Morgunblaðið - 27.03.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979
3
Hættir Olafur sem forsætis-
ráðherra þegar vel stendur á?
Hart lagt að honum að halda áfram sem flokksformaður
MARGIR áhrifamenn í Fram-
sóknarflokknum leggja nú
hart að ólafi Jóhannessyni að
gefa kost á sér áfram sem
formaður flokksins, samkvæmt
þeim upplýsingum sem Mbl.
aflaði sér í gær. Miðstjórnar-
fundur Framsóknarflokksins
verður um næstu helgi og eins
og fram hefur komið í fréttum
hyggst Ólafur þá draga sig í
hlé sem flokksformaður.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem Mbl. aflaði sér i gær er
staða Ólafs mjög sterk í flokkn-
um og það mun skoðun mjög
margra framsóknarmanna að
það sé veikt fyrir flokkinn,
ríkisstjórnina og Ólaf Jóhannes-
son sjálfan ef hann dragi sig nú
í hlé sem formaður. Hafa þessir
menn m.a. bent á að samkomu-
lagið í ríkisstjórninni sé þannig
að hún geti sprungið þá og þegar
og þá sé vænlegra að ganga til
kosninga undir forystu hins
reynda foringja Ólafs Jóhannes-
sonar en undir forystu Stein-
gríms Hermannssonar, sem eins
og staðan er í dag mun taka við
stjórnartaumunum í flokknum
af Ólafi hætti sá síðarnefndi.
ólafur
kannar stöðuna
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins munu aðallega tvær
ástæður hafa legið að baki
þeirri ákvörðun Ólafs að draga
sig í hlé sem formaður Fram-
sóknarflokksins. Ólafur er far-
inn að eldast og hefur hann að
undanförnu kannað það meðal
flokksbræðra sinna hvort hann
eigi að draga sig í hlé á mið-
stjórnarfundinum eða halda
áfram formennsku. Flestir hafa
hvatt hann til þess að halda
áfram en sumir ekki, t.d. ráð-
herrarnir Steingrímur Her-
mannsson og Tómas Árnason og
menn, sem standa þeim nærri.
Munu þeir hvorki hafa hvatt
Ólaf né latt. Sömu afstöðu munu
forráðamenn Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga hafa
tekið og þá fyrst og fremst
Erlendur Einarsson. Telja Sam-
bandsmennirnir að Ólafur og
ríkisstjórnin hafi brugðist Sam-
bandinu og hafa látið álit sitt
óspart í ljós. Mun Ólafur vera
orðinn þreyttur á því að sitja
undir skömmum Sambands-
mannanna og mun þetta vera
önnur ástæðan fyrir því, að
hann vill nú hætta.
Guðmundur G.
líklegur gjaldkeri
Heimiidarmenn Mbl. segja að
Steingrímur og Tómas og þeir
menn sem standa í kringum þá
hafi reiknað dæmið þannig út að
ef Ólafur hætti verði Steingrím-
ur formaður flokksins, Einar
Ágústsson verði varaformaður,
Tómas verði ritari í stað Stein-
gríms en Guðmundur G. Þórar-
insson verði gjaldkeri í stað
Tómasar, en Guðmundur er nú
varagjaldkeri. I stað Guðmund-
ar á Hákon Sigurgrímsson úr
Kópavogi, aðstoðarmaður Stein-
grims í landbúnaðarráðuneyt-
inu, að koma inn í flokksstjórn-
ina sem varagjaldkeri. Þeir
Guðmundur og Hákon tilheyra
þeim hópi, sem fylgir Steingrími
og Tómasi að málum og aðrir í
þeim hópi eru t.d. Magnús
Bjarnfreðsson og Þráinn Valdi-
marsson framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins, sem mun
hafa notað skrifstofu flokksins
óspart að undanförnu til þess að
afla Steingrími fylgis um allt
land.
Ekki einhugur
______um Steingrím_________
Eins og staðan er í dag má
telja næsta víst að Steingrímur
verði formaður, ákveði Ólafur
að hætta. Talsvert mun þó
skorta á að einhugur sé um
Steingrím í flokknum og þeir
munu margir, sem telja hann of
úgætinn. Enginn ákveðinn
kandidat hefur verið nefndur á
móti Steingrími, en komið hefur
fram áhugi hjá einhverjum
flokksmönnum að Halldór Ás-
grímsson verði formaður, en
hann var sem kunnugt er í
framboði í Austurlandskjör-
dæmi í síðustu kosningum en
féll. Einar Ágústsson kemur
ekki til greina sem formaður,
samkvæmt heimildum Mbl.,
hann mun ekki hafa áhuga á
formennsku í flokknum auk þess
sem talið er hæpið að hann hafi
nægilegan styrk innan flokksins
sýni hann áhuga á formanns-
starfinu.
Hættir Ólafur
á miðju
_______kjörtímabili?_______
Ólíklegt er talið að Ólafur
Jóhannesson fari aftur í fram-
boð hvort sem hann verður
áfram formaður eða ekki. Eins
mun hann hafa hug á því ef
stjórnin heldur velli og öldurnar
lægir að hætta sem forsætisráð-
herra áður en kjörtímabilið
rennur út og muni hann þá velja
til þess einhvern tíma þegar
staða stjórnarinnar er tiltölu-
lega sterk og hann getur skilað
embættinu sómasamlega af sér.
Miðstjórnarfundur Fram-
sóknarflokksins hefst á föstu-
daginn. Miðstjórnin fer með
æðsta vald flokksins milli
flokksþinga, sem eru á fjögurra
ára fresti og kýs miðstjórnin
forystu flokksins.
Italskir óperutón-
leikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar
N. k. fimmtudag 29, mars 1979 kl.
20.30. verða ítalskir óperutónleikar
í Háskólabíói á vegum Sinfóniðu-
hljómsveitar íslands. Á tónleikum
þessum verða flutt atriði úr
ítölskum óperum eftir Verdi,
Bellini og Puccini.
Efnisskráin verður sem hér segir:
Verdi — Arím og dúett úr óp. Grlmudans-
leikurinn — Verdl — Ballettmúsik úr óp.
Aidn — Verdi — „Celeste Aida“ úr óp. Aida
— Verdl — Forl. aft óp. I vespri siciliani —
Bellini — Forl. aft óp. Norma — Puccini —
„Vissi d’arte" úr óp. Tooca — Puccini
„Turnarian" úr óp. Toeca — Pucclni —
Aríur og dúett úr óp. La Bobeme
Hingað til lands koma tveir frægir
óperusöngvarar sem starfa við
Scalaóperuna i Mílanó, en það eru
júgóslavneska sópransöngkonan
Radmila Bakocevic og tenórsöngvar-
inn Piero Visconti. Jafnframt því að
vera fastráðnir söngvarar við Scala-
óperuna, syngja þau sem gestir við
öll stærstu óperuhús Evrópu og
Ameríku. Sem stendur er hún að
syngja við óperuna í Triest og hann
að syngja Aida í Múnchen.
Sjórnandi á þessum óperutón-
leikum er franski hljómsveitarstjór-
inn Jean-Pierre Jacquillat, en hann
hefur starfað með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands allan marsmánuð.
Radmila Bakocevic sópransöng-
kona.
íbúðarhús
brann til
kaldra kola
Akureyri. 25. marz
ÍBÚÐARHÚSIÐ að Vesturgötu 21.
Indriðastaðir, brann til kaldra kola í
morgun. Engu af innbúi var bjargað.
Það var um klukkan 6.45 að hús-
móðirin að Vesturgötu 23 Erla Gísla-
dóttir, sem var þá nýkomin á fætur,
varð vör við smelli eins og að rúður
væru að brotna. Er hún leit út um
gluggann sá hún að eldur var laus í
næsta húsi. Erla hljóp út á náttkjóln-
um til að gera íbúum viðvart á meðan
eiginmaðurinn Stefán Sigurðsson lög-
fræðingur símaði til lögreglu og
slökkviliðs. Húsbóndinn var einn í
húsinu og bjargaðist hann út.
Mesta mildi var að ekki kviknaði í
húsinu númer 23 við Vesturgötu, en
gafl þess húss sviðnaði og skemmdist
plastklæðning sem húsið er klætt með
og rúður sprungu. Eldsupptök eru
ókunn. — Áamondur.
Ódýru orlofsferðirnar til Benidorm.
Áætlaðir brottfaradagar:
5. apríl 11. júlí 27. ágúst
19. apríl 23. júlf 3. september
11. maf 1. ágúst 15. september
30. maí 13. ágúat 29. september.
20. júní 22. ágúst
Auðvitaö með Ferðamiöstööinni.
Ferðamidstöðin hf.