Morgunblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979
27
Valdir vígamenn
(The killer ellpe)
Afarspennandi mynd.
James Caan, Robert Duvall.
Sýnd kl. 9.
FRUMSÝNING
Kynórar kvenna
Ný mjög mjög djörf amerísk-
áströlsk mynd um hugaróra kvenna
í sambandi vlö kynKf þeirra. Mynd
þessl vaktl mikla athygli í Cannes
'76. Islenskur textl.
Sýnd kl. 9.
stranglega bönnuö innan 16 ára.
Innlánnvið**kip<i
ieið til
lánsviðwkiptn
BÍNAÐARBiVNKI
s' ÍSLANDS
Skuldabréf
fasteignatryggð og spariskírteini
til sölu. Miöstöð veröbréfa-
viðskipta er hjá okkur.
Fyrirgreiösluskrifstofan
Fasteigna- og veröbrétesala
Vesturgötu 17 sími 16223.
Þorleifur Guömundsson
heimasími 12469.
Segulstál
Vigtar 1 kíló. Lyftir 60 kílóum.
Stærö 8x9x3 sentimetrar.
Gott til aö ,.fiska“ upp járnhluti
úr sjó, ám, vötnum, gjám,
svelg, tönkum. Líka til aö halda
verkfærum og smíöahlutum.
Sendum í póstkröfu.
i_L
SSfUipOaiuigjiuiir
Vesturgötu 16, sími 13280.
Friórik Friðriksson:
Rekum óorðið af
Háskóla íslands!
UNDANFÁRIN ár hefur meiri-
hluti háskólastúdenta sýnt í verki
andúð sína á háskólapólitíkinni á
þann hátt að nota ekki kosninga-
rétt sinn þegar kosningar fara
fram innan skólans. Næstkomandi
fimmtudag, þann 15. þ.m. fara enn
á ný fram kosningar innan veggja
skólans. Engin vísbending hefur
komið fram um það, að neinnar
verulegrar breytingar sé að vænta,
hvað varðar áhuga stúdenta, og i
framhaldi af því vakna tvær
spurningar. Hver er ástæðan? og
er þetta áhugaleysi stúdenta rétt-
lætanlegt?
Ástandið
ídag
Það fólk, sem hefur að mestu
ráðið háskólapólitíkinni undan-
gengin ár, eru róttæklingar, sem
draga að vísu fram sparigrímuna
rétt fyrir kosningar og kalla sig
félag vinstri sinnaðra stúdenta.
Það hefur sýnt sig, að þeir rót-
tæklingar, sem ráða ferðinni í
félagi vinstri sinnaðra stúdenta,
eru algjörlega úr sambandi við
raunveruleikann, en lifa þess í
stað í heimi tálsýna og ímyndunar.
Það þarf reyndar ekki að hafa um
það fleiri orð, en nægir í þessu
sambandi að benda á dæmalausa
útvarpsdagskrá þeirra 1. des. ár
hvert. Þar geysast róttæklingarnir
fram og sýna greinilega í verki,
hversu vanmegnugir þeir eru að
skilja raunveruleg vandamál líð-
andi stundar. Þó svo að ekki sé
verið að kjósa um 1. des. dagskrá
nú, þá breytir það í sjálfu sér engu,
sökum þess, að það er sama fólkið
sem heldur um stjórnvölinn, og
vinnubrögðin eru þau sömu, hvert
sem viðfangsefnið er.
Aðaltromp róttæklinganna ár
eftir ár, er að ráðast að atvinnu-
vegunum og almenningi með
skömmum og svívirðingum, sem
leiðir það eitt af sér að spilla áliti
skólans út á við.
Að vonum hefur róttæklingun-
um algjörlega mistekist að fást við
raunveruieg verkefni, eins og sést
best á því, hvernig þeim hefur
haldist á stjórnartaumunum við
rekstur félagsstofnunar stúdenta,
sem alkunnugt er. Þetta er þó í
rauninni allt afar skiljanlegt, í
ljósi þess veruleika, sem róttækl-
ingarnir lifa í. Þeirra áhugasvið
eru ekki „hversdagsleg verkefni"
eins og stjórnun, heldur það, að
„frelsa" ísland úr höndum „ljótu
auðvaldskallanna."
Róttæklingarnir
villa á sér
heimildir
Tvennt er það þó, sem róttækl-
ingum hefur ve! tekist innan há-
skólans: 1) Með því að bjóða fram
Leiðrétting
I grein um ísfirzka slysadaga er
birtist 2. og 3. marz s.l. vildi ég
mega leiðrétta eftirfarandi atriði:
Fyrra Hlínarslysið frá Suður-
eyri varð 11. september 1911 (ekki
1. sept.).
Aftar í sama kafla segir:
„Formaðurinn er þar eigi nafn-
greindur", en á að vera: Formaður-
inn er þar einn nafngreindur, svo
sem framhaldið sýnir.
Og í kaflanum um Hlínarslysið
1913 er sagt: „Um kvöldið voru
tveir bátar enn komnir úr róðri.“,
en á auðvitað að vera: Um kvöldið
voru tveir bátar enn ókomnir úr
róðri. Aðrar villur eru auðlesnar í
málið.
Eyjólfur Jónsson.
lista í kosningum, undir nafninu
félag vinstri sinnaðra stúdenta
hefur þeim algjörlega tekist að
villa á sér heimildir. Þeir ná til
liðs við sig vinstri sinnuðum „lýð-
ræðissinnum" sem halda að þetta
sé hinn gæfulegasti félagsskapur.
En viti menn, hvað skeður að
afloknum kosningum ár eftir ár?
Einfeldingunum, sem létu gabbast,
er nú ýtt til hliðar, og róttækling-
arnir stjórna grímulaust sem fyrr.
2) Þá hefur róttæklingum orðið vel
ágengt í því að rægja VÖKU, félag
lýðræðissinnaðra stúdenta. Með
hatrömmum áróðri, þess eðlis, að
Vaka sé útibú frá Heimdalli, og
auðmagnið streymi til Vöku frá
Sjálfstæðisflokknum, hefur rót-
tæklingunum tekist að gera Vöku
tortryggilega í augum fjölda
stúdenta. Þeir kjósa því frekar að
sitja heima á kjördag en afctaka
þátt í skrípaleiknum. Þetta er að
mínu mati helsta ástæðan fyrir
áhugaleysi stúdenta.
Vaka er óháð
stjórnmálaílokkum
Þeir, sem til þekkja í Vöku, vita
að vitnisburður róttæklinganna er
alrangur, sökum þess, að Vaka er
algjörlega óháð stjórnmálaflokk-
um. Þrátt fyrir það, að ýmsir
Vökumenn eru flokksbundnir, þá
breytir það engu um þá staðreynd,
að Vaka er fyrst og síðast félag
lýðræðissinnaðra stúdenta í há-
skólanum, án beinna tengsla við
stjórnmálaflokka.
Álit háskólans
út á við
Það þarf ekki að leggja lengi við
hlustirnar til að komast að raun
um að háskólinn nýtur lítillar
virðingar meðal almennings í
landinu. Oft má heyra þær raddir,
að háskólinn sé uppeldisstofnun
fyrir ónytjunga og róttæklinga.
Margar ástæður liggja hér vafa-
lítið að baki, en ég er þó þeirrar
skoðunar, að róttæklingarnir inn-
an skólans eigi þar stærstu sökina.
Það eru þeir, sem hafa ráðið því
undanfarin ár, hvað kemur fyrir
augu og eyru almennings, og ekki
hefur það orðið skólanum til fram-
dráttar. Það er mín skoðun, að það
skipti verulegu máli fyrir framtíð
hvers og eins stúdents, hvaða álit
fari af þeirri stofnun sem hann
stundar nám við. Slæmt álit meðal
almennings, í þessu tilfelli, á
háskólanum, getur að mínu viti
Friðrik Friðrikson
Viðskiptafræðinemi.
valdið þeim stúdentum sem ljúka
námi, ómældum erfiðleikum við að
samlagast fólki á vinnustöðum og
annars staðar.
Hvernig skal
óorðinu hrundið?
Af þeim sökum finnst mér ekkki
réttlætanlegt, að stúdentar H.Í.,
sem flestir eru að mennta sig í
þágu atvinnuveganna, ef svo má að
orði komast, láti lítinn hóp rót-
tæklinga, úr tengslum við raun-
veruleikann, ráðskast með framtíð
sína. Eina leiðin til úrlausnar er sú
að reka óskapnaðinn af höndum
sér. Stúdentum gefst á fimmtu-
daginn kostur á að láta athafnir
tala í stað orða. Það er von mín, að
stúdentar sýni þá ábyrgðartilfinn-
ingu, að nýta kosningarétt sinn á
þann eina hátt, sem mögulegur er
til að breyta viðhorfinu til skólans.
Tryggjum Vöku, félagi lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, meirihluta-
stöðu innan stúdentaráðs, stúdent-
um og Háskóla íslands til fram-
dráttar.