Morgunblaðið - 27.03.1979, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979
----——---------------------------
23
KR-INGAR, tryggðu sér á sunnudaginn sigur í bikar-
keppni KKÍ í 8. skiptið, er þeir mættu liði ÍR í úrslitum.
Hinir fjölmörgu áhorfcndur fengu þó ekki að sjá
tiltakanlega spennandi leik, til þess voru yfirburðir
KR-inga of miklir. ÍR-ingar áttu aldrei svar við
samvinnu KR-inga og eftir að staðan hafði verið 42—30 í
hálfleik KR í vil urðu lokatölur leiksins 85—74. Fyrir
leikinn voru leikmenn kynntir fyrir heiðursgesti leiks-
ins, Ragnari Arnalds menntamálaráðherra, og að leik
loknum afhenti hann sigurvegurunum verðlaun sín.
KR-ingar komust í upphafi strax í 6—0 og eftir 7
mínútna leik var staðan 16—6. Var alls ekki að sjá að um
úrslitaleik væri að ræða því barátta var lítil hjá báðum
liðum og það sem gerði gæfumuninn var að ÍR-ingar
voru staðir í sókninni og tóku þar af leiðandi ótímabær
skot, sem KR-ingar áttu auðvelt með að verjast.
Munurinn jókst og ekki leit vel út fyrir ÍR-inga. Það kom
þeim þó til bjargar að KR-ingar minnkuðu hraðann
þegar leið á fyrri hálfleikinn þannig að munurinn hélst
óbreyttur. Voru þessar síðustu mínútur hálfleiksins ekki
samboðnar úrslitaleik en ljóst var að ef ÍR-ingar ætluðu
sér eitthvað annað en annað sætið í keppninni yrðu þeir
að jafna leikinn strax í upphafi seinni hálfleiks.
m
(Ljósm.: GI)
• Bikarmeistarar KR 1979. E.t.v. Helgi Ágústsson, Kristinn Stefánsson, Sveinn Jónsson, formaður KR,
Þröstur Guömundsson, John Hudson, Garðar Jóhannsson, Birgir Guðbjörnsson, Einar Bollason, Gunnar
Gunnarsson þjálfari.
N.t.v. Eiríkur Jóhannesson, Árni Guðmundsson, Helgi Helgason lukkupolli, Jón Sigurðsson og Gunnar
Jóakimsson.
Sem fyrr sagði var staðan
42—30 í hálfleik KR í vil. Seinni
hálfleikur hófst á líkan hátt og
þeim fyrri lauk og var nú verulega
farið að syrta í álinn fyrir IR. Það
var ekki fyrr en 10 mínútur voru
tii leiksloka að þeir virtust skilja
hve mikil alvara var á ferðum og
þá loksins vöknuðu þeir og minnk-
uðu muninn í 7 stig, 59—52, og
síðar 63—56. Þá sýndu KR-ingar
hvers þeir eru í raun megnugir og
með miklum spretti, sem Jón
Sigurðsson átti stærstan þátt í,
stungu KR-ingar ÍR-inga hrein-
lega af og komust í 76—58. Það
sem eftir lifði af leiknum léku
IR-ingar upp á að minnka muninn
svo ekki liti tapið of illa út, en
sigur KR-inga var aldrei í hættu.
Lokatölur: 85—74.
Sigur þessi var KR-ingum verð-
skuldaður og góð afmælisgjöf á 80
ára afmæli KR. KR-ingar segja
hins vegar sjálfir að þetta hafði
aðeins verið helmingur þess, sem
þeir ætla að gefa félaginu, en
sennilega leika KR-ingar bráðlega
úrslitaleik um Islandsmeistara-
titilinn við Valsmenn. Bestur
KR-inga í þessum leik var að
vanda Jón Sigurðsson. Þótt oft
hafi borið meir á snilli hans fór
vart milli mála hver það var, sem
stjórnaði spili KR-inga og skoraði
mikilvæg stig þegar þess þurfti
með. I vörninni hélt Jón Kristni
Jörundssyrfí í skefjum meirihluta
leiksins. John Hudson og Einar
Bollason áttu þá einnig góðan leik
og virðist sá síðarnefndi ætla að
kveðja spilamennskuna með glæsi-
brag. Garðar Jóhannsson átti góð-
an leik í fyrri hálfleiknum, en
einnig stóðu þeir Árni Guðmunds-
son og Þröstur Guðmundsson sig
vel þegar á reyndi.
Hjá IR-ingum var ekki eins
mikið um fína drætti. Paul
Stewart var þó IR-inga bestur, en
fékk þó aldrei mikið pláss til að
athafna sig. Þá var Kolbeinn
Kristinsson góður þegar leið á
leikinn svo Kristinn Jörundsson.
Jón Jörundsson átti hins vegar
afleitan fyrri hálfleik, en náði sér
aðeins á strik í þeim síðari. Stefán
Kristjánsson fann sig hins vegar
aldrei í leiknum og komst snemma
í villuvandræði, en til þess að ná
árangri gegn jafn sterku liði og
KR má ekkert bregðast og allir
verða að ná að sýna sitt besta.
Að leik loknum tóku leikmenn á
móti verðlaunum sínum úr hendi
menntamálaráðherra sem fyrr
sagði, en þegar komið var í
búningsklefana buðu IR-ingar
KR-ingum upp á kampavín og
Kðrfuknattleikur
---------------------/
Kristinn Jörundsson fyrirliði
ÍR: „Þetta var örugglega ekki
okkar leikur. Ef við hefðum bara
nýtt auðveldustu færin og lagt
boltann ofan í körfuna hefðum við
unnið leikinn. Annars vann betra
liðið og ekki hvað síst á því hve
KR-ingar unnu vel saman og eiga
þeir Einar Bollason og Garðar
Jóhannsson mikið hrós skilið hvað
þetta varðar." I þessu kom Einar
Bollason aðvífandi og lét Kristin
vita af því, að hann þyrfti ekki að
kljást við sig framar, en Kristinn
svaraði: „Þú hættir ekkert, ég á
eftir að klekkja á þér einu sinni
enn.“
Gunnar Gunnarsson, þjálfari
KR: „Leikurinn vannst á sterkri
vörn og mikilli samheldni. Gott
forskot í upphafi hjálpaði mikið og
eftir það reyndum við að slaka
ekki á. Þetta er þó aðeins helming-
urinn af því sem við ætlum okkur,
snittur og sýnir það á skemmtileg-
an hátt hvernig þessir fornu fénd-
ur í leik eru í raun bestu vinir þar
fyrir utan.
Stig KR: John Hudson 19 (20
skot, skoraði úr 9, 1 vítaskot,
skorað úr einu), Jón Sigurðsson 17
(14—8, 1:1), Einar Bollason 17
(12—7, 7:3), Garðar Jóhannsson
10 (3—3, 5:4), Árni Guðmundsson
8 (7—4 ), bröstur Guðmundsson 6
(3—3.), Birgir Guðbjörnsson 6
(2—1, 5:4), Gunnar Jóakimsson 2
(3-1,).
Stig ÍR: Paui Stewart 28 (20
skot, skoraði úr 9, 14 vítakost,
skoraði úr 10), Jón Jörundsson 16
(16—5, 9:6), Kristinn Jörundsson
14 (9—5, 4:4), Kolbeinn Kristins-
son 12 (7—5, 2:2) og Erlendur
Markússon 4 (4—2.).
Dómarar voru Kristbjörn
Albertsson og Erlendur Eysteins-
son og voru allir sammála um að
dómgæsla þeirra hefði verið til
fyrirmyndar, sem vonandi verður
framhald á.
— gíg.
en úrslitin við Val verða þó örugg-
lega erfiðari, en leggjast samt vel í
mig.“
Kristbjörn Albertsson. dómari:
„Þetta var ekki erfiður leikur.
Sigurinn var sanngjarn því
KR-ingar komu til leiks með ekk-
ert annað en sigur í huga.“
John Hudson KR: „Ég vil að
allir fái að vita það, að KR-liðið er
sko ekkert tveggja manna lið. Við
erum liðsheild þar sem enginn er
meiri en annar. Allt kjaftæði um
að ég og Jón Sigurðsson berum
liðið uppi var rækilega afsannað í
dag. Ég verð ekki nógu ánægður
fyrr en við höfum unnið Islands-
meistaratitilinn líka, en annars
líður mér vel eftir þennan sigur.“
Jón Jörundsson ÍR: „KR-ingar
unnu þennan leik á því hve þeir
unnu vel saman, en við spiluðum
hins vegar allan tímann hver fyrir
sig, og slíkt getur aldrei verið
gott.“
• Hann er broshýr lukkudreng
ur KR-liðsins í körfuboltanum
enda ekki nema von. Verðlauna-
peningurinn kominn um hálsinn
og bikarnum hampað.
Námskeið
hjá KSÍ
TÆKNINEFND K.S.Í. gengs
fyrir Knattspyrnuþjálfaranám
skeiði á D-stigi (III stigi) dagana
6—9. apríl n.k. fyrri hluti og
24—27. maí n.k. síðari hluti.
Aðal kennari á þessu nám
skeiði, sem er hið fyrsta sinnar
tegundar hér á landi. verður Mr
Terry Casey námsstjóri hjá enska
knattspyrnusamhandinu.
Umsækjendur skulu hafa lokið
II stigi (C-stigi) og þjálfað
a.m.k. eitt ár.
Umsókn skal fylgja afrit a
skírteini II stigs ásamt upplýs
ingum um þjálfarastörf.
Umsóknir berist hið fyrsta ti
skrifstofu K.S.Í., sem gefur allar
frekari upplýsingar.
Ta'kninefnd KSÍ.
(LjAsm.: (II)
• John Hudson var KR-ingum drjúgur í úrslitum bikarsins gegn KR.
Hér afgreiðir hann knöttinn í körfuna án þess að Paul Stewart fái rönd
við reist. Einar Bollason KR sér til þess að Sigmar Karlsson blandi sér
ekki heldur í leikinn.
Sagt eftir leikinn