Morgunblaðið - 26.01.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979
19
Lyfin reyndust jafngild:
Verð þess innlenda er
30% af verði hins erlenda
sérstaklega valinn
& FISKUR
staóastræti 37 sími 24447
í framhaldi af þessum niður-
stöðum hefur Pharmaco sótt um
skráningu á lyfinu hjá Lyfjanefnd
ríkisins. En lyfið díazepam, fram-
leitt hjá fyrirtækínu, getur orðið
miklu ódýrara en innflutta lyfið.
Með þeim rannsóknakostnaði sem
á er fallinn, má gera ráð fyrir að
það kosti ekki nema 30% af verði
valiums. En sé borið saman við
ódýrasta sérlyfið á markaðinum,
sem notað er á svipaðan hátt, þá
kostar díazepam 60% af verði
þess, að því er Steinar Berg
Björnsson, framkvæmdastjóri
Pharmaco, tjáði Mbl. En þarna er
um að ræða fyrsta lyfið, sem sótt
er um skráningu á hér á landi með
þessum hætti.
Sagði Steinar Berg að slíkt
samstarf við Háskólann væri
ómetanlegt og forsenda þess að
hægt sé að þróa innlendan lyfja-
iðnað.
V er ðlaunamynd
í Gamla bíói
GAMLA BÍÓ hefur nú hafið
sýningar á frönsku kvikmynd-
inni Dr. Francoise Gailland. sem
byggð er á sönnum heimildum. og
hefur hún verið nefnd Dagbók
kvenlæknis á íslensku.
Myndin fjallar um baráttu
kvenlæknis við erfiðan sjúkdóm,
og greinir myndin frá störfum
hennar sem læknis og einkalífi.
Kvenlækninn leikur Annie
Girardot og fyrir leik sinn í
myndinni var hún kjörin besta
leikkona Frakklands árið 1977.
Leikstjóri er Jean-Louis
Bertuccelli.
Verkföllin í Bretlandi:
Bitna lítið á
íslenzkum
námsmönnum
Að sögn Reuters-fréttastofunnar hafði vandræðaástandið
vegna verkfallanna í Bretlandi ekkert batnað í gær. Er haft eftir
opinberum heimildum að auk verkfallsmanna hafi nú um 200.000
verkamenn misst vinnuna þar sem aðflutningur á hráefni til
framleiðslufyrirtækja hefur svo til alveg stöðvazt.
Ráðherrafundur var haldinn í London í gær um ástandið, og
haft er eftir áreiðanlegum hcimildum að ríkisstjórnin sé „að því
komin" að lcita til hersins um flutninga á nauðsynlegasta
varningi, sem legið hcfur óhreyfður í vörugeymslum. Ekki eru þó
allir á einu máli um áhrif verkfallanna.
Morgunblaðið ræddi í gær við
tvo Islendinga, sem búsettir eru
í Bretlandi, og innti þá eftir
ástandinu vegna verkfallanna.
Einar Sigurðsson, sem stundar
nám í fjölmiðlun í Lundúhum,
hafði þetta að segja:
„Það sem að okkur snýr hér
inni í borginni getur ekki
jafnazt á við neitt neyðarástand.
Lítilsháttar ber á því að sumar
tegundir matvöru gangi til
þurrðar, en ég sé ekki að það
valdi vandræðum. Hér inni í
borginni hafa samgöngur gengið
snurðulaust að heita má, en í
útborgum hafa þær víða trufl-
azt. Það er mál manna hér að
fregnir af vandræðaástandi
vegna verkfallanna séu verulega
orðum auknar í nágrannalönd-
unum, og BBC fjallaði um það
mál í gær. Þar kom meðal
annars fram að þessi frétta-
flutningur hefði neikvæð áhrif á
útflutningsfyrirtæki. í fréttum
hér í Bretlandi hefur hins vegar
ekki verið sagt frá neinu, sem
má líkja við neyðarástand —
það væri þá helzt verkfall
sjúkrabifreiðastjóra í gær, en
þrátt fyrir það að neyðartilfell-
um væri ekki sinnt, kom það
ekki að sök þar sem herinn
annaðist þá sjúkraflutninga."
Magnús Þorkelsson, sem er
við nám í sögu og fornleifafræði
í Nottingham, um 200 kílómetra
norður af Lundúnum, sagði:
„Sjálf verkföllin hef ég lítið
orðið var við, en hér er vöru-
skortur farinn að segja verulega
til sín. Það vantar orðið allar
algengar tegundir matvöru, en
mikið gekk til þurrðar á fyrstu
dögum verkfallsins þegar mikið
var hamstrað. Afleiðingin er
meðal annars sú að mjög hefur
gengið á kornbirgðir brauð-
gerðarhúsa og brauðskortur er
fyrirsjáanlegur á næstu dögum
ef ekki raknar úr. Annars er það
nú aðallega veðrið sem hrjáir
okkur núna. Þetta mun vera
harðasti vetur hér í Bretlandi í
sextán ár. Hér er illfært vegna
snjóa, sem eru óvenju miklir, og
um þverbak keyrði í lestaverk-
fallinu í gær.
Þetta er óttalega skrýtið
ástand, ekki sízt vegna þess að
takmarkaður hópur vörubíl-
stjóra kom af stað þessu verk-
falli, sem óneitanlega hefur
mjög víðtæk áhrif.“
LOKIÐ er tilraunum á lyíinu
diazepam. sem framleitt hefur
verið hjá Pharmaco hér á landi,
til samanburðar við lyfið valium.
Rannsóknastofa í lyfjafræði
Háskóla íslands tók að sér fyrir
Pharmaco þcssar rannsóknir,
sem gerðar eru á verkun lyfjanna
beggja á fólk, en slikar rannsókn-
ir eru nauðsynlegar áður en
almenn framleiðsla getur farið
fram á lyfjum.
Niðurstaða rannsóknarinnar eru
sú, að bæði lyfin hafi samskonar
verkun eða, eins og segir í skýrslu
Þorkels Jóhannessonar prófessors:
Aðgengi díazepams í töfluformi til
frásogs frá meltingarvegi var hið
sama, hvort sem lyf I (töflur
framleiddar af Pharmaco hf.) eða
lyf II (Valium (R) 5 mg töflur,
framleiddar af Hoff-
mann-LaRoche) voru teknar.
Ný frímerki á árinu:
Fjöldi svipað-
ur og á sl. ári
Gera má ráð fyrir að fyrstu
frímerkin á árinu verði úr
flokknum „Merkir íslendingar".
Er þar um tvö frímerki að ræða
með myndum af annars vegar
Ingibjörgu H. Bjarnason og hins
vegar Torfhildi Hólm. í undir-
búningi eru þrjú merki til
viðbótar f þessum flokki með
myndum af Bjarna Þorsteinssyni,
Pétri Guðjohnsen og Sveinbirni
Sveinbjörnssyni. Koma þau út
síðar á árinu.
Evrópufrímerkin munu að
vanda koma út í maí. Verður þetta
tuttugasta Evrópufrímerkjaútgáf-
an, en þau komu sem kunnugt er
fyrst út árið 1960. I tilefni þessara
tímamóta verður myndefnið úr
sögu póst- og símaþjónustu.
Af öðrum frímerkjum, sem í
undirbúningi eru, má nefna
frímerki í tilefni af Barnaári
Sameinuðu þjóðanna, í tilefni 800
ára afmælis Snorra Sturlusonar, í
tilefni 100. ártíðar Jóns Sigurðs-
sonar og í tilefni 75 ára afmælis
Stjórnarráðs Islands. Einnig eru í
undirbúningi frímerki með mynd-
um af íslenskum hundi og refi, en
óvíst er hvort þau koma út á þessu