Morgunblaðið - 27.03.1979, Síða 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979
Landsfíokkagííman:
HSÞ og KR hlutu
flesta meistara
LANDSFLOKKAGLÍMAN var
glímd í íþróttahúsi Kennara-
háskólans á sunnudaginn. Til
leiks mættu 27 glímumenn og er
þetta vafalaust fjölmennasta
glímumót seinni ára. Var
gleðilegt að sjá svona mikinn
fjölda glimumanna, einkum í
yngri aldursflokkunum og af
þeim sökum var leiðinlegt að
áhorfendur skuli ekki hafa verið
fleiri. Er undirrituðum til efs að
þeir hafi verið mikið’fleiri en
keppendur. Er leitt til þess að
vita að unnendur glímunnar
skuli ekki sækja glimumót betur.
Keppt var í 6 flokkum í Lands-
flokkaglímunni, þremur flokkum
fullorðinna og þremur flokkum
unglinga og drengja. Drengja-
flokkurinn var fjölmennastur með
9 keppendur er i öðrum flokkum
voru keppendur 3—5 og voru
glímur þar allmiklu færri en í
drengjaflokkinum eins og gefur að
skilja. Þingeyingar sendu að vanda
fjöimennasta flokkinn til keppn-
innar, 8 glímumenn, Austfirðingar
voru 5, 4 frá Ármanni og KR og 3
frá Víkverja og HSK.
Úrslit í einstökum flokkum urðu
þessi:
YFIRÞYNGDARFLOKKUR:
1. Pétur Yngvason HSÞ l'A+lv.
2. Ingi Þ. Yngvason HSÞ IV2+O v.
3. Guðm. Ólafsson Á. 0 v.
Bræðurnir Pétur og Ingi lögðu
báðir Guðmund eftir snarpar
viðureignir og glímu þeirra
innbyrðis lauk með jafnglími.
Þurfti því aukaglímu milli þeirra
bræðra og bar Pétur sigur úr
býtum í henni. Fer vel á því að þeir
bræður, sem vafalaust eru sterk-
ustu glímumenn landsins um þess-
ar mundir skipti bróðurlega milli
sínum sigurlaununum á helstu
glímumótunum, en þess er
skemmst að minnast að Ingi sigr-
aði í Bikarglímunni á dögunum.
MILLIÞYNGDARFLOKKUR:
1. Kristján Yngvason HSÞ 2+1 v
2. Guðmundur Fr. Halldórs. Á2+0
v 3. Eyþór Pétursson HSÞ IV2 v
4. Hjörleifur Sigurðs. HSÞ V2 v
I þessum flokki þurfti einnig
aukaglímu milli Kristjáns og
Guðmundar. Mátti ekki á milli sjá
lengi vel en svo fór að lokum að
Guðmundi mistókst bragð svo
hann féll sjálfur og varð því
Kristján sigurvegari. Var Kristján
vel að sigrinum kominn enda í
miklu betra formi en í bikarglím-
unni fyrir skömmu.
LÉTTÞYNGDARFLOKKUR:
1. Halldór Konráðsson V. 4 v
2. Sigurjón Leifsson Á. 3 v
3-4. Ólafur Pálss. HSK 1 v
3—4. Jón Magnúss. KR 1 v
5. Elías Pálsson HSK 0 v
Halldór og Sigurjóns voru áber-
andi sterkustu glímumennirnir í
þessum flokki og glíma þeirra
innbyrðis réði því úrslitum.
Halldór tókst að leggja Sigurjón á
góðu bragði og sigra verðskuldað.
UNGLINGAFLOKKUR:
1. Helgi Bjarnason KR 2 v
2. Alfons Jónsson Á. 1 v
3. Kristinn Guðnason HSK 0 v
Helgi var áberandi bezti
glímumaðurinn í þessum flokki og
sigur hans öruggur.
DRENGJAFLOKKUR:
1. Ólafur H. Olafs. KR 8 v
2. Hjörtur Þráinss. HSÞ 6‘A v
3. Geir Arngrímss. HSÞ 5'A v
4. Geir Gunnlaugss. V. 5 v
5. Karl Karlsson v. 4 v
6. Þrándur Þorkels. HSÞ 2 v
7—9. Bryngeir Stefánss. UÍA IV2 v
7—8. Hreinn Sigmarss. UÍA 1 Vi v
Ólafur Ólafsson hafði mikla
yfirburði yfir aðra keppendur í
þessum flokki og var ekki í
taphættu í neinni glímu. Er eng-
inn vafi á því að Ólafur er
efnilegasti ungi glímumaðurinn,
sem fram kom á þessu móti. Þá
vakti Hjörtur Þráinsson athygli
fyrir skemmtileg brögð, en hann
lagði 6 keppinauta sína þótt hann
væri lágvaxnasti keppandinn í
flokknum.
SVEINAFLOKKUR:
1. Einar Stefánss. UÍA 116 v
2. Óli Sigmarss. UÍA 1 v
3. Hans Metúsalemss. UÍA V2 v
í þessum flokki sigraði sá lág-
vaxnasti, Einar Stefánsson er
hann lagði félaga sinn Óla óvænt.
Samkvæmt þessu hlaut HSÞ 2
meistara á þessu móti, KR einnig 2
meistara en Víkverji og UÍA einn
meistara hvor.
Landsflokkaglíman fór hið bezta
fram og var ágæt skemmtun.
Glímustjóri var Hörður Gunnars-
son, yfirdómari Sigurður Jónsson
en meðdómendur Gunnar Ingvars-
son og Arngrímur Geirsson. -SS.
Styttist í keppnistímabil
frjálsíþróttafólksins
SEGJA má, að keppnistímabil
frjálsíþróttafólks utanhúss 1979
sé hafið. Um helgina var haldið
Víðavangshlaup Islands með mik-
illi og glæsilegri þátttöku, nærri
300 þátttakendum. íslendingar,
sem dvelja erlendis, hafa einnig
tekið þátt í mótum utanhúss og
má þar m.a. nefna ágætan árang-
ur Oskars Jakobssonar á móti í
Texas.
bó að ennþá sé vetrarlegt um
að litast er ekki nema rúmur
mánuður þar til fyrsta opinbera
frjálsíþróttamótið fer fram, þ.e.
Vormót ÍR, sem haldið verður á
frjálsíþróttavellinum í Laugardal
3. maí. Lokaundirbúningur vegna
mótaskrár FRÍ stendur nú yfir,
en hún kemur væntanlega út um
miðjan apríl. Það er því ráðlegast
fyrir þá sambandsaðila. sem óska
eftir því að mót þeirra komist í
handbókina, að hafa samband við
skrifstofu FRÍ hið fyrsta, en
síminn þar er 83386. Fram-
kvæmdastjóri FRÍ er Katrín
Atladóttir og hún er á skrifstof-
unni á venjulegum skrifstofu-
tíma.
Frjálsíþróttafólkið hefur æft
mikið og samviskusamlega á
þessum vetri. Má því búast við
miklum framförum og góðum
árangri í sumar, ef meiðsli eða
önnur óhöpp koma ekki til.
Mikið er um það, að frjáls-
íþróttafólk dvelji við æfingar og
keppni erlendis um langan eða
skamman tíma. Hér er bæði um að
ræða námsfólk og þá sem fara
utan eingöngu til æfinga eða
vinnu. Um þessar mundir er eftir-
talið frjálsíþróttafólk ytra:
Vilmundur Vilhjálmsson, KR,
dvelur við nám í Englandi, Sigurð-
ur P. Sigmundsson, FH, er í
Edinborg og nemur við háskólann
þar í borg. Jón Diðriksson, UMSB,
er nemandi við íþróttaháskólann í
Köln. í Svíþjóð dvelja Lilja Guð-
mundsdóttir, ÍR, og bræðurnir
Ingvi og Guðmundur R.
Guðmundsson, FH. í Bandaríkjun-
um eru Óskar Jakobsson, ÍR,
Stefán Hallgrímsson, UÍA, og
tvær ungar og efnilegar stúlkur úr
FH, systurnar Rut og Ragnhildur
Ólafsdætur. Óskar er í Austin í
Texas, en Stefán og stúlkurnar í
San José. Hreinn Halldórsson er
einnig á förum til Austin. Þrír
Austfirðingar eru við æfingar í
Svíþjóð, þau Guðrún Sveinsdóttir,
Björn Skúlason og Brynjólfur
Hilmarsson. Friðrik Þór Óskars-
son fer til Texas í byrjun maí og
dvelur þar í mánuð. I byrjun apríl
heldur einnig 12 manna flokkur
frá KA til Formia á Ítalíu og
dvelur á þeirri frægu æfinga-
miðstöð Italanna í rúman hálfan
mánuð. KA er nú orðið stórveldi í
frjálsum íþróttum og bendir allt
til þess, að félagið taki sæti í 1.
deild frjálsíþróttanna á næsta ári.
• Svipmynd úr keppninni í drengjaflokki.
Ljósm. Guðjón Birgisson.
14 sigraði í síðbúinni
meistarakeppni KSÍ
LIÐ ÍA sigraði í meistarakeppni KSÍ frá því í fyrra. Léku þeir um
helgina við lið ÍBV í Eyjum og sigruðu 3—2. Leik þessum tókst ekki að
ljúka í fyrra vegna þess hve veður var slæmt og svo vegna þess hve
margir leikir voru á skömmum tíma.
Ásamt ÍA og ÍBV tók Valur þátt í meistarakeppninni. Leikurinn í
Vestmannaeyjum var vel leikinn á köflum enda vallarskilyrði góð.
Matthías Hallgrímsson skoraði eina mark fyrri hálfleiksins með
skalla. Ómar Jóhannesson jafnaði síðan fyrir ÍBV í sfðari hálfleiknum,
en hinn bráðefnilegi Guðbjörn Tryggvason sem á án efa eftir að láta
mikið að sér kveða í sumar með Skagaliðinu skoraði annað mark ÍA.
Og loks innsiglaði Matthías sigurinn með því að skora úr vítaspyrnu.
Síðasta orðið í leiknum áttu Eyjamenn er Örn Óskarsson skoraði úr
vítaspyrnu.
þr/Hj
Á VELLINUM
*' *»
Þessi mynd var tekin um helgina af liði ÍA í knattspyrnu.
Keppnistfmabilið byrjar byrlega hjá þeim, bikar í einum fyrstu
leikjum vorsins. Leikmenn IA brugðu sér til Eyja og léku þar síðasta
leikinn í meistarakeppni KSÍ. Tókst aldrei að ljúka þessum leik á
sfðasta keppnistfmabili og var hann því á dagsskrá nú. Hefðu
Eyjamenn unnið, hefðu þrjú lið verið efst og jöfn. Hvað þá? Svo fór þó
ekki og ÍA sigraði í leiknum.
Á myndinni eru (standandi f.v.) Gunnar Sigurðsson, Miiller þjálfari,
Matthfas Hallgrfmsson, Guðjón Þórðarson, Jón Alfreðsson, Björn
Lárusson, Kristinn Björnsson, Guðbjörn Tryggvason og Sigþór
ómarsson. Krjúpandi f.v. Jón Gunnlaugsson, Sveinbjörn Hákonars-
son, Jón Þorbjörnsson, Jóhannes Guðjónsson, Jón Áskelsson, Sigurjón
Kristjánsson og Kristján Olgeirsson.