Morgunblaðið - 24.12.1978, Page 18
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 1978
Sjónvarp & útvarp
Lóa ok óli með Nonna litla meðan allt leikur í lyndi á heimilinu.
Silfurtúnglið
Silfurtúntílið, leikrit eftir
Halldór Laxness í sjónvarpsjíerð
Hrafns Gunnlaugssonar, hefst í
sjónvarpi þriðjudagskvöld kl.
20.30.
Sjónvarpsleikritið b.vggir á
yrkisefni sviðsverksins, en leik-
ritinu hefur verið breytt eftir
kröfum sjónvarpstækninnar.
„Verkinu hefur verið breytt
séð út frá atburðarás og tíma,
en Silfurtúnglið er upphaflega
sviðsverk í fjórum þáttum en í
sjónvarpsútfærslunni skiptist
það niður í rúmlega fimmtíu
sjálfstæð atriði,“ sagði Hrafn
Gunnlaugsson, en hann var
inntur nánar eftir útfærslu á
leikritinu. „Ég hef reynt að
finna umbúðir um verkið, svo að
það komist til skila. Sá maður,
sem tekur að sér að umbreyta
verki höfundar frá einu formi til
annars, verður að vera upphaf-
lega verkinu trúr, annars getur
hann skrifað sjálfur sitt eigið
verk og á að láta aðra höfunda í
friði. Maður getur ekki unnið að
einu verki heils hugar nema að
trúa á þá hugmynd, sem liggur
því til grundvallar. Ég vona, að
þessi útfærsla nái til allrar
fjölskyldunnar, en ég hef reynt
að segja þessa sögu á eins
skilmerkilegan hátt sem mér
hefur frekast verið unnt í
gegnum mitt hugmyndaflug
með sjónvarpskvikmyndavélina
inn á sjáaldrinu.
Sagan segir frá lítilli konu,
við lygnan fjörð, sem heitir Lóa.
Hún ákveður að freista gæfunn-
ar í skemmtanaiðnaðinum.
Hana dreymir um að glampa
eins og þær stjörnur, sem hún
sér á síðum kvikmyndablað-
anna.
Annars er það mikil einfeldni
að ætla sér að segja í fáeinum
setningum frá verki, sem tekur
tvo tíma í flutningi," sagði
Hrafn að lokum.
Útvarp II í jólum kl. 13.20:
ÚUen,
dúUen,
doff...
Úllen, dúllen, doff, þáttur í umsjón
Jónasar Jónassonar, hefst í útvarpi
þriðjudag kl. 13.20.
Þátturinn er blandaður söngva-
og leikatriðum með jólaívafi og
reynt að höfða til sem allra flestra,
„ungs fólks á öllum aldri". Rifjuð
verður upp stemning í gömlu
skemmtiþáttunum í útvarpinu, en þá
tíðkaðist að áhorfendur væru við-
staddir. Meðal efnis í þættinum eru
tekin fyrir málefni og menn í léttum
dúr. Leiknir eru stuttir þættir og
flutt örstutt söngnúmer og jóla-
sveinninn kemur einnig við sögu.
Efnið í þættinum er samið og flutt
af leikurunum Eddu Björgvinsdótt-
ur, Gísla Rúnari Jónssyni, Randver
Þorlákssyni og Hönnu Maríu Karls-
dóttur undir stjórn Jónasar Jónas-
Útvarp jóladag kl. 15.05:
Dagskrárstjóri í klukkustund
Þátturinn Dagskrárstjóri í eina klukkustund er að þessu sinni í
umsjá Markúsar Á. Einarssonar veðurfræðings. Hefst hann á jóladag
kl. 15.05.
Meðal efnis i þættinum er tónlist og má'þar nefna kórverk ú Messíasi
eftir Hándel, orgelverk eftir Johan Sebastian Bach og óperuaríu úr La
Boheme eftir Puccini auk annarra sönglaga íslenzkra og erlendra.
Þá les Gunnar Stefánsson kafla úr gömlum þætti um daginn og veginn
eftir Jón Eyþórsson veðurfræðing. Einnig verður lesið úr bók Þórbergs
Þórðarsonar, Sálminum um blómið, en lesári er Helga Þ. Stephensen
leikkona. Siðan les Gunnar Stefánsson hugleiðingu eftir Jakob
Jóhannesson Smára og loks mun Stefán Júlíusson lesa úr eigin verkum.
sonar, en auk þeirra sá Júlíus
Brjánsson einnig um samningu
efnisins. Hlöðver Smári Haraldsson
og Vilhjálmur Guðjónsson úr hljóm-
sveitinni Galdrakörlum og Gunnar
Hrafnsson og Hróðmar Sigurbjörns-
son úr Melchior sáu um tónlistina og
tengja atriði þáttarins saman með
henni.
Sjónvarp jóladag kl. 20.15:
Sjónvarp mióvikudag kl. 20.55:
Sjónvarp miðvikudag kl. 21.45:
Ebenzer Scrooge með nátthúfuna
sína að borða „jólagrautinn".
Þættir úr ævi
Jussi Björlings
Jólasaga, A Christmas Carol,
leikin brezk kvikm.vnd, byggð á
sögu Charles Dickens, hefst í
sjónvarpi annað kvöld kl. 20.15.
Segir í myndinni frá gamla
nirflinum Benezer Scrooge. Er
hann allríkur en alræmdur fyrir
nízku sína. Jafnvel á jólunum er
hann jafn nízkur og harðbrjósta
og áður. Scrooge hefur fyrirgert
allri persónulegri hamingju fyrir
það takmark sitt að nurla saman
einhverjum peningum en hann
lifir og hrærist fyrir aurana sína.
Tímir hann ekki einu sinni að hita
upp skrifstofu sina, þannig að
ótuktarskapurinn við náungann og
Þættir úr sögu Jussi
Björlings, óperusöngvarans al-
kunna, önnur tveggja mynda,
hefst í sjónvarpi miðvikudags-
kvöld kl. 20.55.
Segir í þessari heimildarmynd
frá lífi og starfi Björlings og er
þar viðtal við fólk, sem þekkti
hann. Meðal annars er rætt við
hans nánustu, konu hans og
börn, svö og samstarfsmenn
Björlings og söngvara við Stokk-
hólmsóperuna.
Björling hóf söngnám hjá
föður sínum í upphafi og reynd-
ar báðir bræður hans, Gösta og
Olle, líka. Ferðaðist faðir þeirra
með þá til Bandaríkjanna unga
að aldri, þar sem þeir héldu
óliðlegheitin koma líka niður á
honum.
Aðfaranótt jóla birtist honum í
draumi gamli meðeigandinn í
fyrirtæki hans, en sá er látinn.
Meðeigandinn fyrrverandi ætlar
að gera Ebenezer Scrooge þann
greiða að senda þrjá anda á hans
fund honum til sáluhjálpar.
Ógnarstjórn nefnist áttundi þátturinn í myndaflokknum um
Kládíus, sem hefst miðvikudag kl. 21.45.
Tiberius, sem haldinn er ofsóknarbrjálæði og mikilli hefnigirni
sakar Agrippinu og son hennar, Neró, um landráð fyrir senatinu,
sem er steini lostið.
Tiberius býður Sejanusi að kvænast Helen, dóttur Livillu, en
Livilla verður að vonum ill við. Móðir Livillu, Antonia, kemst að
hlutdeild hennar í morði Castors og fleiri athæfum Livillu og
ákveður sjálf að refsa henni. Einnig að koma boðum til Tiberiusar
um aðgerðir Sejanusar, en er það hægara sagt en gert, þar sem ekki
er hægt að ná til keisarans nema gegnum Sejanus.
tónleika ásamt föður þeirra við
góðar undirtektir. Þótti þetta
geysimikill viðburður, en upp-
tökur með þeim feðgum eru til
frá þessum tíma.
Jussi Björling
Dýraeftirlitshjónin að reyna að kenna Elsu að veiða sér til matar.
Jólasaga
Sjónvarp II í jólum
kl. 17.00:
Ljóns-
unginn
Elsa
Borin frjáls nefnist
myndin um ljónsungann
Elsu, sem hefst í sjónvarpi
þriðjudag kl. 17.00.
Segir í myndinni frá
dýraeftirlitshjónum í
Kenýa, George Adamson og
konu hans.
George neyðist til að
drepa fullorðin ljón, sem
orðið hafa fólki að bana.
Tekur hann þrjá unga
þeirra og fer með heim til
sín, þar sem hann og kona
hans ala þá upp. Þegar
ljónsungarnir eru orðnir
stálpaðir geta hjónin ekki
haft þá lengur, svo tveir
þeirra eru sendir í dýra-
garð, en Elsa verður eftir.
Reyna þau hjón með
ýmsu móti að kenna henni
að bjarga sér í frumskógin-
um en það gengur erfiðlega
og reynir mikið á þolinmæði
þeirra.