Morgunblaðið - 26.01.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979
5
Þjóðin var blekkt —
snúum vörn í sókn:
Fundir Sjálfstæðisflokks-
ins á Hvammstanga, Akur-
eyri og Eskifirði á morgun
SJÁLFST.-EÐISFLOKKURINN heldur sjö fundi um helgina. eru þeir
liður í fundaherferð flokksins undir kjörorðunum „Þjóðin var blekkt —
snúum vörn í sókn“.
A laugardaginn eru fundir á Hvammstanga. Akureyri og Eskifirði. en
á sunnudag eru fundir á Húsavík. Neskaupstað. í Grindavík og
Þorlákshöfn.
Ilvammstangi.
Fundurinn á Hvammstanga hefst
klukkan 14 á morgun í Félags-
heimilinu. Ræðumenn verða þeir
Sverrir Hermannsson alþingismað-
ur og Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son alþingismaður
Akureyri.
Fundurinn á Akureyri á morgun
hefst klukkan 14 í Sjálfstæðishús-
inu.
Ræðumenn verða þeir Birgir
ísleifur Gunnarsson borgarfulltrúi
og Matthías Bjarnason alþingis-
maður.
Eskifjiirður
Á Eskifirði hefst fundurinn á
morgun klukkan 14 í Félags-
heimilinu Valhöll.
Ræðumenn verða þeir Jósef H.
Þorgeirsson alþingismaður og
Matthías Á. Matthiesen alþingis-
maður.
Fundirnir eru öllum opnir og að
loknum framsöguræðum verða
almennar umræður og fvrirspurnir.
Tónlistarfélagið:
Kontarsky-bræður
leika f jórhent á píanó
TVEIR þýzkir bræður. Alfons og
Aloys Kontarsky. verða einleikar-
ar á áttundu tónleikum Tónlistar-
félagsins í Reykjavík n.k. laugar-
dag kl. 2.30 í Iláskólabíói og leika
þeir þar fjórhent á píanó verk
eftir Shubert. Stravinsky og
Liszt.
Þeir Kontarsky-bræður fæddust
í Þýzkalandi 1930—31 og voru
aðeins 5 ára að aldri þegar þeir
byrjuðu að leika fjórhent á
píanóið. Á unglingsárum héldu
þeir áfram að leika saman en
frægir urðu þeir 1955 er þeir
frumfluttu með litlum fyrirvara
verk eftir Berd Aloys Zimmer-
mann og hafa þeir síðan frumflutt
nær öll verk sem samin hafa verið
fyrir fjórhentan leik á eitt eða tvö
píanó. Þeir hafa haldið tónleika
um allan heim. Alfons hefur frá
árinu 1967 verið prófessor í
píanóleik við Tónlistarskólann í
Köln og Aloys hóf próf við
meistaradeild sama skóla 1969.
Tónleikar þessir eru til komnir
fyrir samvinnu Tónlistarfélagsins
við þýzka sendiráðið og
Göthe-stofnunina í Þýzkalandi.
ViÖ bjó&ujrrL
15% afslátt
(i/ ‘ ixrru m
oerzlxirnu olclra r
Ul m á n, a Ö a rn ót a.
M.A. MIKIÐ ÚRVAL AF HERRAPEYSUM OG
MITTISJÖKKUM.
EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ FÁ
NÝJAR VÖRUR Á HAGSTÆÐU VERÐI
Éfil
TIZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
MvKARNABÆR
Ldugavey 66 Glæsibæ Simi 28155
A
Austurstræti 22
hæö
simi 28155
Austurstræti 22. simi fra skiptiborði 28155
' I*.
Laugavegi 20. Simi frá akiptiborði 28155.