Morgunblaðið - 27.03.1979, Síða 37

Morgunblaðið - 27.03.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979 45 T3 Xi#7 „ VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL 10—11 FRÁ MÁNUDEGI ny ujjamosaía'L] ir sameign allrar þjóðarinnar eru notaðir sérstaklega í þágu ríkis- starfsmanna þegar þeir þurfa að koma hagsmunum og viðhorfum sínum á framfæri. Ýmsir taka af heilagri vandlæt- ingu um misnotkun og misrétti hérlendis sem erlendis. Hvernig væri að þeir tryggðu öllum Islend- ingum sama rétt gagnvart ofur- valdi íslenska ríkiskerfisins og kæmu í veg fyrir misnotkun hinna voldugu ríkisfjölmiðla. Verslunarmaður. • Ástæðulaus skrif Kæri Velvakandi. Okkur finnst ástæðulaus þessi skrif um íslensku skemmtiþættina sem hafa verið undanfarin laugar- dagskvöld. Okkur er spurn, hvað fólk eins og t.d. 8006—1188, sem skrifaði í Velvakanda föstudag 23. mars, hefur svona á móti Hljómplötuút- gáfunni h.f.? Okkur grunar að þessi skrif séu vegna tómrar afbrýðisemi þar sem fólkið frá Hljómplötuútgáfunni eru einu íslensku skemmtikraft- arnir sem eitthvað kveður að. Þetta ágæta númer, 8006—1188, nefndi t.d Brunaliðið, en við mun- um ekki eftir að Brunaliðið hafi skemmt nokkuð að ráði í ár. En vel á minnst, hvernig væri að hafa þátt með Brunaliðinu á næstunni? Fyrst þessir þættir fara svona í taugarnar á öfundsjúku fólki, hvers vegna er það þá að horfa á þá bara til þess að æsa sig upp og hafa eitthvað til að rífast út af? Að lokum viljum við þakka sjónvarpinu fyrir vel unna laugar- dagsdagsskrá. 7988-8885 og 1029-1828. • ísár og popptónlist Kona nokkur hafði samband við Velvakanda og sagðist alltaf hafa heyrt, að vel veiddist á ísárum. Hún sagði að mikið væri talað um það núna hversu vel veiddist og margir furðuðu sig á því og verið með ýmsar getgátur á lofti en engan hefði hún heyrt minnast á að vel veiddist á ísárum yfirleitt. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á bréfskákmeistaramóti Sovét- ríkjanna 1977—78 kom þessi staða upp i skák þeirra Nesis og Koljkers, sem hafði svart og átti leik. Staða hvíts virðist auðunnin, þar sem hann hefur sælu peði meira. Svartur fann hins vegar skemmtilega björgunarleið: 46... Dg8! Jafntefli. Jú, því að hvítur á enga vörn við hótuninni 47 ... Dxc4!, 48. Dxc4 Patt! Bréf- skákmeistari Sovétríkjanna varð M. Umanski frá Pjatigorsk. „Ég veit ekki ástæðuna fyrir því að betur veiðist þegar ís er við landið en ella, ætli hann leiti ekki undan ísnum," sagði konan. Einnig vildi þessi sama kona minnast á popptónlistina í ríkis- fjölmiðlunum. „Pétur Pétursson var áðan að kynna hljómsveitina Bee Gees og sagði að hana þyrfti ekki að kynna fyrir hlustendum því allir þekktu þessa hljómsveit. Hann þekkir hljómsveitina úr sínu starfi og unga fólkið, sem hrifið er af popptónlist, þekkir hana en við fullorðna fólkið viljum ekki þekkja hana. Það má segja að það sé búið að loka fyrir okkur eldra fólkinu bæði útvarpi og sjónvarpi þar sem popptónlistin er farin að yfirtaka báða þessa fjölmiðla og við lokum fyrir tækin þegar hún hljómar. Kvöldvökur, og annað því um líkt, eru jú á boðstólum fyrir aldamóta- fólkið en ekkert fyrir okkur sem erum þar á milli, gamla fólksins og unga fólksins." • Leiðrétting Ekki alls fyrir löngu var pist- ill í Velvakanda þar sem rætt var um stjórnmálaástandið og meðal annars talað um að það hefði verið dýrt spaug er Lúðvík Jósepsson afhenti Ólafi Jóhannessyni stjórn- artaumana. I þessari grein var það mishermt, eftir konunni sem hringdi, að Lúðvík hefði Ólaf í eftirdragi. Rétt er að konan sagði, að Ólafur væri með Lúðvík á bakinu. Er beðist velvirðingar á mistökunum. HÖGNI HREKKVÍSI • * ” 1 ’’ %(s sfcrj-A AÐ UZRA ‘A /ÚÐOe. ÓAMA HV&eWlr ÞO £rYA/Ze ÁD fyMA ‘j v£Gr fye/e P4Ð / “ Vélstjórafélag íslands heldur almennan félagsfund í kvöld, þriöjudaginn 27. marz kl. 20.00 í Átthagasal, Hótel Sögu. Dagskrá: 1. Uppstilling til stjórnarkjörs. 2. Kjaramál farskipavélstjóra. 3. Önnur mál. „ ., . Stjornm. Ekta Marmari er ekta náttúruefni meö frábæra endingar- eiginleika og sérlega auövelt aö halda hreinu. Hin mjúku og hlýju litbrigöi marmarans gera hann aö tilvöldu byggingarefni, jafnt á heimilum sem opinber- um byggingum. Byggingarefni fyrir hina vandlátu. Vinsamlegast leitiö upplýsinga. Nýborg C0) BYGGINGAVÖRUR ARMÚLA 23 SlMI 86755 Skólar í Englandi Mímir hefur nú aftur tekið upp þá þjónustu að vísa foreldrum á beztu skóla í Englandi. Mímir velur eingöngu viöurkennda skóla sem veita góðan aöbúnaö og frábæra kennslu. Mímir skrifar öll bréf, leitar upplýsinga um verö, skrifar pantanir og staöfestingar á skólavist. Skrifstofan veröur opin til 6. apríl kl. 2—6 síödegis. MÍMIR, sími 10004. Verid vidbúin sumri í¥ * ♦'ý ÍPIONER Eigum enn nokkra af hinum vinsælu PIONES plastbátum 10 til 13 feta á gömlu veröi. Næsta sending kemur til meö aö hækka talsvert. HF Hólmsgata 4. Sfml 24120. Rvlk wmmmmmmmaammami.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.