Morgunblaðið - 06.05.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.05.1979, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ1979 pliirgiuuMiíliilí Utgefandi Framkvaemdaatjóri Rítstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guómundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstræti 6, sími 10100. Aóalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 3000.00 kr. á mónuði innanlands. I lausasölu 150 kr. eintakiö. Barátta fyrir hags- munamálum laun- þega hefur frá upphafi verið ríkur þáttur í starfi Sjálfstæðis- flokksins. Kemur þetta glögglega fram í því, að nokkrum árum eftir stofnun Sjálfstæðis- flokksins var fyrsta launþegafélagið innan vébanda flokksins stofnað og síðan fylgdu fleiri í kjölfarið á næstu árum. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur einnig notið mikils fylgis með- al launþega eins og bezt sést af því, að sjálf- stæðismenn voru næst- stærsti hópurinn á síð- asta þingi Alþýöusam- bands íslands. Þegar þessi saga er höfð í huga er eðlilegt, að sjálfstæðismenn hafi haft nokkrar áhyggjur af þeim árekstrum, sem urðu á síðasta ári milli áhrifamikilla launþega- foringja og ríkisstjórn- kvöld og lagði þar áherzlu á, að sjálf- stæðismenn mundu leitast við að efla mjög launþegastarf innan vé- banda flokksins og laða ungt fólk til starfa á vegum flokksins að málefnum launþega. Jafnframt boðaði Geir Hallgrímsson stóraukið starf sjálfstæðismanna á vettvangi launþega- samtakanna og baráttu sjálfstæðismanna fyrir auknu lýðræði í verka- lýðsfélögunum með því að hlutfallskosningar yrðu teknar upp til stjórna launþegafélaga gert mesta átak, sem um getur í húsnæðis- málum láglaunafólks. Að frumkvæði sjálf- stæðismanna hefur mikið áunnizt í verð- tryggingu lífeyris almennra launþega, en í þeim efnum hefur ríkt óþolandi mismunun milli opinberra starfs- manna og annarra launþega. Geir Hall- grímsson benti einnig á, að Sjálfstæðisflokkur- inn hefur öðrum flokk- um fremur sýnt í verki vilja sinn til að bæta kjör láglaunafólks eins og gleggst kom fram á Sjálfstæðisflokkurinn og verkalýðshreyfingin ar sem naut forystu Sjálfstæðisflokksins. Geir Hallgrímsson gerði samskipti Sjálf- stæðisflokksins og verkalýðssamtakanna sérstaklega að umtals- efni í landsfundarræðu sinni sl. fimmtudags- til þess að tryggja eðli- legan rétt minnihlutans í þessum félögum. Geir Hallgrímsson benti einnig á hlut sjálfstæðismanna í framgangi helztu hags- munamála launþega síðustu ár. í stjórnartíö sjálfstæðismanna var tímabili síðustu ríkis- stjórnar. I Síðan sagði Geir Hallgrímsson í lands- fundarræðu sinni: „Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur misnot- uðu verkalýðssamtökin gegn ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokksins á sl. ári. Þessir flokkar beittu áhrifum sínum í verka- lýðssamtökunum, starfsliði þeirra, fjár- magni og aðstöðu til þess að snúa þeim gegn ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokksins á örlagaríkum tímum. Þessir flokkar glíma nú við eigin draug í ríkisstjórn. Við skulum ekki festa okkur í deilum um það, sem liðið er. Þrátt fyrir þessa árekstra á síðasta ári milli krata og kommúnistaforingja í verkalýðshreyfingunni og Sjálfstæðisflokksins lýsi ég því yfir með sögu flokks okkar í verka- lýðsmálum að bak- hjarli, að við sjálf- stæðismenn erum enn sem fyrr tilbúnir til að eiga jákvætt samstarf við verkalýðssamtökin og forystumenn þeirra, hvar í flokki, sem þeir standa.“ Þegar árekstrar verkalýðssamtaka og ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar á sl. ári eru hafðir í huga verður ljóst, að þetta er mikil- væg yfirlýsing, sem vert er að gefa gaum. Rey kj aví kurbréf Laugardagur 5. maí*~« Verra en í París og Prag Umferðaröngþveitið í miðborg Reykjavíkur er orðið óþolandi. Það er á góðri leið með að verða verra en í París og Prag og er þá langt til jafnað því að umferðin í þessum tveimur borgum er hin versta a.m.k. í Mið- og Norður-Evrópu. I rauninni er ekki lengur hægt að aka bifreið um miðborg Reykjavíkur t.d. síðdegis á föstudegi. Þá nær bílamergðin og öngþveitið hámarki. Aðra daga vikunnar er ráðlegast að reyna ekki að komast leiðar sinnar um aðal umferðaræðar borgarinnar á tímabilinu kl. 17—18 þegar íbúar höfuðborgarsvæðisins halda heim frá vinnu sinni 1 hin ýmsu út- hverfi og nágrannabæi Reykjavík- ur. Bílarnir eru einfaldlega orðnir of margir á götum Reykjavíkur og göturnar of litlar. Þótt erfitt sé að komast leiðar sinnar um höfuð- borgina er þó nánast útilokað að finna bílastæði í miðborg Reykja- víkur. Þeir sem koma til vinnu sinnar eftir kl. 9 að morgni finna alls ekki bílastæði, án stöðumælis. Það er hundaheppni ef slíkt stæði finnst þar til síðdegis. Bílastæðin eru yfirfull. Menn leggja bílum sínum jafnvel á akbrautir bíla- stæðanna, stofna þeim þar með í hættu og valda óþægindum fyrir aðra, sem hringsóla um miðborg- ina í örvæntingarfullri leit að bílastæði. Það getur tekið a.m.k. hálfa klukkustund að finna bíla- stæði í miðborg Reykjavíkur, ef það þá finnst. Þetta bílastæðavandamál er þeim mun alvarlegra, þegar miðborgin er skoðuð úr lofti. Þá kemur nefnilega í ljós, að bíla- stæðin á þessu svæði eru þrátt fyrir allt orðin svo mörg, að þau eru að ryðja húsum og opnum svæðum öðrum til hliðar. Tjarnar- gatan, þessi fallega gata með gömlum og hlýlegum húsum er orðin eitt bílastæði. Það hlýtur að vera hörmungarlíf fyrir íbúa þessarar götu að horfa upp á bílaröðina beggja vegna götunnar. Það getur ekki verið skemmtilegt að búa í námunda við bílastæði eins og nú er komið máli. Að vetri til virðist það vera höfuðregla hjá borgaryfirvöldum að hreinsa bílastæðin síðast af snjó. Afleiðingin er sú, að þegar mikill snjór er að vetri til er helzt ekki hægt að nota þau bílastæði, sem engin gjaldskylda er á vegna þess, að jafnvel þótt hægt sé að þræla bílunum inn í stæðin er allt eins líklegt að þeir komizt ekki út þaðan aftur. Þá er ráðið að leggja við stöðumæli en hver getur hlaupið frá vinnu sinni á klukku- tíma fresti til þess að setja peninga í stöðumæli? Þá byrja grænu sektarmiðarnir að hrannast upp. í Reykjavík eru engin bílastæði þar sem menn geta lagt bifreiðum sínum allan daginn og borgað fyrir með öðrum hætti en að setja peninga í stöðu- mæli. Hér eru auðvitað tvær undantekningar á. í miðborginni eru allmörg merkt bílastæði. Það er orðin eina von lóðareigenda í miðborg Reykjavíkur að leigja lóðir sínar undir bílastæði til þess að hafa einhverjar tekjur upp í fasteigna- og lóðagjöld, sem eru orðin svo há, að það er einungis byrði og það mikil byrði að eiga lóð á dýrasta stað í miðborginni hvað þá að eiga gamla fasteign eins og dæmin sanna. Hin undan- tekningin er sú, að þingmenn njóta að sjálfsögðu þeirra forrétt- inda að geta lagt bílum sínum á bílastæði í miðborginni en það fara nú að verða mjög eftirsóknar- verð forréttindi. Hlutskipti bíleigandans, sem þarf að komast leiðar sinnar í miðborginni, sérstaklega á föstu- degi og þarf að finna bílastæði þar er orðið ömurlegt. Óhjákvæmilegt er að borgarstjórn taki þetta vandamál, umferðina í Reykjavík og þá sérstaklega í miðborginni til umræðu og meðferðar. Ofan á þetta bætist, að umferðarmenning er hér nánast engin. Við höfum stundum hlegið að Færeyingum, þegar sagðar eru sögur um, að þegar þeir beygi fyrir horn stígi þeir benzínið í botn og flauti. En menn, sem ekið hafa erlendis og þeir eru orðnir býsna margir, vita mæta vel, að í Evrópu er mikill agi í umferðinni a.m.k. ef París og Prag eru undanskildar en það er alit að því iífshættulegt að aka um götur Reykjavíkur. Jafnvel þótt menn fari sjálfir að öllu með gát er náunginn ekki á þeim buxunum og þess vegna stafar ökumanni hætta af þeim, sem á eftir er eða undan eða til beggja hliða. Enda er það svo, að það er ekki lengur hægt að aka milli borgarhluta án þess að sjá árekstur einhvers staðar á leiðinni. Afleiðing þess er svo sú, að iðgjöld af ábyrgðar- tryggingum bifreiða eru orðin hrikalega há, sérstaklega á höfuð- borgarsvæðinu og nú heyrast raddir frá skattpíndum íbúum höfuðborgarsvæðisins um, að það hljóti að vera sanngjarnt að leggja jöfnunargjald á iðgjöld bifreiða- trygginga alveg eins og rafmagn og fleira til þess að jafna aðstöðu- mun íbúa á suðvesturhorninu og annars staðar á landinu og koma í veg fyrir þá aðferð, að menn hafi bíla sína skráða í öðrum lands- hlutum, þótt þeir séu fyrst og fremst notaðir í Reykjavík. En hvað er til ráða? Höfundur þessa Reykjavíkurbréfs kann eng- in töfraráð í þessum efnum. Kannski er óhjákvæmilegt að byggja þessi hryllilega ljótu og leiðinlegu bílageymsluhús í nágrenni miðborgarinnar til þess að hýsa bílafjölda þeirra, sem starfa í miðborginni eða eiga erindi þangað. Kannski er nauðsynlegt að loka fleiri götum í miðborginni fyrir bifreiðaumferð en nú er gert. Um þetta verða þeir að fjalla, sem hafa boðizt til að taka að sér að leysa þessi vanda- mál og önnur, sem upp koma í borgarmálum. En þetta ástand er óþolandi og þolir enga bið að á því sé tekið. Það er dýrt að fara til vinnu Það er orðið dýrt að aka í bifreið. Jafnvel þótt hrikalegt verð á bílum sé látið liggja á milli hluta svo og tryggingariðgjöld er benzínverðið orðið slíkt, að það er orðið alvarlegt umhugsunarefni, hvort það er ekki orðið alltof hátt. Eftir síðustu hækkun er benzín- lítrinn kominn í 256 krónur. Hann hefur hækkað í verði á 12 mánuð- um um 115%. A þessum tíma hefur verkamannakaup hækkað um tæp 45%. Það tekur verka- mann, sem tekur laun skv. 4. taxta Dagsbrúnar með fjögurra ára starfsaldur nú rúmlega 12 klukku- stundir að vinna sér inn fyrir fyllingu á 50 lítra benzíntank. Það tekur þennan verkamann einn og hálfan dag í dagvinnu að fylla tankinn á einum slíkum bíl. Þá hefur hann þrjá og hálfan dag eftir til þess að vinna sér inn fyrir mat og öðrum útgjöldum venju- legrar fjölskyldu. Fyrir 12 mánuðum tók það verkamann einn dag að vinna fyrir þessu sama magni af benzíni. Hvað er hér að gerast? Allir vita, að bifreiðar eru ekki lengur lúxus heldur nauðsyn í okkar landi. Ef einungis er fjallað um höfuðborgarsvæðið verður auðvitað ljóst, að ferðakostnaður hvers launþega til og frá vinnu er orðinn mjög mikill. Vegalengdir á þessu þéttbýlissvæði eru orðnar slíkar að það kostar umtalsverða peninga að komast á milli heimilis og vinnustaðar í eigin bifreið. Einhverjir geta sagt sem svo, að enginn krefjist þess að fólk fari til vinnu í eigin bifreið, það geti farið í strætisvagni. Slíkar röksemdir duga ekki einfaldlega vegna þess, að fólk í dag telur sig eiga að hafa efni á að fara til vinnu sinnar á eigin bifreið. Það telur, að vel- megunin í landinu sé orðin svo mikil, að það sé ekkert óhóf að fara til vinnu á eigin bifreið. En nú kostar benzínið orðið svo mik- ið, að það er að verða verulegur kostnaður að fara á milli staða á höfuðborgarsvæðinu vegna hinna miklu vegalengda þar. Það skyldi þó aldrei vera, að benzínið sé orðið svo dýrt, að það borgi sig betur að MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ1979 17 Tvær sýningar Jóhanna Bogadóttir í Stúdentakjallarnum sýnir um þessar mundir Jóhanna Bogadóttir 18 litógrafíur, flestar nýjar af nálinni. Jóhanna mun óefað með þrautseigustu iðkend- um grafík-lista hérlendis og lætur ekki deigan síga þrátt fyrir margs konar mótlæti. Ekki hefur hún heldur uppskorið í hlutfalli við það sem hún hefur sáð hérlendis og er því ekki spámaður í sínu föðurlandi. En hins vegar hafa myndir hennar hlotið góðar viðtökur erlendis, t.d. í Finnlandi, þar sem hún hefur bæði hlotið góða gagnrýni í dagblöðum og gott umtal meðal starfsbræðra sinna í listinni. Hér get ég trútt um talað því að ég var alveg hissa á því hve hlut hennar var haldið vel og einarð- lega fram af finnskum félögum hennar er ég var þar á ferð á sl. hausti og sýning hennar í Hels- ingfors var til umræðu. Sann- leikurinn er einnig sá, að Jóhanna hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum svo sem hver og einn getur gengið úr skugga um er sér myndir hennar í Stúdentakjallaranum. Jóhanna hefur umbrotasama skapgerð og hefur átt erfitt með að temja hana í myndgerð sinni hingað til en nú virðist þetta allt vera að færast í rétta átt. Tæknin er líka stórum þróaðri en áður. Ekki veit undirritaður hvernig hún vinnur myndir sínar en hægt er að vinna á margs konar hátt í lit.ógrafíu eða steinþrykki eins og það útleggst á íslenzku. Stein- þrykk er þó ekki lengur réttnefni þar sem mögulegt er að nota Myndlist eftir BRAGA ÁSGEIRSSON málmplötur í staðinn. Þá er bæði mögulegt að teikna beint á stein- inn eða plötuna eða að teikna á sérstakan pappír og yfirfæra svo á sérstakan hátt á steininn/plöt- una. í myndlista- og hand- íðaskólanum hefur steinþrykk verið kennt að meira eða minna leyti síðan árið 1956 og á köflum var geysimikill áhugi fyrir list- greininni meðal nemenda, — því miður „of mikill" því að skilning- urinn var ekki meiri meðal ráða- manna skólans, að fyrir vikið var námsgreinin svelt og verk- stæðið vanrækt. Með nýjum ráðamönnum og auknum skiln- ingi fyrir listgrafík almennt hefur litógrafían nú verið endur- reist og munar hér mestu um, að á sl. ári kom útiærður iðnaðar- maður í þrykkingu til skólans og hélt námskeið ásamt föður sín- um hinum fræga listamanni J. Paul Weber. Hér ber að athuga að þrykkingin í steinprenti er iðngrein og tekur nám í henni 4 ár hið minnsta. Sumir heims- frægir listamenn á þessu sviði eru t.d. börn hvað þrykkingu áhrærir. Svo við víkjum aftur að sýn- ingu Jóhönnu þá hefur hún tekið út þann þroska að hún verð- skuldar að myndum hennar verði gefinn meiri gaumur en áður og að hún á fullan rétt á því að tillit verði tekið til stöðu hennar og styrks á listasviðinu í framtíðinni, — jafnvel þótt ýms- um finnist myndir hennar lítið spennandi. Listakonunni samgleðst ég með árangurinn og landvinning- ana og hvet hana til að halda ótrauð sínu striki. Anna Concetta Fugaro Klippmyndir blandaðrar tækni, væri rétt að nefna myndir Önnu Concetta er um þessar mundir hanga uppi á veggjum matstofunnar „A næstu grös- um“. Anna bæði klippir og raðar niður ýmsum atriðum úr náttúr- unni í myndir sínar og ferst það þokkalega úr hendi. Hún virðist listræn að upplagi og tekst furðuvel að bera mikið í myndir sínar án þess að beinlínis sé um ofhlæði að ræða, en hér má einnig skjóta því að ófróðum, að það eru meistararnir sem ná miklu úr litlu! Sumar myndir Önnu eru með súrrealistísku ívafi, geta minnt á ýmsa súrreal- ista t.d. Max Ernst en hér er einhver kvenlegur þokki og blíða sem ræður ferðinni í stað frum- kraftsins í meistaranum. Myndir Önnu eru vel þess virði að þeim sé gefinn gaumur því að þær eru með því betra sem maður hefur séð af þessu tagi hérlendis og er prýði að þeim á veggjum mat- stofunnar. Bragi Ásgeirsson. Jóhanna Bogadóttir t Ánna Concetta ferðast á milli landshluta í flugvél en bíl? Þegar svo er komið, að það tekur verkamann einn og hálfan. dag að vinna sér fyrir peningum til þess að fylla tankinn á bílnum sínum, sem við skulum vona að hann eigi, þá er benzínið orðið of dýrt, alltof dýrt. Vissulega má segja, að sérstakar aðstæður hafi skapazt vegna olíuhækkunar á alþjóðavettvangi. Og auðvitað hljótum við að taka á okkur kjaraskerðingu af þeim sökum. En það er ekki sama með hverjum hætti hún kemur fram. Þegar verðið á benzíni er orðið óeðiilega hátt verður ríkið að horfa í eigin barm og draga úr gengdarlausri skattlagningu á benzínið. Nú er Morgunblaðið út af fyrir sig ekki að mæla með því að benzín eigi að vera eins ódýrt og það er í t.d. Bandaríkjunum. Þar snúast umræðurnar einmitt um það að hækka þurfi benzínverðið til þess að draga úr óhófseyðslu á benzíni og stuðla að því að fólk kaupi fremur sparneytna bíla til þess að fara ferða sinna. En benzínverðið getur líka orðið of hátt og það er orðið of hátt hér, þegar verkamað- ur er þriðjung úr vinnuviku að vinna sér fyrir tankfyllingu. Það er orðið of hátt, þegar launþegar verða að velta því fyrir sér hvort þeir hafi efni á að fara á bifreið sinni til vinnu vegna kostnaðar og hvort þeir hafi efni á að fara á bifreið sinni í ferðalag vegna kostnaðar. Það er sem sé orðin spurning um það, ekki aðeins hvort menn hafi efni á að kaupa bifreiðar á því verðlagi, sem hér tíðkast heldur einnig hitt hvort fólk hafi efni á að nota bifreiðarn- ar, ef það á annað borð getur eignast þær. Þegar þessar spurn- ingar allar vakna og sækja á er benzínið orðið of dýrt og þá verður ríkið að draga úr skattheimtu sinni og þrengja að sér. Þetta er ekkert smámál. Þetta er stórmál. Benzínhækkunin nú þýðir mjög verulega kjaraskerðingu fyrir alla launþega. Hvernig vegnar íhalds- mönnum í Bretlandi? Sigur íhaldsflokksins í Bret- landi undir forystu Margarete Thatcher hefur vakið mikla athygli af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi vegna þess, að kona verður nú í fyrsta sinn forsætis- ráðherra í Evrópuríki. Callaghan, fráfarandi forsætisráðherra Breta, sagði þegar hann lét af embætti að það væri mikil stund í sögu Bretlands, þegar kona tæki við þessu embætti í fyrsta sinn og eru það orð að sönnu. í öðru lagi vekja kosningaúrslitin athygli vegna þeirrar stefnuskrár, sem íhaldsflokkurinn brezki lagði til grundvallar kosningabaráttu sinni. íhaldsflokkurinn lofaði sumsé að lækka skatta, auka tekjur fólks og takmarka völd verkalýðshreyfingarinnar. Bretland hefur verið í stöðugri hnignun seinni hluta þessarar aldar, og þó alveg sérstaklega frá stríðslokum sem iðnaðar- og efna- hagsveldi. Ferðamenn, sem koma til Bretlands nú og fara siðan t.d. til Þýzkalands, sjá þessa hnignun með eigin augum. Vöruúrval óg vörugæði í verzlunum í London er allt annað og lélegra en það var fyrir tveimur áratugum og stenzt ekki samjöfnuð t.d. við vöruúrval og gæði í verzlunum í Þýzkalandi. Fyrir aldarfjórðungi komu stríðshrjáðir Japanir til Bretlands til þess að kynna sér bílafram- leiðslu. í dag er svo komið, að eina bifreiðaverksmiðjan í Bretlandi, sem eftir er í brezkri eign, á í samningaviðræðum við japanska bílaverksmiðju um að fá að setja saman japanska bíla í verksmiðj- um sínum af því að Bretar hafa ekki haft bolmagn til að fylgjast með tímanum í bifreiðafram- leiðslu og geta ekki boðið upp á þá bíla, sem fólk vill kaupa í sama mæli og áður. Þetta dæmi sýnir í hnotskurn hnignun Breta sem iðnaðarveldis. Ástæðurnar fyrir þessu eru vafalaust margar og verður ekki gerð tilraun til að skilgreina þær hér. Merkur brezkur blaðamaður sagði eitt sinn við höfund þessa Reykjavíkurbréfs að ástæðan væri fyrst og fremst stéttaskiptingin í Bretlandi, sem aldrei hefði tekizt að afnema og ylli því að raunveru- lega byggju tvær þjóðir á Bret- landseyjum, hinir efnameiri og hinir efnaminni og þessar tvær þjóðir næðu ekki saman heldur stæði milli þeirra stöðugt stríð. En hvað sem um það er, blasir það við almenningi í öðrum löndum, að stöðug verkföll hrjá brezkan iðnað. Á dögunum var frá því sagt í brezku blaði, að í bifreiðaverk- smiðju þar í landi hefðu 3000 manns orðið atvinnulausir vegna þess, að fjögur hundruð starfs- menn hefðu lagt niður vinnu vegna ágreinings við verksmiðju- stjórn um það, hvernig hurð ætti að vera á snyrtiherbergjum. Edward Heath vanh sinn kosn- ingasigur 1970 og ætlaði að takast á við þetta vandamál og verka- lýðsfélögin. Hann lenti í hörðum átökum við kolanámumenn 1974, tápaði kosningunum og var settur út í kuldann. Margarete Thatcher boðar nú ný átök við verkalýðs- samtökin í Bretlandi. Framtíð hennar sem forsætisráðherra í Bretlandi veltur á því hvernig henni tekst til í þeim efnum. Thatcher hefur lýst því yfir að hún hyggist stjórna Bretlandi með öðrum hætti en áður hefur verið gert. Af þeim sökum mun athygli manna mjög beinast að því, sem þar gerist á næstu misserum. 'Af því verður hægt að draga margvis- legan lærdóm fyrir aðra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.