Morgunblaðið - 26.01.1979, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979
31
Dunbarslausir síúdent-
ar stóðu í Valsmönnum
ÞAÐ voru ekki margir sem bjugg-
ust við að stúdentar án Dirk
Dunbar myndu veita Valsmönnum
mikla keppni. er liðin mættust í
Hagaskólanum í gærkvöldi. Þegar
fyrri hálfleikur var hálfnaður
virtist líka allt stefna í stórsigur
Vals, en þá var munurinn orðinn 20
stig Val í vil, 30il0. Á þessum kafla
var líka leikur ÍS í molum á meðan
flest gekk upp hjá Val. Þctta átti
hins vegar eftir að breytast, því að
þegar 30 sekúndur voru til leiks-
loka munaði aðeins 5 stigum og ÍS
hafði möguleika á að minnka
muninn í 3 stig, en það mistókst og
Valur sigraði með 92 stigum gegn
86. í leikhléi var staðan 43i30, Val í
hag.
Frammistaða stúdenta kom eins
og áður sagði nokkuð á óvart, en þeir
sýndu nú að þeir geta ýmislegt,
þegar þeir þurfa að treysta á sjálfa
sig. Fyrri hálfleikur var reyndar
mjög lélegur af þeirra hálfu, en þá
lék liðið svæðisvörn, sem gafst ekki
vel þar sem skyttur Valsmanna voru
í stuði. I síðari hálfleik var hins
vegar skipt yfir í maður á mann vörn
og var nú allt annað að sjá til liðsins.
Fjórir leikmenn stóðu uppúr hjá ÍS
að þessu sinni. Bjarni Gunnar
Sveinsson lék nú sinn besta leik í
vetur, hirti mikið af fráköstum auk
þess sem Tim Dwyer gekk illa að
ráða við hann í sókninni. Þá átti
Gísli Gíslason sinn besta leik fyrir
ÍS, skoraði drjúgt og stóð sig mjög
vel i vörn, þar sem hann gætti Tim
Dwyer, en því hlutverki skilaði hann
mjög vel. Ingi Stefánsson lék einnig
vel, svo og Jón Héðinsson.
Valsmenn hófu leikinn af miklum
krafti og virtust ætla að kafsigla
stúdenta, enda fengu Valsarar nógan
frið til að athafna sig í sókninni gegn
slakri svæðisvörn IS. í lok fyrri
hálfleiks fór hittnin hins vegar
aðeins að versna, svo og í síðari
hálfleik þegar stúdentar fóru að
berjast í vörninni. Eins og hjá IS
voíu það fjórir leikmenn sem
sköruðu framúr hjá Val. Dwyer var
stigahæstur, en hefur þó oft sýnt
betri leiki en að þessu sinni, bæði í
vörn og sókn. Þórir Magnússon átti
sinn besta leik um langan tíma og
skoraði margar fallegar körfur eins
og honum einum er lagið. Ríkharður
Hrafnkelsson lék einnig mjög vel,
brenndi aðeins af tveimur skotum og
skoraði 15 stig, sem er mjög góð
nýting. Kristján Ágústsson er ákaf-
lega drjúgur leikmaður, sem hefur
einstakt lag á að ná knettinum eftir
misheppnuð skot samherja sinna og
Einkunnagjöfin Valur — ÍS
VALUR: Hafsteinn Hafsteinsson 1, Helgi Gústafsson 1, Kristján
Ágústsson 3, Lárus Hólm 2, Ríkharður Hrafnkelsson 3, Sigurður
Hjörleifsson 2, Torfi Magnússon 2, Þórir Magnússon 3.
ÍS: Albert Guðmundsson 1, Bjarni G. Sveinsson 4, Gísli Gíslason 3, Ingi
Stefánsson 3, Jón Héðinsson 3, Jón Oddsson 1, Steinn Sveinsson 2.
• Bjarni Gunnar Sveinsson átti
stórleik með ÍS gegn Val í
gærkvöldi.
skila honum í körfuna. Þá má einnig
minnast á Sigurð Hjörleifsson, sem
reyndar var ekki mikið með, en
skilaði hlutverki sínu með sóma.
Stigin fyrir Val: Dwyer 25, Þórir
20, Kristján 16, Ríkharður 15,
Sigurður 6, Lárus og Torfi 4 hvor og
Hafsteinn 2.
Stigin fyrir ÍS: Bjarni Gunnar 33,
Ingi 21, Gísli 16, Jón Héðinsson 14 og
Steinn 2.
Góðir dómarar voru Jón Otti
Ólafsson og Kristbjörn Albertsson.
ÁG
Góðir sigrar
í Austurríki
ÍSLENSKA landsliðið í badminton er statt þessa dagana í
Vínarborg, þar sem það tekur þátt í Evrópukeppni landsliða.
Hefst keppnin í dag. íslendingar eru í 5-liða riðli, sem er
tvískiptur, annars vegar ísland. Austurríki og Sviss og hins vegar
Pólland og Noregur. Þrír 4-liða riðlar eru einnig í keppninni, en
alls taka 17 þjóðir þátt í mótinu.
Að undanförnu hefur íslenska liðið æft af kappi og tók m.a. þátt í
æfingamóti sem austurríska félagið Pressbaum hélt. íslensku
keppendurnir náðu þar athyglisverðum árangri, unnu fyrst lið
félagsins 8—0 og síðan landslið Portúgals 7—1. Eigi að síður er
erfitt að segja hvert hlutskipti íslenska liðsins verður þegar í sjálfa
keppnina kemur, því að lítið er vitað um styrkleika þeirra þjóða sem
landinn keppir við. _ _________________
Staða South-
ampton sterk
LEEDS og Southampton
skildu jöfn í fyrri viðureign
liðanna í undanúrslitum enska
deildarbikarsins, bæði liðin
skoruðu tvö mörk, en leikur-
inn fór fram í Leeds og því
töluvert áfall fyrir leikmenn
liðsins, heimavöllur á að vera
sterkari. Hin liðin sem eítir
eru. Nottingham Forest og
Watford, hafa lokið einum
lcik, sigraði Forest þá 3—1 er
leikið var í Nottingham.
Nottingham Forest er núver
andi handhafi bikarsins. lagði
Liverpool að velli í fyrra.
Tony Currie náði forystunni
fyrir Leeds, Ray Hankin skor-
aði síðaVa markið, en Nick
Holmes og ungur nýliði, Oshor
Williams, skoruðu fyrir
Southampton áður en yfir lauk
og tryggðu liðinu óvænt jafn-
tefli. Rétt fyrir leikslok var
• Ray Hankin fagnar marki. Phil Boyer, miðherja
Hann skoraði gegn Sout- Southampton, vikið af leikvelli
hampton í fyrrakvöld. fyrir gróft brot.
ÍR mætir Þór
í kvöld
EINN leikur fer fram í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í
kvöld. ÍR-ingar fá Þór frá
Akureyri í heimsókn. Leikurinn
fer fram í íþróttahúsi Haga-
skóla og hefst kl. 20.00.
Þorraganga hjá
skíöadeild Fram
SKÍÐADEILI) Fram gengst
fyrir fyrsta göngumóti vetrar-
ins hér sunnanlands næst-
komandi laugardag í Bláfjöll-
um og hefst gangan kl. 13.00.
Allir helstu göngumenn
sunnanlands munu taka þátt í
göngunni. Keppt verður í
tveimur aldursflokkum. Benda
má almenningi á að göngu-
brautin verður opin almenningi
um alla helgina og er upplagt
að nota hana fyrir skíðatrimm.
Göngubrautin er 4'h km löng.
KA gegn
Þór Ve
EINN leikur fer fram í annarri
deild íslandsmótsins í hand-
bolta í kvöld, en það er
viðureign KA og Þórs frá
Vestmannaeyjum. Fer leikur-
inn fram í Skemmunni á
Akureyri og hefst hann klukk-
an 20.30.
Menu
Blandaðir sjávarréttir
í brauðkollum
Heilsteiktur nautahryggur
New Yorkese
Washington-búðingur
í súkkulaðibollum
★ Stutt ávarp
★ Amerískur veislumatur
jkC GL0RIA R0BERTS skemmtir
Ameríkukynning Úrvals
^ Dans
Ferðaskrifstofan Úrval býður upp á stórglæsilega
Ameríkukynningu að Hótel Loftleiðum, sunnudaginn 28.
janúar n.k., kl. 19:00. Auk Ameríkukynningar í myndum
og máli, kemur hin heimsþekkta GLORIA ROBERTS
fram með sérstakt tónlistaratriði byggt á vinsælli
Amerískri tónlist, — jazz, Broadway og Pop.
Matarverð: Aðeins 4.500 krónur. Borðapantanir hjá yfir-
þjóni í síma 22322. Gerið pantanir sem fyrst.
o3
★ ★ ★ ★ AMERÍSKA STJARNAN
★ ★ ★ ★ ★ GL0RIA R0BERTS
Það er næstum ómögulegt, jafnvel
fyrir hina alvarlegustu Austurríkis-
menn, að sitja kyrrir í sætum sínum,
þegar Gloria Roberts, píanóleikarinn
frá Los Angeles, lék tónlist sína með
stórkostlegri „sveiflu!"
Neue Tiroler Zei tung
Gloria Roberts hefur slika hrynjandi í
æðum sinum, að túlkun hennar á
“Rhapsody in Blue’’ “The man I
Love” og stefum Ellingtons — blues
og “Bugle Call Rag” var frábær.
L’Adige
Trento, ítaliu
„. . . fyrir ieikmanninn, heil kennslu-
stund í tónlistarskemmtun upp á
Amerískan máta“
Mannheimer Morgen
Mannheim, Þýskalandi
Gloria Roberts er sannarlega í hópi
stóru stjarnanna eftir hljómleikana í
gærkvöldi . . . jazz, pop og “sweet
music” . .. í margvíslegum 'stil-
brögðum í dásamlega fallegum
tónum.
Varden
Skien, Noregi
FERÐASKFttFSTOFAN
URVAL
VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26900
m>,
í samvinnu við
Menningarstofnun
Bandaríkjanna.
A10: