Morgunblaðið - 06.05.1979, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.05.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1979 25 Helgi Þorláksson: V orblómið Á hverju vori hugar garöeigándinn að gróðri sínum, leitar honum skjóls og verndar, losar moldina og velur besta áburðinn. Á harðindavori á gróðurnálin erfitt uppdráttar og hana kelur oft. En á þessu ári erum við sérstak- lega minnt á skyldur okkar við annan frumgróður, börnin okkar. Við íhugum því hvar við getum hlúð betur að þeim, svo að þeim líði vei og framtíðarheill þeirra verði sem best tryggð. Við Is- lendingar stöndum þjóða fremst hvað snertir líkamlega heilsu- gæslu, en getum stundum verið í nokkrum vafa hvort andleg líðan barna sé jafn vel tryggð í vel- ferðarríki okkar. Spyrja má t.d. hvort harkan og váfréttirnar sem sífellt berast að augum og eyrum barna okkar herpi ekki þeirra sálargróður með líkum hætti og frostið nístir viðkvæman gróður moldarinnar. Fjölmiðlar og bækur eru barmafull iiltíðinda. Þau tiðindin þykja markverðust og seljanlegust prentvara í máli og myndum. Margir óttast áhrif slíkra uppeldisskilyrða. Bókin hefur verið handhægasta afþrey- ingarefni okkar og er það raunar enn. Bókin hefur mótað Islending- inn, hugsanir hans og viðhorf og svo mun áfram verða. Ábyrgð höfunda og útgefenda er því mikil. Vandi foreldra er líka sá að velja barni sínu lesefni sem jafnhliða vekur gleði og eflir þroska og þekkingu hins unga gróðurs. I glysskreyttu fánýti fjölmargra bóka og bæklinga sem fyila margar búðarhillur verður ýmsum leit að góðmeti. Það er því gleðiefni að geta bent foreldrum á lítið og ódýrt rit, sem okkur verður boðið til kaups nú um helgina. Er það ársritið Vor- blómið, sem unglingareglan hefur nú gefið út í hálfan annan áratug. Þar er ekkert ljótt að finna, ekkert sem hrellir eða veldur kali viðkvæmri barnssál, en nokkrar stuttar sögur, ljóð og leikrit auk annars efnis til skemmtunar og fróðleiks. Þrír valinkunnir kennarar, Eiríkur Sigurðsson, Ólafur Hjartar og Ragnar Þor- steinsson, hafa valið efnið að þessu sinni og er það trygging fyrir vönduðu verki. Ritið er fallegt og handhægt hvort sem er til uppelsturs fyrir börn eða í hendur barns sem sækir sér sjálft svölunar og þroska við lestur. Og viljirðu gefa barni þínu vísi að góðu bókasafni þá skaltu kanna í bókabúð Æskunnar hvað enn fæst af þeim 15 árgöngum Vor- blómsins sem áður eru komnir. Það lesefni skemmir engan en veitir marga ánægjustund. Verndum á þessu vori allan gróður — en eigi síst þann sem okkur birtist og býr í viðkvæmri barnssál. Helgi Þorláksson. Þrennir tónleikar á vegum Tónlist- arskólans Þrennir tónleikar verða haldnir nú næstu daga á vegum Tónlistar- skólans í Reykjavík. Þeir fyrstu sunnudaginn 6. maí kl. 5 í sal Menntaskólans við Hamrahlíð. Meðal annars verða þar flutt frumsamin verk og útsetningar eftir nemendur blásarakennara- deildar og stjórna þeir verkunum sjálfir. Síðan varða á mánudag og þriðjudag í Austurbæjarbíói, kl. 7.15 báða dagana, hinir árlegu vortónleikar skólans og koma þar fram þeir sem eru að ljúka píanó- kennaraprófi og burtfaraprófi á píanó ásamt nokkrum nemendum úr efstu stigum skólans. Efnisskrá EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU óskar eftir blaðburðarfólki AUSTURBÆR: □ Laugavegur 1—33 VESTURBÆR: □ Túngata □ Garöastræti ÚTHVERFI: □ Laugarásvegur 38—77 Uppl. i sima 35408 ÓTELJANDI MOGULEIKAR ELDHÚSA Stööluöu Fífu eldhússkáparnir gefa þér möguleika á aö skapa þitt eigið eldhús, eins og þú vilt hafa það. Falleg, vönduð, íslensk framleiðsla sem gerir eldhúsið heimllislegra - og ekki skemmir verðið. Komið skoðið, kynnist okkar hagstæða verði. Fífa er fundin lausn Ö A töbrekku 53, Kópavogi. Sími 43820 LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.