Morgunblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979 * * Snúningshraðamælar með raf- eindaverki engin snerting eöa tenging (fotocellur). Mælisvið 1000—5000—25.000 á mín- útu. Einnig mælar fyrir allt að 200.000 á mínútu. Rafhlööudrif léttir og einfaldir í notkun. Söiuiflaiuigjiyiir J&rimom «S Vesturgötu 16, sími 13280. r WIKA Þrýstimælar Allar stæörir og gerðir. SöyuflgEflijyr & CS(q) Vesturgötu 16, simi 1 3280 Morgunstund barnanna kl. 9,05: Um tápmiklar telpur sem str júka úr vist Lestur nýrrar sögu hófst í Morgunstund barnanna í út- varpinu í gærmorgun. Er það sagan „Stelpurnar sem struku", en hún er eftir norska höfund- inn Evi Bögenæs. Geir hafði eftirfarandi um söguna að segja í spjalli við Mbl. í gær: „Sagan byrjar á því að for- eldrar söguhetjanna Lolu og Söru koma telpunum fyrir á barnaheimili hjá merkilegri konu sem nefnist frú Rut Enger, meðan þau skreppa sjálf í ferða- lag til Ameríku. Lolu og Söru leiðist til muna á barnaheimilinu, enda báðar fjörugar og tápmiklar stúlkur. Taka þær til þess ráðs að strjúka af heimilinu. Hitta þær fyrir telpu sem er að passa systur sína og er á leið út í skóg að tína blóm. Þessi telpa felur Loiu og Söru í reykhúskofa skammt frá bæn- um Ási þar sem hún á heima. Hún sér þeim fyrir mat og útbúnaði til að sofa við og mikil vinátta tekst með stúlkunum þremur. Þegar á líður kynnast Lola og Sara fjölskyldu litlu telpunnar og um síðir komast þær í sam- band við Rut Enger og á endan- um fellur allt í ljúfa löð. Mikill samgangur verður milli telpnanna í Ási og telpnanna á barnaheimilinu og lífið gengur sinn vanagang í fjörugum leikj- um og kátínu." Geir sagði að alls yrðu lestr- arnir átta. Geir hefur áður lesið sögur í útvarpi. Útvarp kl. 22,10: Líf og starf sunnan jökla Magnús Finnbogason bóndi á Lágafelli í Austur-Landeyja- hreppi í Rangárvallasýslu er umsjónarmaður þáttar sem nefnist Sunnan jökla og er á dagskrá útvarpsins klukkan 22.10 í kvöld. í þætti þessum mun Magnús fjalla um ýmis atriði úr lífi og starfi manna í heimahögum Magnúsar. Mun hann ræða við bændur og búalið af Suðurlands- undirlendinu og ber margt for- vitnilegt á góma samkvæmt heimildum Mbl. Magnús ræðir í kvöld m.a. við Sigurð Eggertsson Magnús Finnbogason bónda á Efri-Þverá, Þráin Þor- valdsson bónda í Oddakoti og Kristínu Guðmundsdóttur á Hvolsvelli. Síðasti þátturinn í myndaflokknum um Will Shakespeare verður á dagskrá sjónvarpsins í kvöld. Myndin er af einum leikara flokksins f hlutverki sfnu. Útvarp kl. 20,00: Um fræðslu fullorðinna Úr skólalífinu heitir þáttur sem er á dagskrá útvarpsins klukkan 20,00 í kvöld. Þátturinn er í umsjá Kristjáns E. Guðmundssonar menntaskóla- kennara, og hefði hann eftirfar- andi um þáttinn að segja: „I kvöld tek ég fyrir fullorðins- fræðslu. Ætlunin er að kynna Námsflokka Reykjavíkur. Einnig verður fjallað um hvernig náms- flokkarnir koma til með að tengj- ast skólakerfinu í framtíðinni, með tilliti til frumvarps um framhaldsskóla, en í því er að finna nýja grein um fullorðins- fræðslu. Rætt verður við nokkra þátt- takendur í námsflokkunum og við Guðrúnu Halldórsdóttur skóla- stjóra. Guðrún hefur ýmsar hug- myndir varðandi fyrirkomulag námsflokkanna og nýtingu hús- næðis í því sambandi. Einkum hefur hún frjóar hugmyndir um nýjungar í starfi námsflokkanna, eins og t.d. húsmæðrafræðslu, barnagæzlu o.s.frv. Fram kemur í þættinum hvernig starfi námsflokkanna er háttað, hvaða fræðslu þar er boðið upp á, í hvaða horn er að líta í sambandi við þátttöku í námsflokkunum o.þ.h." Aðspurður sagði Kristján að framhald yrði á þáttunum Úr skólalífinu. Yrðu þeir á dagskrá eitthvað fram á vorið, en að svo komnu máli væri óráðið með framhald þeirra á næstkomandi hausti. / Island- Ungverjaland Bjarni Felixsson hjá Sjón- varpinu tjáði Mbl. í gær, að í kvöld klukkan 19.00 yrði sýndur í sjónvarpi leikur íslands og Ung- verjalands í B-riðli heimsmeistara- keppninnar á Spáni á dögunum. Þá verður úrslitaleikurinn í keppninni sýndur í íþróttaþættinum á laugar- daginn kemur, en það voru Spán- verjar og Svisslendingar sem leiddu saman hesta sína í úrslita- keppninni. útvarp Reykjavlk AHÐMIKUDKGUR 14. marz MORGUIMNINN_________________ 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.10Leikfimi. 7.20 Bæn. 7.25 Morgunpósturinn. Um- sjónarmenn: Páll Ileiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00 Fréttir). 8.15 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). Dag- skrá. 8.35 Morgunþulur kynnir ým- is lög að eigin vali. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Geir Christensen heldur áfram að lesa „Stelpurnar sem struku“ eftir Evi Böge- næs (2). 9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Morgunþulur kynnir ým- is Iök. frh. 11.00 Ur íslenzkri kirkjusögu. Jónas Gislason dósent flytur annað erindi sitt um ein- kenni írskrar kristni á fyrri hluta miðalda og hugsanleg tengsl við kristni á íslandi. 11.25 Kirkjutónlist: Tónlist eftir Johann Sebastian Bach a. Prelúdía og fúga í h-moll. Karl Richter leikur á orgel. b. „Ég vil bera kross þinn“, kantata fyrir einsöngvara og kór. Gérard Souzay og Kapellukórinn í Berlín syngja með þýzku Bach-ein- leikarasveitinni. Helmut Winchermann stj. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar.___________________ SÍÐPEGIÐ____________________ 12.25 Veðuríregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 Litli barnatiminn Sigríður Eyþórsdóttir stjórnar. Sagt frá Færeyj- um, leikin þjóðlög þaðan og lesin tvö færeysk ævintýri. 13.40 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Fyrir opnum tjöldum“ eftir Grétu Sigfúsdóttur. Herdís Þor- valdsdóttir leikkona les (7). 15.00 Miðdegistónleikar: Kjell Bækkalund og Robert Levin leika Tilbrigði í es-moll op. 2 fyrir tvö píanó eftir Christian Sinding. / Gervase de Peyer og Daniel Baren- boim leika Sónötu í Es-dúr op. 120 fyrir klarinettu og píanó eftir Johannes Brahms. 15.40 íslenskt mál: Endurtek- inn þáttur Gunnlaugs Ing- ólfssonar frá 10. þ.m. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.16 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn: Halldór Gunnarsson kynnir. 17.20 Útvarpssaga barnanna: „Polli, ég og allir hinir“ eftir Jónas Jónasson. Höf- undur byrjar lesturinn. 17.40 Á hvítum reitum og svörtum Guðmundur Arnlaugsson flytur skákþátt. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.________________ KVÖLDIÐ______________________ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Gestur í útvarpssal Finnska óperusöngkonan Taru Valjakka syngur lög eftir Granados, Rodrigo og Palmgren. Agnes Löve leik- ur á píanó. 20.00 Úr skólalifinu Kristján E. Guðmundsson stjórnar þættinum, sem fjall- ar um fullorðinsfræðslu. 20.30 Útvarpssagan: „Eyr- byggja saga“ Þorvarður Júlíusson les (11). 21.00 Hljómskálamúsik Guðmundur Gilsson kynnir. 21.30 Ljóð eftir Guðmund Kamban Guðmundur Guðmundsson lcs. 21.45 íþróttir Hermann Gunnarsson segir frá. 22.10 Sunnan jökla Magnús Finnbogason á Lágafelli tekur saman þátt- inn. M.a. rætt við Sigurð Eggertsson, Efri-Þverá, Þrá- in Þorvaldsson, Oddakoti, og Kristínu Guðmundsdóttur á Hvolsvelli. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Lestur Passíusálma (27). 22.55 Úr tónlistarlífinu. Knút- ur R. Magnússon sér um þáttinn. 23.10 Svört tónlist Umsjón: Gérard Chinotti. Kynnir Jórunn Tómasdóttir. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 1979 18.00 Börnin teikna Kynnir Sigríður Ragna Sig- urðardóttir. 18.10 Gullgrafarnir Lokaþáttur. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. 18.35 Heimur dýranna Fræðslumyndaflokkur um dýralíf víða um hcim. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 19.00 Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Vaka * Greint verður frá leiksýn- ingum, leikdansi og óperu- flutningi. Dagskrárgerð Andrés Ind- riðason. 21.20 Will Shakespeare Sjötti og sfðasti þáttur. Efni fimmta þáttar: Jarlinn af Essex og jarlinn af Southampton gera mis- heppnaða tilraun til upp- reisnar gegn Elísabetu drottningu. Baráttu sinni til stuðnings fá þeir Will til að setja á svið leikritið „Rfkarð annan“, og þannig flækist leikflokkurinn óvilj- andi í máliö. í „refsiskyni“ fyrirskipar drottning, að hún fái að sjá leikrit Shake- speares, „Hinrik fjórða“, annan hluta. Jarlarnir hljóta dauðadóm. Þýðandi Kristmann Eiðs- son. 22.10 Áfengismál á Norður- löndum Hinn fyrsti þriggja norskra fræðsluþátta um áfengis- mál á Norðurlöndum. Meðal annars er fjaliað um vax- andi neyslu áfengis og varn- ir gegn henni. (Nordvision — Norska sjón- varpið) Þýðandi Jón O. Edwald. 22.55 Dagskrárlok. ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.