Morgunblaðið - 15.12.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978
27
Því er nefnilega þannig varið að
í Grundarfirði eru allir bátarnir
og togarinn líka gerðir út af
einstaklingum, sem ýmist eru
starfandi eða fyrrverandi sjó-
menn, og hafa því beinan hag af
velgengni útgerðarinnar. Tii dæm-
is eru 5 af 16 manna áhöfn um
borð í togaranum Runólfi útgerð-
armenn um leið, svipuð hlutföll
eru sem betur fer á fleiri bátum
hér í Grundarfirði.
Verkalýðsfélagið getur svo átt
það við sig, hvort það metur frekar
þá, sem leggja fram manndóm og
atorku til að skapa atvinnu og
betri lífskjör fólkinu til handa í
Grundarfirði, eða hina sem róa á
aflatryggingasjóð. Fari það mat
eftir pólitískum línum, býst ég við
að b/v Runólfur og áhöfn hans fái
lága einkunn.
Ennfremur ætti verkalýðsfor-
maðurinn að upplýsa af hverju því
var sleppt, að segja frá báti, sem
er lítið eitt minna skip en
togarinn, að vísu nýkeyptur til
Grundarfjarðar og er gerður út af
fiskverkendum, en landar enn
engum fiski hjá fyrirtæki sínu í
heimahöfn og siglir með aflann. Ef
til vill eru þar með í ráðum menn
með nokkra sjálfsbjargarviðleitni,
sem vilja reyna að standa óstudd-
ir, þótt kommar séu?
Ef hægt er að kaila atvinnu-
ástandið í Grundarfirði alvarlegt
vandamál, þá eru þau vandamál
ekki erfið úrlausnar. Fólkið er búið
að vinna mikið og hefur oft orðið
að leggja ærið að sér, til að bjarga
verðmætum fyrir land og þjóð, og
verðmætasköpun þessa litla
byggðarlags er sennilega komin
yfir 2.2 milljarða nú þegar á árinu,
sem eru um 2.6 milljónir króna á
hvert mannsbarn í þorpinu.
Það hefði því átt að gleðja alla
að aðeins minnkaði hið mikla
vinnuálag, sem of oft verður í
aflasælu athafnaplássi. Það hefði
átt að gleðja verkamennina, að
konurnar þeirra hefðu frið til að
baka jólakökurnar sínar og at-
vinnuleysistryggingasjóður borg-
aði þeim kaup á meðan, enda eru
þær ár.æðanlega búnar að leggja
inn fyrir því.
• Á atvinnuleysisskrá eru 35
konur og 3 karlar, en Fiskverkun-
arstöð Soffaníasar Cecilssonar
vantaði starfsfólk á sama tíma, en
samkvæmt reglum þarf fólk ekki
að fara í vinnu hjá öðru fyrirtæki
innan eins mánaðar, ef atvinna
ellur niður hjá því fyrirtæki sem
f,að hefur unnið hjá, þó svo að um
sömu atvinnugrein sé að ræða, ef
marka má upplýsingar forystu
verkalýðsf élagsi ns.
Það er því rétt að það komi fram
að einmitt þegar starfsfólki Hrað-
frystihúss Grundarfjarðax var
sagt upp vinnu, vantaði fólk í
saltfiskpökkun, en það fékkst ekki
af fyrrgreindum ástæðum og
fyrirtæki Soffaníasar Cesilssonar
varð af afsetningu á þó nokkru
magni af saltfiski fyrir bragðið.
í Grundarfirði býr þróttmikið
fólk með ágæta sjálfsbjargarvið-
leitni. Það hefur kosið sér til
forystu um margra áratuga skeið
athafnasama menn með sjálfstæð-
an hugsunarhátt. Verkin sína
merkin, þvi hér hefur tekist að
byggja upp allmyndarlegt byggð-
arlag, sem Grundfirðingar eru
stoitir af.
Það er því ekki í anda þeirra að
hugsjónaafstyrmin séu notuð til
þess að ófrægja þá sem standa upp
úr. Öfundin og aumingjadómur-
inn, sem lýsir sér í umræddri grein
Þjóðviljans er ekki frá fólkinu í
Grundarfirði, hér er á ferð aðfeng-
in inngjöf, sem á að nýta til þess
að rjúfa það samstarf og þann
samhug, sem hér hefur TÍkt alla
jafnan.
Niðurstaðan er því sú, að ekki
var fjallað um atvinnuleysið í
Grundarfirði í umræddri Þjóð-
viljafrétt og forystugrein sama
blaðs. Hér þóttust menn eygja
tilvalið tækifæri til þess að ráðast
á þróttmikið einstaklingsframtak,
sem hefur staðið af sér og mun
standa af sér meiri veður en þessa
iðragolu úr Þjóðviljanum.
Sú öfund og aumingjadómur,
sem birtist í umræddum skrifum
mun ekki ná að rífa það niður, sem
hér hefur tekist að reisa, því til
varnar er einstaklingsframtakið,
sem blundar í hverjum dugandi
manni.
Grundarfirði 13.13. 1978.
Guðmundur Runólfsson.
f Lítið born hefur lítið sjinsvið
Jólasvein-
ar á úti-
markaðnum
Jólasveinar munu heimsækja úti-
markaðinn á Lækjartorgi og
skemmta börnum frá kl. 15—16
næstkomandi föstudag og iaugar-
dag. Síðustu vikuna fyrir jóiin
munu jólasveinarnir skemmta
börnum á þessum sama tíma alla
vinnudaga.
Bahá’u’lláh
og nýi tíminn
ÚT er komin á íslensku bókin
Bahá'u'IIáh og nýi tfminn eftir J. E.
Esslemont í íslenskri þýðingu
Eðvarðar T. Jónssonar.
Bókin fjallar um Bahá’ítrúna, um
opinberandann Bahá’u’lláh sem er
höfundur hennar og það erindi sem
hún á til samtímans. Bahá’u’lláh
kom fram í Persíu um miðja síðustu
öld, þannig að þau trúarbrögð sem
bókin greinir frá eru yngstu trúar-
brögð heims.
„Bahá’u’lláh og nýi tíminn" hefur
komið út áður á íslensku og er þetta
þriðja útgáfa bókarinnar, sú fyrsta
er frá 1939.
Bókin skiptist í fimmtán kafla og
er 286 bls. að stærð. Kápu teiknaði
Geoffrey Pettypice, Prentstofa
Guðmundar Benediktssonar sá um
setningu og prentun og Arnarfell h.f.
um bókband.
Grafík á
ísafirði
SÝNING á grafíkverkum Richards
Valtingojer-Jóhannssonar var opnuð
í Bæjar- og héraðsbókasafninu á
ísafirði laugardag 25. nóvember
síðastliðinn.
Myndirnar, sem eru steinþrykk og
æting, eru nítján talsins og allar
unnar á síðastliðnum þremur árum.
Sýningin er opin á venjulegum
útlánstíma bókasafnsins, virka daga
frá kl. 14.00—19.00 og laugardaga kl.
14.00—16.00 og stendur til 18.
desember.
Flottadrengurinn Hassan er 12 ara. Hann a héima í helli
nálægt Jerúsalem. Hann er fátækur og oft svangur og
verður að leggja hart aö sér til að útvega sér og tveimur
litlum telpum mat. Hassan lendir í mörgum spennandi
ævintýrum. Hann flækist m.a. inní óaldaflokk, sem honum
gengur erfiðlega að losna úr. Hann finnur einnig föður sinn,
sem hann hafði villst frá. Flóttadrengurinn Hassan er
raunsönn og hrífandi bók. Um leið og lesandinn fylgist með
spennandi ævintýrum Hassans kynnist hann kjörum og
vandamálum flóttafólks nú á dögum. Sænsk verölaunabók
— kjörin fyrir börn og unglinga. Verð kr. 3240.
Bókautgafan Salt, s. 18188
Margir muna eftir kvik-
myndinni Brúin yfir Kwai-fljót.
Dauðabúðirnar við Kwai-fljót
hafa sama baksvið. Hér er þó
ekki um skáldsögu að ræða heldur frásögn af raunveruleg-
um atburðum. Höfundurinn segir frá því sem hann og félagar
hans í breska hernum þurftu að þola í fangabúðum Japana
við Kwai-fljót í seinni heimsstyrjöldinni. Dauðabúðirnar við
Kwai-fljót er í senn spennandi og hrífandi frásögn. í
fangabúöunum strituðu menn frammi fyrir byssukjöftum og
hættu lífi sínu á flótta. Þeir örmögnuðust, tortryggni og
fjandskapur fór vaxandi. Skyndilega uröu umskipti; Menn
tóku að fórna lífi sínu hver fyrir annan og hjálpa hver
öðrum... Hvað gerðist við Kwai-fljót? Verð kr. 5880.
Fast i öllum bókaverzlunum.