Morgunblaðið - 15.12.1978, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978
Minning:
Guðríður Guðnumds-
dóttir frá Sandlœk
Þaö var árið 1892, ellefta dag
desembermánaðar, að hjónunum á
Sandlæk í Gnúpverjahreppi, Guð-
rúnu Bjarnadóttur frá Tungufelli
og Guðmundi bónda Ámundasyni,
fæddist síðasta barn sitt. Það var
telpa, sem í skírninni hlaut nafnið
Guðríður Guðrún og nú í dag — að
86 árum liðnum — er til grafar
borin, síðust allra systkina sinna.
Guðríður heitin var komin af
bændafólki Árnesþings í ættir
fram, og barn sveitar sinnar hélt
hún staðfastlega áfram að vera
alla tíð þrátt fyrir um 60 ára
búsetu í þéttbýli höfuðborgarinn-
ar. I faðmi einhverrar fegurstu
sveitar landsins tók hún út þroska
sinn á tímaskeiði, er íslenzk
sveitamenning um land allt reis
einna hæst og náði mestum blóma.
Jörðin Sandlækur er glæsileg
stórjörð á mörkum Skeiða og
Hreppa og bæjarstæðið hið feg-
ursta. Þaðan má á björtum
sumarmorgni líta víðáttumikla
gróðurbreiðu Suðurlands, sem
árnar, stórar og smáar, deila til
sjávar, með bæjarlæk, sem um
munaði, sjálfa Þjórsá, snertispöl
austur frá bænum. í norðri blasa
við lág og vinaleg Hreppafjöllin,
gróin á brúnir upp, en í fjarska ber
við himin tignarlegan fjallahring
frá vestri til austurs með sjálfa
dr^ttninguna Heklu í sólarátt. í
þessu stórbrotna umhverfi ólst
Guðríður heitin upp við mannlíf,
sem sveitungi hennar og frændi,
sér Árni Þórarinsson, löngu síðar í
alkunnri ævisögu sinni kenndi við
fegurð.
Á þessum árum dafnaði í
sunnlenzkum sveitum gróskumikið
félagslíf, sem við nútímamenn
megum um margt öfunda alda-
mótakynslóðina af. Ungmennafé-
lögin héldu uppi heilbrigðu
skemmtanalífi, ýmsir nafnkunnir
bændahöfðingjar efldu reisn stétt-
ar sinnar, og heimili þeirra máttu
kallast menningarmiðstöðvar.
Kveðskapur var í hávegum hafður,
enda hagyrðingar hvarvetna, og
kirkjuferðir glæddu heimasöng og
almenna söngmennt. Alla ævi
síðan var henni furðulega mikið
tiltækt af þessum kveðskap á
góðum stundum, en mest mat hún
þó kveðskap bræðranna Eiríks og
Gests á Hæli, vitanlega að undan-
skildum ljóðum og sálmum sjálfs
prófastsins, sálmaskáldins séra
Valdimars Briems á Stóra-Núpi,
sem jafnan var henni ímynd hins
sanna kirkjuhöfðingja. Sjálf ólst
hún upp á mannmörgu rausnar-
heimili í þjóðbraut, þar sem
íslenzk gestrisni sat í öndvegi. Allt
þetta setti á hana óafmáanlegt
mark sitt, og þessara uppvaxtar-
og þroskaára í sveitinni sinni
minntist hún ævilangt með inni-
legri gleði, sem þó var blandin
nokkrum söknuði.
• Á heimili sínu vandist Guðríður
öllum venjulegum störfum þeirra
tíma. En ekki var henni það nóg.
Ung hélt hún til Reykjavíkur og
lærði fatasaum hjá Andrési
Andréssyni, hinum kunna klæð-
skera, enda urðu þau næstu árin
mörg karlmannafötin, sem hún
saumaði á ýmsa sveitunga sína,
unga og gamla. Mátti einu gilda,
hvort hún gekk að hinum gróf-
gerðari útistörfum eða fékkst við
fíngerðustu handavinnu, allt lék
það henni jafnt í höndum, enda
komin af hagleiksfólki í marga
ættliðu. Get ég ekki stillt mig að
nefna sem lítið dæmi þessa, að
jafnvel svo einskis nýtir hlutir að
flestra dómi sem ýsubein, er að
jafnaði lenda í sorptunnum fólks,
urðu í höndum hennar að litlum,
haglega útskörnum svönum.
Um þessar mundir var að
hefjast rekstur rjómabúa til
smjör- og ostagerðar. Þessa nýj-
ung lét Guðríður ekki fram hjá sér
fara. Lagði hún nú land undir fót,
hélt vestur til Borgarfjarðar og
réðst nemandi í Hvítárvallaskóla
til dansks manns, Grönfeldts að
nafni, er sezt hafði að hér á landi
og kenndi fjölmörgum vinnslu
mjólkurafurða. Að námi þessu
Ioknu tók hún að sér stjórn
nýstofnaðs rjómabús í Biskups-
tungum skammt frá kirkjustaðn-
um Torfastöðum. Frá þessum tíma
var henni m.a. minnisstæð björt
sumarnótt árið 1917. Var hún þá
skyndilega vakin af svefni við
hófadyn, nýsofnuð eftir önn dags-
ins, en síðan kvatt dyra. Var nú
ekki um annað að ræða en klæðast
Adam er i hörku formi þessa dagana, enda
aldrei verið eins vel búinn til vetrarins. Nú
eigum við geysilegt ún/al af stökum tweed og
flauelsbuxum. Einhver þeirra hæfir þér örugg-
lega. Líttu inn og kynntu þér nýju linuna hjá
Adam. Hún er glæsileg.
LAUGAVEGI 47 SI'M117575
að nýju og gá út. Þar voru þá
komnir í heimsókn þrír þjóðkunnir
menn, skáldið Stephan G.
Stephansson, á ferð sinni um
landið í boði ungmennafélaganna
og vinur hans, Guðmundur Finn-
bogason, síðar landsbókavörður,
ásamt sóknarprestinum, séra Ei-
ríki Stefánssyni á Torfastöðum.
Langaði Klettafjallaskáldið til að
sjá þessa miklu nýjung í íslenzkum
landbúnaði, sem rjómabúin voru,
og mátti nú hin unga rjómabús-
stýra setja öll tæki búsins í gang
til þess að sýna ferðalöngunum,
hvernig að ostagerðinni væri
unnið. Þótti báðum aðilum, henni
sjálfri og þeim félögum, þetta
fróðleg heimsókn og skemmtileg.
Það átti þó ekki fyrir hinni
glæsilegu sveitastúlku að liggja að
vera húsfreyja á stóru sveitaheim-
ili, eins og líklegast hefði mátt
telja. Straumurinn til Reykjavíkur
var hafinn og hreif hana með sér
eins og svo marga aðra. I fyrstu
mun hún ekki hafa gert ráð fyrir
langri dvöl hér, en hún átti þó eftir
að vara ævina á enda. Austur á
Brekku í Biskupstungum hafði
hún kynnzt ungum Árnesingi,
mesta myndarmanni, Gísla Eiríks-
syni frá Miðbýli á Skeiðum. Einnig
hann var nú kominn til hins
vaxandi útgerðarbæjar og hafði
hafið sjómennsku á reykvískum
togurum, sem síðan varð ævistarf
hans. Árið 1921 gengu þau í
hjónaband og stofnuðu hér heimili
sitt. Það hjónaband varð' farsælt.
Þeim varð auðið sex mannvæn-
legra barna, tveggja dætra og
fjöggurra sona, en urðu fyrir
þeirri sáru sorg að missa einn
drenginn á fyrsta ári. En þrátt
fyrir vaxandi ómegð má segja að
þau hafi komizt allvel af á árum,
sem nú mundu kölluð erfiðir
krepputímar. í fyrstu bjuggu þau í
þröngu leiguhúsnæði, eins og svo
margir urðu að sætta sig við á
þeim tímum, en réðust síðan í það
+
Eiginmaður minn og faðir, sonur og tengdasonur
VALDIMAR ARNASON,
andaðist í Ástralíu 12. desember.
María Guðmundsdóttir og börn,
Ásdís Kristinsdóttir, Árni Jóhannesson,
Ólafía Sveinsdóttir.
+ Faöir okkar,
HELGI DANÍELSSON,
Safamýri 63,
lést þriðjudaginn 12. desember, Börnin.
Maöurinn minn,
MAGNÚS JÓNSSON,
Hralnsstaóakoti,
Dalvík,
veröur jarösunginn frá Dalvíkurkirkju laugardagínn 16. desember kl. 2. e.h.
Laufey Þorleifsdóttir.
+
Útför móður okkar og tengdamóður
SVANLAUGAR GUNNLAUGSDOTTUR,
fer fram frá Dómkirkjunni, í dag, föstudaginn 15. desember kl. 15.
Sigurbjörg Ragnarsdóttir, Aóalsteinn Hallgrimsson,
Marta Ragnarsdóttir, Þorsteinn Eggertsson,
Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Pétur Gunnarsson,
Ragnheiöur Ragnarsdóttir, Keld Jörgensen.
+
Viö þökkum af alhug öllum sem vottað hafa okkur samúö og vinarhug viö hina
skyndilegu brottför sonar okkar
SVEINS FRIÐRIKS EYVINDS.
Elísabet Helgadóttir, Ingi Eyvinds,
Helgi Eyvinds, Sigurrós Halldórsdóttir,
Magnea i. Eyvínds, Sœmundur Runólfsson,
Elín Anna Eyvinds, Auöur Eyvinds.
+
Þökkum auösýnda samúö og hluttekningu viö fráfall og útför móöur okkar,
tengdamóöur og ömmu,
ÖNNU SIGURVEIGAR FRIÐRIKSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og lækna Vífilsstaöaspítala.
Snæbjörn Þór Snæbjörnsson, Unnur Björgvinsdóttir,
Stefán Snæbjörnsson, Kristjana Aðalsteinsdóttir,
Þorvaldur Valsson og barnabön.