Morgunblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14- MARZ1979
Dýrlingarnir
lögdu WBA!
Southampton tryggði sér í
fyrrakvold rétt til þcss að
lcika gcgn Arscnal í 6.
umfcrð ensku hikarkeppn-
innar. cr liðið vann WBA
2—1 eftir framlengdan leik.
Eftir markalausan fyrri
hálfleik, skoraði Laurie
Cunningham fyrir WBA. cn
skömmu síðar jafnaði Devid
Peach úr víti, eftir að brotið
hafði verið á Teyy Curran
innan vítateigs. Þá var
framlengt í 2x15 minútur og
í fyrri hlutanum skoraði
Phil Boyer með skalla það
sem reyndist vera sigur-
mark Southampton.
Fram
Ármann
íkvöld
í kvöld fer fram einn
leikur f 1. deildinni i körfu-
knattleik. Fram og Ármann
mætast i Hagaskólanum kl.
20.00.
Maraþon í
handbolta
Stúlkur í meistaraflokki
Ungmennafélags Grindavik-
ur í handknattleik ætla að
hefja maraþonkeppni f
handboita f íþróttahúsinu á
staðnum kl. 10 á iaugar-
dagsmorgun. Mun ætlunin
að leika a.m.k. í 20 klukku-
stundir samfleytt.
Unglinga-
meistara
mót TBR
HELGINA 17. og 18. mars
verður haldið opið unglinga-
mót f badminton f öllum
greinum eftirtalinna flokka:
Piltar — stúlkur
<1961—1962)
drengir — telpur
(1963-1964)
sveinar — meyjar
(1965-1966)
hnokkar — tátur (1967 —
og sfðar)
Mótið heíst laugardaginn
17. mars kl. 3 e.h. og sfðan
verða leiknir undanúrslita-
og úrslitaleikir sunnudag-,
inn 18. mars kl. 2.00.
Gistiaðstaða verður í
kjallara TBR-hússins fyrir
þá sem búa utan Reykja-
víkursvæðisins.
Þátttökugjöld verða eftir-
farandi: I tveimur elstu
flokkunum, einliðaleikur
1500 kr., tvíliða- og tvennd-
arl. 1000 kr. í tveimur
yngstu flokkunum. einliða-
íeikur 1000 kr., tvfliða- og
tvenndarleikur 800 kr.
Þátttökutilkynningum
skal skila til unglingaráðs
TBR fyrir fimmtudaginn 15.
mars n.k.
Maraþon-
knattspyrna
í Borgarnesi
Maraþonknattspyrnan er
vinsæl þessa dagana. Næst-
komandi föstudag ætla fé-
lagar í Ungmennafélaginu
Skallagrfm í Borgarnesi að
reyna að bæta nýsctt ís-
landsmet. Hefja þeir leikinn
kl. 20.00 á föstudagskvöld í
Borgarnesi.
Reykjavíkurmótid í badminton
Mikil keppni í
öllum flokkum
UM SÍÐUSTU helgi fór fram
Mcistaramót Reykjavíkur í húsi
TBR. Þátttakendur í mótinu voru
um 70 frá TBR, Víkingi og KR.
Var mótið hið skemmtilegasta og
mikil keppni f öllum flokkum.
Úrslitin í mótinu urðu sem hér
segir:
A-FLOKKUR -
einliðaleikur karla:
Óskar Bragason KR sigraði Þor-
geir Jóhannsson TBR 15/13,
11/15 og 15/7.
A-FLOKKUR -
tvfliðaleikur karla:
Ágúst Jónsson KR og óskar
Bragason KR sigruðu Þorgeir
Jóhannsson TBR og Skarphéðin
Garðarsson TBR, 15/2 og 15/5.
A-FLOKKUR -
tvfliðaleikur kvenna:
Jórunn Skúladóttir TBR og Bryn-
dís Hilmarsdóttir TBR sigruðu
Þyri Laxdal TBR og Illaðgerði
Laxdal KR 13/15,15/3 og 15/3.
Austri
náói
metinu
SEX piltar úr knattspyrnufélag-
inu Austra á Eskifirði náðu að
setja nýtt íslandsmet f innanhúss-
knattspyrnu um sfðustu helgi.
Léku þeir f alls 32 og hálfa
klukkustund. Gamla metið áttu
piltar úr öðrum flokki Vals og
voru þeir nýbúnir að setja það.
Um leið og Austra menn settu
metið öfluðu þeir fjár með áheit-
um. Verður fróðlegt að sjá hvort
Borgnesingunum sem ætla að
setja nýtt met um næstu hclgi
tekst það.
A-FLOKKUR -
tvenndarleikur:
Skarphéðinn Garðarsson og
Bryndís Hilmarsdóttir TBR sigr-
uðu Walter Lentz TBR og Hlað-
gerði Laxdal KR 15/12, 6/15 og
15/5.
ÖÐLINGAFLOKKUR -
einliðaleikur karla:
Jón Árnason TBR sigraði Garðar
Alfonsson TBR 15/4, 13/15 og
15/9.
ÖÐLINGAFLOKKUR -
Tvíliðalcikur karla:
Jón Árnason TBR og Jóhann
Möller TBR sigruðu Rafn Viggós-
son TBR og Adolf Guðmundsson
TBR, 15/11 og 15/11.
MEISTARAFLOKKUR -
einliðaleikur karla:
Jóhann Kjartansson TBR sigraði
Sigfús Ægi Árnason TBR, 15/6
og 15/3.
MEISTARAFLOKKUR -
tvfliðaleikur karla:
Sigfús Ægir Árnason TBR og
Sigurður Kolbeinsson TBR sigr-
uðu Jóhann Kjartansson TBR og
Sigurð Haraldsson TBR, 15/8 og
15/7.
MEISTARAFLOKKUR -
tvíliðaleikur kvenna:
Kristín Magnúsdóttir TBR og
Kristín Berglind TBR sigruðu
Hönnu Láru Pálsdóttur TBR og
Lovísu Sigurðardóttur TBR,
17/16 og 15/10.
MEISTARAFLOKKUR -
einliðaleikur kvenna:
Kristín Magnúsdóttir TBR sigr-
aði Kristínu Berglind TBR, 11/4
og 11/7.
MEISTARAFLOKKUR -
tvenndarleikur:
Ilaraldur Kornelíusson TBR og
Lovísa Sigurðardóttir TBR sigr-
uðu Jóhann Kjartansson TBR og
Kristínu Berglind TBR 17/14 og
15/1.
- þr.
Mörg óvænt úrslit á
opna danska meistara-
mótinu í badminton
Það var mikil barátta og mörg
óvænt úrslit á opna danska meist-
aramótinu f badminton sem fór
fram f KB-höllinni f Kaupmanna-
höfn dagana 7. —11. mars. Það
eina sem skyggði á þetta mót var
að Indónesfumenn mættu ekki
með sfna keppendur og er þetta
þó annað stærsta mót sem haldið
er f Evrópu. í einliðaleik karla
léku til úrslita Flemming Delfs
og Morten Frost Hansen og sigr-
aði Delfs örugglega 15—7 og
15 — 7 og lék hann af miklu
öryggi og mun meiri hörku en
maður á að venjast frá hans
hendi. í undanrásunum gerðist
það meðal annars að Indverjinn
Prakash, sem er raðað nr. 2 í
All-Englandmótinu, var sleginn
út af Gert Helsholt frá Danmörku
sem komst í undanúrslit á móti
Morten Frost. Þá kom nokkuð á
óvart að Delfs þurfti þrjár lotur
til að sigra bæði Zeniya frá Japan
og Stevens frá Englandi.
Einliðaleik kvenna vann Lena
Köppen og er það í fjórða sinn í
röð sem hún gerir það. I úrslitum
sigraði hún Yuki frá Japan í þrem
lotum með 11—8, 7—11 og 11—2.
Lena Köppen lenti einnig í erfið-
leikum í undanúrslitum þar sem
hún þurfti þrjú sett til að vinna
Kondo frá Japan.
Til úrslita í tvíliðaleik karla léku
Sutton og Eddy frá Englandi og
Iino og Tsuchida frá Japan og þeir
síðarnefndu sigruðu nokkuð
örugglega með 15—9 og 15—7. Þeir
lentu þó í nokkrum erfiðleikum í
undanúrslitum á móti Morten
Frost og Steen Fladberg og unnu
með 15—12, 2—15 og 17—15 og
voru Danirnir mjög óhressir yfir
sendingunum frá Tsuchida sem
sendi bakhandarsendingar og
héldu fram að hann slægi send-
ingarnar of hátt en það var aldrei
dæmt á hann. Englendingarnir
höfðu komið nokkuð á óvart með
að vinna þá Flemming Delfs og
Steen Skovgaard.
I tvíliðaleik kvenna unnu
japönsku stúlkurnar Takada og
Tokuda þær Perry og Skovgaard
frá Englandi með 15—11 og 15—9.
Skovgaard hét áður Stadt en er nú
gift Steen Skovgaard en keppir
fyrir England. Þær Takada og
Tokuda sem eru All Eng-
land-meistarar lentu mí miklum
erfiðleikum á móti Webster og
Sutton frá Englandi í undanúrslit-
um og sigruðu fyrst eftir þrjár
lotur með 12—15, 15—22 og
17-14.
í tvenndarleik unnu þau Perry
og Stevens frá Englandi þau Lenu
Köppen og Skovgaard og þurfti
þrjár lotur til að gera út um málin.
Englendingarnir unnu fyrstu lot-
una 15—12 en töpuðu næstu
11—15 en unnu svo oddalotuna
með 15—11 eftir að hafa verið yfir
13—4 en misst það niður í 13—11.
Englendingarnir sýndu hér enn
einu sinni að þeir eru góðir tvíliða-
og tvenndarleiksspilarar og sér-
staklega lék Nora Perry vel og er
hún mjög útsjónarsöm og gerir
fáar villur.
• Þau Lovísa Sigurðardóttir og Haraldur Kornelíusson sem hér sjást
einbeitt á svipinn sigruðu ítvenndarieik á meistaramóti Reykjavíkur í
hadminton. Þau sigruðu Jóhann Kjartansson og Kristínu Berglind
17—14ogl5—l.
Dregiö í bikarkeppni HSÍ
Stórliðin sluppu
hvort við annað
í GÆRDAG var dregið í átta liða
úrslit í bikarkeppni HSÍ. Voru
fulltrúar allra þeirra átta félaga
sem efstir voru í bikarkeppninni
mættir á skrifstofu HSÍ til þess
að fylgjast með drættinum. Fyrsti
miðinn, sem dreginn var úr
vasanum, var miði FH. Næstur
dró fulltrúi FH-inga og fengu
þeir Fylki með mótherja. Næst
drógust saman Stjarnan og
Víkingur, ÍR móti annaðhvort
Þór frá Akureyri eða Ármanni en
þessi tvö lið hafa ekki enn leikið
saman í 16 liða úrslitum.
Og loks drógust saman Fram
og Valur. Eiga liðin að hafa lokið
leikjum sínum fyrir 1. apríl.
í meistaraflokki kvenna er enn
einum leik ólokið f átta liða
úrslitunum, á milli Þórs og UBK.
Lið það sem sigrar í þeim leik
leikur á móti Fram, og sigur-
vegarinn úr þeim leik leikur svo á
móti FH. Haukastúlkurnar
drógust á móti KR.
í 2. flokki karla leika saman í
fjögurra liða úrslitum Víkingur
og Þróttur og FH á móti annað-
hvort Fram eða ÍR. en þau eiga
eftir að leika innbyrðis í átta liða
úrslitum.
- þr.
KR mætir IS
Á MORGUN fimmtudag leika
KR-ingar við ÍS í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik. Fer leikurinn
fram f Kennaraháskólanum og
hefst kl. 20.00.
• / einliðaleik kvenna vann Lena Köppen í fjórða sæti í röð á opna
danska meistaramótinu. Þótti hún standa sig með afbrigðum vel. Á
myndinni er hún við öllu búin.
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmms