Morgunblaðið - 27.03.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979
37
r
Oli Jóhann Pálmason:
Þjóðin stendur á bak
við starfsemi S.Á.Á.
Nú ekki alls fyrir löngu birtist í
Morgunblaðinu grein eftir Árna
Helgason í Stykkishólmi, sem hitti
mig fremur illa, því hann fer þar
mörgum ósönnum orðum um
starfsemi S.Á.Á. Árni Helgason er
félagsmaður í S.Á.Á og það er ég
líka og báðir eigum við þá ósk
heitasta að uppræta megi drykkju-
skap í landi voru, þó svo okkur
greini eflaust á um aðferðir til
þess. Árni segir í grein sinni, að
S.Á.Á. hirði lítt um fyrirbyggjandi
aðgerðir í áfengismálum, en ein-
blíni um of á afleiðingar drykkj-
unnar, allt að því hvetji fólk til
drykkju því þeir, þ.e. S.Á.Á., bjargi
málunum ef illa fari. Þetta eru
helber ósannindi, því S.Á.Á. hefur
einmitt rækt upplýsingaskyldu við
almenning mjög vel samanher
blaðamannafund þann sem Árni
hnýtir í í grein sinni. Einnig hefur
S.Á.Á. staðið fyrir fræðslu og
kynningu á áfengisvandamálinu í
mörgum skólum borgarinnar. Eg
þekki marga unglinga sem hlýtt
hafa á þá fræðslu og ber þeim
öllum saman um, að mjög vel hafi
verið að henni staðið.
Við Árni vitum báðir, að
áfengisvandamálið er eitt stærsta
vandamálið í nútíma þjóðfélagi og
á ég við alla þá, sem þegar hafa
orðið áfenginu að bráð, svo og
aðstandendur þeirra. Og mun láta
nærri að það samanlagt sé nálægt
eitt hundrað þúsund manns sem
líður á einn eða annan hátt fyrir
áfengið.
Eg sjálfur er alkóhólisti og er
ennfremur einn af fjölmörgum
sem standa í þakkarskuld við
S.Á.Á. Eg hafði gengið með sjúk-
dóminn, alkóhólisma, í 10 ár án
þess að fá neitt við ráðið, þegar ég
fór í meðferð hjá S.Á.Á.. En eitt
verða allir að gera sér ljóst, og þ.e.,
að S.Á.Á. er enginn „patentlausn"
fyrir alkóhólista, því alkóhólismi
er ólæknandi sjúkdómur sem
einungis er hægt að halda niðri
með því að bragða ekki áfengi eða
aðra vímugjafa.
Á meðferðarstofnunum S.Á.Á.
er látin í té sú fræðsla sem er
hverjum alkóhólista nauðsynlegt
vegarnesti út í lífið. Síðan kemur
til kasta einstaklingsins sjálfs,
hvernig hann nýtir sér þann fróð-
leik og vitneskju sem hann hefur
öðlast. Auk þess að reka
meðferðarstofnanir fyrir alkóhól-
istana sjálfa, hefur S.Á.Á. einnig
komið á fót meðferð-
ar-„prógrammi“ fyrir aðstandend-
ur þeirra. Því það vita allir sem til
þessara mála þekkja, að alkó-
hólismi er ekki einkamál þess sem
neytir áfengisins og/eða annars
vímugjafa, heldur er hann fjöl-
skyldusjúkdómur.
Fræðslu- og leiðbeiningarstöð er
rekin á vegum S.Á.Á. í samvinnu
við Reykjavíkurborg að Lágmúla 9
í Reykjavik, en þangað geta allir
snúið sér í leit að upplýsingum og
leiðbeiningum á þessu sviði.
Óli Jóhann Pálmason. ,
Ef við lítum á þá tugi manna og
kvenna sem S.Á.Á. hefur hjálpað
út úr myrkri og vonleysi alkóhól-
ismans til heilbrigðs lífs, hljótum
við að verða að viðurkenna að
þetta framtak í ísl. áfengisvarnar-
málum á fullan rétt á sér. En við
verðum líka að gera okkur ljósa
grein fyrir ástæðunni fyrir vel-
gengni S.Á.Á. í baráttunni við
áfengisbölið, en hún er einfaldlega
sú, að þjóðin stendur á bak við
starfsemi S.Á.Á. Ekki efast ég um
að stúkur og hin ýmsu trúfélög
hafi bjargað mörgum manninum
og margri konunni frá áfengisböl-
Lnu í gegnum árin. Eg bara skil
ekki hvers vegna þeir, sem að
þessum málum starfa beint eða
óbeint, finna hjá sér hvöt til að
metast um hver hafi gert mest. Því
öll stefnum við að sama markinu,
burtséð frá aðferðunum.
Sem betur fer eru ekki margir
með sama hugarfari í garð S.Á.Á.
og Árni Helgason, því annars hefði
árangurinn af starfi S.Á.Á. ekki
orðið eins góður og raun ber vitni.
S.Á.Á. er félagsskapur opinn öll-
um þeim sem áhuga hafa á
áfengisvandamálum og er þar af
leiðandi kjörinn til að sameina
starfskrafta okkar í þágu þjóðar-
innar og velferðar hennar.
Góðir Islendingar, látum ekki
neinn, hvorki geðlækna né Árna
Helgason fá tækifæri til að rifa
niður það sem við erum að byggja
upp. Verum minnug þess hvernig
Bláa bandið var brotið niður á
sínum tíma með vanþekkingu og
hleypidómum minnihluta- en
valdahópa í þjóðfélaginu.
Stöndum saman, því í þessari
baráttu sannast hin fornu spak-
mæli: Sameinaðir stöndum vér,
sundraðir föllum vér. Að lokum vil
ég beina þeim tilmælum til allra,
sem um þessi mál rita, að blanda
ekki A.A.-samtökunum inn í skrif
sín.
Óli Jóhann Pálmason
rafvirki.
Tuttugu hreindýr í
byggð í Berufirði
Djúpavagi 24. marz.
STÖÐUG norðanátt hefur verið
nokkuð hvasst og nokkurt frost. í
norðanáttin gangi senn niður.
Togarinn Hólmanes fra
Eskifirði landaði 70 tonnum af
fiski á miðvikudaginn var og hefur
síðan verið unnið frá kl. 8 á
morgnana til miðnættis að vinnslu
aflans, og verður unnið þannig yfir
helgina og þangað til lokið verður
að vinna úr öllum aflanum. Neta-
veiði hefur verið heldur treg hjá
þeim bátum sem hana stunda og
togbátar aðrir en Hólmanesið hafa
ekki lagt afla á land síðan línu-
vertíð lauk.
Hreindýr eru hér i byggð á víð
og dreif, rúmlega 20 í hóp, og hafa
haldið sig hér skammt frá þorpinu
síðustu dagana. Þau líta vel út og
er ekki að sjá að þau hafi liðið
neinn skort þótt veturinn hafi
verið nokkuð kaldur og snjóþung-
hér síðan um mánaðamót, oftast
dag er glaðasólskin og vonum við að
ur. Stefán Aðalsteinsson hefur
verið með hákarlalínur hér úti í
Berufirði og hefur fengið 7 há-
karla. Hann hefur beitt sel því að
það er gömul reynsla að hákarlinn
rennur vel á blóðýlduna. Stefán
telur að þeir hákarlar er hann
hefur veitt séu eingöngu hrygnur, í
einni þeirra voru ungar, 10—15 sm
langir, enda mun það nú engin
ráðgáta lengur hvort hákarlinn
eigi egg eða unga. Þann 15. þessa
mánaðar skar hann síðasta
hákarlinn sem hann veiddi. Ur
maga hans komu tveir allvænir
laxar, að vísu var lítið eftir af
þeim nema hausinn. Trúlega hefðu
þessi laxar haldið upp í Breiðdalsá
í sumar ef þeim hefðu ekki verið
búin þau örlög að lenda í hákarls-
maga.
Námskeið 1 kór-
söng og kórþjálfun
Námskeið í kórsöng og kór-
þjálfun verður haldið í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð dagana
3.-5. aprfl n.k.
Leiðbeinandi á námskeiðinu
er Willy Tráder prófessor í
kórstjórn og þjóðlagafræðum
við Tónlistarháskólann í
Hannover, en honum til aðstoðar
verður kór hans, „Der
Niedersáchschische Singkreis.
Tráder mun einnig halda fyrir-
lestur miðvikudaginn 4. aprfl kl.
11.30 í sal Tónlistarskólans í
Reykjavík. mun hann flytja
fyrirlesturinn á ensku og ber
hann heitið „kór með byrjend-
um“.
Þorgerður Ingólfsdóttir,
Reykjavík, og Jón Hlöðver
Áskelsson sáu um skipulagningu
námskeiðsins og veita þau nánari
upplýsingar um námskeiðið.
Der Niedersáchsische Sing-
kreis er einn af þekktustu a-cap-
ella kórum í Þýzkalandi. Kórinn
hefur hlotið margs konar viður-
kenningu fyrir frammistöðu sína
Kennarar á svæðinu frá
Stöðvarfirði að Lónsheiði héldu
fund á Stöðvarfirði 16. þ.m. Á
fundinum var formlega stofnað
Kennarafélag Suðurfjarða en
kennarar af þessu svæði hafa hitzt
öðru hvoru undanfarin 2 ár til
skrafs og ráðagerða. Stjórn félags-
ins er í höndum Stöðvarfjarðar-
kennara það sem eftir er af þessu
skólaári, en Djúpavogskennarar
munu taka við stjórn félagsins á
þessu hausti. Á fundinum kom
fram mikil óánægja með það
fyrirkomulag að kennarar úti á
landi fá sína yfirvinnu greidda
eftir dúk og disk eftir ýmsum
krókaleiðum á meðan kennarar á
Suðvesturlandi fá þessa yfirvinnu
greidda beint frá ríkinu um leið og
föst laun eru greidd. Kennarar
fögnuðu þeirri ágætu þjónustu
sem Kennaraháskóli Islands veitir
með margháttaðri fræðslustarf-
semi í formi fræðslufunda úti á
landsbyggðinni. Var áhugi á þvi á
fundinum að notfæra sér þessa
þjónustu og voru hin ýmsu tilboð
um fræðslufundi rædd ítarlega og
valið úr það sem kennurum við
litlu skólana var talið hentast.
Ingimar.
óskar eftir
blaðburðarfólki
AUSTURBÆR:
□ Laugavegur 1—33
□ Ingólfsstræti
□ Sóleyjargata
□ Flókagata 1—47
VESTURBÆR:
□ Miöbær
UPPL. I SIMA
35408
í alþjóðlegum kórakeppnum, varð
sigurvegari í Cork á írlandi,
Arezzo þ Ítalíu og Debrecen í
Ungverjalandi. Kórinn hefur ver-
ið leiðandi á Evrópa-cantatmót-
um allt frá upphafi. Jafnhliða
flutningi á kórtónlist fyrri alda
leggur kórinn áherzlu á kynningu
20. aldar kórtónsmíða en á tón-
leika- og hljómplötuskrá kórsins
eru verk eftir mörg fræg tón-
skáld.
Willy Tráder hefur hlotið
mikla viðurkenningu fyrir
árangursríkt starf í þágu söng-
og kórmála í Þýzkalandi og hefur
verið leiðbeinandi á kórnám-
skeiðum víða um heim.
Kórinn syngur á vegum Tón-
listarfélags Akureyrar í Akur-
eyrarkirkju sunnudaginn 1. apríl
kl. 20.30. Einnig á tvennum
tónleikum á vegum Tónlistar-
félags Reykjavíkur mánudaginn
2. apríl kl. 20.30 í Háteigskirkju
og miðvikudaginn 4. apríl kl.
20.30 í sal Menntaskólans við
Hamrahlíð.
y Nr.HMars 1979
Eggjakaka
meÖGOÐA Servelatpylsu
100 g Servelatpylsa
30 g blaðlaukur
1 dl rifirm os
4 'gg
>u smjöri. Hristið
^rVLV^^unWT^uknum og rifna ostinum yfir
^tið^^a 4^Fa við vægan hita. Leggið
g berið hana fram vel heita með.grænmetis-
Biðjið um GOÐA-vörur og þér fáið
gceðavörur.
flflpfiflP
'&''Mataruppskriftir
Uppskriftablað nr. 13 í lausblaðabókina » RáÖ og rétti(<
er komið út. Nú kynnum við Eggjakoku og notum
að sjálfsögðu GOM-SERVELATPYLSU sem
aðaleftn í þennan óvenjulega rétt. Einnigerkynntur
»Indiánabvdmatur" en úr GOÐAPYLSU
erauðvelt að matreiða ódýra úrvalsmáltíð.
Afurðasala
Kjötiðnaðarstöð
Kirkjusandi stmi:86366