag fjallar um vinnu- konuflokkana á stjórnar- heimili Ólafs Jóhannes- sonar. Þar segir m.a.: „Eins og alÞjóö er löngu kunnugt og bezt hefur sannast á undangengn- um mánuðum bregður AlÞýðubandalagiö sér í ólíklegustu kvikinda líki Þegar svo ber undir. Stundum eru hamskiptin til fagnaðar en iðulega ekki, og stundum er nokkur skemmtun að Þeim. Nýjasta líki AlÞýðu- bandalagsins er gervi tyftunarmeistarans ... Gorgeír og yfirlæti eins og Það sem Þeír (alÞýðu- bandalagsmenn) hafa nú sýnt einni af sínum minnstu systrum í borgarstjórn Reykjavíkur hlýtur að skilja eftir sig sár...“ „Það er svo annað mál,“ segir Tíminn, „að öll vinnubrögð AIÞýðuflokksins ... eru með Þvílíkum eindæmum og slíkum öngÞveitisbrag að torvelt er aö skilja hvað er á seyöi... Sann- leikurinn er sá aö gaman Það sem alikratarnir stunda á kostnað al- mennings um Þessar mundir er svo villt og hömlulaust að aðeins getur... torveidað sam- starf við flokkinn ...“ Niðurstaðan í dómnum um AIÞýöuflokkinn er „að hann sé milli vita og viti ekki sitt rjúkandi ráð“. Þannig er húsbónda- dómurinn yfir hjúunum. Og ekki eru meðmælin allra beztu tegundar. Gorgeir og yfirlæti Tíminn talar hér um gorgeir og yfirlæti kommaklíkunnar í garð annars borgarfulltrúa Al- Þýöuflokksins, Þess sem felldi sorphirðugjaldið, sem var eitt af blómunum í gróskuríku skattabeði Alpýöubandalagsins. Persónulegt skítkast í garð Þessa borgarfulltrúa AlÞýöuflokksins hefur verið með eindæmum — Þó að löngum hafi verið nægur efniviður í slíkar sendingar og vilji og hæfileiki til að koma Þeim á framfæri í Þessum herbúðum. Leiðari Þjóð- viljans bennan sama dag ber Þessari lýsingu Tímans á hlutverki tyftunarmeistarans glöggt vitni. Þar segir að „AlÞýðu- flokkurinn hafi nú sett tryggingu fyrir Því að flokkurinn standi framvegis sem ein heild að samÞykktum sem gerðar eru í borgarmála- ráði hans... og líta beri á uppákomuna í borgar- stjórn sem slys. Vörnum hafi verið viö komið til pess að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig“. Hefur pá „tyftunar- meistarinn“, sem Tíminn kallar svo, komið AlÞýöu- flokknum á hlýðnisbás? Hefur alræði AlÞýðu- bandalagsins í borgar- stjórn Reykjavíkur verið tryggt? Eða er hér ósk- hyggja í orðum, sem lýsir yfirlæti og hroka, sem Tíminn segir einkenna AlÞýðubandalagið? Tilvitnaöur leiöarí Þjóð- viljans ber yfirskriftina: „Samstarfið tryggt í borgarstjórn". Hins vegar vantar undirfyrirsögn, sem gæti hafa hljóðaó svo: Að ekki sé nú talað um ríkisstjórninal Valhúsgögn Hinir margeftirspurðu símabekkir komnir. Einnig hornhillur, innskotsborö og margt fleira. Vitjið pantana strax. Valhúsgögn, Ármúla 4. Adam er i hörku formi þessa dagana enda aldrei veriö eins vel buinn til vetrarins. Kjallar- inn er undirlagður af peysum i margvislegum stærðum og gerðum. Einhver þeirra er örugglega við þitt hæfi. Líttu inn og kynntu þér nýju linuna hjá Adam. Hún er glæsileg. #flDAm LAUGAVEGI 47 SÍM117575 Kynnum nýtt vörumerki, Hagkaup Hagkaupsverð er hagsloett veið Krakus jarðarber 1/1 Okker verð 555,- Perur 1/3 465.- Perur 1/2 295.- Ananassafi 1/2 235,- Rauðkál 570 gr. 675.- Súpukjöt 3 kg. 2.343,- Leyfil. verð Okkar verð Svið 1 kg. 717,- 595,- Lambalifur 1 kg. 1.305,- 850.- Kjúklingar 1 kg. 1.555,- Unghænur 1 kg. 1.235,- Opió til I o ■ 3 09 laugardagskvöld HAGKAUP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.