Morgunblaðið - 24.12.1978, Page 4
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 1978
S jómenn Reykjavík
Sjómenn Reykjavík
Á mílli jóla og nýárs efnir Sjómannafélag
Reykjavíkur til fundar um félags- og kjaramál
meó félagsmönnum sínum sem hér segir:
meö sjómönnum hafrannsóknarskipa 27. des. kl.
10
með farmönnum 27. des. kl. 14
meö bátasjómönnum 28. des. kl. 10
meö togarasjómönnum 29. des. kl. 10
meö loðnusjómönnum 29. des. kl. 14
meö sjómönnum sanddæluskipa í byrjun janúar.
Allir fundirnir veröa aö Lindargötu 9, 4. hæö.
Sjómenn mætiö vel og stundvíslega.
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur.
(ELBA)
BRÉFABINDI
Höfum kaupendur aö eftirtöldum veröbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKIRTEINI
RÍKISSJÓÐS: Kaupgengi pr. kr. 100- Yfirgengi miðað við inntausnar- verö Seöla- bankans.
1968 1. flokkur 2814.80 54.8%
1968 2. flokkur 2647.56 53.9%
1969 1. flokkur 1971.06 53.8%
1970 1. flokkur 1809.18 19.8%
1970 2. flokkur 1315.92 53.2%
1971 1. flokkur . 1236.14 19.7%
1972 1. flokkur 1077.78 52.9%
1972 2. flokkur 922.11 19.7%
1973 1. flokkur A 702.29 19.7%
1973 2. flokkur 648.98
1974 1. flokkur 450.76
1975 1. flokkur 368.57
1975 2. flokkur 281.28
1976 1. flokkur 266.85
1976 2. flokkur 212.45
1977 1. flokkur 197.32
1977 2. flokkur 165.26
1978 1. flokkur 134.70
VEDSKULDABRÉF:* Kaupgengi pr. kr. 100.-
1 ár Nafnvextir: 26% 77—79
2 ár Nafnvextir: 26% 68—70
3 ár Nafnvextir: 26% 62—64
*) Miðað er viö auðseljanlega fasteign. HLUTABRÉF:
Sjóvátryggingarf. íslands hf. Sölutilboð oskast
Hvalur hf.
Trygging hf. Eimskipafélag íslands hf.
NáRKirmemptiM isumof HP.
VLNOBRÉFAMARKAÐUR
LÆKJARGÖTU 12 R. (lönaöarbankahúsinu).
Sími 2 05 80. Opið alla virka daga frá kl. 13— 16.
J ólamy ndir
eins við hákarlinn heldur einnig
við ýmsa forystumenn í þorpinu,
sem eiga sundurleitra hagsmuna
að K®ta í þessum efnum. Asamt
Scheider eru önnur hlutverk í
höndum Lorraine Gray, Murray
Hamilton, Cindy Grover o.fl.
Tónlist er eftir John Williams.
Leikstjóri er Jeannot Szwarc en
myndin er gerð eftir handriti
þeirra Carl Gottlieb (sem skrifaði
„The Jaws Lo(í“ um fyrri myndina)
o(j Howard Sackler. Fram-
leiðendur eru sem fyrr Richard
Zanuck og David Brown.
Nýja Bíó
Silent Movie, am. 1976, leikstjóri
Mel Brooks.
Nýja Bíó hefur undanfarin ár
verið með léttar gamanmyndir um
jólin og heldur því áfram í ár.
Silent Movie er næst-nýjasta
afkvæmi Mel Brooks (Blazing
Saddles, Young Frankenstein og
nú síðast High Anziety) og er líkt
og nafnið gefur til kynna þögul
með millitextum en henni fylgir
þó tónlist og einstaka hljóðeffekt-
ar. Silent Movie segir frá kvik-
myndastjóranum Mel Funn (Mel
Brooks) sem datt út úr bransanum
vegna drykkju en hann ákveður nú
að ganga í bindindi og gera eina
kvikmynd til að bjarga fram-
leiðslufyrirtæki sínu frá því að
verða gjaldþrota og þar með
innlimað í risafyrirtækið Engulf &
Devour. Mel nær í félaga sína
Marty Eggs (Marty Feldman) og
Dom Bell (Dom DeLuise) og í
sameiningu kynna þeir hugmynd-
ina fyrir forstjóra kvikmyndavers-
ins (sid Caesar). Hann hlustar á
Mel í forundran en hugmyndin er
sú, að gera milljón dollara þögla
stórmynd með öllum helstu stjörn-
um í Hollywood. Samþykki fæst en
fyrst verður að fá stjörnurnar til
að taka þátt í þessari vitleysu, og
þeir félagar hefjast þegar handa
við að elta uppi stjörnur eins og
Burt Reynolds (þeir hitta
Reynolds á hans raunverulega
heimili), Paul Newman, sem þeir
lenda í kappakstri við — á
hjólastólum, Liza Minelli, sem þeir
taka nánast herskildi í matstofu
kvikmyndavers nokkurs, og meðal
annarra leikara, sem fá þremenn-
Klaufabárðurinn Clouseau
lögregluforingi. Tónabíó.
Laugaráshíó - JAWS II.
Háskólabíó
Háskólabíó hefur nú þegar tekið
vikuforskot á jólamynd sinni í ár,
Ileaven Can Wait og efni hennar
hefur áður verið kynnt hér í
blaðinu. Formsins vegna er þó rétt
að láta það fylgja hér með að nýju.
Myndin, sem er leikstýrð af W.
Beatty og rithöfundinum Buck
Henr.v, segir frá Joe Pendleton
(Warren Beatty), íþróttamanni,
sem lendir í umferðarslysi og fyrir
mistök reynslulítils, himnesks
fylgdarsveins (Buck Hency) fer
hann með Joe til himna. Joe er
hins vegar hinn reiðasti og segist
alls ekki hafa verið tilbúinn til að
deyja og skýtur máli sínu til
erkiengilsins Jordan (James
Mason). Jordan flettir upp í stóru
bókinni, þar sem allt er skrifað og
kemst þar að því, að Joe á ekki að
koma fyrr en eftir 50 ár. Hann
ávítar fvlgdarsveininn fyrir fljót-
færnina og þéir fara báðir með Joe
til baka, til að koma honum í
iíkama sinn á nýjan leik. A því er
þó smáhængur, því að þjálfari Joe
hafði af mikilli skyldurækni
brennt líkama þessa vinar síns
eftir slysið. Eftir nokkra leit og
þjark er samið um að Joe taki við
líkama milljónamæringsins Leo
Farnsworth, en eiginkona Leo,
Julia (Dyan Cannon), og ritari
hans, Tony (Charles Grodin),
brugga Leo banaráð. Joe samþykk-
ir þetta aðeins til bráðabirgða,
aðallega vegna þess að hann
verður yfir sig hrifinn af ungri
stúlku, Betty Logan JJulie
Christie), sem á í útistöðum við
Leo. Umskiptin hafa hins vegar í
för með sér mikinn rugling, því að
Joe tekur með sér sinn eiginn
persónuleika í líkama Leos.
Háskólabíó mun upphaflega
hafa ætlað myndina Grcase sem
jólamynd, en nýjustu fréttir
herma, að hún muni fylgja fast á
hæla þessarar myndar og sýningar
á Grease munu því hefjast mjög
fljótlega eftir áramótin.
Stjömubíó
Murder by Death. am. 1976.
Leikstjóri: Robert Moore.
Handritið að þessari mynd er
skrifað af Neil Simon, hinum
þekkta leikritahöfundi, sem skrif-
að hefur mörg hárbeitt gamanleik-
rit. Simon hefur lýst þessu verki
sem sínu fyrsta, er hafi það eitt
markmið að vera fyndið. Sagan er
nokkuð í anda Agöthu Cristie en
hér er sagt frá milljónamæringn-
um og furðufuglinum Lionel
Twain (Truman Capote), sem
býður öllum helstu spæjurum
skáldsagnanna til kvöldverðar
heim til sín, í gamalt, drungalegt
og afskekkt stórhýsi. Þarna eru
mætt Sam Diamond (Peter Falck)
frá San Francisco, Milo Perrier
(James Coco) frá Belgíu, Dick
Charleston og frú (David Niven/
Maggie Smith), Jessica Marbles
(Elsa Lanchester) frá Englandi og
loks Sidney Wang (Peter Sellers).
Meðal annarra gesta er vinkona
Sams, Tess (Eileen Brennan), en
þjónustulið Twains er blindi
þjónninn Bensonmum (Alec
Guinness) og þjónustan Yetta
(Nancy Walker), sem hrópar án
þess að gefa frá sér hljóð. Um leið
og gestirnir koma til hússins er
gerð á þeim f.vrsta morðtilraunin
og fleiri fylgja í kjölfarið. Við
kvöldverðarborðið býður Twain
milljón dollara verðlaun þeim
spæjara, er geti upplýst morð, sem
framið verði þarna á staðnum á
miðnætti. Undarlegir atburðir
taka nú að gerast um gervallt
húsið og spæjararnir fara jafnvel
að gruna hvern annan um græsku.
Laugarásbíó
Jaw.s II, am. 1978, er jólamynd
Laugarásbíós og sýningar eru
þegar hafnar. Hér er á ferðinni
framhald af hinni vinsælu mynd
Spielbergs, Ókindinni, og efnið
gerist á sama stað og fyrr, í
baðstrandarþorpinu Amity á Long
Island. Martin Brod.v, lögreglu-
stjórinn á staðnum, sem í fyrri
myndinni lifði af bardagann við
mannætuhákarlinn, er hér aftur
ieikinn af Roy Scheider. Ástandið í
þorpinu er mjög við það sama og í
f.vrri myndinni í upphafi, áhyggju-
lausir ferðamenn og blómstrandi
viðskiptalíf þegar annar
mannætuhákarl gerir allt í einu
vart við sig. Og líkt og fyrr,
stendur barátta Brodys ekki að-