Morgunblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979 3 / „Eg myndaði nú ekki ríkisstjóm með Alþýðusambandinu” sagði Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra eftir ríkisstjórnarfundinn ^ „ÉG HYGGST legsja fram frumvarpið sjálfur án hreytinga,“ sagði Ólafur Jóhann- esson forsætisráðherra, þegar hann kom af fundi ríkisstjórnarinnar, þar sem gerð hafði verið úrslitatilraun til að ná samkomuiagi um verðbótakafla efnahagsfrumvarpsins en án árangurs. Sagði forsætisráðherra, að hann kynni að leggja fram frumvarpið á fimmtudag. Ólafur var að því spurður hvort það mundi valda stjórnarslitum að hann legði fram frumvarpið með þessum hætti. „Það er Alþingis að ákveða það,“ svaraði forsætisráð- herra. Hann ítrekaði þó að hann legði frumvarpið fram sem sitt eigið en ekki sem stjórnarfrumvarp og jafnframt kom fram hjá honum að fullt samkomulag og samstaða væri milli ráðherra Framsóknarflokksins og ráð- herra Alþýðuflokksins um efni frumvarpsins og þessa meðferð þess. Blaðamaður Morgunblaðsins spurði Ólaf þá hvort ráðherrar Alþýðubandalagsins hefðu ekki komið fram með á ríkisstjórnarfundinum tillögur um hvernig þeir vildu leysa helztu ágreiningsatriði vísitölukaflans, og stáðfesti forsætisráðherra það en kvað ráðherra hinna flokkanna hins vegar ekki hafa getað fallizt á þær tillögur. Hann var þá spurður að því hvort þessar tillögur hefðu verið í anda tillagna Alþýðusambandsins en Ólafur svar- aði því til að tæpast væri hægt að tala um tillögur Alþýðusambandsins heldur fremur andmæli. Þá var ítrekað að ráðherrar Alþýðubanda- lagsins héldu því fram að þeir væru innan ríkisstjórnarinnar að fylgja fram stefnu Alþýðusambands íslands í vísitölumálum. „Eg myndaði nú ekki ríkisstjórn með Alþýðu- sambandinu," svaraði forsætisráðherra. Ólafur var þá spurður hvort hann vildi spá einhverju um viðbrögð alþýðubandalags- manna þegar frumvarpið kæmi til kasta þingsins en hann kvaðst engu vilja spá um þau og kvað Alþýðubandalagsmenn verða að gera það upp við sig sjálfa. Blaðamaður Morgunblaðsins spurði þá forsætisráðherra hvort hann vildi nú svara þeirri spurningu, sem hann færðist undan að svara eftir ríkisstjórnarfundinn í fyrrakvöld hvort ráðherrar Alþýðubandalagsins hefðu verið búnir að samþykkja verðbótakafla frumvarpsins, sem þeir síðan gerðu ágreining um. „Ég vil svara þessu á þann veg,“ sagði forsætisráðherra, „að ég legg frumvarpið fram eins og ég tel að samkomulag hafi verið orðið um innan ríkisstjórnarinnar og breyti ekki neinu frá því, þótt sumt sé það í frumvarpinu í þeirri mynd sem ég hefði viljað hafa öðru vísi.“ ólafur Jóhannesson ( viðtali við Morgunblaðið eftir ríkisstjórn- arfundinn í gær. — Ljósm. Mbl. Ól.K.M. 6,6% kjaraskerð- ing 1. júní nk.? „SAMKVÆMT úttekt Þjóðhagsstofnunar, sem fram kom í ríkisstjórninni, þýða þessar vi'sitölutillögur Ólafs Jóhannessonar, sem fram koma í frumvarpinu, sem hann hyggst nú leggja fyrir Alþingi íslendinga, 6,6% kjaraskerðingu 1. júní, sem er miklu stórfelldari og meiri kjaraskerðing, en nokkurn mann hefur órað fyrir, alþingismaður í gær. Ólafur var þá spurður, hver áætl- uð hækkun verðbótavísitölunnar yrði 1. júní og kvað hann þá alls ekki víst nú, hvort hækkunin yrði svo mikil og gætu því laun raunverulega iækkað hinn 1. júní. „Með þessu eru Alþýðuflokkur og Framsóknarflokk- ur i raun að beita sér fyrir meiri kjaraskerðingu en Geir Hallgríms- son beitti sér fyrir og finnst mér það vera kjarkur hjá Ólafi Jóhannessyni að halda upp á ársafmæli febrúar- laganna með því að beita sér fyrir sagði Ólafur Ragnar Grímsson lagasetningu, sem felur í sér enn meiri kjaraskerðingu en þau lög fólu í sér.“ Ólafur Ragnar kvað í ofanálag vera uppi áform um að stefna í enn meiri kjaraskerðingu gagnvart BSRB, „enda hefur það verið reikn- að út núna, að þær hugmyndir, sem Ólafur Jóhannesson og þeir eru með gagnvart BSRB þýði kjaraskerð- ingu, sem sé einhvers staðar á bilinu 10 til 15%.“ Ráðherrar Alþýóuflokks og Framsóknarflokks: Ath.:Við ráðum ekkert við hvernig myndin prentast í þessu eintaki, en við ábyrgjumst góða vinnslu á myndunum þínum. Svona sfcórog skýr mynd, - ekkert dýrari Úr okkar vinnslu koma litmyndirnar Samt kostar það ekkert meira. þriðjungi stærri en þessar venjuiegu Auk þess bjóðum við örugga og litlu. vandaða þjónustu. ÓLAFUR Jóhannesson forsætisráð- herra hefur lagt á það rfka áherzlu, að hann hafi litið svo á að sam- komuiag hafi verið á laugardag um öll atriði efnahagsmálafrumvarps- ins efnisiega, nema þann kafla sem varðar olíumálið. Efnislegt sam- komulag náðist síðan um olíumálið árdegis á laugardag milli þriggja ráðherra, ^ Svavars Gestssonar, Tómasar Árnasonar og Kjartans Jóhannssonar. Síðan orðaði Jón Sigurðsson olíukaflann á sunnudag og hafði síðan samband við ráðherr- ana þrjá um orðalagið. Er staðfest að Svavar nefndi þá tvo fyrirvara við olíukaflann. Um alla aðra kafla segja allir nema alþýðubandalags- mennirnir, að ekki hafi verið unnt að skilja umræður ráðherranna á laugardag öðru vísi en svo að samkomuiag hafi verið um öll atriði frumvarpsins, önnur en olíu- kaflann. Komið hefur fram í máli alþýðu- bandalagsráðherranna, að þeir hafi lýst efasemdum og talið nauðsynlegt að skoða ýmsa hluti nánar. Samt hefur ekkert slíkt verið bókað í ríkisstjórninni. Hins vegar mun það vera, að í umræðum um jafnflókin mál og vísitölumál, koma ávallt fram vangaveltur um ýmsa þætti. Einn ráðherra Framsóknarflokksins sagði í samtali við Morgunblaðið, að sér væri ekki ljóst, hvort unnt væri að kalla slíkar vangaveltur fyrirvara eftir á. Hins vegar kvað hann það vera sitt mat að ráðherrar Alþýðu- bandalagsins hefðu persónulega verið búnir að fallast á frumvarpið, en síðan hefðu þeir ekki hlotið þann stuðning í þingflokki og fram- kvæmdastjórn, sem nægt hefði til Þá verður hvert smáatriði myndarinnar líka þriðjungi stærra og skýrara. Afgreiðslur okkar: Hafnarstræti 17 Suðurlandsbraut 20. þess að fleyta málinu fram. Allir þættir frumvarpsins í þess- ari síðustu gerð þess, nema olíu- málið, hafa legið fyrir allt frá því er fyrsta gerð frumvarpsins er lögð fram 12. febrúar og þótt vísitölu- málið sé allflókið, þá þarf enginn að halda því fram — sagði ráðherrann, að a.m.k. Ásmundur Stefánsson, hagfræðingur ASÍ, hafi ekki skilið það, en hann taldi Ásmund þann mann, sem hefði verið á bak við upphlaup ASÍ og andstöðuna við frumvarpið í Alþýðubandalaginu. „Eg veit ekki um hvað Ólafur er að tala í þessum efnum að því er varðar staðhæfingar hans um samkomulag í ríkisstjórninni vegna þess að það voru af okkar hálfu og hafa alltaf verið mjög skýrar fyrirvarar um ýmis veiga- mestu atriði þessa verðbótakafla," sagði Svavar Gestsson viðskipta- ráðherra, þegar Morgunblaðið bar þetta atriði undir hann. „Það sem við höfðum einkum fyrirvara á,“ sagði Svavar, „var það atriði við hvaða tímamörk viðskiptakjörin væru miðuð — hvort það væri allt árið 1978, hvort miða ætti við fjórðung ársins 1978 eða helming þess árs eða þá fyrsta fjórðung 1979 og þar fram eftir götum. Síðan vorum við með fyrir- vara að því er varðaði kaflann almennt, en þetta er veigamesta atriðið, og eins og kemur fram í athugasemdum Alþýðusambands- ins og við höfum reyndar margoft bent á þá þýðir viðmiðunin við allt árið 1978 3% skerðingu á kaupi 1. júní frá því sem ella væri að óbreyttum reglum. Auk þessa eru í kaflanum önnur skerðingar- ákvæði, að vísu öll minni, en þá er þar stærsta atriðið að vísitalan skuli sett á 100 miðað við marz- mánuð". Svavar sagði, að þegar tillit væri tekið til alls þessa, þá væri aug- ljóst að Alþýðubandalagið gæti ekki og vildi ekki standa að þess- um kafla óbreyttum. „Við sögðum þetta strax á ríkisstjórnarfundin- um í gær en við höfum alltaf haft mjög skýra og afdráttarlausa fyr- irvara um það, að við vildum taka sérstaklega afstöðu til þess við hvaða tíma viðskiptakjörin væru miðuð. Það að halda öðru fram, eins og manni hefur heyrzt, það eru ómerkileg ósannindi." Gírómyndir Pósthólf 10 Reykjavík Yfírlýsing frá Þorfínni Egilssyni MBL. barst í gærkvöldi eftirfar- andi yfirlýsing frá Þorfinni Egilssyni lögfræðingi: Vegna dóms sakadóms Reykja- víkur í dag í svokölluðu Grjótjöt- unsmáli vil ég undirritaður taka eftirfarandi fram: Ég var í ákæru saksóknara ákærður fyrir brot á 247. gr. almennra hegningarlaga, sem fjallar um fjárdrátt. Hins vegar er ég ekki dæmdur fyrir þá grein heldur brot á 248. grein, sem fjallar um fjársvik. Sam- kvæmt þessu er ég ákærður af dómaranum um leið og hann dæmir mig. Ráðherrar Alþýðubandalags- ins bókuðu engan fyrirvara Ómerkileg ósannindi, að við höfum ekki gert fyrirvara, segir Svavar Gestsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.