Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978 Norðmenn: Fresta ákvörðun um lögsögu við Jan Mayen Frá fréttaritara Mbl. í Ósló. Jan-Erik Lauré, 14. des. NORSKA stjórnin hefur ákveðið að fresta útfærslu efnahagslög- söKunnar í krinKum Jan Mayen í 200 mflur ok hefur laKt til við íslendinKa að löndin beiti sér fyrir sameÍKÍnleKri líffræðileKri rannsókn á ástandi fiskstofna við eyna. Ástæðan fyrir þessari ákvörðun er að líkindum sú, að Islendingar hafa kvartað yfir því, að fiskstofn- ar á þessu svæði væru ofnýttir. Jens Evensen, norski hafréttar- ráðherrann, hafði einnig áður gefi í skyn, að stjórnin teldi ekki liggja á útfærslu lögsögunnar við eyna. Knut Frydenlund utanríkisráð- Fleiri bátar á vertíð frá Höfn en áður Hornafirði, 14. desember. BÁTASJÓMENN eru nú almennt komnir í jólafrí hér á Höfn, en að undanförnu hafa allmargir bátar verið á lfnu og aflað vel þegar gefið hefur. Það sem af er desember hefur nær stanzlaust verið bræla á miðunum og eftir tveggja vikna stopp komust einhverjir bátanna út í gær, en það mun hafa verið síðasti róður þeirra fyrir jólafrí. Á vetrarvertíðinni verður 21 bátur gerður út héðan frá Höfn og hafa ekki áður verið gerðir út svo margir bátar héðan á vertíðina. 13 eða 14 þeirra verða á línu, hinir á netum og trolli. Margt aðkomufólk kemur hingað til starfa á vertíðinni og mest fólk, sem komið hefur hingað ár eftir ár. Hingað hafa ekki verið ráðnir útlendingar til starfa eins og á svo mörgum öðrum stöðum. — Jens. herra tilkynnti íslenzka utanríkis- ráðherranum um þessa afstöðu stjórnarinnar á ráðherrafundi NATO nýverið. Samtök útgerðarmanna hafa lýst yfir miklum vonbrigðum með þessa ákvörðun og telur samband- ið að fiskifræðilegum rannsóknum Norðmanna og íslendinga á svæðinu muni ekki ljúka árið 1979 og því verði fiskverndunarvanda- málið ekki leyst. Lei Grönnetvedt framkvæmda- stjóri sambandsins segir að ef ekki verði af útfærslu í 200 mílur við Jan Mayen á næsta ári megi búast við aukinni ásókn þjóða ein og Sovétmanna, Grænlendinga, Fær- eyinga og Islendinga á þessi mið. Með þessu verði fiskstofnunum á þessu svæði stefnt í hættu. Norsk skip hafi veitt afla á svæðinu, sem hér um ræðir að verðmæti um 100 milljónir norskra króna (um 6,2 milljarða ísl. kr.) á síðasta ári og ljóst sé að þennan afla mætti auka. Segir Grönnetvedt að það -sé ekki í samræmi við hafréttar- stefnu Norðmanna að lýsa ekki þegar yfir 200 mílna efnahagslög- sögu við Jan Mayen. Hendrik Sv. Björnsson ráðu- neytisstjóri í utanríkisráðuneyt- inu sagði í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi að Norðmenn hefðu ekki enn ákveðið að lýsa yfir lögsögu við Jan Mayen eða að hefja viðræður við Islendinga um það mál og því væri ekki rétt að tala um frestun. Málið hefði verið rætt á fundum utanríkisráðherra þjóðanna og annarra aðila, en málið hefði enn ekki komist á það stig að samningaviðræður væru fyrirhugaðar. Hins vegar hefði verið ágæt samvinna á milli Þannig hækka fas teign agjöld DÆMI um hækkun lóðarleigu og fasteignaskatts 1979 samkvæmt samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur frá 7. desember 1978. Miðað er við 42% meðalhækkun fasteignamats milli ára, þótt vitað sé að hækkun húsamats sé víða verulega miklu meiri í ýmsum hverfum. Fjölbýlishúsið: Kleppsvegur 120 (meðalibúð) Fasteignamat lóðar '79:900.000.- og íbúðar 9.141.000. 1978= Lóðarleiga: Fasteignaskattur: 996,- 27.099.-. 1979. Lóðarleiga: (0,145%) 1.302- Fasteignaskattur: (0,5%) 45.705- vísindamanna frá þjóðunum um verndun loðnustofnsins og loðnu- veiði á þessu svæði, en það hefði verið með vísindalega verndun ákeðins fiskstofns í huga. Þar hefði verið um gagnkvæmt hags- munamál að ræða og samvinna því verið allnáin. Svanhvft Egilsdóttir Svanhvít Egilsdóttir skipuð prófessor í Vín Wiener Zeitung, sem gefið er út í Vínarborg, skýrir frá því, að forseti Austurríkis hafi skipað Svanhvíti Egilsdóttur í fast prófessorsembætti í söng og raddbeitingu við „Hochschule fiir Musik und darstellende Kunst“ í Vínarborg. Svanhvít hefur kennt við háskólann undanfarin 18 ár, jafn- framt því sem hún hefur haldið söngnámsskeið á vegum skólans í ýmsum löndum. Meðal þekktra listamanna, sem eru hjá henni í reglulegri raddþjálfun, eru óperu- söngkonurnar Renate Holm og Gundulla Janowitz, og leikarinn Josef Meinrad. Keypti 9 tnnn af bókum á 4.8 milljónir GUMUNDUR Axelsson kaup- maður og uppboðshaldari í Klausturhólum keypti í síð- ustu viku bókasafn Sigurðar heitins Draumlands. Auglýst hafði verið eftir tilboðum í safnið og kom hæsta boðið frá Gumundi. Ilijóðaði það upp á 4.8 milljónir króna, en næsta tilboð nam 4,3 milljónum og var það frá Árna Bjarnasyni. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Guðmundur að þetta væri mikið safn og hefði það vegið rétt 9 tonn. Hann væri hálfnaður að fara í gegnum safnið og væri þarna margt merkilegra bóka, innlendra sem erlendra. mikið af ættfræði- og ferðabókum. I Akureyrarblaðinu ís- lendingi segir m.a. að flestar íslenzku bækurnar hafi verið frá síðustu áratugum, en í safninu hafi einnig verið um 150 verulega gamlar bækur. í blaðinu segir að ríkið hafi verið erfingi að eignum Sigurðar Draumlands. Sameiginleg tillaga fjárveitinganefndar: 3,4 mijljarða hækk- un ríkisútgj alda - frá útgjaldaáætlun f járlagafrumvarps 1979 FRAM eru komnar þær breyt- ingartillögur við fjárlagafrum- varp komandi árs, sem fjárveit- ingarnefnd flytur sameiginlega, að fjárhæð samtals 3.398.4 m.kr. Að þeim samþykktum er gjalda- hlið fjárlagafrumvarps komin í tæpa 202 milljarða króna (fjárlög yfirstandandi árs námu rúmum 138 milljörðum). Þá eru eftir hugsanlegar breytingartillögur frá einstökum þingmönnum, sem að jafnaði hafa verið allnokkrar. I breytingartillögum fjárveit- ingarnefndar er gert ráð fyrir 2.000 m. kr. hækkun til verklegra framkvæmda, þar af 400 m. kr. til hafnarframkvæmda (auk 44,7 m. kr. hækkunar til hafnarbótasjóðs), 400 m. kr. til menntastofnana og 350 m. kr. til heilbrigðisstofnana. Til aukinnar niðurgreiðslna er lagt til að verja 350 m. kr. Tillögur til breytinga á tekjuhlið frumvarpsins eru enn ekki fram komnar. Ekki er því hægt að gera grein fyrir ráðgerðum tekju- og rekstrarafgangi, sem þingUokkar hafa verið sammála um að stefna að. Gert er ráð fyrir því að önnur umræða um fjárlagafrumvarpið fari fram n.k. laugardag — og laugardagskvöld ef þurfa þykir — en atkvæðagreiðsla um breyt- ingartillögur og einstaka frum- varpsliði fari fram árdegis n.k. mánudag. Stefnt er að því, að sögn form. fjárveitinganefndar, Geirs Gunnarssonar, að lyktir fjárlaga- afgreiðslu verði 22. desember n.k. Þingmenn ættu því að komast í jólafrí á Þorláksdag. Aukalið í jólapóstinum SÍÐASTI móttökudagur fyrir póst innanbæjar í Reykjavík er mánudagur- inn 18. desember og verða póststofur þá opnar til klukkan 22. Starfsmenn póststofanna í Reykjavík leggja mikla áherzlu á að fólk setji strax í póst þau jólakort. sem skrifað hefur vcrið á, svo unnt verði að lesa þau í sundur um helgina. Á þriðjudaginn verður síðan byrjað að bera út jólapóstinn. Unnið er á tvöföldum vöktum hjá póstinum þessa síðustu daga fyrir jól. Það nægir þó ekki og hefur 250 manns verið bætt við starfsliðið þessa daga. Er þar eingöngu um skólafólk að ræða og vinnur það ýmist við útburð eða við að lesa póstinn í sundur. Mikil ásókn var í þessi störf hjá Póstinum og þegar í októberlok voru komnir biðlistar vegna starfsins. Innflutningstollur á erlent sælgæti: „Gagnslaus ráðstöfun — niður- greiðsla mjólkurdufts eina leiðin” „IIUGMYNDIN um þcnnan 40% innflutningstoll á sælgætið er ekki ný, því að þeir voru með þessa sömu hugmynd í fyrrahaust og tilgangurinn með henni er að komast undan því að greiða niður mjólkurduftið til sælgætisgerð- anna,“ sagði Ilallgrímur Björns- son, forstjóri Brjóstsykurs- gerðarinnar Nóa, þegar Mbl. spurði hann álits á þeim hug- myndum sem nú eru til mcðferð- ar í viðskiptaráðuneytinu til stuðnings við sælgætisframleið- endur hér á landi í ljósi sam- keppninnar við erlent sælgæti. Hallgrímur kvað þessa ráðstöf- un þó mundu hrökkva skammt, því að mjóik hækkaði svo hratt. Til dæmis hefði kílóið af nýmjólkinni fyrir ári síðan kostað milli 600 og 700 krónur en núna væri kílóið komið upp í 1533 krónur, og ef þessi þróun héldi áfram væri þessi aðgerð algjörlega gagnslaus. Mjólkin erlendis væri það ódýr, það mikið greidd niður, að ekki þýddi fyrir innlenda sælgætis- framleiðendur að keppa við erlenda framleiðendur á súkkulaði við þessar aðstæður. Hallgrímur sagði að frumvarpi í þessa veru hafi í fyrra verið mótmælt bæði af Félagi ísl. iðnrekenda og sælgætisfram- leiðendum og á þeirri forsendu að í þessu fælist ekki nein lausn, því að hraði verðbólgunnar sæi til þess að súkkulaðiverksmiðjurnar fengju alltaf veigamesta hráefni sitt, mjólkurduftið, á mun lakari kjörum en erlendir samkeppnis- aðilar. „Nú þykjast menn vera búnir að leysa þetta mál aftur, en mér sýnist þetta hins vegar ekkert þýða annað en það þegar fram í sækir að við munum hætta fram- leiðslu á súkkulaði, sem mjólkur- duftið er notað í,“ sagði Hallgrím- Hallgrímur sagði ennfremur, að mjólkurduftið væri einasta mjólkurafurðin núna sem ekki væri greidd niður en það væri í reynd einasta raunhæfa lausnin í þessu máli, þannig að fram- leiðendur súkkulaðis fengju helzta hráefni sitt á svipuðu verði og þær verksmiðjur sem íslenzka súkku- laðið þyrfti að keppa við hér á markaðinum, ellegar að gefa sælgætisframleiðendum leyfi til að flytja mjólkurduftið inn erlend- is frá. Súkkulaðiframleiðendur eru meðal stærstu notenda mjólkur- dufts hér á iandi, nota á að gizka 30—40 tonn á ári, að því er Hallgrímur sagði. Tregðan við að greiða niður mjólkurduftið stafaði síðan af því, að það rúmaðist ekki innan þeirrar upphæðar sem ríkinu er skylt að greiða niður samkvæmt lögum af því að um- framframleiðslan á landbúnaðar- vörum væri orðin svo mikil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.