Morgunblaðið - 27.03.1979, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
72. tbl. 66. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Anwar Sadat og Menachem Begin undirrita friðarsáttmálann í viðurvist Jimmy Carters Bandaríkjaforseta. (AP-símamynd)
„Shalom. Salaam. Aldrei
framar blóðsúthellingar ”
— sögðu Sadat og Begin við undirritun friðarsáttmálans,
sem bindur enda á 30 ára vœringar Israels og Egyptalands
Wafihington, 26. marz. AP.
„MEGI aldrei framar koma til blóðsúthellinga milli Egypta og ísraelsmanna“. sagði Anwar Sadat
Egyptalandsforseti er hann undirritaði friðarsáttmálann við ísraelsmenn í dag. „Aldrei framar styrjöld,“
sagði Menachem Begin forsætisráðherra ísraels, „aldrei framar blóðsúthellingar. Friður sé með yður.
Shalom. Salaam, að eilífu.“
Með þessum ummælum að lokinni undirritun lauk þrjátiu ára ófriði ísraelsmanna og Egypta í
Washington, en Jimmy Carter horfði brosandi á er Begin og Sadat undirrituðu sáttmálann, en að því búnu
vottfesti Bandaríkjaforseti hann með undirskrift sinni og lýsti því yfir að nú væri friður á kominn.
Athöfnin, sem fram fór í glaða
sólskini á flötinni við Hvíta húsið
að viðstöddu miklu fjölmenni, var
afar hátiðleg, þrátt fyrir óp og
sköll, sem bárust inn á hátíðar-
svæðið frá fólki, sem mótmælti
sáttargjörðinni, í námunda við
29%olíu-
hœkkun?
Genf, 26. marz. AP.
ALLT bendir til þess að olíu-
málaráðherrar OPEC-ríkjanna,
sem nú þinga í Genf, komi sér
saman um allt að 29% hækkun
á olíuverði og kemur verð-
hækkunin til viðbótar stig-
hækkunum þeim, sem ákveðnar
voru á fundi ráðherranna í
desember síðastliðnum.
Talið er að 11 ráðherrar af 13
séu fylgjandi þessari hækkun,
og mun hún að öllum líkindum
taka gildi um næstu mánaða-
mót.
Hvíta húsið. Þjóðarleiðtogarnir
létu þá truflun ekki á sig fá og
lófatak þeirra 1600 gesta, sem
viðstaddir voru athöfnina, yfir-
gnæfði hrópin frá mótmælafund-
inum, en talið er að um 1000
manns hafi þar verið samankomn-
ir. Begin setti á sig kollhúfu og tók
að vitna í 126. Davíðssálm á
hebresku, og kvaðst láta nær-
stöddum eftir að lesa síðan sálm-
inn á sinni eigin tungu.
I ávarpi sínu að lokinni undirrit-
uninni vitnaði Carter forseti bæði
í Biblíuna og Kóraninn, og Sadat
forseti fór einnig með tilvitnun í
Jesaja spámann þar sem hvatt er
til samvinnu unz sá dagur kemur
að sverð bogna og verða að plóg-
járnum.
Bæði Sadat og Begin luku miklu
lofsorði á Carter forseta fyrir að
hafa átt mestan þátt í því að
friðarsamningar voru gerðir og
Begin lét svo um mælt að komandi
kynslóðir mundu minnast hans
með þakklæti og virðingu.
Fánar ríkjanna þriggja blöktu
hvarvetna við hún í nágrenni
Hvíta hússins, en múhammeðstrú-
armaður, gyðingur og kristinn
maður höfðu lagt hönd að gerð
hvers einasta flaggs, sem notað
var við hina opinberu athöfn.
I ræðum sínum létu bæði Sadat
og Begin hörð orð falla í garð
þeirra afla meðal Araba, sem
standa gegn samningnum, og
Sadat áréttaði þá skoðun sína að
friðarsáttmálinn væri sameigin-
legum málstað Araba til fram-
dráttar, enda mundu Egyptar eftir
sem áður standa við gerða samn-
inga við önnur Arabaríki.
Þjóðarleiðtogarnir þrír létu allir
í ljós vonir um að sáttmálinn milli
ísraelsmanna og Egypta nú yrði
ekki annað en fyrsta skrefið á
langri leið, en hið endanlega mark-
mið væri að ná allsherjarsam-
komulagi allra ríkja sem hlut ættu
að máli í Miðausturlöndum.
Bandaríkin hafa heitið ísraels-
mönnum lánum og gjafafé, sem
samtals nema um þremur millj-
örðum Bandaríkjadala, í sambandi
við sáttargjörðina, en framlög
þeirra til Egypta af þessu tilefni
verða þegar allt er talið nálægt
| tveimur milljörðum.
Vafi og vantrú
einkenna viðbrögð
Jerúaalem. 26. marz. Reuter. AP.
MIKIL sprenging varð í elzta hluta Jerúsalem tíu mínútum eítir að
Begin og Sadat undirrituðu friðarsáttmála ísraelsmanna og
Egypta í kvöld. 13 manns, flest ferðamenn, særðust í sprenging-
Fjölmörg ríki hafa lýst yfir
fylgi sínu við friðarsáttmálann,
en Kurt Waldheim, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, segir að þrátt fyrir þá
staðreynd að hér sé um að ræða
sögulegan atburð og framlag til
friðar í heiminum, þá hafi mál-
stað Palestínuaraba ekki verið
gefinn nægur gaumur í sáttar-
gjörðinni. Sovétríkin hafa lýst
megnri vanþóknun sinni á frið-
arsamningnum, og í sömu mund
og hann var undirritaður í
Washington birti Tass sameig-
inlega yfirlýsingu Gromykos
utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna og Assads Sýrlandsforseta
þar sem samningurinn er harð-
lega fordæmsur og sagður stríða
beint gegn hagsmunum Araba,
en yfirlýsingin var undirrituð í
skyndiheimsókn Gromykos til
Sýrlands.
Fæstir láta í ljós mikla bjart-
sýni um varanlegan og öruggan
frið í Miðausturlöndum í kjölfar
samningsgerðarinnar, og er
meðal annars bent á að Palest-
ínuvandamálið sé engan veginn
leyst, auk þess sem harkaleg
viðbrögð Arabaríkjanna og PLO
séu sízt friðvænleg teikn.