Morgunblaðið - 27.03.1979, Qupperneq 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979
Sveinn
Guðmundsson:
Sveinn Guðmundsson
Fjúkandi
vetrarlauf
Bændur og forstjórar
Tvær stéttir munu það vera sem
„kerfið" telur að aldrei vinni neitt
og það eru bændur og forstjórar,
að minnsta kosti hefur það farið
fram hjá undirrituðum að talað sé
um þessar stéttir sem vinnandi
fólk.
Við heyrum talað um atvinnu-
sjúkdóma, en lítið mun það kannað
hve heymæði og liðaveiki hrjáir
bændur umfram aðrar stéttir.
Aldrei mun vera talað um hey-
mæði fyrr en hún er komin á það
hátt stig að viðkomandi bóndi
verður að hætta störfum.
Bændum f jölgar
Á síðast liðnu hausti hófu þrír
bændur búskap í Gufudalssveit.
Þessi sveit stóð höllum fæti vegna
fólksfæðar og er það vel að úr því
hefur ræst.
Byggðarlag verður að geta sinnt
tvennskonar hlutverki. Það er
hinu verklega og þar eru bændur
allvel settir, hvað verklega mennt-
un snertir, en engar andlegar
kröfur eru gerðar til bænda og
ættu bændasamtökin að taka
þetta mál upp og hefja bændur
aftur til þeirrar virðingar sem
þeim raunverulega ber. Kröfurnar
gætu til dæmis verið þessar:
„Enginn getur orðið bóndi, nema
hann hafi lokið einhverju lág-
marksprófi. Til dæmis frá
búnaðarskóla, lýðháskóla eða ein-
hverjum öðrum viðurkenndum
skólum. Einnig þarf hann að hafa
unnið í sveit í 3 til 4 ár eftir
fermingu".
Skilum við bændur næstu
bændakynslóð aukinni bænda-
menningu?
Spyrji hver bóndi sjálfan sig.
Veturinn og veðráttan
Mjög mikið hefur verið um fögur
litbrigði í skýjum himinsins á
líðandi vetri. Veturinn hefur verið
mjög snjóléttur það sem af er, en
kaldari en í meðalári. Frost mun
vera mikið í jörðu og hætt við að
öllu jöfnu að gróður verði seint á
ferðinni í vor.
Sífellt fer það hér í vöxt að
bændur taki ull af fé sínu að
vetrinum og mun það ekki hafa
gerst hér fyrr að byrja vetrarrún-
ing upp úr áramótum og var þá fé
orðið vel fyllt.
Undirritaður sá það á prenti
ekki alls fyrir löngu og það frá
ábyrgum aðila í landbúnaðarmál-
um, að helst væri hægt að spara í
vísindamálum landbúnaðarins
með því að leggja niður tilrauna-
búið á Reykhólum. I vetur eru þar
330 kindur á fóðrum og meðal
þungi dilka var 15.4 kg og 80%
tvílembt og meðalþungi ullar var
2.7 kg og þar af fóru 80.5% í
úrvalsflokk.
Nú er það jafnan svo, að hægust
eru heimatökin þó ég efist ekki um
að hægt sé að finna hagstæðari
tölur fyrir Tilraunastöðina.
Á síðast liðnu ári var tekið hér
af öllu fé eins og að venju. Þá voru
lögð 312 kg inn til sölu og það var
öll ullin og fóru þá 83 kg í
úrvalsflokk en í vetur urðu kílóin
305 og fóru nú 165 kg í úrvalsflokk.
Nú er verð á úrvalsflokki 1065 kr.,
en á fyrsta flokki 770 kr. og
mismunur á hverju kg 295 krónur.
Tekjuaukningin er því 24.190 kr. á
þessu litla fjárbúi. Þessa ullar-
gæðaaukningu er hægt að rekja
beint til Tilraunastöðvarinnar á
Reykhólum, vegna þess að hrúta-
kostur er að mestu annað hvort
ættaður þaðan eða keyptur. Á
meðalbúi myndi þessi aukning
vera því sem næst 3.5 sinnum
meiri og þá fengi bóndinn í sinn
vasa 85 þúsund krónum meira
fyrir sína ull á ársgrundvelli og
verksmiðjurnar miklu betra hrá-
efni.
Nú er erfðastuðull fyrir ullar-
magn og gæði hagstæður og er
ástæða að vekja athygli bænda á
því að auka arðsemi búa sinna á
þann hátt að fá sér kynbótahrúta,
eða fá sæði frá Tilraunastöðinni á
Reykhólum.
_________Nafngiftir___________
Er það ekki undarlegt að vera
deila um það hvort menn megi
heita Baltasar eða Jón. Jónsnafnið
er viðurkennt af löggjafanum en
Baltasar-nafnið er komið sunnan
úr löndum og skal því á öskuhauga
kastað. Svo kemur kerfið og segir:
„Mig skiptir engu hvað foreldrun-
um þóknaðist að láta ykkur heita
og sama er mér hvor nafn ykkar er
af erlendum toga spunnið eða það
fellur að islensku beygingarkerfi.
Enginn tekur mark á skírnarnafni
ykkar, nema hæsta- lagi frændur
og vinir. Þið skuluð merkt mér og
bera mitt númer. Án minnar
nafngiftar veit enginn hver þú ert
og þú ert aðeins átta tölustafa
númer." Einu sinni þótti fallegt og
fínt að bera falleg ættarnöfn eins
og þykir í dag að eiga falleg
bílnúmer og bráðum getum við
farið að monnta okkur af því hvert
okkar á fallegast nafnnúmer og ef
til vill dettur Kerfinu bráðum í
hug að selja okkur fallegt nafn-
númer á nokkrar milljóir.
Lítið barn hefur
41' lítið sjónsvió
í alvöru talað, hafa dátar
Kerfisins leyfi til þess að gera
okkur að venjulegu númeri og ef
svo er, hvers vegna er þá verið að
halda við mannanöfnum? Ég get
ekki sannað tilveru mína nema að
tilgreina númer sem mér er gefið
af einhverjum m alls óviðkomandi.
Nafnnúmer stríðir á móti ís-
lenskri málvenju og er brot á
persónufrelsi þess, sem neyddur er
til þess að skrifa það á hvað sem
Kerfinu þóknast að láta nota þetta
tækniundur sitt.
________Hvað er kerfið___________
Sennilega er um fátt eitt talað
meira en kerfið og gunnfána þess,
verðbólguna. En hvað er eiginlega
„Kerfi"? Jú, mín skilgreining skal
vera stutt, en ekki nægilega ítar-
leg.
Hver sem notar ofstjórnun í
hvaða málum sem er og gerir það á
skipulegan hátt flokkast undir
þessa nafngift. Öll misbeiting
valds, hvort sem hægt er að styðja
hana með lögum eða reglugerðum,
þar sem einum aðila er gert hærra
undir höfði en öðrum. Ef velviljað-
ir menn stjórna Kerfinu getur það
verið viðunandi, en stjórni Kerfið
þeim, sem stjórn eiga, er það
ómannúðlegt og stutt verður í
lögregluríki. Kerfið hefur á undan-
förnum árum verið að þenjast út
og getur breyst í ófreskju sem
hvorki hofgoðar þess eða hinn
almenni borgari ræður við.
Nýr prestur
_________í Reykhóla___________
Hingað er kominn ungur og
nývígður prestur, séra Valdimar
Hreiðarsson, með konu og tvö
börn.
Það er ekki fyrir neina aukvisa
að fara út á akur kirkjunnar, því
að jarðvegur er sumsstaðar grunn-
ur og grýttur, en eins og þeir vita
sem einhverja ræktun stunda er
arfinn fljótur að ná yfirhöndinni
og kæfa þann nytjagróður sem
rækta á.
Ef til vill hefur það farið fram
hjá okkur að þjóðfélagsskipan
okkar er byggð upp á kristnum
grunni. Illgresisplönturnar eru
margar og það er því hlutverk
okkar sem viljum viðhalda lýðræði
að standa vörð og þá gæti korn
prestsins borið margfaldan ávöxt.
Veri þessi ungu presthjón velkom-
in til starfa meðal okkar.
Heilbrigðisþjónustan
Ef til vill geri ég Matthíasi
Bjarnasyni rangt til, þegar ég
þakka honum ekki fyrir að flytja
Reykhólalæknishérað norður til
Hólmavíkur. Ég skal koma að
kjarna þessa máls.
Ein minnsta þjóð veraldar hefur
ekki efni á því að mæta ekki
þörfum í heilbrigðismálum fá-
mennasta „læknishéraðsins".
Við vitum að stórþjóðir líta
niður á íslendinga, nema í skála-
glamri stjórnmálamannanna. Við
þekkjum þá kenningu að lært fólk
setji niður ef það starfar meðal
alþýðufólks í afskekktum byggðar-
lögum, eða jafnvel utan
Stór-Reykj avíkursvæðisins.
Ég ætla þingmönnum okkar að
kveða niður þennan malbiksdraug,
því að til þess kusum við þá á þing.
___________Skólinn____________
Farið er að síga á seinnihlutann
með endurbyggingu Reykhóla-
skóla eftir brunann í haust og er
þegar búið að taka nokkurn hluta
kennsluhúsnæðis í notkun. Sam-
kvæmt upplýsingum frá skóla-
stjóra Reykhólaskóla, Hermanni
Jóhannssyni, hafa skólanum borist
peningagjafir frá aðilum sem ekki
óska eftir því að sjá eða heyra
nafns síns getið í fjölmiðlum.
Kvenfélag Geirdalshrepps hefur
gefið skólanum 4 reykskynjara og
er það mjög þörf gjöf og vel þegin.
Lesandi góður. Þessu rabbi er
lokið og ég vil þakka lesturinn.
Sveinn Guðmundsson
Gísli
Baldvinsson
kennari:
Samráð
við kennara
Á fjölmennum fundi um skóla-
skipan í Reykjavík á næsta ári
sagði formaður fræðsluráðs frá
þeim hugmyndum sem samstarfs-
nefnd borgarinnar og mennta-
málaráðuneytisins hafa sett fram
um skólaskipun í Reykjavík á
næstunni. Kom þar m.a. fram að
fyrirhugaðar eru breytingar á
a.m.k. tveimur skólum þ.e. Ár-
múlaskóla og Laugalækjarskóla.
Hugmyndin væri sú að enginn
grunnskóli yrði í Ármúlaskóla og
verslunarbrautin í Laugalæk
flyttist upp í Ármúlaskóla. Á
þessum fundi voru kennarar úr
þessum skólum og fengu staðfest
þær lausafregnir sem borist hafa
með vindinum síðustu vikurnar.
Þessi orðrómur vakti ugg í brjóst-
um manna þar eð mikil óvissa
skapaðist og menn vissu ekki
hvort þeir héldu starfi sínu. Þetta
ástand hefur verið óþolandi fyrir
viðkomandi kennara og reyndar
nemendur einnig. Nú skal það
tekið fram að þessi háttur er ekki
nýr á nálinni. Frægt er þegar
menn birtust dag einn á tröppum
gamla Lindargötuskólans og tóku
til að mæla gólfplássið. Aðspurðir
sögðu þeir að mæla þyrfti hve
mörgum píónóum mætti koma í
húsið! Á þann hátt var skólinn
rekinn frá Lindargötunni upp í
Ármúla. Sami háttur er nú við-
hafður og vil ég vara alla skóla-
stjóra í Reykjavík við grunsam-
legum mönnum með tommustokk í
nágrenni skóla sinna.
Þessi dæmi eru ekki einu dæmin
því hvað skyldu kennarar Æfinga-
skólans, Austurbæjarskólans,
Kvennaskólans og Námsflokka
Reykjavíkur segja? Með einu
pennastriki hafa þessir skólar
annað hvort verið lagðir niður eða
verið á fleygiferð um borgina
síðustu vikur. Enda rignir yfir
fræðsluráð þessa dagana mótmæl-
um frá þessum skólum. Það virðist
vera eina ráðið til þess að komast í
eitthvert samband.
Hugmyndir ráðuneytisins
I áðurnefndri samstarfsnefnd
virtist það vera skoðun ráðuneyt-
ismanna að borgin ætti að leysa
húsnæðisvandamál ríkisins. Sí-
fellt bentu þeir á húsnæðisvanda-
mál Fósturskólans, Myndlistar-
skólans, Hótelskólans og Leiklist-
arskólans. Ríkið sóttist eftir hluta
Laugalækjarskóla til þess að
mæta þessum vanda.
En er svo komið að fækkun
nemenda í borginni sé svo mikil og
varandi að selja þarf skólahús-
næði? Er það óumbreytanlegt
náttúrulögmál að íbúum borgar-
innar fari fækkandi? Ég tel að
með betri lánapólitík og skipulagi
megi spyrna við fótum. Erlendis
hefur mönnum tekist að leysa
þennan vanda.
Ekki er það nú svo að borgin sé
hætt að byggja skólahúsnæði.
Búið er að grafa fræga holu í
Seljahverfi og fyrirhugað er að
byrja á E-álmu Fjölbrautaskólans
í Breiðholti sem á að vera stjórn-
miðstöð.
Þessi stjórnunareining á að vera
4000 ferm. Til samanburðar má
geta þess að Melaskólinn er 3800
ferm. Vissulega þarf að byggja
stjórnunareiningu við Fjölbrauta-
skólann og félagsaðstöðu fyrir
nemendur. En ég tel það ekki
tímabært á sama tíma og verið er
að íhuga að selja skólahúsnæði á
öðrum stað. Ég tel að Fjölbrauta-
skólinn sé full stór eins og hann
var fyrirhugaður í byrjun og
miðað við núverandi ástand of
margir nemendur í skólanum. Það
mætti lækka nemendatöluna nið-
ur í 800 nemendur. Við það skap-
aðist bráðabirgðahúsnæði fyrir
kennara og félagsaðstaða fyrir
nemendur. Það verður að hafa það
í huga að skólar hafa verið full-
byggðir allt að 25 árum eftir
byrjun framkvæmda.
Með þessu flyttist öll verslunar-
menntun í Laugalæk og uppeldis-
brautin í Ármúlaskóla. Þetta yrði
svo fyrsti vísir að Framhaldsskóla
Austurbæjar.
Stjórnunartengsl
skólanna
Röksemdir manna að ekki sé
hægt að framkvæma þetta strax
vegna þess að til þess skorti
lagaheimild eru hæpnar. Ármúla-
skóli hefur útskrifað stúdenta frá
Kennaraskólanum svo ekki þyrfji
annað en að fá lánaðan stimpil frá
Fjölbrautaskólanum meðan beðið
væri eftir lagasmíðinni. Lögin
mætti gera um leið og lögin um
framhaldsskóla. Nú er því svo
háttað að framhaldsdeildum Ár-
múlaskóla og Laugalækjarskóla er
stjórnað frá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti. Kennarar kvarta und-
an þessari fjarstýringu og er hægt
að nefna það sem dæmi að fag-
stjórar Fjölbrautaskólans telja sig
ekki eiga að hafa afskipti af
þessum skólum en samt þurfa
þessir skólar að hlíta þeim reglum
sem samdar eru uppi í Breiðholti.
Ekki eru kennarar fyrmefndra
skóla boðaðir á kennarafundi í
Fjölbrautaskólanum. Þess vegna
er eðlilegast að stefna sem fyrst
að stofnun Framhaldsskóla Aust-
urbæjar.
Framtíðarskipan
Nú þegar á að bæta inn í
samstarfsnefndina fulltrúa frá
stéttarfélögum kennara og síðan
legði nefndin fram drög að fram-
tíðarskipan í skólamálum Reyk-
víkinga. Þessi vingulsháttur nú-
verandi nefndar er óþolandi enda
ekki ljóst hvað úr verður þar sem
endanleg ákvörðun hefur ekki
verið tekin. Sú ákvörðun verður ef
til vill ekki tekin fyrr en í haust
sem er allt of seint.
Kennarar hafa sýnt ótrúlega
þolinmæði í þessu máli og er
vonandi aö á það verði ekki reynt
hvenær sú þolinmæði brestur.
Gísli Baldvinsson kcnnari.