Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979
Bakhtiar ræðst að
stiórnun Khomeinis
Teheran, 26. marz. Reuter. AP.
SHAPUR Bakhtiar fyrrverandi
forsætisráðherra 1 íran lét um
Elding tók
neftrjónuna
Indianapolis, 26. marz. Reuter.
ÞEGAR handarísk farþegaflugvél
frá Allegheny flugfélaginu var í
aðflugi að flugvellinum við Indian-
apolis á laugardag með 74 manns
um borð, laust eldingu niður í
hana og tók af henni neftrjónuna.
Vélin, sem var af gerðinni
BAC-111, lenti heilu og höldnu, og
varð engum meint af.
„Það kom blátt ljósleiftur. Það
var eins og sprengja hefði sprung-
ið,“ sagði einn farþeganna eftir á.
„Vélin kastaðist nokkuð til áður en
flugstjóranum tókst að hemja
hana.“
helgina smygla ávarpi á segul-
bandi frá felustað sfnum í íran.
Réðst Bakhtiar harkalega að
núverandi stjórnvöldum í íran og
nefndi þau m.a. „Hið nýja ein-
ræði“.
Skilaboðunum var smyglað til
nokkurra erlendra fréttastofnana
í Teheran. Þau eru hin fyrstu sem
Bakhtiar sendir frá sér frá því að
hann fór í felur fyrir fimm vikum.
Bakhtiar veittist einna helzt að
þeirri ákvörðun stjórnarinnar að
efna til kosninga í landinu um
íslamskt lýðveldi. Hvatti hann
landa sína til að kjósa ekki, því þá
væru þeir að kalla yfir sig stjórn-
arfar sem legðist gegn félagslegum
framförum, gegn efnahagsfram-
förum, gegn fullum mannréttum
og með stjórnarfari er hefði ekkert
þjóðarstolt.
Ekki komu fram í segulbands-
upptökunni neinar upplýsingar er
bent gætu til dvalarstaðar forsæt-
isráðherrans fyrrverandi. En í
þeim varði hann verk stjórnar
sinnar hins vegar heilshugar.
Sama dag og skilaboðum Bakh-
tiars var smyglað til fréttastofn-
ana hvatti Ayatollah Khomeini
trúarleiðtogi landsmenn til að
samþykkja áætlun hans um ísl-
amskt lýðveldi í Iran.
íransher lét í dag lausa úr haldi
97 gísla sem herinn tók í Sanan-
daj, höfuðborg Kúrdistan. Til-
kynnt var í gær að Kúrdi hefði
verið skipaður í embætti fylkis-
stjóra í Kúrdistan, en það er í
fyrsta sinn að Kúrdi gegnir því
embætti. Ennfremur var stofnuð
nefnd Kúrda sem stofnað getur
öryggissveitir fyrir héraðið og
ráðið í valdastöður í Sanandaj.
Einnig verður mál Kúrda kennt í
skólum héraðsins. Þetta eru helztu
niðurstöður friðarsamkomulags
milli stjórnvalda í Iran og leiðtoga
Kúrda sem byggja svæði í suðvest-
urhluta Irans.
WillyBrandt
á niðurleið
UM TVEGGJA áratuga skeið
var Willy Brandt í'mynd endur-
fæðingar Vestur-Þýzkalands úr
rústum Þriðja ríkisins. Meðan
hann var borgarstjóri
Vestur-Berlínar árin 1957—‘66
tókst honum giftusamlega að
sneiða hjá ögrunum úr austri.
Siðar, þegar hann var orðinn
kanslari Vestur-Þýzkaiands,
tók hann upp svonefnda
„Ostpolitik“, sem mjög dró úr
spennunni milli austurs og
vesturs, en fyrir það hlaut
hann friðarverðlaun Nóbels
árið 1971. Minnisverðust er
pflagrímsför hans til Varsjár
árið 1970, þar sem hann kraup
á kné við minnisvarða í
Gyðingahverfinu er hann
minntist ofsókna Hitlers.
Á undanförnum fimm árum
hefur skuggi fallið á frægð
Brandts heimafyrir, og þá ekki
sízt nú nýverið þegar tilkynnt
var að Brandt, sem er 65 ára, og
Rut eiginkona hans, sem er 58
ára og fædd í Noregi, hefðu
ákveðið að sækja um skilnað
eftir 30 ára hjónaband.
Skilnaðurinn kom ekki mörgum
á óvart. Rut hefur staðið við hlið
eiginmanns síns gegnum þykkt
og þunnt, þar á meðal sambönd
hans við aðrar konur, og í viðtali
við vikuritið Stern segir hún
skilnaðinn ekki eiga neina eina
ástæðu, heldur hafi þær
hrannast upp. Aðalástæðan
virðist þó vera hálfs árs
samband Brandts við sam-
starfsmann sinn, Brigitte
Seebacher, sem er 32 ára, en um
það samband sagði Egon Bahr
fyrrum ráðherra: „Á Brandts
aldri er það hreinasta vitleysa!"
Hjónaskilnaðurinn er aðeins
síðasta áfallið, sem herjað hefur
á Brandt frá því árið 1974, þegar
Gunter Guillaume, náinn sam-
starfsmaður hans, var hand-
tekinn vegna njósna fyrir
kommúnista. Guillaume hafði
ekki aðeins afhent Austur-Þjóð-
verjum leyniskjöl frá NATO,
heldur einnig safnað upp-
lýsingum um hliðarspor
kanslarans í einkalífinu. Neydd-
ist Brandt þá til að segja af sér,
en Guillaume hafnaði í fangelsi.
Brandt átti við áfengisvanda-
mál að stríða og fékk þung-
lyndisköst. Þótt hann héldi em-
bætti sem formaður Jafnaðar-
mannaflokksins, SPD, fóru
áhrif hans dvínandi, ekki sízt
vegna vinsælda arftaka hans í
kanslaraembættinu, Helmuts
Schmidts. Hann hélt þó áfram
störfum í SPD og sem forseti
Brigitte Seebacher og Willy
Brandt
Alþjóðasambands jafnaðar-
manna þar til hann fékk hjarta-
áfall í fyrra.
Orðrómur um hjónabands-
erfiðleika komst á kreik þegar
hann leitaði sér lækninga á
heilsuhæli í Suður-Frakklandi,
en eiginkonan varð eftir heima.
í för með Brandt til Frakklands
var Brigitte Seebacher. Á hæl-
inu aðstoðaði Brigitte Brandt
við að hætta að reykja og tak-
marka drykkjuna við eitt glas af
léttu víni á dag. Þegar Brandt
kom svo aftur heim til
Vestur-Þýzkalands fyrir þremur
vikum virtist hann hressari í
bragði, og sagði hann þá vinum
sínum að hann ætlaði að
kvænast Brigitte. Eins og hann
orðaði það: „Ég er ákveðinn í að
Iifa eins og mig lystir þau fáu
ár, sem ég á eftir.“
(Heimild vikuritið TIME)
1977 — Mesta flugslys sögunn-
ar: 581 fórst í árekstri tveggja
flugvéla á Kanaríeyjum.
1976 — Suður-Afríkumenn
flytja herlið sitt frá Angóla.
1968 — Yuri Gagarin, fyrsti
geimfarinn, fórst í flugslysi.
1964 — Friðargæzlulið SÞ tekur
við stjórninni á Kýpur.
1962 — Herinn tfekur völdin í
Sýrlandi.
1960 — Kassem hershöfðingi,
forsætisráðherra íraks, stofnar
Palestínuher.
1955 — Neyðarástand lýst yfir í
Pakistan.
1945 — Yfirlýsii.g Eisenhowers
um ósigur Þjóðverja í heims-
styrjöldinni
1941 — Páli prins steypt af stóli
í Júgóslavíu.
1939 — Krafa Hitlers um að
Pólland samþykki innlimun
Danzig.
1933 — Japanir boða úrsögn
sína úr Þjóðabandalagipu.
1878 — Bretar kalla út varaher
og senda indverskt herlið til
Möltu.
1854 — Frakkar segja Rússum
strð á hendur.
1802 — Amiens-friður Breta og
Frakka og friður í allri Evrópu.
1713 — Spánverjar láta
Gíbraltar og Minorca af hendi
við Breta í Utrecht.
1703 — Pétur mikli stofnar St.
Pétursborg.
Afmæli. Alfred de Vigny,
franskur rithöfundur
(1797-1863) - William von
Röntgen, þýzkur eðlisfræðingur
(1845-1923) - F. H. Royce,
brezkur bílasmiður (1863—1933)
— Cirys Vance, bandaríksur
ráðherra (1917—).
Andlát. Gregor páfi XI 1378 —
Jakob I Englandskonungur 1624
— John Bright, stjórnmála-
leiðtogi, 1889 — Arnoid Bennett,
rithöfundur, 1931.
Innient. Yfirréttur 1563 —
Eldur í verksmiðjuhúsunum í.
Reykjavík (1764) — íslenzkur
majór, Ketiil Melsted, fellut í
bardaga á eynni Anholt 1811 —
Þingályktunartillaga ríkis-
stjórnar um aðild íslands að
Nato 1949 — Ríkisstjórn ólafs
Thors biðst lausnar 1956 — Lög
um launajafnrétti 1961 — f.
Valtýr Pétursson 1919.
Orð dagsins. Horfðu um öxl og
brostu að horfinni hættu — Sir
Walter Scott, skozkur
rithöfundur (1771-1832).
Við norðurdyr Hvíta húsins, þar sem öndvegi þjóðarleið-
toganna stóð í gær. (AP-símamynd-
Frakkland:
Vinstri sigur
í kosningum
^ París, 26. marz. AP. Reuter.
Á SUNNUDAG lauk síðari umferð í héraðsstjórnarkosningum í
Frakklandi, en fyrri umferð var viku fyrr. Úrslit kosninganna voru
helzt þau að stjórnarandstaðan, vinstri flokkarnir, vann stórlega á, og
eru þau talin áfall fyrir Valery Giscard dEstaing forseta og rfkisstjórn
hans.
Kosinn var helmingur fulltrúa í
stjórnir 1.846 héraða Frakklands
til næstu sex ára, en kosið er á
þriggja ára fresti, helmingurinn í
einu.
Þegar aðeins vantaði úrslit úr
tíu héruðum, höfðu stjórnarflokk-
arnir þrír hlotið 900 menn kjörna,
og þar með tapað 156 sætum.
Mesti sigurvegari kosninganna var
jafnaðarflokkur Francois Mitter-
ands, sem hlaut 557 kjörna, bætti
við sig 158. Kommúnistar juku
einnig fylgi sitt, hlutu 225 menn
kjörna, bættu við sig 41. Alls fengu
vinstri flokkarnir 54% atkvæða,
þar af hlutu jafnaðarmenn 35% og
kommúnistar 15%.
Þegar úrslit voru ljós sagði
Mitterand að þetta væri stórsigur,
mun meiri en búizt hefði verið við.
Talsmaður Giscards dEstaings
sagði hins vegar: „Stjórnarand-
staðan vinnur héraðskosningarn-
Kohl
endur-
kjörinn
Kfl, Vestur-Þýskalandi, 26. marz, Reuter.
DR. Helmut Kohl var í gær
endurkjörinn til að veita flokki
kristilegra demókrata (CDU) for-
ystu. Khol hlaut þó færri atkvæði
á þessu flokksþingi en á þremur
fyrri og er talið að fjöldi fulltrúa
hafi lýst óánægju sinni með út-
komu flokksins f nýafstöðnum
fylkiskosningum með því að sitja
hjá við formannskjör eða greiða
Kohi mótatkvæði.
Alls hlaut Khol 617 atkvæði af
740. Alls greiddu 82 fulltrúar
honum mótatkvæði og 41 sat hjá.
Khol var fyrst kosinn formaður
flokks síns á þingi flokksins 1973.
CDU er stærsti stjórnarandstöðu-
flokkur Þýskalands um þessar
mundir.
ar, en þegar um alvöru kosningar
er að ræða, þegar örlög þjóðarinn-
ar eru í húfi, gerist hið andstæða."
Vinsældir stjórnarflokkanna
hafa minnkað mjög að undanförnu
vegna efnahagsástands í landinu
og atvinnuleysis. Samkvæmt síð-
ustu skoðanakönnun nýtur forset-
inn nú aðeins trausts 51% þjóðar-
innar, en um síðust áramót var
stuðningurinn við hann 62%.
Veður
víða um
Akureyri +6 skýjaó
Amsterdam 8 skýjaö
Apena 22 heiðsktrt
Barcelona 17 skýjaó
Berlín 15 skýjað
BrUssel 16 skýjaó
Chicago +4 skýjaö
Frankfurt 11 skýjaó
Genf 11 skýjaó
Helsinki 2 heiöakírt
Jerúsalem 12 heióskírt
Jóhannesarb. 24 skýjað
Kaupmannahöfn 4 skýjaö
Liasabon 17 heiðskírt
London 15 skýjaó
Loa Angeles 21 heiósklrt
Madríd 15 heiöskírt
Malaga 17 alskýjaó
Mallorca 17 alskýjaó
Miami 26 heióskírt
Moskva 2 skýjað
New York 15 skýjaó
Ósió 3 rigning
París 15 akýjaó
Reykjavík +1 hálfskýjaó
Rio De Janeiro 27 skýjaó
Rómaborg 15 skýjaó
Stokkhólmur 6 skýjaó
Tel Aviv 18 heiðskírt
Tókýó 16 skýjaó
Vancouver 11 skýjaó
Vínarborg 11 skýjaó