Morgunblaðið - 11.02.1979, Page 2

Morgunblaðið - 11.02.1979, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1979 en rýrari á netum AFLI báta er stunda línu- veiðar frá Hornafirði, Suðurnesjum og Snæfells- nesi hefur verið betri nú en undanfarin ár og fleiri bátar stunda nú veiðarnar. í Ólafsvík hefur afli verið sæmilegur og landaði tog- arinn Lárus Sveinsson 102 tonnum sl. föstudag og bátarnir hafa fengið 6 — 7 tonn í róðri að undanförnu. Afli netabáta þar hefur verið minni og höfðu borist á land alls í vikunni 1.580 tonn. í heildina er það örlítið meiri afli en í fyrra. I Sandgerði fengust þær upplýs- ingar, að stærri línubátarnir sem væru á miðum 50—60 mílur suður af iandinu fengju sæmilegan afla en minni bátarnir á grunnslóðinni hins vegar minni, en áberandi er að meiri fiskur er en oft áður. Afli hefur verið um 5% tonn í róðri hjá stærri bátunum og eru menn þar bjartsýnni nú en áður um afla- horfur í vetur. Á Isafirði voru togararnir 4 að landa nú fyrir helgina um 140—150 tonnum og hefur afli hjá línubátum verið um 5 tn í róðri að undanförnu. Unnið var í frystihús- unum þar fram eftir degi í gær. Afli línubáta frá Vestmannaeyj- um var þokkalegur eða 7—8 tonn í róðri en þeir hafa þurft að sækja nokkuð langt austur eftir að sögn vigtarmanns. Rýr afli er hins vegar hjá netabátunum þótt þeir hafi komist í 12—14 tonn og togararnir hafa aflað vel og er samanlagður afli heldur meiri en í fyrra og kom sama fram hjá vigtarmanni þar og í Sandgerði að afli virtist meiri í ár en oft áður. Umsóknir um skipakaup á borðum stjórnvalda Kemur ný Gudbjörg í stað þeirra eldri?—Sótt um leyfi til kaupa á 3 rækjutogurum RÍKISSTJÓRNIN heíur þcssa dagana til athugunar umsóknir til skipakaupa frá allmörgum aðilum. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst er hér m.a. um að ræða nýjan togara frá Flekkefjord í Noregi fyrir Hrönn hf á ísafirði, nýjan rækjutogara til Dalvíkur og tvo rækjutogara fyrir Sjöstjörnuna í Ytri-Njarðvík. I>á er enn óafgreidd umsókn um leyfi til kaupa á kolmunnaskipi til Norðf jarðar og sömuleiðis mun Aðalsteinn Jónsson á Eskifirði hafa sótt um leyfi til kaupa á nótaskipi frá Portúgal. Á fundi ríkisstjórnarinnar á fimmtudag var skipaður sérstakur starfshópur til að fjalla um þessi mál. Búast má við að í næstu viku verði þessum umsóknum svarað. Það mun vera hugmynd Isfirð- inga að láta smíða nýtt og full- komið togskip í Flekkefjord í Noregi og verði aflaskipið Guð- björg tekið upp í kaupin á nýja skipinu. Guðbjörgin var byggð i Flekkefjord 1974. Eftir því sem Mbl. kemst næst hefur þegar verið gengið frá samningum við Norð- menn, en beðið er leyfis stjórn- valda. Nýja skipið á að vera í alla staði mjög fullkomið og t.d. sér- staklega styrkt vegna veiða á íssvæðum. Söltunarstöð Dalvíkur, sem ger- SVANUR RE 45 kom um síðustu helgi til landsins eftir breytingu og yfirbyggingu í Vasa í Finnlandi. Skipið hélt til loðnuveiða um leið og allt var klárt um borð. Útgerðarmaður Svans er Ingimundur Ingimundarson í Reykjavík. Svanur hét áður Esjar og var byggður í Noregi 1967. Skipið er skráð 270 brúttótonn. Meðfylgjandi mynd tók Ól. K. Mag. í Orfirisey í vikunni. Hvad þýdaskatt- arnir fyrir þig? 5 fundir Sjálfstæðismanna um skattamál n.k. mánudagskvöld ir út rækjutogarann Dalborgu, hefur farið fram á leyfi til að kaupa rækjutogara frá Danmörku. Sjöstjarnan í Ytri-Njarðvík hefur sótt um leyfi til að kaupa tvo norska rækjutogara. Munu þeir vera um 500 tonn að stærð og kaupverð þeirra vera um tveir milljarðar. ANNAÐ kvöld, mánudagskvöld kl. 20:30. verða á vegum sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík haldnir 5 fundir samtímis þar sem fjallað verður um skattainál undir heitinu: Hvað þýða skattarnir fyrir þig? Guðmundur H. Garðarsson er formaður nefndar er undirbúið hefur fundina og greindi hann frá tilhögun þeirra í samtali við Mbl. — Á fundunum verða teknar til umræðu þær gjörbreytingar sem orðið hafa til hins verra á skatta- lögunum sem tefla afkomu ein- staklinga og fyrirtækja í hættu, sagði Guðmundur. Meðal fram- sögumanna verða endurskoðendur sem hafa sérhæfða þekkingu á skattamálum og stjórnmálamenn sem fjallað hafa um þessi mál opinberlega og verður á fundunum dreift upplýsingum sem mál þessi verða. — Vandað hefur verið til undir- búnings fundanna af hálfu sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík og við viljum hvetja Reykvíkinga til að mæta vel og sýna með virkri þátttöku andúð sína á þeirri skatt- píningarstefnu sem núverandi ríkisstjórn stendur fyrir, sagði Guðmundur H. Garðarsson að lokum. Fundirnir verða sem hér segir og hefjast allir kl. 20:30: í Sigtúni, fyrir íbúa Laugarnes- og Lang- holtshverfis, framsögumenn Eyjólfur K. Jónsson og Þorvarður Elíasson, í Fáksheimilinu fyrir íbúa Árbæjar-, Fossvogs- og Bústaðahverfis, framsögumenn Matthías Á. Mathiesen og Valdi- mar Ólafsson, á Hótel Sögu fyrir íbúa Nes- og Melahverfis, Mið- og Vesturbæjar, framsögumenn Björn Þórhallsson og Ólafur G. Einarsson, að Seljabraut 54 fyrir íbúa Breiðholts, Framsögumenn Árni Árnason og Lárus Jónsson, og í Valhöll fyrir íbúa Hlíða-, Austurbæjar- og Háaleitishverfis þar sem framsögumenn verða Sigurgeir Sigurðsson og Sveinn Jónsson. Benedikt Davíðsson: Eðlilegt að hækkimum sé dreift á lengri tíma „MÉR finnst í sjálfu sér eðlilegt, að hækkanir á þjónustugjöldum hins opinbera séu framkvæmdar í samræmi við yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar í samningunum 1977.“ sagði Benedikt Davíðsson, formaður Sambands bygginga- manna, í samtali við Morgun- blaðið í gær. Samkomulagið er þess efnis að aðeins megi hækka opinbera þjónustu á síðustu 10 dögum fyrir útreikning vísi- tölunnar. Tólf bátar með 6500 tn. loðnu TÓLF bátar höfðu tilkynnt loðnu- nefnd afla frá miðnætti aðfarar- nótt laugardags til kl. 13 og áætluöu þeir að landa á Vopna- firði flestir nema hvað einn fór til Neskaupstaðar með loðnu til frystingar. Bátarnir eru: Vonin 160, Hafrún 600. Pétur Jónsson 650. GÍKja 560, Bjarni Ólafsson 1060, ísleifur 430, Náttfari 400, Gullberg 560. Grindvfkinffur 450, Börkur 900 ok Víkurberg 200, en alls eru þetta 6.530 tonn. Enn útistöður út af Laugarvatnsleið: „Þeir slógu fyrst o g ég reyni svona að dangla á móti...” — segir Ólafur Ketilsson, sérleyfishafi — „ÞEIR hafa eitthvað verið að stöðva piltana mína. telja fólk- ið í bílunum og tefja þá," sagði Ólafur Ketilsson, sérleyfishafi á leiðinni til Laugarvatns, í samtali við Mbl. þegar hann var spurður hvort hann ætti enn í útistöðum við yfirvöld vegna hópferða milli Laugar- vatns og Reykjavíkur. Ólafur Steinar Valdimarsson, deildarstjóri í samgönguráðu- neytinu, staðfesti að starfsmenn umferðardeildar Pósts og síma hefðu þurft að hafa afskipti af langferðabifreiðum Ólafs vegna flutnings á skólanemum milli Laugarvatns og Reykjavíkur. Ólafur hefur sérleyfi á leiðinni milli Laugarvatns og Reykjavík- ur og því fylgir réttur til hóp- ferða en hins vegar þarf að sækja um leyfi fyrir hverri hópferð. Um það hefur Ólafur Ketilsson ekki hirt nærri alltaf, að því er deildarstjórinn í sam- gönguráðuneytinu sagði og þess vegna hefði verið tekin sú Stefna af hálfu umferðardeildar Póts og sima að veita honum ekki hópferðaleyfi að undanförnu. „Þeir slógu fyrst og ég reyni svona að dangla á móti,“ sagði Ólafur Ketilsson, þegar þetta var borið undir hann. Að öðru leyti vildi hann lítið tjá sig um málið að svo stöddu, en gat þess að í haust hefði Laugarvatn átt 50 ára afmæli sem menntasetur og hann hefði viljað um leið halda upp á að hann hefði haldið uppi ferðum þangað í jafnlang- an tíma með því að fá að aka elztu nemendunum en þá ekki fengið leyfi til þess. BenediEt kvað allt annað óeðli- legt i þessu, því það sé búið að mynda einhverja reglu, verði stjórnvöld að halda sig við hana. Hins vegar sagði Benedikt, að vel gæti verið þörf á því að dreifa þessum hækkunum, að hækkanir, sem duga eigi þessum opinberu stofnunum út árið, komi ekki allar á útmánuðum. Því geti einhver hluti þeirra komið inn á næstu 10 dögum fyrir útreikning vísitölunn- ar. Þá sagði Benedikt, að í samningunum 1977 hefði jafnframt verið gert ráð fyrir því, að út af þessari reglu gæti verið brugðið. Þess vegna var sett inn ákvæði um verðbótaviðauka, sem á að bæta slíkar hækkanir, ef af þeim yrði. Þó sagði Benedikt að hann vildi skil- yrðislaust hafa hitt sem aðalreglu. Um þær hækkanir, sem ekki hafa fengizt afgreiddar fyrir verðlags- nefnd, kvaðst Benedikt ekki hafa í raun mikið að segja. Hins vegar kvað hann eðlilegt, eins og komið hefði fram hjá stjórnmálamönnun- um, að ríkisstjórnin vildi skoða ýmsa hluti þar. Því væru þeir ekki tilbúnir til að kokgleypa þær hækkunarbeiðnir. T.d. kvað hann gífurlega mikla hækkun á olíu, en hins vegar væri ef til vill eitthvað í kerfinu, sem hinir nýju handhafar valdsins vildu skoða, hugsanlega að hið opinbera félli frá einhverjum hluta tekjustofna sinna á bensíni og olíum. Það væri t.d. ekki víst að nauðsynlegt væri að vegagjald hækkaði nákvæmlega í sama hlut- falli. Betri afli línubáta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.