Morgunblaðið - 06.05.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ1979
29
Rithöfundasjóður
íslands veitir 20
víðurkenningar
Fjórar nýjar teikni-
myndasögur frá. Iðunni
STJÓRN Rithöfundasjóðs ís-
lands ákvað á fundi sínum nýlega
Tilkynnt
um 3%
aðlögun-
argjald á
iðnaðarvörur
RÍKISSTJÓRN (slands hefur til-
kynnt til Efta og EBE að fyrir-
hugað sé að taka upp svokallað
aðlögunargjald á innfluttar
iðnaðarvörur. Nemur gjaldið 3%
og sagði Þorsteinn ólafsson
aðstoðarmaður iðnaðarráðherra
að þegar sendinefndir hefðu
kynnt máiið viðkomandi rfkis-
stjórnum og hefðu þær lýst skiln-
ingi á stöðu iðnþróunar á (slandi
og væri ekki andstæða gegn
þessu gjaldi.
Þorsteinn Ólafsson sagði enn-
fremur að í undirbúningi væri
frumvarp varðandi þetta mál sem
yrði væntanlega lagt fyrir Alþingi
á næstunni, þar sem eftir ætti að
afgreiða það formlega, enda þótt
ríkisstjórnin hefði lýst yfir vilja
sínum í þessu efni.
Mest flutt inn
af Lada Sport
Á FYRSTA ársfjórðungi þessa
árs voru fluttar inn til landsins
1610 nýjar fólksbifreiðar, 61
notuð fólksbifreið, 46 nýjar
sendiferðabifreiðar og 5 notað-
ar, 69 nýjar vörubifreiðar og 16
notaðar, og 7 annars konar
bifreiðar, eða samtals 1814
bifreiðar. Til samanburðar má
geta þess, að á árinu 1978 voru
á sama tíma fluttar inn 2265
bifreiðar, eða 451 bifreið fleira
en nú.
Langmest var flutt inn af
Lada Sport bifreiðum frá Sovét-
ríkjunum, eða 253 bifreiðar. Frá
Japan komu 95 bifreiðar af
gerðinni Subaru 1600, frá Sví-
þjóð komu 88 bifreiðar af gerð-
inni Volvo 244, frá Japan 81
bifreið af gerðinni Mazda 929, og
80 bifreiðar af gerðinni Mazda
að úthluta 20 rithöfundum úr
Rithöfundasjóði f viðurkenninga-
skyni á þessu ári. Nemur viður-
kenningin kr. 500 þúsund fyrir
hvern um sig.
Rithöfundarnir eru:
Birgir Svan Símonarson, Böðvar
Guðmundsson, Dagur Sigurðar-
son, Erlingur E. Haildórsson,
Gréta Sigfúsdóttir, Guðmundur L.
Friðfinnsson, Guðrún Helgadóttir,
Hafliði Vilhelmsson, Herdís Egils-
dóttir, Jenna Jensdóttor, Jón Dan,
Kári Tryggvason, Kristján Karls-
son, Óskar Aðalsteinn Guðjóns-
son, Ragnar Þorsteinsson, Sigurð-
ur Róbertsson, Torfey Steinsdótt-
ir, Þóroddur Guðmundsson, Þor-
steinn Marelsson, örnólfur Árna-
son.
Stjórn Rithöfundasjóðs skipa
nú Ingimar Erlendur Sigurðsson
rithöfundur, Kristinn Reyr rithöf-
undur og Runólfur Þórarinsson
stjórnarráðsfulltrúi.
Bókaútgáfan IÐUNN hefur
gefið út fjórar nýjar teikni-
myndasögur: Fláráður stórvesír
heitir fyrsta bókin í nýjum
flokki um ævintýri kalífans
Harúns hins milda.
Textahöfundur er Goscinny sem
einnig gerði textann í sögunum
um Ástrík sem víðkunnar eru, en
teikningar gerði Tabary. — í
þessari sögu segir frá kalífanum
í Bagdad og stórvesír hans sem
er ekki allur þar sem hann er
séður og metorðagjarn í meira
lagi. Einkaþjónn Fláráðs hét
Fáráður en var ekki eins
heimskur og ætla mætti ...
Bókin er gefin út í samvinnu við
Gutenbergshus í Kaupmanna-
hhöfn.
Maður að nafni Mac Coy
heitir önnur bókin um þessa
söguhetju og tilheyrir hún
Vestrasafninu svokallaða. Hér
segir af Alexis Mac Coy sem var
liðsforingi í her Suðurríkjanna í
1 borgarstyjöldinni í Banda-
ríkjunum og mannraunum hans.
Handrit samdi J. P. Gourmelen
en teikningar eru eftir A. H.
Palacios. Bókin er prentuð í
Finnlandi. Þá eru tvær bækur
eftir teiknarann Franquin:
Hrakfarir og heimskupör heitir
önnur bókin um Viggó viðutan.
Á frummálinu heitir sú persóna
Gaston og segir hér af mörgum
hugvitsamlegum en mismunandi
gagnlegum uppfinningum hans.
Fimmta bókin í flokknum um
Sval og félaga nefnist Svaðilför
til Sveppaborgar. Segir þar frá
Sval og Val og förunautum
þeirra. Undradýrinu Gormi og
íkornanum Pésa, sem nú hvíla
sig frá annríki blaðamennskunn-
ar og aka upp í sveit.
Tvær síðasttöldu bækurnar
eru gefnar út í samvinnu við
A/S Ingerpresse. Jón Gunnars-
son þýddi þær allar.
Gísli Magnússon
Halldór Haraldsson
Tvö píanó /Two Pianos
ígor Stravinskí:
Vorblót./Le sacre du printemps.
Witold Lutoslawski:
Tilbrigöi um stef eftir Paganini/Variations
on a theme by Paganini.
Það hefur verið langþráður draumur að gefa út íslenska
nútímaklassisk leikna af íslensku tónlistafólki. Nú er sá
draumur að rætast. Hljórnplata Manuelu Wiesler flautuleik-
ara og hljómplata þeirra Gísla Magnússonar og Halldórs
Haraldssonar píanóleikara eru tvær þær fyrstu af stórri
útgáfuröð klassiskra nútímaverka eftir íslensk (»g erlend
tónskáld flutt af íslenskum tónlistarfólki.
Þeir Gísli og Halldór eru í leik sínum eins og samvaxnir
tvíburar. Með þeim er algjört jafnræði.
Eyjólfur Melsteð
Dagblaðið 2 5 '79
í 1 lit ! 1
ISLENSK TONSKALD OG TONLISTAFOLK
DREIFING sUinor