Morgunblaðið - 15.12.1978, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978
29
Félag íslenzkra stórkaupmanna:
Matvöru- og vefnaðarvöru-
heildsala rekin með 2-4,5% tapi
í FRÉTTATILKYNNINGU frá Félagi íslenzkra stórkaupmanna
ítrekar félagið ennþá þá skoðun sína að núverandi verðlagskerfi sé
orðið úrelt og staðfesti könnun verðlagsstjóra á innflutningsverði í
haust það álit og skoðun félagsins sé sú að frjáls álagning sé það eina
sem tryggi neytendum hagkvæmast vöruverð.
Könnun á afkomu heildverzlun-
arinnar árið 1977 leiddi í ljós að
afkoman það ár er um það bil
helmingi lakari en meðaltal ár-
anna á undan og er útlit fyrir að
ýmsar greinar heildverzlunar
verði reknar með verulegu tapi í
ár, því á þessu ári hefur álagning
tvisvar verið skert og lækkuð í
heildina um 20%.
Að síðustu segir í tilkynningu
FÍS, að afkoman í heildverzlun sé
verst í matvöru og vefnaðarvöru.
Slík fyrirtæki séu rekin með tapi
sem nemi 2—4.5% og ef ekki
kæmu til umboðslaunatekjur þá
væri tapið 6—8%. — Félag ís-
lenzkra stórkaupmanna skorar því
á verðlagsyfirvöld að leiðrétta
heildsöluálagningu nú þegar, áður
en í algjört óefni er komið og
tryggja þannig hag neytenda.
Ennfremur segir að frelsi í
verðlagsmálum muni leiða til þess
að vöruverð lækki með aukinni
samkeppni, hagkvæmari innkaup-
um og dreifingu. Álagning inn-
flytjenda myndi svara til eðlilegs
dreifingarkostnaðar og hagnaðar
til að byggja upp heilbrigð innlend
heildsölufyrirtæki sem geti útveg-
að neytendum vörur á hagkvæm-
asta verði svo og framleiðendum
hráefni á bezta fáanlega verði.
Hin úreltu verðlagsákvæði hafa
haft það í för með sér, að í sumum
greinum er heildverzlunin orðin
hverfandi lítil. Þetta veldur því, að
í stað þess að kaupa hjá innlend-
um heildverzlunum kaupa smásal-
ar af erlendum heildsölum og
framleiðendum og innkaupin
verða yfirleitti fleiri, smærri,
óhagkvæmari og birgðahald flyzt
að mestu út úr landinu.
Petter
bátavélar
Eigum enn óráöstafaö á gamla veröinu:
1 stk. PETTER bátavél 16,5 hestöfl.
1 stk. PETTER bátavél 6 hestöfl.
Einnig eigum viö fyrirliggjandi nýjar og
notaöar landvélar. ^
Vélar og skip h.f.
Grandagaröi 1 b, sími 27544.
Nú gefur Happdrætti Há-
skólans þér kost á skemmti-
legri og óvenjulegri jólagjöf
handa vinum og vanda-
mönnum.
Þú getur fengið sérstakt
gjafakort hjá næsta
umboðsmanni HHÍ.
kortið er gefiö út á nafn
eigandi þess getur
sér mióa í HHÍ '79
hátíðar hjá hvaða urti
manni sem er!
Gjafakort HHI getur óváeni
orðið að gleöilegri jólagjof,
ef vinningur fellur á
miðann, sem valinn er.
Vinningur er alls ekki ólík-
legur — vinningshlutfall
HHÍ er það hæsta í heimi!
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Menntun í þágu atvinnuveganna
Gleðíleg
jólagjöf
Jólaplatan
sem enginn má vera án
þessi jól né önnur.
V.
Þeir sem koma fram á þessari plötu eru:
Vilhjálmur Vilhjálmsson,
Ruth Reginalds,
Egill Ólafsson,
Berglind Bjarnadóttir,
Kór Öldutiínsskóla,
stjórnandi Egill FriÖleifsson,
ÞórÖur Árnason,
Manuela Wiesler ofl.
Hljómplötuútgáfan h.f.
Laugavegi 33, R. Sími 11508.
■■■■!■ I