Morgunblaðið - 11.02.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1979
3
Talnaleikur prófessors
Tómasar Helgasonar
MORGUNBLAÐINU hefur horizt
eftirfarandi frá Læknaráði Land-
spítalans í framhaldi ummæla
Tómasar Helgasonar prófessors
er birtust í Mbl. 9. febr.:
í Morgunblaðinu 9. febrúar er
viðtal við prófessor Tómás Helga-
son um greinargerð Læknaráðs
Landspítalans. Telur hann að
gerður hafi verið villandi saman-
burður á stærð aðalbyggingar
Landspítalans og hinnar nýju
geðdeildarbyggingar.
í skýrslu Læknaráðs kemur
fram að 32 m2 eru fyrir sjúkrarúm
í aðalbyggingu Landspítalans ef
rannsóknardeildir og röntgen-
deildir eru ekki reiknaðar með.
Prófessor Tómas telur að „ef
framkvæma á svona samanburð
ætti að taka heildarfermetrafjölda
bygginga á Landspítalalóð
annarra en hjúkrunarskólans og
deila með heildarfjölda sjúklinga á
lóðinni og verða þá um 67m2 á
sjúkling ...“. Hér er annaðhvort
um reiknisskekkju að ræða eða
hreina fölsun. Ef stuðst er við bók
húsameistara ríkisins frá 1975 um
byggingar á Landspítalalóð og
reiknað samkvæmt aðferðum
prófessors Tómasar þá er nýtan-
legt rými fyrir hvert sjúkrarúm
47,6 m2 og eru þá meðtaldar allar
byggingar á Landspítalalóð nema
Hjúkrunarskólinn og geðdeildar-
byggingin. Prófessor Tómas reikn-
ar einnig út að 103 m2 séu fyrir
hvert sjúkrarúm í geðdeildarbygg-
" ingunni með því að meta dag-
vistunarsjúklinga til jafns við þá,
sem inni liggja. Eðlilegra virðist
þó að meta þá til hálfs eins og gert
er í skýrslu Læknaráðs og fást þá
112 m2 fyrir hvert sjúkrarúm.
Þegar umræður um
staðsetningu geðdeildar stóðu yfir
var ein aðalröksemdin fyrir
staðsetningu hennar á Land-
spítalalóð að þannig gæti hún
stuðst við og nýtt rannsóknar-
deildir spítalans og eldhús. Nú
telur prófessor Tómas að þessar
deildir þjóni aðeins Landspítala og
komi geðdeildinni ekki við. I
skýrslu Læknaráðs kemur fram að
rannsóknadeildir spítalans þjóna
ekki aðeins Landspítala og
væntanlegri geðdeild heldur
einnig að verulegu leyti landinu
öllu. Það er því eðlilegast í saman-
burði á aðalbyggingu Landspítal-
ans og geðdeildarhúsinu að draga
frá rými sameiginlegra deilda og
stendur þá sú staðreynd óhögguð
að rými í aðalbyggingu er 32 m2
fyrir sjúkrarúm geg 112 m2 í
geðdeild.
Prófessor Tómas talar um að
Læknaráð sé nú að hefja að nýju
„þref“ um geðdeild til framdráttar
„áhugamálum sínum" og hafi það
áður tafið fyrir framgangi
byggingarinnar.
I greinargerð Læknaráðs er
hinsvegar fyrst og fremst skýrt
frá staðreyndum varðandi hin
miklu vandamál, sem nú steðja að
rannsóknadeildum og þjónustu við
ýmsa sjúklingahópa vegna
þrengsla á Landspítala. Jafnframt
er bent á að einasta lausn þessara
Funda í dag
AÐALFUNDUR verkalýðsmála-
nefndar Alþýðubandalagsins hefst í
dag að Hótel Esju. Samkvæmt upp-
lýsingum Benedikts Davíðssonar,
formanns nefndarinnar, verða á
fundinum flutt tvö aðalframsöguer-
indi auk stuttrar skýrslu um starf-
semina á liðnu ári. Ragnar Arnalds
mun flytja erindi um efnahagsmál,
stjórnarsamstarfið og ráðherra-
skýrsluna og síðan flytur Eðvarð
Sjigurðsson skýrslu um störf vísitölu-
nefndar, sem væntanlega skilar áliti
eftir helgina.
Að auki verður fjallað um innri
mál flokksins og nefndarinnar, en
Benedikt kvaðst búast við því að
stjórnarsamstarfið og kjaramál yrðu
aðalefni fundarins. Fundurinn hefst
klukkan 10.
Svar frá
Læknaráði
Landspítala
mála sé sú að hafnar verði fram-
kvæmdir er tryggi að sjúklingar
geti fengið þá meðferð, sem ætlast
er til af heilbrigðisyfirvöldum að
starfsfólk Landspítalans veiti. Það
er því athyglisvert að prófessor
Tómas skuli tala um greinar-
gerðina sem þref.
Læknaráð ber enga ábyrgð á
töfum við byggingu geðdeildar-
húss, enda er ráðið sem slíkt
valdalaust og á engan fulltrúa í
yfirstjórn mannvirkjagerðar á
Landspítalalóð. Prófessor Tómas
hefur hinsvegar setið í stjórnar-
nefnd ríkisspítalanna frá byrjun
árs 1974 og er auk Páls Sigurðs-
sonar formanns stjórnarnefndar,
eini læknismenntaði maðurinn
með atkvæðisrétt í nefndinni.
Hlýtur hann því stöðu sinnar
vegna að bera verulega ábyrgð á
vandræðaástandi því, sem ríkir á
ýmsum sérdeildum Landspítalans.
I þessu sambandi er rétt að undir-
strika að Læknaráð hefur ekki
fulltrúa með atkvæðisrétti í
stjórnarnefnd og hefur því mjög
takmörkuð áhrif á ákvörðunar-
töku nefndarinnar.
Prófessor Tómas gefur í skyn að
Læknaráð sé andvígt geðdeild við
Landspítala og vinni gegn lausn á
vandamálum geðsjúkra. Þetta er
alrangt. Læknaráð hefur ávallt
verið fylgjandi geðdeild við Land-
spítala þó stærð og forgangi
byggingarinnar hafi verið mót-
mælt. Læknaráð telur hinsvegar
að nú sé verr búið að ýmsum
sjúklingahópum sem Land-
spítalinn á að þjóna heldur en að
geðsjúkum.
Fjórða síðutogaran-
um breytt í nótaskip
ÓLI Óskars RE 175 renndi sér
mjúklega inn í Vesturhöfnina f
Reykjavík síðdegis í fyrradag.
Þarna var gamli sfðutogarinn Þor-
móður goði á ferð, en undanfarna
mánuði hefur skipinu verið breytt í
nótaskip í Kotka í Finnlandi. óli
Óskars heldur væntanlega á loðnu-
veiðar upp úr miðri næstu viku
þegar gengið hefur verið frá ýmsu
smálegu um borð í skipinu. Þormóð-
ur Goði er fjórði síðutogarinn, sem
breytt er f nótaskip.
Jón Kjartansson SU 111, áður
Narfi, var yfirbyggður 1974, en
breytt í nótaskip 1977. Skipið er
byggt í V-Þýzkalandi 1960. Sigurður
RE 4, var smíðaður í V-Þýzkálandi
1960, yfirbyggður 1976. Víkingur AK
100 er sömuleiðis byggður í Þýzka-
landi árið 1960, en var breytt í
nótaskip 1977. Óli Óskars RE 175,
áður Þormóður goði, er byggður í
V-Þýzkalandi 1958, en yfirbygging-
unni er nýlokið í Finnlandi. Loks er
verið að breyta Júpiter í nótaskip í
Stálvík í Garðabæ. Skipið er smíðað í
Þýzkalandi 1957 og hét þá Gerpir,
síðar Júpiter og núverandi eigandi
er Hrólfur Gunnarsson í Reykjavík.
CostaDel Sol
— Brottför 11. apríl
12 dagar — (4 vinnudagar)
Gististaöir: El Remo, Santa Ciara,
La Nogalera, Tamarindos
Verð frá kr. 139.800.-
Skíðaferð
til Húsavíkur
Brottför 9. apríl 8 dagar
11. apríl 6 dagar
Verð frá kr. 58.100,-
Munið Disco danskeppni
Klúbbsins og Útsýnar
sem hefst í kvöld.
— Fylgist með frá byrjun.
Austurstræti 17. 2. hæð.
Símar 26611 — 20100.