Morgunblaðið - 14.03.1979, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979
29
TT^1 æ
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
s10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
Ófært að setja
lífeyrissjóðun-
um slík skilyrði
— segir Eðvarð Sigurðsson um frumvarp
ríkisstjórnarinnar, sem sé i andstöðu við
Alþýðusambandið
„Velvakandi góður.
Það er engin sígandi lukka fólg-
in í því lengur að vera íslendingur.
Hálfpartinn er maður farinn að
skammast sín fyrir öll þessi
„vandamál" þjóðarinnar, sem
farin eru að hlaðast upp frá degi
til dags eins og hvert annað
óniðurgreitt smjörfjall.
Af því að fólk getur ekki skrifað,
málað, sungið, leikið, dansað eða
lært lengur nema í hóp — enginn
þorir fyrir sitt auma líf að vera
einn með sjálfum sér, þarf ríkis-
valdið að greiða skemmtanaskatt-
inn fyrir stundargamanið. Hærri
styrki, stærri skóla.
Ja hvað ég man það eins og það
hefði skeð í gær — Háskólasveinn
á aðventu 1977, feitur og sællegur
eins og nýsleginn jólasveinn á
strætisvagnastöð í miðborginni
með spjald framan á sér: Hærri
námslán eða — ? (Peningana eða
lífið?)
Mikið urðum við, nokkrir eldri
borgarar hissa, þarna sem við
biðum eftir strætó, minnug þess
þegar við átta ára seldum blöð til
að geta lagt 25 aura í heimilið.
• ... og fleiri
vandamár
Þetta er nú meiri aumingja-
skapurinn. Núnú, — Þá eru það
annarskonar „vandamál". Fólk
fær ekki svo skitustíng í einhverju
formi, að ekki séu kallaðir til einn
eða fleiri sálfræðingar í hring-
borðsumræður í útvarpi eða sjón-
varpi um „vandamálið". Margir af
þessum fylgikvillum lífsins eru
meira að segja gefnir út í bók, og
höfundi afhent bókmenntaverð-
laun með pompi og pragt.
Eg er með þeim ósköpum fædd,
að ég veit ekki hvað vandamál er
fremur en pilturinn í Grimms-
æfintýrum, sem fór útí heiminn til
að læra að verða hræddur. Ég held
að fólk rísi betur undir sínu eigin
lífi ef það gerði meira af því að
lesa góðar bækur, en sleppti því
um óákveðinn tíma að lesa ein-
vörðungu bækur um sérhönnuð
„vandamál" lítilsgildra sögu-
persónahöfunda, sem taka meira
frá lesendum sínum en þeir gefa.
Þetta nær vitaskuld sér í lagi til
þeirra „bókmenntapáfa, sem eru
að fikta við útdeilingu á bók-
menntastyrkjum og annarskonar
upphafningu á illgresi.
Fuglarnir syngja þá helzt og
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á meistaramóti sovézka
bæjarins Tjumenj í ár kom þessi
staða upp í skák þeirra
Cherkasovs og Khokhlovs, sem
hafði svart og átti leik.
14.... Rxe4! 15. Bxe4 — Rxd4
16. Ht4 (Eftir 16. Bxb7 - Dxb7+
og 17. ... Rxf5 hefur hvítur
tapað skiptamun) Rf5! 17. Df3
— Rxg3+! og hvítur gafst upp,
því að eftir 18. hxg3 — Dxh3+19.
Kgl — Hxg3+ er staða hans
algjörlega vonlaus. Kandídat-
meistari nokkur, Obodchuk að
nafni, sigraði á mótinu.
hvernig sem viðrar, þegar þeim er
gefið rétt fóður.
Guðrún Jacobsen.“
• Lífsegulmagn
og fleira
Þorsteinn Guðjónsson
skrifar:
„Það er af mörgum talið til
hlunninda, ekki lítilla, að búa við
málfrelsi, og það hefur einnig
verið sagt að ábyrgð fylgi þessu
frelsi, sú ábyrgð að nota það.
Nýlega rakst ég á eftirtektarvert
dæmi þessu viðvíkjandi.
í Sovétríkjunum er að sjálf-
sögðu fjöldi ágætra vísindamanna,
og meðal annars hefur orðið þar sú
þróun síðan 1961, og þó einkum
síðustu árin, að rannsóknum á
„dularfullum fyrirbrigðum“ hefur
fleygt fram, og telja margir að
þeir þar séu lengra komnir en
Vesturlandamenn. í blaðinu
„Fréttir frá Sovétríkjunum“, sem
er víst gefið út af einhverjum
Sovétvinum hér, febrúar 1979, er
grein með nafninu „Sovézkir
vísindamenn glíma við Dularfull
Fyrirbrigði". í greininni koma
fyrir þessi eftirtektarverðu orð:
lífsegulmagn, lífmögnun, líforka,
lífgeislun, fjarhrif. Ennfremur er
talað um að „til viðbótar við þá
óbeinu orkuöflun, sem maðurinn
er væddur fyrir tilstyrk orku-
keðjunnar: orka sólar, gróðurs,
dýra — finnist einnig bein orku-
leiðni til mannsins beint utan úr
geimnum". Samkvæmt þessu
„ættu að vera til í manninum
„rásir" sem beint er út í geiminn.
Einmitt um þessar rásir tekur
maðurinn á móti orku þeirri sem
honum er nauðsynleg til andlegs
lífs síns og starfsemi taugakerf-
anna“.
• Losnar um
tunguhaftið
Gott hjá Rússum! Það vantar
aðeins á, að frumheimildanna að
þessum skilningi sé getið. En úr
því er ég viss um að fulltrúar
málfrelsisins á íslandi munu fús-
lega bæta. Þeir munu segja: „Þess-
ar hugsanir eru miklu fremur
íslenzkar en rússneskar, og heim-
spekin sem gerir þær að sam-
stæðri og skiljanlegri heild er
algerlega íslenzk, og munum vér
nú taka til við að kenna þær við
háskóia vorn!“
En raunar munu bæði ís-
lendingar og Rússar og allir aðrir
gleðjast yfir því að málin taka að
þróast á þessa leið — um leið og
losnar um tunguhaftið og menn
fara að heiðra málfrelsið.
Þorsteinn Guðjónsson.“
• Leiðrétting
Nokkrar prentvillur slæddust
inn í grein Önnu Matthíasdóttur
hjá Velvakanda í gær, þar sem hún
ræddi náttúrlækningar. „Ekkert
er, allt er að vera“ var ein millifyr-
irsögn í grein hennar en á að vera:
„Ekkert er allt á að verða. Þá féll
niður orð fremst þar sem hún
segist ' eiga baráttumönnum
náttúrlækningafélagsskaparins
meiri þakkarskuld að gjalda en
svo að hún verði nokkurn tíma
greidd. Enn féll niður orð í vísunni
Ur hugsunum orðum og athöfnum
er unnið í lífsins þráð ... o.s.frv.
Þá óskaði kona er átti pistil í
laugardagsblaðinu um Dýrt spaug
eftir að koma á framfæri
leiðréttingu þar sem segir að það
sé dýrt spaug fyrir þjóðina að
Lúðvík skyldi afhenda Ólafi
stjórnartauma en vera sjálfur í
eftirdragi, en meining konunnar
var þveröfug.
MÉR sýnist, að það sé verið að
setja lífeyrissjóðunum slík skil-
yrði um fjárráð sín og hvernig
þeir fara með sína fjármuni, að
það sé öldungis ófært, sagði
Eðvarð Sigurðsson (Abl) í um-
ræðum um frumvarp um ráðstaf-
anir vegna lánsf járáætlunar
rfkisstjórnarinnar. Jafnframt
gagnrýndi hann, að kostir
Byggingasjóðs ríkisins væru
mjög þrengdir, ekki sizt þegar
við blasti, og öllum væri Ijóst, að
einmitt í byggingariðnaðinum
væri fyrirsjáanlegt atvinnuleysi.
Hann tók fram, að á samráðs-
fundum Alþýðusambandsins með
ráðherrum hefði þessum
ákvæðum verið sterklega mót-
mælt. — Og satt að segja kom það
mér mjög á óvart, þegr ég sá
þessi ákvæði í frumvarpinu eins
og það er lagt fram, sagði þing-
maðurinn.
Þau ákvæði, sem þingmaðurinn
fjallar hér um, eru breytingartillög-
ur á lögum frá 1977, þar sem
lífeyrissjóðunum var gert að skyldu
að kaupa verðtryggð skuldabréf
fyrir allt að 40% af ráðstöfunarfé
sínu. Frumvarp ríkisstjórnarinnar
gerir ráð fyrir að þrengja þessi lög
enn frekar, þannig að skuldabréfa-
kaupin séu í samræmi við lánsfjár-
áætlun ríkisstjórnarinnar og aðeins
af Byggingarsjóði og Framkvæmda-
sjóði, en ef um frekari skuldabréfa-
kaup yrði að ræða giltu um það
sömu reglur og áður. Samkomulag
hefur verið um það, að lífeyris-
sjóðirnir keyptu bréf af Byggingar
sjóði fyrir a.m.k. 20% af ráð
stöfunarfé sínu.
Eðvarð Sigurðsson sagði, að hanr
hefði verið andvígur laga-
setningunni 1977 og ættu sömu rök
við nú og þá. I frumvarpi ríkis-
stjórnarinnar væri gert ráð fyrir, af
húr. gæti ■ sagt hverjum einasts
lífeyrissjóði á landinu fyrir um það
af hvaða sjóði og hvenær þeir skyldu
kaupa skuldabréf, hvort sem þaf
samræmdist greiðslugetu þeirra eða
ekki.
Þingmaðurinn benti á, að lífeyris-
sjóðir á samningssvæði SÍS hefðu
einbeitt skuldabréfakaupum sínum
að fjárfestingarsjóðum þess, Líf-
eyrissjóður verzlunarmanna af
Framkvæmdasjóði verzlunarinnai
og ýmsir sjóðir, einkum iðnaðar
manna, hefðu keypt sín bréf a:
Iðnlánasjóði. Enginn vafi væri á, a<
það sem lægi á bak við þessi skulda
bréfakaup væri það, að með þein
teldu sjóðsfélagar sig vera að stuðh
að atvinnuöryggi sínu.
— Ég veit ekki hvernig þetti
kemur heim við lánsfjáráætlui
ríkisstjórnar hverju sinni. Það ei
a.m.k. ekki séð á lánsfjáráætlun nú
að þetta dæmi gangi upp, þ.e. a<
kaup þessara lífeyrissjóða verð
óbreytt frá því sem verið hefur
sagði þingmaðurinn og beindi þein
tilmælum til þingnefndar að felli
breytingartillögurnar niður, sen
væri eðlilegt og raunar sjálfsagt.
HÖGNI HREKKVÍSI
McNaught Synd., Inc.
"'l
foeeiqía fúá því, að
ZíTTHVAO 'bVÆM $££li>T...! *
Stjórnunarfélag íslands
Sóar þú eigin fjármunum?
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námskeiði um
FJÁRMÁL EINSTAKLINGA að Hótel Esju dagana 21.
og 22. marz kl. 15—19 og 23. marz kl. 10—14, eða alls
12 klst.
Á námskeiöinu verður sérstök áherzla lögö á aö kenna
gerö greiðsluáætlana fyrir einstaklinga í þeim tilgangi
aö ná betri tökum á eigin fjármálum.
Námskeiöiö á erindi til þeirra
sem vilja:
— minnka tilkostnaö og auka
tekjur viö hinar ýmsu fjár-
ráðstafanir sínar
— koma betra skiþulagi á eigin
fjármál
— fá vitneskju um greiðslugetu
í náinni framtíö
— ná betri árangri í baráttunni
viö veröbólguna
— auka ráöstöfunarfé sitt.
Meöal námsgagna er fyrra hefti af Fjárfestingahandbókinni sem er
nýútkomin. Leiöbeinandi veröur Gunnar Helgi Hálfdanarson
forstöðumaöur veröbréfamarkaöar Fjárfestingafélags íslands og
ritstjóri Fjárfestingahandbókarinnar.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfólags ísands, Skipholti 37, sími
82930.
Gunnar Helgi Hálf-
danarson. riSskiptafr.
Kópevogskaupstaöur E!
Frá Heilsuverndarstöð
Kópavogs
Hjúkrunarfræöingur óskast frá 1. júní viö ung-
barnaeftirlitiö. Einnig vantar sjúkraliöa frá 1. maí.
Uppl. hjá hjúkrunarforstjóra, sími 40400.