Morgunblaðið - 26.01.1979, Síða 16

Morgunblaðið - 26.01.1979, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979 Cltgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiósla Auglýsíngar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guómundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aóalstræti 6, sími 10100. Aóalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2500.00 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 125 kr. eintakió. Flokkaátök í skólum? Innan framhaldsskólanna hafa jafnan farið fram líflegar pólitískar umræður. Skólafélög, nemendafélög, málfundafélög og önnur samtök nemenda hafa beitt sér fyrir slíkum umræðum, annað hvort með þátttöku nemenda einna eða með því að bjóða til umræðna stjórnmálamönnum eða öðrum fulltrúum stjórnmála- flokkanna. Slíkar umræður eru sjálfsagðar og stuðla að því, að nemendur framhaldsskólanna geti kynnzt hinum ýmsu pólitísku sjónarmiðum og aflað sér nauðsynlegrar vitneskju um helztu mál, sem á döfinni eru hverju sinni. Stjórnmálaflokkarnir hafa jafnan lagt áherzlu á að verða við óskum nemenda í framhaldsskólum í þessum efnum og jafnframt hafa þeir í mismunandi mæli haldið sjálfir uppi fræðslustarfsemi fyrir skólanemendur á eigin vegum og í eigin húsakynnum fyrir þá nemendur, sem áhuga hafa haft á að kynna sér sérstaklega stefnumál þeirra. Hins vegar hafa stjórnmálaflokkarnir jafnan virt þau takmörk, sem löng hefð hefur sett þessu starfi þ.e. að þeir hafa ekki ruðzt inn í skólana sjálfa, beint eða óbeint, til þess að reka áróður fyrir stefnumálum sínum. Hér er bersýnilega að verða breyting á. í Þjóðviljanum sl. laugardag sagði svo: „Samstarfshóp- ur á vegum Æskulýðsnefndar Alþýðubandalagsins og Alþýðubandalagsfélagsins í Reykjavík hefur að undan- förnu unnið að skipulagningu fræðslustarfs í framhalds- skólunum á höfuðborgarsvæðinu. Er stefnt að því að halda 30—40 fundi í sjö framhaldsskólum á svæðinu, auk þess, sem efnt verður til félagsmálanámskeiðs og menningarvöku í lok fræðsluherferðarinnar." Af þessari tilvitnun er alveg ljóst, að Alþýðubandalagið hyggst halda fundi í húsakynnum sjö framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. Æskulýðsnefnd Alþýðubandalags- ins hefur gefið þá skýringu á þessum fundarhöldum, í athugasemd hér í Morgunblaðinu, að fundirnir séu haldnir á vegum félaga vinstri sinnaðra nemenda. Þessi skýring er ekki haldbær. Hún er einúngis til marks um, að Alþýðubandalagið er að reyna að smygla sér inn um bakdyrnar óséð. Verði það látið viðgangast er auðvitað Ijóst, að aðrir flokkar munu fylgja á eftir og beita sér fyrir því, að stofnuð verða stjórnmálafélög meðal nemenda í hinum ýmsu framhaldsskólum og á vegum þeirra efna flokkarnir svo til fundaherferða. Þar með eru skólarnir sjálfir orðnir vettvangur harðvítugri flokka- átaka en nokkru sinni fyrr. Skólastjórar þriggja skóla* af sjö hafa þegar lýst því yfir í Morgunblaðinu, að ekki hafi verið leitað eftir heimild til þeirra um þetta fundarhald og þeir hafa undirstrikað, að stjórnmálaflokkum væri ekki heimilt að boða til funda á vettvangi skólanna. Þessa sjálfsögðu reglu eiga allir stjórnmálaflokkar að virða og halda sér við þá venju, að fræðslustarfsemi þeirra sjálfra fyrir skólanemendur fari fram á þeirra vettvangi og að þeir láti sér nægja að verða við óskum raunverulegra félagasamtaka nemenda um þátttöku í fundum þeirra. Þess vegna er ráðlegast fyrir Alþýðubandalagið og æskulýðsnefnd þess að hverfa frá því að efna til þessara funda í fyrrnefndum skólum, ella er augljóst, að aðrir flokkar munu fylgja í kjölfarið. Hættan á því ætti einnig að verða til þess að forráðamenn skólanna beiti sér fyrir því að hefðbundnar venjur í þessum efnum verði virtar. Hreppsnefnd Olafsvíkur: Öllum tillögum sjálf- stæðismanna vísað frá Oddvitinn neitaði að láta bóka svör sín við fyrirspurnum Kristófers Þorleifssonar „ÞAÐ má segja að lítið hafi gerst, og ekki er ljóst ennþá hvort málin þróast á betri veg eða verri,“ sagði Helgi Kristjánsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í hreppsnefnd Ólafsvíkurhrepps í samtali við Morgunblaðið í gær, er hann var spurður hvað liði deilum þeim sem komu upp í hreppsnefndinni fyrir skömmu. Eins og Morfíunblaðið hefur skýrt frá var sýslumaðurinn í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, Andrés Valdimarsson í Stykkis- hólmi, beðinn að hlutast til um að fundarsköp og fundarboð í hrepps- nefnd Olafsvíkur yrðu með eðlileg- um hætti. „Það er þó búið að halda hreppsnefndarfund", sagði Helgi, „ég má segja að það hafi verið á mánudagskvöld, þann 22. janúar. Sveitarstjóri boðaði þann fund með átta klukkustunda fyrirvara og með dagskrá. Voru á þessum fundi lögð fram og rædd drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 1979 og sömuleiðis voru á dagskrá tvö mál er frestað hafði verið ásamt fyrirspurnum og tillögum Kristó- fers Þorleifssonar frá 19. nóvem- ber sl.“ — Hvernig gekk fundurinn fyr- ir sig? „Jú, það fór svo sem allt fram með friði á þessum fundi. Eg bað Kristófer að sitja þennan fund með hliðsjón af því að hann lagði fyrirspurnirnar og tillögurnar fram á sínum tíma og því eðlileg- ast að hann reifaði þau mál. Okkur fannst ekki ástæða til að gera athugasemd við stuttan fyrirvara að fundinum, með hliðsjón af því að dagskrá lá fyrir með fundar- boði. Einnig fannst okkur rétt að leggja fram okkar skerf til sam- komulags í sambandi við ágrein- inginn við meirihlutann um fundarsköp. Með því hugarfari fór Kristófer á fundinn og lét ekki bóka neinar athugasemdir við afgreiðslu mála.“ — Voru fyrirspurnirnar og tillögurnar afgreiddar á fundin- um? „Já, já, fyrirspurnirnar og tillögurnar voru afgreiddar á þessum fundi, þó svo að afgreiðsla væri með nokkuð óvenjulegum hætti. Þannig voru fyrirspurnir Kristófers frá 19. nóvember bókað- ar og oddviti svaraði þeim. Hins vegar hafnaði oddviti tilmælum um að efnisleg svör hans yrðu bókuð. í fundargerðabókinni eru því fyrirspurnirnar án svara. — Það held ég að hljóti að vera óvenjulegt." — En hvað með tillögurnar? „Það má segja alveg það sama um afgreiðslu tillagnanna, því að þeim var öllum fimm vísað frá með dagskrártillögum sem ótíma- bærum. Var það gert með fjórum atkvæðum gegn einu. Oddviti las tillögurnar upp hverja fyrir sig og bar dagskrártillögurnar fram til atkvæðagreiðslu í kjölfarið án þess að gefa orðið formlega laust. Tillögunni um fjölgun hrepps- nefndarmanna úr fimm í sjö var vísað frá með dagskrártillögu rökstuddri með því, að þar sem fjölgunin væri yfirlýst stefna meirihlutans væri tillaga Kristó- fers ekki tímabær. Sömu meðferð fékk tillaga um að ráða heil- brigðisfulltrúa í hlutastarf. Var það rökstutt með því, að engin tilmæli um slíkt hefðu komið frá heilbrigðisnefnd, og heilbrigðis- ástand væri gott að dómi nefndar- innar. Tillagan um samningu reglu- gerðar um fundarsköp fyrir hreppsnefnd Ólafsvíkurhrepps var vísað frá með dagskrártillögu sem efnislega var á þá leið að núver- andi meirihluti hefði verið svo til óbreyttur allt frá árinu 1962, og mikil samstaða hafi ríkt um öll mál, svo þar til fjölgað yrði í hreppsnefndinni sæi meirihlutinn ekki ástæðu til að setja nefndinni fundarsköp. Væri tillagan því ótímabær. Nú, tillaga Kristófers um að koma á fót elliheimili, svo og tillagan um að annast heimilis- hjálp fengu sömu móttökur hjá meirihlutanum. Frávísunartillög- urnar voru rökstuddar með því að yfir stæði könnun á högum aldr- aðra, svo og að verið væri að kanna niður í kjölinn þörfina fyrir skipulagða heimilishjálp og því ótímabært að bera fram tillögur um þessi efni. Eg vil bara segja það að lokum,“ sagði Helgi, „að það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir Ólafsvík- inga, að fjögurra manna meiri- hluti í hreppsnefnd skuli ekki telja þessi mál umræðuverð. Sömuleiðis er athyglisvert, að oddviti skuli leyfa sér að neita að láta bóka svör við fyrirspurnum, og gefa Kristófer Þorleifssyni, sem lagði fram tillogurnar, ekki kost á að fylgja þeim úr hlaði áður en frávísunartillögur meirihlutans voru lagðar fram og samþykktar. Það er því athyglisverðara fyrir það, að oddviti Ólafsvíkurhrepps er Alexander Stefánsson varafor- maður Samtaka íslenskra sveitar- félaga og fulltrúi á löggjafarsam- komu þjóðarinnar að auki". Ný íslenzk kvik- mynd um landið og umgengni við það FERÐAMÁLARÁÐ hefur látið gera 17 mínútna langa kvikmynd, í þeim tilgangi að vekja fólk til umhugsunar og skapa almenningsálit í landinu um nauðsyn þess að vernda og fegra umhverfið. Er ætlunin að lána þessa kvikmynd endurgjaldslaust til sýninga á fundum eða iiðrum mannfagnaði. Myndin nefnist „Landið er fagurt og frítt“, gerð á kostnað Ferðamálaráðs af ísfilm sf. en aðilar að henni eru Indriði G. Þorsteinsson. sem samdi og les texta. Jón Hermannsson og Þrándur Thoroddsen. sem önnuðust kvikmyndun. Tónlist samdi og flytur Atli Ileimir Sveinsson. I þessari kvikmynd er vakin athygli á slæmri umgengni, er oft blasir við ferðafólki, hvort sem er í bæjum eða til sveita, en jafnframt er sýnt fram á að oft og tíðum er ekki mikið sem gera þarf til *að breyta þessu til betri vegar. Fréttamönnum var boðið til frumsýningar þessarar kynningar- myndar með forráðamönnum Elzta skip á skrá frá 1905 ELZTA skipið í nýútkominni skrá yfir íslenzk skip 1979 er Guðni Þorleifsson SU 151, sem er þriggja brúttórúmlesta fiski- bátur, smíðaður í Færeyjum 1905. Næstelztu skipin á skrá eru frá 1912. Meðalaldur íslenzkra fiski- skipa er nú 16,0 ár og flutninga- skipa 10,9 ár. Ferðamálaráðs og kvikmynda- gerðarmönnum. Heimir Hannes- son vakti athygli á því að lögum samkvæmt er það eitt af verkefn- um Ferðamálaráðs Islands að eiga frumkvæði að fegrun umhverfis og snyrtilegri umgengni á viðkomu- og dvalarstöðum ferðafólks og eiga samstarf við náttúruverndaraðila um að umhverfi, náttúru- og menningarverðmæti spillist ekki. Hefur þegar verið unnið talsvert að þeim málaflokki, t.d. með því að stuðla í samvinnu við sveitar- stjórnir að því að áhugamanna- félög og aðrir aðilar, komi upp og bæti snyrtiaðstöðu á fjölförnum stöðum, veiti aðstoð við merkingu göngustíga og bílastæða, með því að stuðla að gerð tjaldsvæða og fleira. Og vekja athygli fólks á nauðsyn þess að ganga vel um landið. Er kvikmyndin, sem sýnd verður í sjónvarpi, auk þess sem hún verður lánuð út, einn liður í þeirri viðleitni, en hún hefur verið í vinnslu í hálft annað ár. Guðmundur H. Garðars- son tekur sæti á Alþingi GUÐMUNDUR H. Garðarsson viðskiptafræðingur tók í gær sæti á Alþingi í veikindaforföllum Geirs Hallgrímssonar, sem ekki mun sækja þingfundi næstu tvær vikur samkvæmt læknisráði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.