Morgunblaðið - 26.01.1979, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979
Útvarp í dag kl. 11.00:
Sjónvarp í kvöld kl. 21.20:
Útvarp í kvöld kl. 21.00:
Janúar
Þátturinn Janúar í um-
sjá Kjartans Árnasonar og
Páls Stefánssonar hefst í
útvarpi í kvöld kl. 21.00.
Þátturinn er með blönd-
uðu efni og jafnframt sá
allra fyrsti, sem þeir félag-
ar hafa á sínum snærum.
Meðal efnis eru teknir
fyrir atburðir, sem gerst
hafa í janúar, ekki endilega
nú í ár, heldur hlaupið
lítillega aftur úm 100 ár
eða svo. í því sambandi
verður fluttur nokkuð
merkilegur pistill um
bindindisuppreisn í Lærða
skólanum 1850, en svo
hittist á, að það gerðist
einmitt í janúar. Þá má
einnig geta þess að fyrsta
bindindisfélag á íslandi var
stofnað í janúar 1844 og þá
muna sjálfsagt margir eftir
„reyklausa deginum" hér sl.
þriðjudag. En nóg um
áfengi og tóbak.
Þá verður gerð grein
fyrir því, hvers vegna
mánuðurinn heitir janúar.
Einnig verður rætt lítil-
lega um hljómsveitina
kanadísku The Band og
leikið af hljómplötum
þeirra.
Síðan er lestur smásögu
eftir danska rithöfundinn
Jörgen Johansen. Sagan
nefnist Planteværk í frum-
málinu, en hefur verið gefið
heitið Stífgarðar.
í lokin verður lesin
ferðapistill frá útlöndum,
„lífsreynslusaga".
I am ncia n
Hugleiðing
um Þórsmörk
ÞAÐ ER svo margt, þáttur
í umsjá Einars Sturlu-
sonar, hefst í útvarpi í dag
kl. 11.00.
Leikinn verður
knall-ástararía Amor di
Vieta, með Jussi Björling.
Þá verður fjallað um þorr-
ann lítið eitt og í léttum
dúr,' og í því sambandi
leikið þjóðlagið þegar
hnígur húm að þorra við
texta Hannesar Hafsteins.
Síðan verður flutt hug-
leiðing um Þórsmörk,
náttúrulýsing eftir Eyþór
Erlendsson frá Helga-
stöðum í Biskupstungum.
Eyþór er náttúruskoðandi
mikill og hefur skrifað
talsvert um þessi efni og
les hann sjálfur hugleið-
ingu sína. Hann kveður
Þórsmörk að kvöldlagi í
hugvekju sinni og í því
tilefni leikið Næturljóð
Chopins með texta Jóns frá
Ljárskógum, sem
M.A.-kvartettinn syngur.
Tannréttingar - Ástand
mála á Grænlandi
Errol Flynn leikur eitt aðalhlutverka myndarinnar. í dögun, sem hefst í sjónvarpi í
kvöld kl. 22.20. Segir í myndinni frá brezkum orrustuflugmönnum árið 1915 í
Frakklandi en þeir eiga þar í höggi við Þjóðverja á vesturvígstöðvunum. Myndin er að
sögn þýðanda. Rannveigar Tryggvadóttur, góð afþreying og myndin afskaplega vel
gerð miðað við að 40 ár eru liðin frá gerð hennar. Einnig vel leikin og vandað til hennar
á allan hátt.
Því næst mun Guöjón fjalla
um ástarid mála á Grænlandi,
en sjónvarpsmenn voru á Suð-
ur-Grænlandi fyrir viku og
kynntu sér aðstöðu manna til
heimastjórnar og þeirra breyt-
in(ía, sem hún hefur í för með
sér fyrir Grænlendinga. Einnig
verður fjallað um þau vandamál
sem skapast hafa á Grænlandi
síðustu áratugina vegna hinnar
öru þróunar frá veiðimanna-
samfélagi til nútíma lifnaðar-
hátta.
..Tannlæknastóllinn.“ sem
flestir hafa komist í kynni við.
en í Kastljósi í kvöld verður
fjallað um tannréttingar og
þátttöku hins opinhera f
kostnaði þeim samfara.
í Kastljósi sem er í umsjá
Guðjóns Einarssonar. í kvöld
kl. 21.20 eru að þessu sinni tvö
mál á dagskrá.
Rætt verður um tannréttingar
og þátttöku hins opinbera í
kostnaði við þær. En eins og
kunnugt er hafa tannréttinga-
sérfræðingar ekki allir viljað
gerast aðilar að samningi við
Tryggingastofnunina um endur-
greiðslu hins opinbera og hafa
því fjölmargir orðið að greiða
fullt verð fyrir þessa þjónustu
eg reynzt þungur baggi á
sumum heimilum. Vilhelm G.
Kristinsson fréttamaður, sem er
Guðjóni til aðstoðar, mun ann-
ast þennan þátt Kastljóss.
Utvarp Reykjavík
FÖSTUDbGUR
26. janúar
MORGUNNINN__________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
8.25 Morgunpósturinn. Um-
sjónarmenni Páll Heiðar
Jónsson og Sigmar B.
Hauksson. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustu-
greinar daghl. (útdr.). Dag-
skrá.
8.35 Morgunþulur kynnir
ýmis lög að eigin vali. 9.00
Fréttir.
9.05 Tvö prófverkefni í tungu-
málum á vegum prófanefnd-
ar.
a. Enska. b. 9.30 Danska.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður
fregnir.
10.25 Tilkynningar. Morgun-
þulur kynnir ýmis lögt —
framh.
11.00 Það er svo margt. Einar
Sturluson sér um þáttinn.
11.35 Morguntónleikar. Sin-
fóníuhljómsveit Lundúna
leikur Sinfóníu nr. 100 í
G-dúr eftir Joseph Haydn(
Antal Dorati stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna. Tónleikar.
SÍDDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan. „Húsið
og hafið“ eftir Johan Bojer.
Jóhannes Guðmundsson
þýddi. Gísli Ágúst Gunn-
laugsson les (6).
15.00 Miðdegistónleikar.
Arnold van Mill syngur
óperuaríur eftir Lortzing
ásamt kór og hljómsveit
undir stjórn Roberts
Wagners/ Útvarpshljóm-
sveitin í Berlín leikur „Upp-
sala rapsódíu“ nr. 2 op. 24
eftir Hugo Alfvén. Stig
Rybrant stj.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfrcgnir).
16.20 Popphorn. Dóra Jóns-
dóttir kynnir.
17.20 Útvarpssaga barnanna.
„Depill“, smásaga eftir
Margaret Rey. Guðrún Ö.
Stcphensen les eigin þýð-
ingu.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Kampútsja — og fram-
vinda þar síðustu árin. Þor-
steinn Helgason kennari
flytur annað erindi sitt.
20.00 Frá hljómleikum í Tón-
listarháskólanum f Búda-
pest í janúar 1977. Flytjend-
ur. Andreas Schiff, Sylvia
Sass og Ungverski útvarps-
kórinn. Stjórnandi. Laszló
Révesz.
a. Píanósónata í C-dúr eftir
Joseph Haydn.
b. Fimm sönglög eftir Béla
Bartók.
c. Söngvar og sómönsur op.
93 eftir Johannes Brahms.
21.00 Janúar. Kartan Árnason
og Páll Stefánsson tóku
saman þátt með blönduðu
efni.
21.40 Klarínettukvintett í A-
dúr (K581) eftir Wolfganga
Amadeus Mozart. Antone de
Bavier og Nýi ítalski kvart-
ettinn leika.
22.05 Kvöldsagan. „Hin hvítu
segl“ eftir Jóhannes Helga.
Heimildarsaga byggð á
minningum Andrésar P.
Matthíassonar. Kristinn
Reyr les (9).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Úr menningarlífinu.
Ilulda Valtýsdóttir talar við
Einar Hákonarson skóla-
stjóra Myndlistar- og hand-
íðaskóla Islands.
23.05 Kvöldstund með Sveini
Einarssyni.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
■DEMim
FÖSTUDAGUR
26. janúar
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 JamesTaylor. i
Poppþáttur með söngvaran-
um og lagasmiðnum James
Taylor.
21.20 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni. I
Umsjónarmaður Guðjón Ein-
arsson.
22.20 í dögun s/h.
(Dawn Patrol).
Bandarfsk bíómynd frá ár-
inu 1938.
Aðalhlutverk Errol Flynn,
David Niven, og Basil Rath-
bone.
Sagan gerist í fyrri heims-
styrjöldinni. Sveit manna úr
breska flughernum er á
vfgstöðvunum í Frakklandi.
Við öflugan óvin er að etja
og manntjónið er mikið.
Þýðandi Rannveig Tryggva-
dóttir.
00.00 Dagskrárlok.