Morgunblaðið - 27.03.1979, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.03.1979, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979 Birgir ísl. Gunnarsson: Hvers vegna óttast ég fordæmið frá RARIK? Hin harða og ákveðna afstaða sjálfstaeðismanna í borgarstjórn gegn hugmyndum iðnaðarráð- herra um stofnun allsherjar landsfyrirtækis um raforku- öflun hefur vakið mikla athygli og umræður í blöðum. Svo virð- ist sem það hafi komið einhverj- um á óvart, að sumir fulltrúar Reykvíkinga telji það verkefni sitt öðru fremur að vernda hagsmuni þeirra og láti það ekki þegjandi fram hjá sér fara, þótt ráðskast sé með eignir þeirra án nokkurs samráðs við fulltrúa þeirra. Hin lina og geðlitla afstaða vinstri manna í borgar- stjórn hefur og vakið athygli og sýnir að a.m.k. sumir borgar- fulltrúar vinstri manna vilja fyrst og fremst lúta vilja sinna ráðherra, en ekki taka sjálf- stæða afstöðu með hagsmuni borgarbúa fyrir augum. Athugasemd frá RARIK. í þessum umræðum hefur margt komið fram, sem ástæða væri til að svara, en það verður látið liggja á milli hluta að sinni. Eitt atriði tel ég mér þó skylt að ræða nánar, en það er yfirlýsing, sem þeir Pálmi Jóns- son, formaður stjórnar RARIK, og Kristján Jónsson, rafmagns- veitustjóri, gáfu í Morgunblað- inu þann 22. marz s.l. Tilefni yfirlýsingar þeirra var frásögn af umræðum í borgarstjórn, þar sem RARIK bar á góma, en þar notaði ég orðið „sukk“ um Raf- magnsveitur ríkisins. Ég skil vel að jafn mætir og grandvarir menn og ofangreindir tveir stjórnendur RARIK vilji fá nán- ari skýringar og því er mér bæði ljúft og skylt að gera það. Fyrst er það til að taka að frásögn Morgunblaðsins er stuttur útdráttur úr löngum umræðum í borgarstjórn og því ekki unnt að ætlast til að allt komi fullkomlega til skila, sem þar er sagt. Meginefni þess, sem ég sagði er þó rétt eftir haft. Ekki ásökun á starfslið eða stjórnendur í annan stað vil ég einnig taka fram, að oft þegar ég hef gert RARIK að umtalsefni í borgar- stjórn eða blaðagreinum hef ég tekið skýrt fram, að vandræði RARIK stöfuðu ekki af van- hæfni starfsliðs eða stjórnar fyrirtækisins. Núverandi raf- magnsveitustjóri, Kristján Jónsson, er t.d. fyrrverandi starfsmaður Rafmagnsveitu Reykjavíkur og hafði þar allra traust og það traust hefur ekkert minnkað, þótt hann hafi horfið til annars og ábyrgðar- meira starfs á vegum ríkisins. En hvaða vandræði eru hjá RARIK? Er kannski allt í lagi hjá fyrirtækinu? Því fer fjarri. Fjárhagserfiðleikar Rafmagns- veitna ríkisins eru mjög miklir og hafa staðið lengi. A sínum tíma voru sett lög um verðjöfn- unargjald af raforku, þar sem rafveitum sveitarfélaga var gert að hlaupa undir bagga til að leysa „tímabundinn" fjárhags- vanda RARIK. Árin hafa liðið og vandinn aukist með ári hverju — og enn er verð- jöfnunargjaldið hækkað til að hlaupa undir bagga með RARIK. Greinargerð fyrrverandi stjórnarmanna I rauninni get ég ekki lýst ástandinu betur en þeir fyrrver- andi stjórnarmenn RARIK gerðu, er þeir sögðu af sér störfum þann 22. marz 1978. í greinargerð, sem þeir sendu frá sét segir: „Rafmagnsveitur ríkisins hafa mörg undanfarin ár átt við mikla og sívaxandi fjárhags- örðugleika að stríða. Höfuð- vandi RARIK stafar af mikilli fjárfestingu fyrirtækisins, sem svo til eingöngu hefur verið fjármögnuð með lánum. Lánin eru með óhagstæðum kjörum, en framkvæmdir oft gerðar af ýmsum félagslegum eða byggða- pólitískum ástæðum og þær skila yfirleitt mun lakari fjár- hagslegri arðsemi en sem svarar til kostnaðar við það fjármagn, sem í þeim er bundið. Eigandi RARIK — ríkissjóður — hefur ekki lagt fram fé til fyrirtækisins, heldur hefur hann útvegað lánsfé og lagt verðjöfnunargjald á raforkusölu í smásölu til þess að mæta hluta af fjárfestingarkostnaði RARIK. RARIK eru nú komnar í al- varlegt fjárþrot. Bráðabirgða- ráðstafanir duga ekki lengur. Framkvæmdir eru stöðvaðar sökum fjárskorts og fyrirtækið skuldar Landsvirkjun hundruð milljóna króna fyrir keypta raforku. A.m.k. eitt olíufélag hefur stöðvað olíuafhendingu til dísilstöðva fyrirtækisins". Árið 1977 var rekstrar- halli 314 millj. kr. Þessi orð eru úr greinargerð þeirra Björns Friðfinnssonar, Helga Bergs og Tryggva Sigur- bjarnarsonar, er þeir sögðu sig úr stjórn RARIK fyrir um ári. Til viðbótar má bæta því við, að árið 1977 (síðustu birtir reikn- ingar) var rekstrarhalli 314 m.kr. á ári, en varið var til nýbygginga 4.682 m.kr. Þetta hef ég leyft mér að kalla sukk. Eitt er víst, að ef einkafyr- irtæki hegðuðu sér á þennan hátt, yrði það orð tamt í munni ýmissa, sem ekkert telja at- hugavert við rekstur RARIK. Eigandi RARIK — ríkið — hefur aldrei tekið vandamál fyrirtækisins föstum tökum. Auðvitað þjónar RARIK mikl- um félagslegum tilgangi með því að leggja rafmagn um hinar dreifðu byggðir landsins og allir eru sammála um að landsmenn, hvar sem þeir búa, fái rafmagn við hóflegu verði. Ríkið verður hinsvegar að viðurkenna þennan félagslega tilgang og leggja fyrirtækinu til óafturkræf framlög til að standa undir slíkum framkvæmdum. Að öðr- um kosti er haldið lengra út í fenið — sokkið dýpra og dýpra — og vandamálið verður æ erfiðara viðfangs. Stöðug hækk- gerði haustið 1977 við ríkis- s'tjórn Geirs Hallgrímssonar og fjármálaráðherra hennar, Matthías Mathiesen, var kveðið skýrt á um að launabætur yrðu greiddar hinn 1. apríl 1979. Fleiri atriði voru skráð þar skýrum stöfum er var ætlað að bæta hnekki þann er starfsmenn töldu sig hafa beðið í samningsgerð á dögum fyrri olíukreppu, í valdatíð Ólafs Jóhannessonar og Lúðvíks Jósefssonar. Ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar ógilti samningsákvæði með lagasetn- ingu á s.l. ári og varð það, með öðru, henni að falli. Eigi skorti þá stór orð í flokki okkar launa- manna um brigðmælgi við sam- tök okkar. En nú kveður við annan tón. Gildir hið forn- kveðna, sem haft var eftir sveitaklerki í sókn austanfjalls: „Nú er allt annað upp á teningn- um.“ Svo er að sjá á forystu- grein Þjóðviljans s.l. sunnudag, un verðjöfnunargjaldsins er engin lausn. Fordæmið frá RARIK hræðir í umræðum um allsherjar- landsfyrirtæki til raforkuöflun- ar hef ég varað við fordæminu frá RARIK. Ég hef óttast og óttast enn, að slíkt allsherjar- fyrirtæki verði nýtt RARIK. í hinu nýja fyrirtæki mun ríkið hafa tögl og hagldir með 50% eignaraðild á móti helmings- eignaraðild e.t.v. margra, dreifðra sveitarfélaga. Við vitum hvernig ákvarðanir eru teknar um framkvæmdir RARIK. Framkvæmdir eru ákveðnar fyrir pólitískan þrýst- ing ráðherra, þingmanna eða heimamanna úr ýmsum héruð- um. Ákvarðanir eru teknar án þess að sjá fyrir fjármögnun eða rekstrargrundvöll hverrar framkvæmdar um sig. Hin nýja Landsvirkjun mun án efa lenda úti á sömu braut. Ráðherra hef- ur þegar byrjað þrýsting Reyndar erum við þegar búnir að sjá dæmi þess. Iðnaðarráð- herra á sér „eina ósk“ í virkjun- er höfundur ræðir þar um „sigur BSRB“ og á þá við eftirgjöf og ógildingu á samningsákvæði um launabætur. Ég spyr enn og aftur? Hvernig má það vera að hægt sé að telja það til sigurs og reikna sem gæfuspor, að samnings- ákvæði er einhuga allsherjar- verkfall fékk knúið fram, sé ónýtt og numið úr gildi með fláráðum fyrirheitum um mörg verkföll einstakra hópa á næsta áratug? Ber þá að skilja það svo, að geyma eigi verkfallsréttinn og uppfyllingu ákvæða þangað til önnur ríkisstjórn er tekin við? Greinarhöfundur Þjóðviljans segir: „BSRB steig inn á vettvang kjaraharáttunnar sem fullgilt verkalýðssamband í glæsilegri verkfallsbaráttu s.l. vor.“ Satt var orðið, séra minn. Það er einmitt þess vegna sem við viljum enn teljast fullgildir, en ekki verða hoknir armálum. Það er Bessastaðaár- virkjun. Hann er þingmaður Austurlands og vill því ganga í augun á sínum kjósendum með því að berjast fyrir þessari virkjun, þótt hagkvæmni henn- ar sé mjög dregin í efa af sérfræðingum. Ráðherra hefur þegar sett mikinn þrýsting á, að þessi virkjun verði næsta virkj- un hins nýja landsfyrirtækis. Hann setti þrýsting á „skipu- lagsnefnd um raforkuöflun", sem lét undan þrýstingnum að því marki að láta að því liggja í kaflanum um næstu virkjanir, að Bessastaðaárvirkjun væri líklegur kostur. Ráðherra mun halda þessum þrýstingi áfram og ef nýtt landsfyrirtæki verður stofnað er ekkert líklegra en að undan þessum þrýstingi verði látið af stjórn þess fyrirtækis. Þurfa ekki að vera hörundssárir Með samanburði mínum á RARIK annarsvegar og þeim virkjanafyrirtækjum, þar sem sveitarfélög hafa tögl og hagldir hinsvegar, hef ég viljað vara við því, hvað gerast mun, ef hug- sjónir miðstýringarmannanna ná fram að ganga. Þá mun hið nýja fyrirtæki leiðast út í sama fenið og RARIK hefur verið leitt út í. Sú þróun verður ekki skrifuð á reikning starfsmanna RARIK né stjórnar. Sú þróun verður skrifuð á uppbyggingu fyrirtæk- isins og að stjórnmálamenn á ríkisvettvangi ráða þar of miklu um. Þetta vona ég að þeir vinir mínir Pálmi Jónsson og Kristján Jónsson skilji og í mínum huga þurfa þeir ekki að vera hörundssárir, þótt ég hafi gert RARIK að umtalsefni á þennan hátt. hálfdrættingar á þóftunni á áraskipi Árna í Botni er stóð, steigurlátur á ströndinni og sagði: „Skyldu bátar mínir róa í dag?“ „Samningsrétturinn er helgasti réttur verkalýðs- hreyfingarinnar og verkfalls- rétturinn beittasta vopnið í kjarabaráttunni," segir forystu- greinarhöfundur Þjóðviljans ennfremur. Eigum við þá að breyta skýlausu ákvæði og niðurstöðu í unnu tafli við fyrr- verandi ríkisstjórn, gegn vilyrði mótstöðumannsins um afleik í næstu skák? Við slíkum hugsanagangi hljótum við að gjalda neikvæði. Við neitum að fallast á að samtök okkar séu notuð sem kóngspeð er otað sé þá er það hentar flokkspólitísk- um riddurum, en fleygt af tafl- borði eftir geðþótta þeirra þá er það hentar þeim til framdrátt- ar. Pétur Pétursson þulur. Pétur Pétursson þulur: „Að einblína á bók- stafinn,, eða stíga „gæfus|por,, afturábak Allt frá því að samtök íslenzkra launamanna tryggðu sér takmarkaðan samningsrétt um kjör sín hafa fulltrúar þeir er valist hafa til forystu og samningsgerðar lagt höfuðáherzlu á að taka af tvímæli í samningum. Vinna að því að orða samningsákvæði á þann veg að réttur félagsmanna birtist með ótvíræðum hætti. Margháttaðar tilraunir eigna- stéttar og yfiryálda til þess að hártoga óljós ákvæði hafa skerpt vitund alþýðu til þess að lýsa vilja sínum tæpitungulaust og kveða skýrt að orði. Hafa bréf upp á það, eins og sagt var á dögum Jóns Hreggviðssonar. Sé ástæða til þess að halda í heiðri hreintungustefnu í bók- menntum og mæltu máli vegna þeirra er leggjast í fagurfræði eða hjúpa sig hýjalíni á leiksviði þá telur alþýða eigi minni nauðsyn á því, að mál það er skráir samninga hennar um laun og starfskjör sé klárt og kvitt. I samningi þeim er BSRB PNBLAÐIÐ. FIMMTL'DAGUR 22. MARZ 1979 ,Jlarik og sukkið” Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing: í Morgunblaðinu. laugardag inn 17. marz s.l., birtist frásðgn af umræðum í borgarstjórn Reykjavíkur um þau tilmæli iðnaðarráðherra að efnt verði til viðræðna milli fulltrúa Reykja- víkurborgar og iðnaðarráðu- neytisins um stofnun nýs orku- fyrirtækis, nýrrar Landsvirkjunar. Er þar m.a. greint frá ræðu Birgis ísleifs Gunnarssonar, jafnframt því, sem samtimist birtist grein eftir hann um þetU sama efni annars staðar í blaðinu. í þessari frásögn af ræðu Birgis tsleifs er sérsUkur kafli helgaður Rafmagnsveitum rík- isins og ber hann yfirskriftina: „Rarik og sukkið.* Þar segir avo: „Birgir íaleifur Gunnarsson sagðist óttast, að fyrirtækið leiddist út i sams konar sukk og Rarik, ef það stækkaði. Sukkið hjá Rarik, væri alls ekki komið til vegna þess, að forystumenn væru verri en aðrir, heldur vegna þess, að mikill pólitískur þrýstingur rikti úti um allt land.„ — Svo mörg voru þau orð. Birgir ísleifur Gunnarsson hefur oftar en i þetta skipti sent kveðjur af þessu tagi til Raf- magnsveitna rfkisins á síðum Morgunblaðsins. Allt hefur það verið í formi fullyrðinga, jafnvel sleggjudóma, um rekstur og starfshætti stofnunarinnar, án þess að tilraunir hafi verið gerðar til rökstuðnings. Við, sem teljumst í forystu fyrir Rafmagnsveitum ríkisins, höfum sízt á móti því, að mál- efni þeirrar stofnunar séu rædd. Við teljum á hinn bóginn næsta ósmekklegt þegar Rafmagns- veitur ríkisins, stjórnendur þeirra og starfsmenn eru ítrek- að bornir sökum um „sukk*. án þess að tilraun sé gerð til að sýna fram á í hverju „sukkið" sé fólgið. Væri það gert, myndi því verða svarað efnislega. Reynsla Birgis Isleifs Gunn- arssonar ætti aö segja honum Jiað, að fullyrðingum þurfa að fylgja röksemdir, eigi þær að verða teknar alvarlega. Sé það ekki, verða þær markleysa. Til þess að auka líkurnar fyrir þvi, að röksemdir Birgis ísleifs um málefni Rarik verði yTirvegaðri en fullyrðingar hans, er sjálf- sagt að bjóða honum að taka upp þá nýbreytni að kynna sér nokkuð starfsemi stofnunarinn- ar af eigin raun með viðræðum við stjórnendur hennar og starfslið. Reykjavík, 21.03. 1979, Pálmi JónsHon formaður stjórnar Rarik KrÍHtján Jónsson Rafmagns- veitustjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.