Morgunblaðið - 26.01.1979, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979
25
fclk í
fréttum
+ ÞESSI glæsilega unga
kona er færeyska leik- og
söngkonan Annika
Hoydahl frá Þórshöfn. —
Hún ætlar að taka þátt í
hljómlistarhátíðinni
dönsku, Grand
Prix hátíðinni. Henni var
boðið að taka þátt í
henni. — Hún segir í
samtali við Kaupin-
hafnarpressuna, að hug-
ur hennar standi ekki til
að stunda pop- eða
dægurlagasöng, heldur
sé það leikhúsið. — „En,
úr því mér gafst tækifæri
til þess að kynna dálítið
færeyskan vísnasöng með
meiru, vildi ég ekki
hafna boðinu, sagði hún.
Þessi Grand Prix-hátíð
hefst í byrjun næsta
mánaðar.
Bezt klœdda fólkið
+ BEZT klædda fólkið eru þau
Noor al Hussein drottning í
Jordaníu (hún er bandarísk og
hét Elísabeth) og heimsdansar
inn Fred Astaire. — bessi úrslit
í mikilli skoðanakönnun sem
fram fór vestur í Bandaríkjun-
um voru tilkynnt fyrir nokkru í
New York. Höfðu 2500 fatasér-
fræðingar tekið þátt í könnun-
inni. Kjör bezt klædda fólksins
hefur farið fram í Bandaríkjun-
um óslitið ár hvert frá því 1940.
Meðai þeirra kvenna sem voru
ofarlega á listanum má nefna
kvikmyndaleikkonuna Candice
Bergen og dóttir Picassos list-
máiara. en hún heitir Paloma og
eiginkonu bjórframleiðanda
írska Guincss-bjórsins. En meðal
hinna beztu klæddu manna, sem
komu á eftir Fred Astaire, sem
var sagður vera „bezt klæddi
maðurinn á vorum tímum",
komu m.a. Sadat forseti, Karl
Bretaprins, John Travolta og
prinsinn af Wales.
+ LEE MARVIN, kvikmynda-
leikarinn frægi, á nú í útistöðum
við fyrrum sambýliskonu sína,
sem á þeim árum tók upp nafn
hans og heitir Michelle Triola
Marvin. Hún hefur gert kröfu
um 500.000 dollara bætur fyrir
að hafa helgað honum líf sitt í
óvígðri sambúð þeirra, sem stóð
yfir f 6 ár. Mun kvikmynda-
leikarinn, sem upp úr þessu
giftist æskuást sinni, verða að
mæta fyrir rétti. Marvin kallinn
er nú 54 ára að aldri.
+ REVÝUSÖNGKONAN
danska. Bodil Steen, sem
náði því að verða þjóð-
fræg í heimalandi sínu
fyrir revýusöng sinn m.a.
ásamt Margurite Viby,
— er látin 55 ára að
aldri. — Hún hafði átt
dapurlega daga síðustu
ár ævinnar, vegna heilsu-
leysis. Hún giftist fimm
sinnum á lífsleiðinni. En
er hún lézt, var hún
fráskilin. Lög þau sem
hún söng á sokkabands-
árum sinum eru enn
vinsæl og eru oft leikin, í
ýmisskonar óskalaga-
þáttum danska útvarps-
ins, segir í frétt um lát
söngkonunnar.
úr eingirni
ÍSLENZKIR módelkjólar,
prjónaðir úr eingirni, eru nú
á sýningu hjá íslenzkum
heimilisiðnaði. bessa kjóla,
sem eru 10 talsins, hefur
Aðalbjörg Jónsdóttir hannað
og unnið sjálf að öllu leyti.
Þetta eru stuttir kjólar og
síðir og að auki tveir brúðar
kjólar með höfuðskrauti.
Allir eru kjólarnir úr ólitaðri
ull. í sauðalitunum og brúðar
kjólarnir að sjálfsögðu úr
hvítri ull.
íslenzkur heimilisiðnaður
hefur frá því á sl. vori tekið
upp þá nýbreytni að kynna í
verzluninni í Hafnarstræti
listafólk, sem hann hefur verið
í samvinnu við. Voru nokkrar
slíkar sýningar haldnar og
gáfust vel og er nú verið að
taka upp þráinn aftur með
þessum íslenzku kjólum, sem
flokkast vissulega undir lista-
verk, þar sem saman fer
hönnun og handbragð, sem er
listilegt. Sýningin hófst 15.
janúar og stendur fram í
febrúar.
Fyrir hálfu öðru ári var
heimilisiðnaðarþing hér á
íslenzkir
módelkjólar
prjónadir
landi, og prjónaði Aðalbjörg
Jónsdóttir þá tvo sýningar-
kjóla. Það varð kveikjan að því
að hún tók að skapa slíkar
flíkur. Hver kjóll krefst gífur-
lega mikillar vinnu, því hún
hannar sjálf, prjónar úr fínu
eingirni, strekkir og gengur
frá. Aðalbjörg heldur heimili.
Leynir sér ekki að hún hlýtur
að nýta hverja stund, sem hún
hefur aflögu í þetta verkefni.
Hún er ekki að fagi hönnuður,
en hefur stundað nám í
myndlistarskóla.
Gerður Hjörleifsdóttir,
framkvæmdastjóri íslenzks
heimilisiðnaðar sagði blaðinu
að áform væru um að fara með
íslenzkar ullarvörur á tísku-
sýningu í Chicago seinni hluta
febrúarmánaðar, og yrðu þá
kjólar Aðalbjargar sýndir þar,
enda fer vestur sýningarfólk
héðan. En kjólana verður samt
hægt að fá til kaups.
Þessir íslenzku eingirnis-
kjólar eru þunnir og fínlegir
með útprjóni og fara mjög vel.
Eru af annarri gerð en þeir
sem áður hafa verið unnir hér.
Myndirnar tók Loftur á
tízkusýningu fyrsta daginn.