Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 14

Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979 Friöarsamningurinn í Washington — Friðarsamningurinn í Washingion — Friöarsamningurinn í Washington Carter talar við Begin í síma frá Kaíró og Sadat hlustar á. Carter, Begin og Sadat taka alUr mikla áhœttu SAMNINGURINN sem var undirritaður í Washington í gær milli ísraelsmanna og Egypta lýsir vel hugsjónum þeirra þriggja leiðtoga sem hafa lagt álit sitt og pólitíska framtíð að veði með honum. Carter forseti er formlega séð aðeins vitni að undirritun samnings- ins. en bæði Anwar Sadat Egyptalandsforseti og Menachem Begin forsætisráðherra ísraels hafa hælt honum fyrir að vera driffjöður samningsins og gert hann mögulegan. Rússar hafa orðið fyrir nokkru áfalli Moakvu, 26. marz. AP. ÞAÐ varð án efa Sovétríkjunum og forystuliði þeirra nokkurt áfall að þau skyldu vera Hálf- vegis fryst út úr þeirri dipló- matísku atburðarrás sem leiddi til þess að undir samning ísralea og Egypta er nú skrifað. Sovét- menn hafa verið furðu fámálir f þessu máli, en framtfðarafstaða þeirra getur haft úrslitaáhrif á hversu þróunin verður í fram- kvæmd samkomulagsins f Miðausturlöndum. Þó hafa Sovétar ekkert lúrt á meiningu sinni. Nema síður sé. Allt frá því Anwar Sadat hélt til Jerúsalem í nóvember 1977 hafa reiði- og gagnrýnisraddir heyrzt frá þeim. Enn einkennast skrif í sovézkum fjölmiðlum af þessari afstöðu og nú síðast er svo til orða tekið að með undirritun þessari séu Bandaríkjamenn að stíga fyrsta skrefið í nýju hern- aðarævintýri í þessum heims- hluta, sem sé ekkert annað en landsala, kúgun og samsæri og beinist gegn Aröbum. Þeir eru ekki margir stjórn- málasérfræðingarnir sem halda að hægt verði að koma á varan- legum friði á þessu svæði nema Sovétríkin taki á einn eða annan hátt þátt í slíku starfi. Sumir vestrænir diplómatar þar eru svartsýnir á að þeir muni verða tilleiðanlegir að vinna að því. Einn sérfræðingur um sovézk málefni og einnig um Miðaustur- lönd segir að Rússar myndu verða til að ala á sundrung ef þeim væri boðið til þess að vinna að framgangi friðar á breiðari grundvelli en sá samningur gerir ráð fyrir sem nú hefur verið undirritaður. Hann segir að nauðsynlegt sé að finna einhvern flöt á málinu til að Rússar geti gerst að því aðilar. En viðurkenn- ir að hann komi ekki auga á þann flöt að svo stöddu. Eins og ýmsir aðrir sérfróðir menn um Miðausturlönd heldur þessi maður því fram að Sovét- ríkin hafi alls ekki komið sér upp mótaðri og afmarkaðri stefnu í málefnum Miðausturlanda, og virðist gera sér að góðu að fylgja að málum bandamönnum sínum þar, einkum Sýrlendingum og í nokkrum mæli Irökum. Diplómat einn sagði við AP að flestir byggjust við því að ákvæðu Sýrlendingar að hefja refsiað- gerðir á hendur Egyptum eða ganga jafnvel enn lengra — myndu þeir njóta við það blessun- ar Sovétmanna. Og heimsókn Gromykos, utanríkisráðherra, til Sýrlands nú rétt fyrir helgina er auðvitað talandi tákn sem enginn ætti að þurfa að misskilja. Áætl- un Sovétmanna í þessum heims- hluta er loðin og óljós en var þó kynnt að nokkru í ávarpi Brezhnevs forseta eftir Camp David fundinn hinn fyrri. Þar krafðist hann fullrar frelsunar alls lands Araba sem hefði verið hernumið af ísralem árið 1967 og áreiðanlega var trygging fyrir öryggi allra Miðausturlandaþjóða — Israel meðtalið. Brezhnev sem í ræðu sinni birti um flest kröfur Araba krafðist fullra réttinda til handa Palestínumönnum’ og um fram annað að þeim væri gefinn réttur til að stofna sitt sjálfstæða ríki. Fréttaskgring Jafnvel sum Arabaríki, sem hafa lagzt gegn samningnum, hafa hælt Carter fyrir einlægni í til- raunum hans til að tryggja víð- tæka lausn deilumálanna í Mið- austurlöndum. Sú ákvörðun hans að taka eina lokaáhættu og fara í ferð sína til ísraels og Egypta- lands í þessum mánuði bjargaði samkomulaginu í höfn. Fyrsta áhættan Sadat forseti tók fyrstu meiri- háttar áhættu sína þegar hann fór til Jerúsalem 19. nóvember 1977. Þessi táknræna ferð braut niður margra áratuga fjandskap Araba og Gyðinga. „Teningunum var kastað á þessum degi,“ sagði bandarískur embættismaður. „Síð- an hefur Sadat aldrei hikað í þeim ásetningi sínum að koma friði til leiðar." Framlag Begins, sem hefur í bili horfið í skugga þjarks sem hefur staðið um skilmála samningsins allt fram að undirritun hans, er ekki talið síður merkilegt. Hann er íhaldssamur leiðtogi í landi sem hefur búið við umsát- ursástand í 30 ár. Honum tókst að sannfæra allar helztu stjórnmála- hreyfingar í Israel um að ísraels- menn yrðu að taka mikla áhættu, láta af hendi raunverulegt land, sem allir hafa talið öryggi lands- ins grundvallast á, í staðinn fyrir frið sem enginn þóttist vita að gæti orðið raunverulegur. Hann uppskar árangur erfiðis síns þegar þingið, Knesset, sam- þykkti samninginn 22. marz með 95 atkvæðum gegn 18. Hann sagði að ekkert pólitískt mál hefði verið samþykkt með eins miklum at- kvæðamun í Knesset. Bæði Carter og Sadat eiga það á hættu að staða Bandaríkjanna og Egyptalands í Arabaheiminum versni ef framhaldsviðræðurnar um stofnun heimalands Palestínu- manna fara út um þúfur. Hvers konar ráðstafanir sem Begin kann að gera og skaða munu sambandið við Egypta munu sæta gagnrýjii heima fyrir og erlendis. Allir trúaóir Leiðtogarnir þrír eiga það sam- eiginlegt að vera trúaðir og á öllum stigum viðræðnanna hafa þeir beðið um guðlega leiðsögn og styrk. Carter er Baptisti og hefur látið þau orð falia að hann telji það sérstakt hlutverk sitt að færa Landinu helga frið. Þegar Begin hefur talað um friðarvonir sínar hefur hann minnt á sorglega sögu Gyðinga- þjóðarinnar. Hann sagði í sjón- varpsviðtali rétt fyrir undirritun- ina að hann hygðist semja sögu Gyðinga á síðari tímum þegar hann settist í helgan stein og kalla hana „Kynslóðir eyðingar og frels- unar“. Sadat sem er með blett á höfði frá því að beygja það í gólfið á bænastundum, lagði á það áherzlu að fá að biðjast fyrir í A1 Aqsa-moskunni í Jerúsalem í heimsókn sinni þangað. Það sem hann sagði við Carter þegar hann tók á móti honum í Kaíró fyrr í mánuðinum var dæmigert: „Megi guð almáttugur leiðbeina okkur leiðina og létta ferð okkar og með guðs hjálp munum við sigra.“ Ólíkir Allir leiðtogarnir þrír hafa í ræðum sínum skírskotað til trúar- skoðana þjóða sinna til þess að afla pólitískum ráðstöfunum sín- um stuðnings. A öðrum sviðum eru leiðtogarn- ir gerólíkir. Begin hefur einblínt svo mikið á smáatriði að það hefur farið í taugarnar á Sadat og ræður hans hafa æst Carter til reiði. Eftir fundina í Camp David í september var á allra vitorði að Sadat og Begin hefði ekki komið vel saman. Sadat leit á málin meira út frá heildarsjónarmiði og tæknilegum atriðum og beindi athyglinni fremur að heildarþró- uninni en Begin. Þetta getur hafa verið ástæðan til þess að tilraunir hans til að koma strax á beinum friði við Israel eftir Jerúsal- em-ferðina 1977 fór út um þúfur. Carter fór ýmsar leiðir til að koma samkomulaginu í höfn. Hon- um tókst að viðhalda trausti Sadats með því að halda fast við grundvallaratriði, hika hvergi við að taka frumkvæðið í sínar hendur og með þrautseigju og þolgæði. Nóbel? Hann virðist hafa áunnið sér virðingu Begins með því að hafa fullkomið vald á jafnvel ómerki- legustu smáatriðum og með því að semja sjálfur ýmsa þætti samn- ingsins. Sadat og Begin hafa þegar tryggt sér áþreifanlegan árangur af friðartilraunum sínum þar sem þeir voru sæmdir friðarverðlaun- um Nóbels í sámeiningu í fyrra. Nóbelsnefndin fékk einnig í hendur tillögu um nafn Carters í fyrra, en hún barst of seint. Nú er talið víst að stungið verði upp á honum á nýjan leik í ár. Spurningar og svör um friðarsamninginn HÉR FARA á eftir nokkrar spurningar og svör um hinn sögulcga samning sem Jimmy Carter, Anwar Sadat og Menachem Begin undirrituðu í gær. Sp.: Hvernig er samningurinn í aðalatriðum? Sv.: Samningurinn er rammasam- komulag um að Egyptum verði skil- að Sinai í staðinn fyrir frið og stjórnmálasamband við ísraels- menn. Samkvæmt honum skuld- binda samningsaðilar sig líka til að reyna að leysa Palestínumálið innan ramma samkomulagsins í Camp David. Samningspakkinn hefur að geyma friðarsamning í 10 greinum ásamt þremur „viðbótum". Sú fyrsta kveður á um tímaáætlun um brott- flutning ísraelska herliðsins og tak- markar fjölda egypzkra hermanna sem verður leyft að snúa aftur til Sinai = Önnur viðbótin hefur að geyma kort af svæðinu = Þriðja viðbótin hefur að geyma ákvæði um hvað séu eðlileg samskipti, meðal annars um áætlunarflugferðir og fleira. Þar að auki fylgir bréf þar sem Israelsmenn og Egyptar samþykkja að.halda áfram samningaviðræðum í góðri trú um fyrirætlanir um sjálf- stjórn vesturbakkans og Gaza-svæð- isins með því „markmiði" að ljúka samningaviðræðunum innan árs. I einu viðbótarskjali segir að þegar Egyptar hafi fullnægt innan- landsþörf muni þeir samþykkja til- boð frá ísraelsmönnum í olíu þeirra á Sinai. Auk þess er að finna „bókanir um samkomulag" þar sem samningsaðil- ar samþykkja túlkanir á ákvæðum í samningnum. Sp.: Eru Bandaríkin aðili að samn- ingnum? Sv.: Nei. Hann er undirritaður í Washington sumpart vegna hlut- verks Bandaríkjanna í viðræðunum um hann og sumpart vegna þess að undirritunin fer fram á „hlutlausu svæði“ sem bæði ísraelsmenn og Egyptar geta sætt sig við. Sp.: Er samkomulag um fleiri atriði í pakkanum? Sv.: Birt verður „greinargerð um fullvissanir" sem verður í tengslum við samninginn en ekki hlutir af honum. Þar munu Bandaríkin ábyrgjast að ísrael fái 15 ára birgðir af olíu ef ísrael getur ekki aflað sér olíu á heimsmarkaði = Þar verða ísraelsmenn líka fullvissaðir um

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.