Morgunblaðið - 14.03.1979, Blaðsíða 32
AUGLÝSINftASIMINN ER:
22480
Jílormmblnöiti
jHQgttttiritafrlfr
Verzlið
sérverzlun með
litasjónvörp og hljómtæki
Skipholti 19
BUDIN simi
^ 29800
MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979
Ólafur leggur líklega fram frumvarp sitt á morgun:
Samkomulagstilraun-
irnar f óru út um þúf ur
Ráðherrar Alþýðubandalags-
ins taldir hafa samið af sér
ÚRSLITATILRAUN var gerð á ríkisstjórnarfundi síðdegis í gær til þess að
ná samkomulagi um efnahagsmálafrumvarp Ólafs Jóhannessonar
forsætisráðhcrra, en hún mistókst. Ekkert samkomulag varð um
verðbótakafla frumvarpsins og var málið í þeim sama hnút og þegar upp
staðið var um miðnætti í fyrrinótt. Eftir fundinn sagði ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra, að hann myndi leggja frumvarpið fram á Alþingi á
morgun í sínu nafni og yrði það síðan að ráðast á Alþingi, hvort meirihluti
væri fyrir frumvarpinu.
Ríkisstjórnarfundurinn hófst um
klukkan 16 og stóð í röskar tvær
klukkustundir. Hann var beint fram-
hald af ríkisstjórnarfundi, sem
haldinn var í fyrrinótt og lauk um
miðnætti. Fyrstir til fundarins í gær
komu ráðherrarnir Hjörleifur
Guttormsson og Ragnar Arnalds og
áttu þeir fyrir fundinn viðræður við
Ólaf Jóhannesson forsætisráðherra.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins
komu til ríkisstjórnarfundarins
beint af fundi framkvæmdastjórnar
Alþýðubandalagsins, þingflokks og
verkalýðsmálaráðs, sem haldinn var
í Þórshamri. Sá fundur hafði hafizt
klukkan 11 um morguninn og stóð
hann fram yfir upphaf ríkisstjórnar-
fundarins. Ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins fengu það vegarnesti frá
fundinum í Þórshamri, að freista
þess að koma fram breytingum í
þremur liðum á frumvarpinu.
í fyrsta lagi áttu þeir að fá
svokölluðum olíukafla í verðbóta-
kafla frumvarpsins breytt. í öðru
lagi áttu þeir að krefjast þess að sú
uppsafnaða rýrnun viðskiptakjara,
Grjótjötunsmálið:
Tveir menn
hlutu dóma
DÓMUR í Grjótjötunsmálinu
var kveðinn upp í sakadómi
Reykjavíkur í gær.
Tveir iögmenn hlutu dóm fyrir
að hafa komist yfir 400 þúsund
norskar krónur til eigin ráðstöf-
unar í sambandi við kaup á
sanddæluskipinu Grjótjötni í
Noregi árið 1974. Samsvarar
þetta um 25 milljónum króna á
gengi dagsins í dag.
Var annar þeirra dæmdur í 3
mánaða fangelsi en hinn í 5
mánaða fangelsi og báðir voru
sviptir málflutningsréttindum í 3
ár frá birtingu dóms.
Sjá dóminn bls. 16 og yfirlýsimtu bls. 3
sem þegar væri orðin, kæmi ekki til
framkvæmda og viðskiptakjaravísi-
tala færi ekki að mæla verðbætur
fyrr en eftir mitt ár 1979. í þriðja
lagi krafðist Alþýðubandalagið þess,
að ákvæðið um að framfærsluvísi-
talan verði sett við 100 við hvern
vísitöluútreikning, yrði máð út úr
frumvarpinu.
Ráðherrar Framsóknarflokks og
Alþýðuflokks féllust ekki á þessar
kröfur, enda hafði Alþýðuflokkurinn
eða flokksstjórn hans gefið ráðherr-
um sínum fyrirmæli um að engar
breytingar skyldu verða á frumvarp-
inu.
Að loknum ríkisstjórnarfundinum
sagði Benedikt Gröndal, að alþýðu-
flokksmenn stæðu einhuga að frum-
varpinu í þeirri mynd, sem forsætis-
ráðherra hefði búið það, og væru
ekki til viðtals um breytingar. Vildu
alþýðuflokksmenn að frumvarpið
yrði lagt fram hið fyrsta en það fæli
í sér viðnám gegn verðbólgu, sem
alla tíð hefði verið markmiðið og
nokkra kaupmáttaraukningu. Ragn-
ar Arnalds var fámáll, er hann fór af
fundi, kvað ríkisstjórnina tóra en
enga lausn hafa fengizt á ágrein-
ingnum innan hennar og væru því
málin öll í hnút.
Á framkvæmdastjórnarfundi Al-
þýðubandalagsins kom greinilega
fram að því er Morgunblaðið hefur
haft spurnir, að ráðherrarnir höfðu
á laugardag gjörsamlega samið af
sér innan ríkisstjórnarinnar. Á
fundinum var reynt að leita að lausn
til þess að bjarga ríkisstjórninni og
bar Ragnar Arnalds fram tillögu um
að forystu Alþýðusambands íslands
yrði falið að óska viðræðna við Ólaf
Jóhannesson um verðbótakafla
frumvarpsins, þar sem hún leiddi
ráðherra fyrir sjónir, hver væri vilji
ASÍ. Snorri Jónsson mun hafa hafn-
að þessari tillögu algjörlega og sagt
að forysta ASI gæti ekki óskað
viðræðna við forsætisráðherra um
skerðingu launa. Hins vegar kvað
hann forystu ASÍ ekki myndu neita
að ræða við forsætisráðherra, ef
ráðherrar Alþýðubandalagsins gætu
fengið Ólaf Jóhannesson til þess að
óska viðræðna við forystu ASI.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins reyndu að knýja fram breytingar á verðbótakafla frumvarps Ólafs
Jóhannessonar forsætisráðherra en hann var fastur fyrir. Efri myndin er af forsætisráðherra, en á hinni neðri
eru: Ragnar Arnalds, Svavar Gestsson og Hjörleifur Guttormsson. — Ljósm. Mbl: ól.K.M.
Rikissaksóknari gefur út ákæru á hendur Hauki Heiðar:
Keypti verðbréf af fjárfest-
ingarfyrirtækjum í Sviss
RÍKISSAKSÓKNARI gaf í gær út
ákæru á hendur Hauki Ileiðar
fyrrverandi deildarstjóra ábyrgða-
deildar Landsbanka íslands fyrir
að draga sér tæpar 51.5 milljónir
króna í bankanum á tímabilinu
nóv. 1970 til ágústloka 1977. Enn-
fremur er hann ákærður fyrir
skjalafals og bi*ot í opinberu starfi.
I ákæruskjali kemur fram á hvern
hátt Haukur Heiðar framkvæmdi
brot sín í bankanum með fölsun og
rangfærslu skjala og ennfremur
hvernig hann kom peningunum í
gegnum færslukerfi bankans án þess
að eftir því væri tekið með þeim
hætti að koma í veg fyrir að bera
mætti saman færsluskjöl bankans
annars vegar og skjöl þau, sem
firmanu Einar Ásmundsson Im-
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins:
Ríkisstjóm, sem afhjúpað hef-
ur getuley si sitt, á að fara frá
„SAMKVÆMT þeim fréttum, sem
mér hafa borizt af úrslitum ríkis-
stjórnarfundar, þá hefur ríkis-
stjórnin formlega gefizt upp við
að stjórna landinu og móta tillög-
ur til Alþingis um að setja lands-
mönnum lög,u sagði Geir Hall-
grimsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Ríkisstjórn, sem
þannig hefur formlega og opin-
berlega afhjúpað getuleysi sitt, á
auðvitað að fara frá.“
Morgunblaðið spurði þá Geir
Hallgrímsson, hver yrði afstaða
Sjálfstæðisflokksins til frumvarps
Ólafs Jóhannessonar forsætisráð-
herra, þegar hann legði það fram,
líklegast á fimmtudag. Geir kvað
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hafa fengið frumvarpið í hendur
sem trúnaðarmál. „Misjöfnum
sögum fer af því, hvort það verður
borið fram í þeirri mynd, sem við
höfum fengið það í hendur, eða
breyttri og því getum við ekki á
þessari stundu kveðið upp úr um
það, hver afstaða okkar er til þess
— þó vil ég taka það skýrt fram að
mörg ákvæði frumvarpsins eru
þess eðlis, að Sjálfstæðisflokkur-
inn getur aldrei samþykkt þau,
þótt inn á milli séu ákvæði, sem til
bóta horfa. Frumvarpið í heild
sinni skiptir litlu eða engu máli í
baráttunni við verðbólguna. Það
er í senn útvatnað og án stefnu-
mörkunar eins og okkur hefur
verið birt það. Það er yfirgnæf-
andi umbúðir en lýtur ekki að efni
málsins, nema að litlu leyti."
Þá spurði Morgunblaðið, hvort
formaður Sjálfstæðisflokksins
teldi stjórnarflokkana geta náð
saman um ágreiningsefni sín á
meðan frumvarpið fær þinglega
meðferð. Geir Hallgrímsson sagði:
„Það má vel vera að þessir flokkar
leiti þess ráðs og að þessir síðustu
atburðir séu aðeins enn nýtt sjón-
arspil í ósamkomulagi og getuleysi
stjórnarflokkanna, en hvort sam-
komulag verður reist á rústum
stjórnarsamstarfsins eins og það
lítur út núna, þá breytir það engu
um heildarmyndina, að af hendi
þessarar stjórnar er ekki neinna
jákvæðra hluta að vænta.“
port/Export var afhent hins vegar,
en þá afhendingu annaðist Haukur
Heiðar sjálfur, sem var óvenjulegt í
bankanum.
Haukur Heiðar lét starfsfólk
ábyrgðadeildar reikna út ábyrgðir
fyrrgreinds firma, sem hann notaði
við svikin og lét síðan senda skjölin
frágengin til gjaldkera, sem síðan
greiðslustimplaði þau. Fékk hann
svo frumritin aftur í hendur og
rangfærði þau eða bjó til ný skjöl og
bjó þannig til mismun, sem hann lét
skuldfæra á reikninga firmans Einar
Ásmundsson Import/Export.
Þá upphæð sem þarna myndaðist
og er upphæð sú sem fjárdrættinum
nemur notaði Haukur Heiðar annað-
hvort til þess að greiða ábyrgða-
skuldir annarra óskyldra fyrirtækja,
Dósagerðarinnar, Bláskóga og Ólafs-
fells eða hann flutti peningana úr
landi í yfirfærslukerfi bankans undir
fölsuðum ábyrgðanúmerum og lét
leggja þá þar inn í banka. Pening-
ana, sem hann notaði til að greiða
skuldir fyrrnefndra þriggja fyrir-
tækja og veitti þeim þannig í raun og
veru lán, fékk hann endurgreidda
beint til sín ásamt vöxtum en pen-
ingana, sem fluttir voru úr landi
notaði Haukur Heiðar aðallega til að
kaupa verðbréf af fjárfestingarfyrir-
tækjum í Sviss og nemur innlausnar-
verð bréfanna nálægt 30 milljónum
króna í dag. Hefur verið um það
samið að Landsbankinn fái þessi
bréf.
Sjá „Engin tengsl dcildarstjórans...“ á bls.
16.